Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flug- og hafnbanni aflétt Ísraelar hafa aflétt bæði flug- og hafnbanni í Líbanon en það hefur verið í gildi frá því átök milli ísraelskra hermanna og skæruliða Hizbollah hófust í suðurhluta landsins í júlí. Flugbanninu var aflétt í gær en Ísraelar vildu bíða með að aflétta hafnbanninu þar til floti á vegum friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna væri kominn á svæðið. 8.9.2006 23:15
Mannskæð árás í Kabúl Að minnsta kosti 16 manns féllu og fjölmargir særðust þegar bílsprengja sprakk nálægt sendiráði Bandaríkjamanna í Kabúl, höfuðborg Afganistans í morgun. Skömmu síðar komu herforingar Atlandshafsbandalagsins saman til fundar í Póllandi til að ræða fjölgun í fjölþjóðlegu herliði í Afganistan. 8.9.2006 23:00
Friðhelgi aflétt af Pinochet Hæstiréttur í Chile hefur aflétt friðhelgi af Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, þannig að hægt verður að ákæra hann fyrir morð, pyntingar og mannréttindabrot í einu alræmdasta fangelsi landsins á valdatíð hans. Um er að ræða Villa Grimaldi fangelsið þar sem margir máttu sæta pyntingum á árunum 1974 til 1977, þar á meðal Michelle Bachelet, núverandi forseti Chile. 8.9.2006 22:45
Engin tengsl við al Qaeda Engin gögn fyrirfinnast sem styðja þær fullyrðingar að tengsl séu á milli Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og leiðtoga al Qaed hryðjuverkasamtakanna í Írak fyrir upphaf Íraksstríðsins 2003. Þetta kemur fram í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem unnin var í fyrra og Öldungadeild Bandaríkjaþings birti í dag. 8.9.2006 22:30
Ólæti í Þessalóníku Stuðningsmenn nær gjaldþrota knattspyrnuliðs á Grikklandi ruddust inn á leikvöll liðsins í Þessaloníku í kvöld þar sem forsætisráðherra landsins var að flytja árlega ræðu sínum um efnahagsástandið í landinu. 8.9.2006 22:20
Grunaðir um undirbúning hryðjuverka Belgíska lögreglan hefur handtekið ellefu hermenn sem eru grunaðir um að hafa safnað vopnum til hryðjuverkaárásar. Hermennirnir eru sagðir hallir undir nýnasista. 8.9.2006 21:06
Útgöngubann eftir sprengingar Minnst þrjátíu týndu lífi og rúmlega eitt hundrað og tuttugu særðust í tveimur sprengingum í vesturhluta Indlands í morgun. Minnst tuttugu eru sagðir í lífshættu. 8.9.2006 21:01
Engin gögn um tengsli milli Saddams og al Kaída Engin gögn fyrirfinnast sem styðja þær fullyrðingar að tengsl hafi verið á milli Saddams Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og al Kaída hryðjuverkasamtakanna í Írak fyrir upphaf Íraksstríðsins 2003. 8.9.2006 20:57
Útgöngubanni komið á eftir sprengingar Minnst tuttugu og fimm týndu lífi og rúmlega hundrað og tuttugu særðust í tveimur sprengingum í Malegaon á vesturhluta Indlands í morgun. Minnst tuttugu eru sagðir í lífshættu. Ekki er fullvíst hvað olli sprengingunum en grunur leikur á að um sprengjuárásir hafi verið að ræða. Útgöngubann hefur verið sett á í hluta borginni sem er fjármálamiðstöð Indlands. 8.9.2006 15:45
Geimskoti Atlantis frestað aftur Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, hefur enn á ný frestað geimskoti geimferjunnar Atlantis. Áætlað var að skjóta henni á loft um klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Sú ástæða er gefin að vandræði hafi verið í eldsneytisnemum ferjunnar. 8.9.2006 15:30
Fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna hryðjuverkasamsæris Dómstóll í Danmörku hefur úrskurðað fimm menn í gæsluvarðhald í fjórar vikur en þeir voru handteknir í Vollsmose fyrr í vikunni, grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk. 8.9.2006 15:00
