Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Önnur belgísku telpnanna jarðsungin Belgíska stúlkan Nathalie Mahy, sem ásamt stjúpsystur sinni var misþyrmt og myrt í síðasta mánuði, var borin til grafar í borginni Liege í morgun. 1.7.2006 15:20
Sex tvíburapör á 32 klukkustundum Sá fáheyrði atburður gerðist á fæðingardeildinni á Sparrow-sjúkrahúsinu í Lansing í Michiganríki í Bandaríkjunum í vikunni að þar komu í heimin sex tvíburapör á aðeins 32 klukkstundum. Fyrstu tvíburarnir fæddust snemma á þriðjudagsmorguninn og svo fylgdu fimm í kjölfarið. Aðeins eitt stúlkupar var í þessum fríða hópi. Allar fæðingarnar gengu hratt og vel fyrir sig og heilsast bæði mæðrum og börnum vel. Ein móðirin fæddi tvo drengi sem voru 16 merkur hvor. Ekki er vitað hvort um heimsmet sé að ræða en starfsmenn Heimsmetabókar Guinness kanna nú málið. 1.7.2006 13:45
Discovery á loft í kvöld Góðar líkur eru á að geimferjunni Discovery verði skotið á loft frá Canaveral-höfða í Flórída í kvöld. Slæm veðurspá undanfarinna daga hefur batnað mikið og þrumuveðrið á svæðinu er nánast gengið niður. 1.7.2006 13:23
Gíslinn er enn á lífi Palestínskur aðstoðarráðherra segist hafa haft spurnir af því að líðan ísraelska gíslsins væri stöðug eftir að hann fékk í sig þrjú skotsár. 1.7.2006 10:45
Hátt í sjötíu týndu lífi Að minnsta kosti 66 biðu bana þegar bílsprengja sprakk á markaði í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Þá var þingkonu úr hópi súnnía rænt af óþekktum byssumönnum. 1.7.2006 10:09
Deilt um erlent eignarhald Sala norsku fjölmiðlasamsteypunnar Orkla Media til breska fjölmiðlafyrirtækisins Mecom hefur hrundið af stað umræðu í Noregi um kosti og galla erlends eignarhalds á fjölmiðlum þar í landi. 1.7.2006 07:15
Bangsarnir gerðir þyngri Árum saman hafa bandarísk börn bætt á sig sífellt fleiri aukakílóum og verður þessi þróun heilbrigðiskerfinu þar í landi æ þyngri byrði. 1.7.2006 07:00
Telpurnar voru kyrktar Belgísku telpurnar tvær sem fundust látnar á miðvikudag í Belgíu eftir tæplega þriggja vikna leit, voru báðar myrtar, að sögn belgískra saksóknara. Þær voru báðar kyrktar og hafði eldri telpunni verið nauðgað fyrir dauða hennar. Líkin voru krufin á fimmtudag. 1.7.2006 07:00
Gagnrýnandi íslamstrúar varð ríkisstjórn að falli Hollenska ríkisstjórnin hefur sagt af sér eftir þriggja ára setu vegna ágreinings um mál þingkonunnar Ayaan Hirsi Ali, sem svipt var ríkisborgararétti sínum nýverið. Sviptingin hefur verið dregin til baka, en Hirsi Ali er farin úr landi. 1.7.2006 06:45
Beltið reyndist rangt tengt Sprengjubeltið sem fjarlægt var af manni í Stokkhólmi í Svíþjóð um síðustu helgi var rangt tengt og hefði því ekki getað sprungið í loft upp, að sögn sænsks saksóknara. 1.7.2006 06:45
14 drukknað í flóðum í Kína Að minnsta kosti 14 hafa druknað og jafn margir slasast í flóðum í suð vestur hluta Kína síðustu tvo daga. Mikið hefur rignt á svæðinu og hefur úrkoma mælst 10-15 cm. 30.6.2006 12:30
Rauði krossinn óskar eftir leyfi til að flytja hjálpargögn á Gaza Alþjóða Rauði krossinn hefur óskað eftir því að Ísraelar leyfi flutning á nauðsynlegum hjálpargöngum til íbúa á Gaza-svæðinu. Talsmaður samtakanna segir Ísraelum skylt, samkvæmt alþjóðalögum, að tryggja íbúum á svæðinu nauðsynleg lyf og önnur hjálpargögn. 30.6.2006 12:15
