Fleiri fréttir

Var reið og dreymdi um að sleppa

Austurríska stúlkan Natascha Kampusch segist hafa verið mjög reið þau átta ár sem mannræninginn Wolfgang Priklopil lokaði hana niðri í gluggalausum kjallara í nágrenni Vínar. Natascha kom fram í 40 mínútna löngu sjónvarpsviðtali í gærkvöld í fyrsta skipti frá því hún stakk af úr prísundinni þann 23. ágúst síðastliðinn.

Keypti og seldi fólki úldið kjöt

Georg Bruner, 74 ára þýskur heildsali, fannst látinn heima hjá sér í Berlín í gær. Svo virðist sem hann hafi framið sjálfsmorð. Hann hafði orðið uppvís að því að selja gamalt kjöt í stórum stíl til 2.500 fyrirtækja í Þýskalandi og 50 að auki í Austurríki, Hollandi og fleiri nágrannaríkjum.

Bush viðurkennir leynifangelsi

George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í fyrsta skipti í gær að leynifangelsi hefðu verið rekin á vegum bandarísku leyniþjónustunnar. Hann sagði yfirheyrsluaðferðir leyniþjónustunnar mikilvægar en neitaði að fangar hafi verið pyntaðir.

Andalæknar skrifa vottorð

Hefðbundin afrísk læknisráð standa styrkum fótum í Simbabve og þótti það staðfest á dögunum þegar heilbrigðisráðherra landsins samþykkti að um fimmtán hundruð andalæknar og græðarar fengju hér eftir réttindi til að úrskurða um veikindi almennings. Þeir fá jafnframt leyfi til að gefa út vottorð þess efnis að fólk fái veikindafrí í vinnu.

Þrýstingur eykst á Leijonborg

Fram kom í gær að alls væru þrír starfsmenn sænska Þjóðarflokksins grunaðir um aðild að tölvunjósnum hjá Jafnaðarmannaflokknum og þrýstingur jókst á flokksformanninn að víkja. Hneykslið sagt geta ráðið úrslitum.

Neyddi kvalara sinn til að halda upp á jól

Natascha Kampusch rauf í gær þögnina í þremur viðtölum, þar sem hún tjáði sig um vistina hjá mannræningjanum Wolfgang Priklopil. Hún segist hafa látið sig dreyma um að höggva af honum hausinn og hugsaði stöðugt um flótta.

Viðtal við Kampusch birt

Natascha Kampusch, austurríska stúlkan, sem var í haldi mannræningja í átta ár, eða frá tíu ára aldri, segist einvörðungu hafa hugsað um að flýja á meðan hún var í haldi. Hún hafi einu sinni kastað sér út úr bíl hans á ferð og oft hugsað um að skera af honum höfuðið.

Bush viðurkennir tilvist leynifangelsa

George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í kvöld að rekin væru leynifangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, um leið og hann tilkynnti að 14 meintir hryðjuverkamenn úr æðstu stöðum hafi verið fluttir í Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu.

Viðtal við Natöschu Kampusch birt

Natascha Kampusch, austurríska stúlkan, sem var í haldi mannræningja í átta ár, eða frá tíu ára aldri, segist einvörðungu hafa hugsað um að flýja á meðan hún var í haldi. Þetta kemur fram í viðtali við austurríska vikuritið News sem kom út í dag.

Þjarmað að Blair

Sjö þingmenn breska Verkamannaflokksins hafa sagt af sér til að mótmæla því að Tony Blair forsætisráðherra skuli ekki hafa tímasett brotthvarf sitt úr embætti. Blair segir að þeir séu svikarar.

Fá frest til laugardags til að leggja fram sannanir

Danska leyniþjónustan hefur frest til klukkan þrjú á laugardaginn til að leggja fram sannanir gegn sjömenningunum sem grunaðir eru um undirbúning hryðjuverka í Danmörku. Aðeins tveir þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær.

Nær ólæknanlegt afbrigði berkla

Berklasérfræðingar funda í Suður-Afríku út af nýju afbrigði berklasjúkdómsins sem þeir segja nær ólæknanlegt. Nýja afbrigðið leggst sérstaklega þungt á eyðnisjúklinga og óttast sérfræðingar því sérstaklega um eyðnihrjáðar byggðir Afríku.

Tveir í gæsluvarðhald og einangrun

Tveir þeirra sjö sem eru í haldi dönsku lögreglunnar fyrir meinta hryðjuverkaskipulagningu í úthverfi Óðinsvéa í gær voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í einangrun í nótt.

Dæmd til dauða fyrir heróínsmygl

Áfrýjunardómstóll í Indónesíu hefur dæmt fjögur áströlsk ungmenni til dauða fyrir tilraun þeirra til að smygla heróíni frá indónesísku ferðamannaeynni Balí til Ástralíu á síðasta ári.