Biðst afsökunar á netþjófnaði Þjóðarflokksins Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins í Svíþjóð, baðst í gærkvöldi afsökunar á því að nokkrir háttsettir flokksmenn hefðu brotist inn á lokaða vefsíðu Jafnaðarmannaflokksins í aðdraganda þingkosninganna eftir rúma viku. 8.9.2006 13:45
Staðfest að Ísraelar hafi aflétt hafnbanni Fulltrúar friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Líbanon staðfestu í dag að Ísraelar hefðu aflétt hafnbanni sínu á landið í morgun. Flugbanni var aflétt í gær. 8.9.2006 13:30
Undirbýr kæru vegna handtöku meintra hryðjuverkamanna Íslamskur trúarleiðtogi í Danmörku segir dönsku lögregluna ekki hafa neinar sannanir gegn meintum hryðjuverkamönnum sem hún handtók í Vollsmose fyrr í vikunni. Hann undirbýr kæru á hendur lögreglunni. 8.9.2006 12:45
Yfir 50 námamenn létust á Indlandi Enginn þeirra fimmtíu og fjögurra námamanna, sem sátu fastir í námu á Austur-Indlandi eftir sprengingu, sluppu lifandi úr prísund sinni. 8.9.2006 10:30
Óttast að tugir hafi látist í sprengingum á Indlandi Óttast er að minnst tuttugu og fimm hafi týnt lífi og fjölmargir særst í fjórum sprengingum á vestur hluta Indlands í morgun. Ekki er fullvíst hvað olli sprengingunum en grunur leikur á að um sprengjuárásir sé að ræða. 8.9.2006 10:00
Tæplega áttræð kona handtekin fyrir tilraun til bankaráns 79 ára gömul kona var handtekin í Chicago í Bandaríkjunum og á nú von á ákæru fyrir að hafa reynt að ræna útibú Ameríkubankans. Að sögn vitna gekk hún upp að gjaldkeraborði og sýndi gjaldkeranum byssu og krafðist 30 þúsund dollara, eða rúmlega tveggja milljóna króna. 8.9.2006 09:30
Sprenging við mosku á Indlandi Tugir manna eru sagðir hafa slasast í sprengingu fyrir utan mosku í bæ í Maharashtra-ríki á Vestur-Indlandi í morgun. Engar fregnir hafa borist af dauðsföllum en fram kemur í fréttaskeyti Reuters að þúsundir manna hafi safnast saman við moskuna fyrir föstudagsbænir. Orsakir sprengingarinnar eu óþekktar. 8.9.2006 09:15
Undirbúa kæru á hendur lögreglunni í Vollsmose Ímaminn Abu Hassan í Vollsmose í Danmörku, þar sem níu voru handteknir fyrir skipulagningu hryðjuverka, segir lögregluna ekki hafa neinar sannanir í málinu og að allt sé þetta gert til að þóknast Bandaríkjunum. Hann ætlar að safna saman fjölskyldum hinna grunuðu í dag og undirbúa kæru á hendur lögreglunni fyrir framgöngu hennar við handtökuna. 8.9.2006 09:00
Geimskot Atlantis reynt í dag Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun reyna að skjóta geimskutlunni Atlantis á loft klukkan tuttugu mínútur í fjögur í dag ef aðstæður leyfa. Vegna árekstra við dagskrá rússnesku geimferðastofnunarinnar reyndist ekki hægt að fresta skotinu til þess að skipta mætti um bilaða ljósavél sem hefur verið til vandræða. 8.9.2006 08:45
Kosningabaráttan heldur áfram að loknum kosningum Kosningabarátta forsetaframbjóðanda heldur áfram í Mexíkó þó að rúmir tveir mánuðir séu liðnir frá kjördegi. Forsetaframbjóðandi vinstri manna, Lopez Obrador, segist ætla að halda ráðstefnu á sjálfstæðisdag Mexíkó, þann 16. september, til þess að mynda aðra ríkisstjórn til höfuðs ríkisstjórn Felipe Calderons. 8.9.2006 08:30
Nýtt myndband með bin Laden Arabíska fréttastöðin Al Jazeera hefur sýnt myndband sem sagt er vera af fundi Osama Bin Laden, leiðtoga al Kaída hryðjuverkasamtakanna, með nokkrum þeirra sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin ellefta september 2001. 7.9.2006 22:19
Lægir ekki öldurnar í Verkamannaflokknum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að afsala sér ráðherraembætti og leiðtogahlutverki í Verkamannaflokknum innan árs en vill ekki tímasetja brotthvarf sitt nánar að sinni. Stjórnmálaskýrendur segja yfirlýsingu Blairs ekki lægja öldurnar í flokknum. 7.9.2006 20:34