Bíræfið rán í Grimsby Bíræfði og þaulskipulagt rán var framið í frystigeymslu í Grimsby um síðustu helgi og er ræningjanna enn leitað, að því er fram kemur á vefsíðu Grimsby. Eftir að hafa barið næturvörð og læst framkvæmdastjóra frystigeymslunnar og son hans inni, lestuðu ræningjarnir fimm stolna frystibíla með frystum fiski, að andvirði 140 milljónir króna og komust undan. 30.6.2006 11:30
Ökumenn kúgaðir í Peking Lögreglan í Peking í Kína varaði í gær ökumenn við óvenjulegri fjárkúgunarstarfsemi sem hópur manna hefur orðið uppvís að þar í borg. Þeir hafa nefnilega stundað það að valda árekstrum við ökumenn utanbæjarbíla og heimta svo háar upphæðir í skaðabætur. 30.6.2006 11:15
Ferð Discovery verður ekki frestað Stjórnendur bandarísku Geimferðastofnunarinnar, NASA, segja að hægt verði að skjóta Discovery-geimflauginni á loft um laugardaginn eins og fyrirhugað er. Þeir segjast vissulega þurfa að taka tillit til veðurs en það eigi þó ekki að tefja áæltað geimskot. Þetta verður þá í fyrsta sinn í tæpt ár sem flauginni er skotið á loft. 30.6.2006 11:00
Bush vill nýjan herrétt Bush Bandaríkjaforseti útilokar ekki að mál fanga í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu fari fyrir herrétt þó Hæstiréttur Bandaríkjanna hafi komist að þeirri niðurstöðu að skipan slíks dómstóls sé ólögmæt. Úrskurður réttarins frá í gær er sagður mikið áfall fyrir Bandaríkjaforseta. 30.6.2006 10:45
Nýtt myndband frá bin Laden Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, vottar Abu Musab al-Zarqawi, látnum leiðtoga samtakanna í Írak, virðingu sína á nýju myndbandi sem birt var á vefsíðu íslamskra öfgamanna í nótt. (LUM) Þar hrósar hann al-Zarqawi og ver árásir hans á óbreytta borgara. Hann krefst þess einnig að bandarísk stjórnvöld afhendi ættingjum al-Zarqawi líkið af honum. Myndbandið sýnir ekki nýjar myndir af bin Laden heldur er þar gamla mynd af honum að finna, auk myndar af al-Zarqawi. Nýjar myndir hafa ekki verið teknar af bin Laden síðan í október 2004. Ekki hefur fengist formlega staðfest að þetta sé rödd bin Laden sem heyrist á myndbandinu en það er þó talið líklegt. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, fer nú yfir myndbandið sem er það fjórða frá bin Laden í ár reynist það ósvikið. 30.6.2006 10:00
Ríkisstjórn Hollands víkur Forsætisráðherra Hollands, Jan Peter Balkenende, tilkynnti í gær um afsögn ríkisstjórnar landsins, eftir að ráðherrar í einum flokka samsteypustjórnarinnar sögðu sig úr henni. Mikið ósætti hefur verið innan stjórnarinnar eftir að ráðherra innflytjendamála svipti þingkonuna fyrrverandi Hrisi Ali ríkisborgararétti á þeim forsendum að hún hefði logið til um nafn þegar hún kom til landsins árið 1992. 30.6.2006 09:45
Mannfall við landamærin í Kasmír Indverskir hermenn skutu átta menn til bana þegar þeir reyndu að smygla sér yfir landamæri indverska og pakistanska hluta Kasmírs-héraðs í morgun. Talsmaður hersins segir þá hafa verið íslamska vígamenn. 30.6.2006 09:15
Árásum á Gaza haldið áfram Ísraelskar herþotur gerðu í nótt árásir á ýmis skotmörk á Gaza-svæðinu, þar á meðal innanríkisráðuneyti heimastjórnar Palestínumanna og skrifstofur Fatah-hreyfingar Abbas, forseta, í Gaza-borg. Einn Palestínumaður er sagður hafa fallið. 30.6.2006 08:15
Konur kjósa í fyrsta sinn Þingkosningar voru haldnar í Kúveit í gær og var þetta í fyrsta sinn sem konur fengu að kjósa í hinu olíuríka arabalandi. Kjörstaðir voru kynskiptir. 30.6.2006 07:45