Kiko Japansprinsessa eignast son

Kiko Japansprinsessa eignaðist son í gærkvöldi japönsku þjóðinni til mikillar gleði og keisarafjölskyldunni til talsvers léttis. Sveinbarnið er fyrsti strákurinn sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í 40 ár og slær því á allar áhyggjur um erfingjaskort að keisarakrúnunni en lögum samkvæmt mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina.

Auka álag á sorphirðumenn og bæjarstarfsmenn

Danskir sorphirðumenn eru að kikna undan magni fríblaða sem hefur bæst ofan á það sorp sem fyrir var, síðan farið var að bera fríblöðin Dato og 24/7 út á heimili. Einnig segja bæjarstarfsmenn sem sjá um að halda götum og almenningsgörðum hreinum að starf þeirra hafi aukist til muna með tilkomu fríblaðanna, og þetta ástand versni til muna þegar eitthvað hreyfi vind. Deildarstjóri vega- og garðaþjónustu Árhúsa segist ekki hlakka til þegar þriðja fríblaðið bætist svo í hópinn í októberbyrjun.

Ritari Þjóðarflokksins vissi um innbrot flokksmanna

Leiðtogi sænska Þjóðarflokksins, Lars Leijonborg, viðurkenndi í gærkvöld að hafa vitað af því á sunnudag að ritari flokksins hefði verið meðvitaður um innbrot flokksmanna inn á lokað netsvæði stjórnarflokks sósíaldemókratanna.

Friðarsamkomulag hefur verið undirritað

Fulltrúi stjórnvalda í Pakistan og einn af leiðtogum herskárra hópa í héraðinu Norður-Waziristan undirrituðu í gær friðarsamkomulag sem vonir standa til að bindi enda á ófrið í héraðinu, sem liggur vestantil í norðurhluta Pakistans, þétt við landamæri Afganistans.

Of margir tilkynna veikindi

Bjarne Håkon Hanssen, vinnumálaráðherra Noregs, leitar nú leiða til að draga úr veikindafjarvistum Norðmanna. Mælingar sýna að 7,6 prósent vinnandi manna voru frá vinnu vegna veikinda á fyrsta fjórðungi þessa árs.

Dauðastríð krókódílafangarans til á myndbandi

Dauðastríð ástralska krókódílamannsins Steve Irwin var kvikmyndað og er spólan nú í höndum yfirvald í Queensland þar sem hann lést við köfun en skata stakk hann´i hjartastað þar sem verið var að taka upp þátt um hættulegustu dýr í heimi.

Blair sagður hætta næsta sumar

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, mun segja af sér embætti næsta sumar að sögn heimildarmanna breska götublaðsins The Sun. Að sögn blaðsins mun Blair hætta sem formaður Verkamannaflokksins 31. maí á næsta ári og segja af sér sem forsætisráðherra tæpum tveimur mánuðum síðar eða 26. júlí.

Tyrkir senda hermenn til Líbanons

Tyrkneska þingið samþykkti í dag að senda nokkur hundruð hermenn til Líbanons til liðs við friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna þar. Múslimar í Tyrklandi eru þessu andvígir og óttast að liðið þjóni aðeins hagsmunum Ísraela og Bandaríkjamanna.

Mannskæðar árásir á Gaza

Óttast er að nokkuð mannfall hafi orðið þegar bílsprengja sprakk á Gaza-svæðinu í kvöld. Ekki liggur fyrir hve margir féllu í árásinni.

Calderon réttkjörinn forseti Mexíkó

Sérskipaður dómstóll í Mexíkó úrskurðaðið í dag að Felipe Calderon, frambjóðandi hægrimanna, væri réttkjörinn forseti landsins. Ætla má að vinstrimenn sætti sig ekki við þessa niðurstöðu enda hefur frambjóðandi þeirra sagt kosningasvik hafa tryggt Calderon sigur.

Níu grunaðir hryðjuverkamenn handteknir í Danmörku

Danska lögreglan handtók í nótt níu menn, grunaða um skipulagningu hryðjuverka. Sjö þeirra búa í Vollsmose, einu úthverfa Óðinsvéa, þar sem meirihluti íbúanna er af erlendum uppruna. Flestir hinna handteknu eru þó danskir ríkisborgarar.

Enn barist á Srí Lanka

Enn kom til átaka mili stjórnarhermanna og uppreisnarmanna Tamíltígra í austurhluta Srí Lanka í dag. Að minnsta kosti einn hermaður féll og þrettán særðust.

Telur Breta verða farna frá Írak í lok árs 2007

Jalal Talabani, forseti Íraks, telur að allir breskir hermenn verði farnir heim frá Írak í lok næsta árs. Þessu lýsti hann yfir eftir fund með Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, í dag.

