Fleiri fréttir

Hjálpargögn komust loks til Kana

Bílalest með hjálpargögnum komst til Kana í Líbanon nú í morgun, þrátt fyrir að Ísraelar haldi loftárásum sínum áfram í Líbanon. Ísraelskur landher sækir nú lengra inn í Suður-Líbanon til að berjast gegn skæruliðum Hisbollah.

Indversk skólarúta endaði í skurði

Minnst sex börn létust þegar skólarúta skall ofan í skurð á Norður-Indlandi í morgun. Um það bil fimmtíu börn voru í rútunni þegar slysið varð. Íbúar á svæðinu stukku þegar ofan í vatnið til að reyna að bjarga sem flestum. Búið er að bjarga tólf börnum.

Tony og tortímandinn ætla að berjast gegn mengun

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, ætla að sniðganga ríkisstjórn George Bush, og finna sameiginlegar leiðir til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Mörgæsir aftur til heimkynna sinna

49 Magellan mörgæsum var sleppt aftur út í náttúruna eftir að þeim var bjargað úr olíuflekk við strendur Suður-Argentínu í maí. Þær voru frelsinu fegnar þegar þeim var sleppt aftur á kaldri strönd í Patagóníu, með málmhring um löppina til merkingar.

Kenna hvorir öðrum um ofbeldið

Fulltrúar Líbanons og Ísraels kenndu hvorir öðrum um sprenginguna í Kana á aðfaranótt sunnudags, þegar þeir ávörpuðu fund öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi.

Meira herlið til Líbanons

Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í morgun tillögu Amir Peretz, varnarmálaráðherra, að senda meira herlið inn í Suður-Líbanon til að berjast gegn skæruliðum Hisbollah. Tillagan var samþykkt samhljóða, stuttu eftir að Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels útilokaði vopnahlé svo lengi sem Ísraelar teldu öryggi sínu ógnað.

Kastró stígur af stóli til hvíldar

Fídel Kastró, einræðisherra á Kúbu mun láta tímabundið af leiðtogaembætti Kúbu meðan hann leggst inn á sjúkrahús. Bróðir hans stendur í brúnni á meðan.

Ekkert vopnahlé í Líbanon í bráð

Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að ekkert verði af vopnahléi í Líbanon í bráð. Forseti Egyptalands segir hættu á að friðarferlið í Mið-Austurlöndum öllum verði að engu ef árásum á Suður-Líbanon verði ekki hætt.

Fleiri ísraelskir hermenn kallaðir til þjónustu

Ísraelar halda áfram loftárásum sínum í Suður-Líbanon, þrátt fyrir heit um að gefa Líbönum grið í tvo sólarhringa. Varnarmálaráðherra Ísraels boðar einnig aukinn landhernað í Líbanon. Að sögn yfirmanna í Ísraelsher er loftárásunum í dag ætlað að styðja við landhernað í Taibe í Suður-Líbanon.

Sendinefndir Indlands og Pakistans funda

Sendinefndir Indlands og Pakistans hittust í dag í fyrsta skipti frá því að sprengingar í lestakerfi Múmbei urðu á þriðja hundrað manns að bana.

Mannanafnanefnd Malasíu tekur til hendinni

Mannanafnanefnd í Malasíu stendur í ströngu þessa dagana. Nú hefur í fyrsta sinn verið gefinn út listi yfir nöfn sem fólk er hvatt til að sniðganga. Á listanum eru nöfn eins og Hitler, Skítugur Hundur og 007.

Ísraelar halda áfram árásum í Líbanon

Varnarmálaráðherra Ísraels tilkynnti í morgun að landhernaður Ísraela yrði aukinn í Líbanon á næstu dögum. Þar með renna út í sandinn vonir um að tveggja sólarhringa hlé á loftárásum gæti leitt til friðar.

Hætta á mikilli mengun í Rússlandi

Rússnesk yfirvöld vara nú við stóru umhverfisslysi eftir að ein helsta olíuleiðsla í Rússlandi lak í Bryansk-héraði í Vestur-Rússlandi. Yfir 10 ferkílómetra svæði er mengað, skógar, ár og vötn. Ekki er enn vitað hvað olli lekanum en hin 4000 kílómetra langa Drushba-olíuleiðsla getur flutt yfir 1,2 milljónir tunna af olíu á dag.

Gay Pride í Brasilíu

Sannkölluð karnivalstemning var á Copacabana-ströndinni í Rio de Janeiro í gær, þegar brasilíska Gay Pride skrúðgangan fór þar um.

Fórnarlamba minnst

Tugir Líbana söfnuðust saman á píslarvottatorginu í miðbæ Beirút í gærkvöldi til að minnast fórnarlamba loftárásanna á Kana.

Ísraelar fallast á tímabundið vopnahlé

Ísraelar hafa fallist á að gera tveggja sólarhringa hlé á loftárásum sínum í Suður-Líbanon. Þetta er gert til að hægt sé að rannsaka hvers vegna gerð var loftárás á þorpið Kana í fyrrinótt.