Fangaréttarhöld eru lögleysa Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í gær að þeirri niðurstöðu að stríðsglæparéttarhöld yfir föngum sem hafa verið í haldi í bandarískum fangabúðum á Kúbu, brjóti bæði í bága við bandarísk herlög og Genfarsáttmálana. 30.6.2006 07:15
Ríkisstjórnir heims axli meiri ábyrgð Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti á mánudag ríkisstjórnir heims til að gæta vopnabúra sinna betur og setja aukinn kraft í að eyða ólöglegum vopnum. Á alþjóðlegri ráðstefnu um ólöglega vopnasölu sem nú stendur yfir sagði Annan vopnasmyglara, þjófa og spillta embættismenn höfuðandstæðinga þeirra sem vilja koma böndum á ólöglega vopnasölu í heiminum, en þó mættu ríkisstjórnir heimsins leggja mun meira af mörkum til að sporna við henni. 30.6.2006 07:00
Búast við svari frá Íransstjórn Bandaríkin, Rússland og önnur iðnríki í hópi átta stærstu iðnríkja heims sögðust í gær vænta þess að írönsk stjórnvöld veiti svar í næstu viku við tilboði stórveldanna til lausnar deilunni um kjarnorkuáform Írana. 30.6.2006 06:45
Segir af sér vegna Hirsi Hollenski forsætisráðherrann, Jan Peter Balkenende, lýsti því yfir að þriggja ára samsteypustjórn hans muni segja af sér eftir að þrír ráðherrar sögðu sig úr henni í gær. Ætlar Balkenende að senda Beatrix drottningu bréf þess efnis í dag. 30.6.2006 06:45
Ísraelar handtaka Palestínuþingmenn Ísraelsher hélt áfram hörðum hernaðaraðgerðum á Gaza-strönd í gær. Tugir palestínskra þingmanna voru handteknir til að auka þrýsting á Palestínumenn. 30.6.2006 06:30
Fetaostsmyglari flýr tollverði Tuttugu og átta ára gamall maður, sem reyndi að smygla tveimur tonnum af fetaosti inn í Noreg, lagði á flótta þegar tollverðir gáfu honum merki um að stöðva flutningabíl sinn. 30.6.2006 05:45
Myrtir vegna Tétsníu Utanríkisráðuneyti Rússlands hefur staðfest að fjórir sendiráðsstarfsmenn Rússlands í Írak hafi verið myrtir af lítt þekktum hópi uppreisnarmanna sem talinn er tengjast al-Kaída-hryðjuverkanetinu. 30.6.2006 05:00
Fjallar um hlýnun jarðar Bandaríkjanna samþykkti á mánudag að taka til meðferðar mál, sem snýst um það hvort ríkisstjórn Bandaríkjanna beri skylda til að setja hömlur á losun gróðurhúsalofttegunda. 30.6.2006 04:45
Ísraelar handtaka palestínska þingmenn og ráðherra Spenna magnast enn á herteknu svæðunum eftir að Ísraelar handtóku fjölda palestínskra þingmanna og ráðherra. Ráðherrar sem ekki eru í höndum Ísraela hafa farið í felur. Eitt fórnarlamb átakanna var jarðsett í dag. Það var átján ára landnemi, sem palestínskir byssumenn rændu og skutu til bana. Enn er óvíst um afdrif ísraelska hermannsins sem var tekinn á sunnudag. Noam Shalit, father of kidnapped Israeli soldier, Corporal Gilad Shalit: "In this kind of situation time is crucial and every minute that passes is against us and Gilad." Ísraelskur her, grár fyrir járnum, er kominn inn á Gaza svæðið. Í gær og í nótt tóku Ísraelar átta ráðherra Hamas stjórnarinnar í Palestínu höndum, um 20 þingmenn og nærri sextíu aðra embættismenn. Aðrir ráðherrar eru í felum og stjórn Palestínu er nú óstarfhæf. (Arabic) Nasser Shaer, Palestinian deputy prime minister: (14.30) "There is a real disaster in Gaza now. In addition to the security disaster, tens or even hundreds of tanks and aeroplanes are shelling and destroying the power station which provides electricity for Gaza. This is not an action to eradicate terrorism, but a siege hurting the Palestinian people." Ísraelskar herflugvélar skutu í dag á bíl í Gazaborg, sem í voru palestínskir byssumenn. Þeir sluppu en ungur drengur meiddist. 29.6.2006 20:01