Fjórir létust í sprengjutilræði í Líbanon

Fjórir létust þegar vegsprengja sprakk nærri bifreið eins af yfirmönnum líbönsku leyniþjónustunnar í smábænum Remeile í Suður-Líbanon í morgun. Mennirnir sem létust voru allir lífverðir yfirmannsins sem heitir Samir Shehadeh, en hann særðist í tilræðinu ásamt þremur öðrum.

Hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið

Níu ungir menn voru handteknir í Óðinsvéum í Danmörku í nótt, grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Danska leyniþjónustan hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið.

Huntley fluttur meðvitundarlaus á spítala

Ian Huntley, maðurinn sem dæmdur var fyrir morðin á tveimur stúlkum í Bretlandi árið 2003, var fluttur á sjúkrahús eftir að hann fannst meðvitundarlaus í fangaklefa sínum. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti Bretlands í dag.

Níu handteknir í Óðinsvéum vegna hryðjuverkaundirbúnings

Lögreglan í Óðinsvéum í Danmörku handtók í nótt níu karla sem grunaðir eru um að leggja á ráðin um hryðjuverk. Mennirnir eru á aldrinum átján til þrjátíu og þriggja ára, bæði danskir að uppruna og innflytjendur.

Grass kynnir æviminningar sínar

Þýski Nóbelsverðlaunahafinn í bókmenntum, Gunther Grass, kynnti nýjustu bók sína, sem eru æviminningar höfundarins, í Berlín í gær. Í bókinni greinir Grass meðal annars frá því að hann hafi starfað tilneyddur innan SS-sveita nazista síðustu mánuði síðari heimsstyrjaldar, þá 17 ára gamall.

Magn koltvísýrings í andrúmslofti aldrei meira

Borkjarnar úr íshellu Suðurskautslandsins staðfesta tilgátur vísindamanna um að magn koltvísýrings í andrúmslofti hafi aldrei verið meira, að minnsta kosti ekki síðustu 800 þúsund árin.

Atlantis líklega í loftið á morgun

Líklegt er talið að NASA, Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, geti skotið geimferjunni Atlantis á loft frá Flórída á morgun. Upphaflega átti geimskotið að fara fram þann 27. ágúst síðastliðinn en fresta þurfti skotinu þá eftir að eldingu laust niður í skotpallinn skömmu áður.

Bílsprengja fellir tvo í Suður-Líbanon

Að minnsta kosti tveir eru látnir og einhverjir særðir eftir að sprengja sprakk í bifreið yfirmanns innan líbönsku leyniþjónustunnar fyrir stundu. Ekki er vitað hvort hann sé annar hinna látnu.

Vinnuveitendur skoði tölvupóst

Yfir helmingur Finna myndi gefa vinnuveitanda sínum leyfi til að fylgjast með tölvupóstsumferð sinni ef grunsemdir vakna um að leynilegar, vinnutengdar upplýsingar eru sendar út af vinnustaðnum.

Enn ein sprengingin í Tyrklandi

Sprengja sprakk nærri skrifstofubyggingu stærsta stjórnmálaflokks Tyrklands í borginni Izmir í morgun. Fyrstu fregnir herma að enginn hafi látist eða særst í sprengingunni en samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum var sprengjan falin í ruslutunnu.

Enginn friður í Darfúr

Súdönsk yfirvöld segjast undirbúa átök við friðargæslulið SÞ og hvetja Afríkubandalagið til að hverfa frá héraðinu. Friðarhorfur eru ekki góðar, að mati Magneu Marinósdóttur alþjóðastjórnmálafræðings.

Mannskætt lestarslys í Egyptalandi

Fimm fórust og 30 slösuðust þegar farþegalest og flutningalest lentu saman í Egyptalandi í gærkvöldi. Slysið átti sér stað nærri bænum Shebin al-Qanater, norður af höfuðborginni Kaíró, en aðeins eru tvær vikur síðan tvær lestar lentu saman á svipuðum slóðum. Þá létust 58 manns.

Byssumaður myrðir ferðamann í Jórdaníu

Erlendir ferðamenn í Jórdaníu eru felmtri slegnir eftir að byssumaður varð einum ferðamanni að bana og særði fimm þegar skotið var á hóp ferðalanga í höfuðborginni, Amman í dag. Árásamaðurinn var þegar handtekinn en hann lét til skarar skríða fyrir utan hringleikahús sem ferðamenn sækja í hópum á sumri hverju.

Gíslataka í rússnesku fangelsi

Rússneskum sérsveitarmönnum tókst í dag að frelsa menn sem gæsluvarðhaldsfangar í fangelsi í Moskvu tóku í gíslingu. Engan mun hafa sakað í atganginum en heyra mátti skothríð og sprengingar úr nokkurri fjarlægð.

Sjá næstu 50 fréttir