Ellefu létust í bíslysi í Malasíu

Ellefu manns létu lífið í rútuslysi í Malasíu í dag. Fólkið var á leið á árlega hátíð sem kristnir menn halda til dýrðar heilagri Önnu í Penang-fylki í norðurhluta landsins, þegar bíllinn rann út af veginum og fór á hvolf. Í bílnum voru 46 menn, aðallega af indverskum uppruna.

Læra að beita kylfum, ekki byssum

Tugir lögreglumanna í Afganistan útskrifuðust í dag úr skóla fjölþjóðlegu friðargæsluliðanna í Kabúl, en í skólanum lærðu þeir hvernig ber að kveða niður róstur án þess að beita byssum.

Deilt um Líbanon á fundi Öryggisráðsins

Ísraelar kröfðust þess í dag að Hisbolla skæruliðar yrðu afvopnaðir algjörlega; fyrr væri ekki hægt að semja um vopnahlé. Sendiherra Ísraels lét þessi orð falla á skyndifundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem Kofi Annan kallaði til nú síðdegis. Í nótt létu að minnsta kosti 60 óbreyttir borgarar lífið í loftárás Ísraela, þar af 37 börn.

Krefjast afvopnunar

Ísraelar kröfðust þess í dag að Hisbolla skæruliðar yrðu afvopnaðir algjörlega; fyrr væri ekki hægt að semja um vopnahlé. Sendiherra Ísraels lét þessi orð falla á skyndifundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem Kofi Annan kallaði til nú síðdegis. Í nótt létu að minnsta kosti 60 óbreyttir borgarar lífið í loftárás Ísraela, þar af 37 börn.

Öryggisráðið kemur saman klukkan þrjú í dag

Ákveðið var fyrir stundu að kalla saman Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna árásar Ísraela á bæinn Qana í nótt, sem varð 54 að bana, þar af 37 börnum. Ráðið kemur saman nú klukkan þrjú að íslenskum tíma samkvæmt ákvörðun Kofi Annans framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

Sviðsmynd nýjustu Bond myndarinnar gereyðilagðist

Sviðsmynd nýrrar kvikmyndar um James Bond, Casino Royale, gereyðilagðist í eldsvoða í Pinewood Studios kvikmyndaverinu í Buckinghamskíri á Englandi í morgun. Þegar tökum var að ljúka gaus upp mikill eldur og varð sviðsmyndin fljótt alelda. Þak kvikmyndaversins er að mestu hrunið. Ekki er vitað um slys á fólki.

Kosningar fara vel af stað í Kongó

Atkvæðagreiðsla hófst í dag í fyrstu lýðræðislegu kosningum í Afríkuríkinu Kongó í fjóra áratugi. Miklar vonir eru bundnar við kosningarnar, eftir óstjórn og ofbeldi undanfarinna ára.

54 falla í árás Ísraela á þorp í Líbanon

Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels segist munu leyfa hjálparstofnunum að fara inn í þorp í Líbanon, nálægt landamærunum við Ísrael, þar sem 54 létu lífið í loftárás í nótt. Þrjátíu og sjö þeirra sem létust voru börn. Evrópusambandið hvatti til þess skömmu fyrir hádegi að vopnahléi yrði komið á tafarlaust. Arababandalagið krefst þess að alþjóðleg rannsókn fari fram á árásinni á þorpið.

Barist á tveimur vígstöðvum

Ísraelar börðust á tveimur vígstöðvum í nótt, á svæðum Palestínumanna í Gaza og í Líbanon. Rétt fyrir dögun í morgun gerðu þeir tvær loftárásir á Gaza nálægt landamærunum við Egyptaland.

Togarar greiða lausnargjald

Norskir dómstólar hafa dæmt spænska útgerð til að greiða rúmar 342 milljónir króna í lausnargjald fyrir þrjá togara sem gripnir voru við ólöglegar þorskveiðar nálægt Svalbarða fyrr í mánuðinum. Greiðslan er innborgun á endanlega sekt útgerðarinnar, sem verður ákveðin fyrir dómstólum seinna á árinu.

Ísrael var ekki gefið "grænt ljós" á árásir

Sameinuðu þjóðirnar fjarlægja óvopnaða eftirlitsmenn sína úr Suður-Líbanon, því árásir Ísraela á Líbanon halda áfram og svara liðsmenn Hizbollah enn í sömu mynt. Talið er að á sjöunda hundrað Líbanar hafi farist í árásunum.

SÞ athuga viðbrögð stjórnar

Danskir múslimar hafa beðið nefnd Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um kynþáttahatur að kanna hvort viðbrögð dönsku ríkisstjórnarinnar við birtingu Jyllandsposten á tólf skopmyndum af Múhameð spámanni í fyrra hafi brotið í bága við milliríkjasamning sem ætlað er að vinna gegn kynþáttahatri.

Engar æfingar við Ísland

Rússneski herinn mun ekki halda neinar flotaæfingar nærri Íslandi nú eða síðar á þessu ári, að sögn Victors I. Tatarintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi.