Barcelona ber merki á treyjunni í fyrsta sinn fyrir UNICEF Fótboltafélagið Barcelona, sem Eiður Smári Guðjohnsen leikur með, og UNICEF kynntu í dag samstarf um að bæta líf barna í þróunarlöndunum sem meðal annars felur í sér að í fyrsta skipti í 107 ára sögu Barcelona skartar félagið merki á treyjum sínum, en það er merki UNICEF. 7.9.2006 17:05
Leita námamanna á Austur-Indlandi Björgunarmenn leita nú fimmtíu og þriggja námamanna sem sitja fasti í kolanámu á Austur-Indlandi. Sprenging varð í göngunum og óttast er að mennirnir hafi allir týnt lífi. Mennirnir eru grafnir um tvö hundruð metra niðri í jörðinni og litlar líkur sagðar á því að þeir finnist lifandi. 7.9.2006 16:15
Næsta flokksþing það síðasta hjá Blair Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti rétt í þessu að næsta flokksþing Verkamannaflokksins, sem verður haldið í lok september verði hans síðasta sem leiðtogi flokksins. Þar með er ljóst að hann mun segja af sér sem forsætisráðherra en Blair vildi ekki gefa hvenær nákvæmlega hann stigi niður úr stól forsætisráðherra. Sagðist hann vilja ráða því sjálfur og tilkynna um það síðar. 7.9.2006 14:04
Yfirtstjórn hermála í hendur Íraka Bandaríkjamenn hafa fært yfirstjórn hermála í Írak í hendur forsætisráðherra landsins, Nouri Maliki. Frá þessu var greint á fréttavef BBC fyrir stundu. Maliki skrifaði undir samkomulag þessa efnis við athöfn í Bagdad í dag. Búist er við að sjóherinn og flugherinn verði fyrst undir stjórn Íraka en ekki liggur endanlega fyrir hversu hratt breytingarnar ganga í gegn. 7.9.2006 12:46
Réttað á ný yfir Guantanamo-föngum Bandarískir saksóknarar segja að réttarhöld yfir föngum sem haldið hefur verið án dóms og laga í Guantanamo-búðunum á Kúbu geti haldið áfram í byrjun næsta árs. Þeirra á meðal eru skipuleggjendur hryðjuverkaárásanna ellefta september. 7.9.2006 12:30
Búist við tilkynningu frá Blair eftir hádegið Tony Blair mun láta af embætti sem forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi innan árs og mun tilkynna um það eftir hádegi. 7.9.2006 11:07
Hafnbanni aflétt í Líbanon í dag Ísraelar munu lyfta hafnbanni sínu á Líbanon klukkan sex í kvöld að íslenskum tíma. Þeir krefjast hins vegar að gulltryggt verði að Hisbollah-liðar geti ekki fyllt á vopnabirgðir sínar og munu þýsk herskip gegna lykilhlutverki í strandgæslu Líbanons. 7.9.2006 10:00
Hyggjast markaðssetja ferðir fyrir einhleypa Ferðamannasamtökin Wonderful Copenhagen í Kaupmannahöfn hyggjast markaðssetja borgina sem áfangastað fyrir einhleypa ferðamenn. Politiken greinir frá því að ráðgert sé að bjóða upp á lengri helgarferðir þar sem viðskiptavinurinn, sá einhleypi, geti sótt skemmtikvöld og farið út að borða með öðrum sem eru í sömu hjúskaparstöðu. Sölu- og markaðsstjóri samtakanna segir að um áhugaverðan markhóp sé að ræða og þarna sé óplægður akur innan ferðamannaiðnaðarins. 7.9.2006 09:15
Ráðist á sjónvarpsfréttamann Sjónvarpsfréttamaður í San Diego þurfti að leggjast inn á sjúkrahús eftir að maður og kona sem hann var að fylgjast með fyrir sjónvarpsþátt réðust á hann, börðu og bitu. Fréttamaðurinn hafði komist á snoðir um umfangsmikið fasteignasvindl sem maðurinn stóð fyrir og var að taka viðtal við annan mann í tengslum við málið. 7.9.2006 09:15
Mikið um HIV smit hjá ungum körlum í Danmörku Fjöldi ungra manna sem hafa smitast af hiv er einn sá mesti í Danmörku síðan árið 1994. Politiken greinir frá því að um sé að ræða karlmenn undir 30 ára aldri sem hafi smitast af veirunni eftir kynmök með öðrum karlmanni. 7.9.2006 09:00
Calderon réttmætur sigurvegari kosninganna Felipe Calderon tók í gær við skjali frá kosningadómstól Mexíkó sem vottar það að hann sé réttmætur sigurvegari forsetakosninganna sem fram fóru í júlí síðastliðnum. Forseti kosningadómstólsins bað alla Mexíkóa að hætta að deila innbyrðis og brúa gjárnar sem mynduðust í kjölfar forsetakosninganna. 7.9.2006 09:00
Var reið og dreymdi um að sleppa Austurríska stúlkan Natascha Kampusch segist hafa verið mjög reið þau átta ár sem mannræninginn Wolfgang Priklopil lokaði hana niðri í gluggalausum kjallara í nágrenni Vínar. Natascha kom fram í 40 mínútna löngu sjónvarpsviðtali í gærkvöld í fyrsta skipti frá því hún stakk af úr prísundinni þann 23. ágúst síðastliðinn. 7.9.2006 08:45
Keypti og seldi fólki úldið kjöt Georg Bruner, 74 ára þýskur heildsali, fannst látinn heima hjá sér í Berlín í gær. Svo virðist sem hann hafi framið sjálfsmorð. Hann hafði orðið uppvís að því að selja gamalt kjöt í stórum stíl til 2.500 fyrirtækja í Þýskalandi og 50 að auki í Austurríki, Hollandi og fleiri nágrannaríkjum. 7.9.2006 08:15
Bush viðurkennir leynifangelsi George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í fyrsta skipti í gær að leynifangelsi hefðu verið rekin á vegum bandarísku leyniþjónustunnar. Hann sagði yfirheyrsluaðferðir leyniþjónustunnar mikilvægar en neitaði að fangar hafi verið pyntaðir. 7.9.2006 08:08
Viðtal við Kampusch birt Natascha Kampusch, austurríska stúlkan, sem var í haldi mannræningja í átta ár, eða frá tíu ára aldri, segist einvörðungu hafa hugsað um að flýja á meðan hún var í haldi. Hún hafi einu sinni kastað sér út úr bíl hans á ferð og oft hugsað um að skera af honum höfuðið. 6.9.2006 23:15
Bush viðurkennir tilvist leynifangelsa George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í kvöld að rekin væru leynifangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, um leið og hann tilkynnti að 14 meintir hryðjuverkamenn úr æðstu stöðum hafi verið fluttir í Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu. 6.9.2006 22:56
Viðtal við Natöschu Kampusch birt Natascha Kampusch, austurríska stúlkan, sem var í haldi mannræningja í átta ár, eða frá tíu ára aldri, segist einvörðungu hafa hugsað um að flýja á meðan hún var í haldi. Þetta kemur fram í viðtali við austurríska vikuritið News sem kom út í dag. 6.9.2006 20:26
Þjarmað að Blair Sjö þingmenn breska Verkamannaflokksins hafa sagt af sér til að mótmæla því að Tony Blair forsætisráðherra skuli ekki hafa tímasett brotthvarf sitt úr embætti. Blair segir að þeir séu svikarar. 6.9.2006 20:11
Fá frest til laugardags til að leggja fram sannanir Danska leyniþjónustan hefur frest til klukkan þrjú á laugardaginn til að leggja fram sannanir gegn sjömenningunum sem grunaðir eru um undirbúning hryðjuverka í Danmörku. Aðeins tveir þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær. 6.9.2006 12:45
Nær ólæknanlegt afbrigði berkla Berklasérfræðingar funda í Suður-Afríku út af nýju afbrigði berklasjúkdómsins sem þeir segja nær ólæknanlegt. Nýja afbrigðið leggst sérstaklega þungt á eyðnisjúklinga og óttast sérfræðingar því sérstaklega um eyðnihrjáðar byggðir Afríku. 6.9.2006 12:20
Segja að Blair verði farinn innan árs Dagblöð í Bretlandi greina frá því í dag að Tony Blair muni hætta sem forsætisráðherra Bretlands fyrir júlílok á næsta ári. 6.9.2006 10:58
Tveir í gæsluvarðhald og einangrun Tveir þeirra sjö sem eru í haldi dönsku lögreglunnar fyrir meinta hryðjuverkaskipulagningu í úthverfi Óðinsvéa í gær voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í einangrun í nótt. 6.9.2006 10:12