SÞ kalla eftir lokunum

Bandaríkjunum ber að loka öllum leynifangelsum sínum þegar í stað og heimila starfsfólki Rauða krossins aðgang að hverjum þeim fanga sem haldið er í tengslum við vopnuð átök. Þetta kemur fram í skýrslu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Finnar og Danir fara heim

Norrænu friðargæslustarfi á Srí Lanka virðist vera að ljúka í núverandi mynd. Ellefu manna herlið Finna heldur heim 1. september og haft er eftir talsmanni friðargæslunnar að Danir ætli að gera slíkt hið sama. Standa þá eftir Íslendingar, Svíar og Norðmenn, en búist er við að Svíar tilkynni einnig um brotthvarf sitt áður en langt um líður.

Blair og Bush funda um stríðið í Líbanon

Ísraelski herinn hélt áfram loftárásum sínum á norðurhluta Líbanons í morgun. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hélt til fundar við George Bush, forseta Bandaríkjanna, í dag til að ræða átökin í Mið-Austurlöndum.

Svíar um fjórðungur nýnema í læknisfræði

Svíar eru um fjórðungur allra þeirra sem fá inngöngu í læknanám í Danmörku í haust. Fréttavefur danska ríkissjónvarpsins greinir frá því að rúmlega 1.100 manns munu verða teknir inn í læknanám í haust í Danmörku. Mörgum þykir hlutfall Svía vera hátt en Í Kaupmannahöfn munu Svíar verða rúmlega 40% nýnema í læknanáminu. Ástæður þessa eru að íbúum landa Evrópusambandsins eru frjálst að sækja um skólavist í öðru landi en heimalandi sínu.

Yfir áttatíu hafa látist í hitabylgju

Að minnsta kosti áttatíu hafa látist í Kaliforníu í Bandaríkjunum í hitabylgju sem gengur þar yfir. Hitabylgjan hefur staðið í tólf daga.

Olmert sýndur sem nasisti

Miryam Shomrat, sendiherra Ísraels á Noregi og Íslandi, hefur lagt fram kvörtun við Blaðamannafélag Noregs vegna skopmyndar sem birtist í norska blaðinu Dagbladet. Myndin sýndi forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, sem foringja í fangabúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni og vísaði til árása Ísraela á Palestínumenn á Gaza-svæðinu. Hún birtist hinn 10. júlí.

Fimmtán þúsund manna varalið kallað út

Ekkert dró úr átökum milli Ísraelshers og Hizbollah skæruliða í suðurhluta Líbanon í nótt. Ísraelsher hefur nú kallað út um fimmtán þúsund hermenn úr varaliði sínu til að taka þátt í átökunum.

Kjarnorka til Indverja

Bandaríkjaþing samþykkti sölu á kjarnorku til Indverja, sem fá aukið svigrúm til vopnaframleiðslu og skrifa ekki undir bann við útbreiðslu kjarnavopna. Hætta á vopnakapphlaupi.

Al-Kaída boðar árásir

Ayman al-Zawahri, Egyptinn sem sagður er standa næst Osama bin Laden að völdum í al-Kaída, hótaði í árásum um heim allan í ávarpi á myndbandi, sem sýnt var í gær.

Ísraelski herinn ritskoðaði fréttir

Á dögunum barst Fréttablaðinu frétt frá alþjóðlegu fréttastofunni Associated Press um bardaga Ísraelsmanna og Hizbollah-liða við Bint Jbail. Fréttin var vandlega merkt sem "endurskoðuð af ritskoðanda ísraelska hersins" og hafði verið stytt frá fyrri útgáfu.

Ísraelar fengu ekki grænt ljós

Í gær sagði Haim Ramon, dómsmálaráðherra Ísraels, að þar sem engin niðurstaða fékkst á alþjóðaráðstefnunni um Líbanon, sem haldin var í Róm á miðvikudag, þá hljóti Ísraelar að líta svo á að þeir hafi fengið „grænt ljós“ til þess að halda áfram árásum sínum „þangað til Hizbollah hefur verið hrakið frá Líbanon og afvopnað“.

Mesta raunlækkun í átta ár

Atvinnuleysi í Noregi mældist 2,8 prósent í júlí og hækkaði örlítið milli mánaða, úr 2,6 prósentum júnímánaðar. Töluverð lækkun hefur þó orðið síðan í fyrra, en þá mældist 3,7 prósenta atvinnuleysi í júlí.

Börn ákærð vegna morðs

Fimm skólabörn á Grikklandi á aldrinum 12 og 13 ára hafa verið ákærð fyrir morð á ellefu ára dreng, Alex Mechisvili, sem hefur verið saknað frá því í febrúar.

Hafa ekki heimild fyrir árásum

Evrópusambandið tilkynnti nú undir kvöld að Ísraelar færu villu vegar ef þeir teldu sig hafa heimild fyrir áframhaldandi árásum á Líbanon eftir fund utanríkisráðherra í Róm í gær. ESB segir að árásirnar verði að hætta tafarlaust en Ísraelar eru ekki á þeim buxunum.

Sjá næstu 50 fréttir