Nýtt megrunarlyf á markað Stefnt er að því að setja nýtt megrunarlyf á markað hér á landi í haust. Um er að ræða töflu sem þarf að taka daglega og er talin geta lækkað líkamsþyngd fólks um einn tíunda. 29.6.2006 19:49
Maður lét lífið í hagli Einn maður lét lífið og rúmlega hundrað manns slösuðust þegar mikil haglél féllu í Suðvestur-Þýskalandi. Haglið var á stærð við tennisbolta og olli miklum skemmdum á bílum og húsum. Bóndi á sjötugsaldri drukknaði þegar hann var að reka kýr inn í hús. Hann lenti í flóði þegar lækjarspræna varð að stórfljóti á augabragði. Talið er að tjón á mannvirkjum nemi hundruðum milljóna króna. 29.6.2006 19:44
Varaforsætisráðherra heimastjórnarinnar í haldi Ísraelskar herþyrlur skutu flugskeyti að bíl herskárra Palestínumanna í Gaza-borg í dag. Vitni segja að flugskeytið hafi þó geigað. Ísraelar hafa handtekið ráðherra og þingmenn Hamas-samtakanna til að knýja um að nítján ára ísraelskum hermanni, Gilad Shalit, verði sleppt úr haldi herskárra Palestínumanna. Meðal þeirra ráðherra sem Ísarelsmenn hafa handtekið er Nasser Shaer, vara-forsætisráðherra í palestínsku heimastjórninni. 29.6.2006 16:15
Spænsk stjórnvöld ræða við ETA Stjórnvöld á Spáni hafa ákveðið að hefja friðarviðræður við Frelsissamtök Baska, ETA. (LUM) Zapatero, forsætisráðherra Spánar tilkynnti um þetta í dag. Hann varaði við því að viðræðurnar ættu eftir að taka langan tíma og án efa reynast erfiðar. Innanríkisráðherra landsins verður síðan falið að upplýsa þing Spánar um framgang viðræðnanna. ETA tilkynnti í mars að samtökin ætluðu að leggja niður vopn sín fyrir fullt og allt. Baskar vilja stofna sjálfstætt ríki í Norður-Spáni og Suðvestur-Frakklandi. Síðan 1968 hafa 850 manns týnt lífi í hryðjuverkum sem ETA hefur staðið fyrir og átökum þeim tengdum. 29.6.2006 16:00
Herréttur í málum Guantanamo-fanga ólöglegur Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að bandarísk stjórnvöld hafi ekki vald til að láta herrétt taka fyrir mál gegn meintun hryðjuverkamönnum. Rétturinn segir þá ákvörðun brjóta gegn Genfar-sáttmálanum um meðferð stríðsfanga. 29.6.2006 15:45
Hæstiréttur Bandaríkjanna mun úrskurða um sérstakan herrétt yfir föngum í Guantanamo Búist er við að Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurði öðru hvoru megin við helgina um lögmæti þess að sérstakur dómstóll hafi verið skipaður til að fara með mál grunaðra hryðjuverkamanna sem eru í haldi Bandaríkjamanna. Réttarhlé hefst um mánaðamótin og á rétturinn eftir að taka fyrir mál Jemena sem hefur verið í haldi í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu í fjögur ár. Sá var eitt sinn bílstjóri Osama bin Ladens, leiðtoga al-Kaída hryðjuverkasamtakanna. Hæstarétti Bandaríkjanna hefur verið falið að úrskurða um lögmæti þess að skipa eins konar hérrétt til að taka á málum fanganna en samkvæmt þeim dómstól mun föngungum ekki tryggð öll sú lagavernd sem þeir hefðu annars. Á fimmta hundrað meintra hryðjuverkamanna eru í haldi í Guantanamo-fangabúðunum. 29.6.2006 12:30
Ferð Discovery frestað Líkur eru á að ekki verði hægt að skjóta Discovery-geimflauginni á loft, eins og fyrirhugað var, um helgina. Ætlun NASA, Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, var að koma flauginni út í geim síðdegis á laugardag en vegna skýjafars við Canaveral-höfða, þar sem geimskotið á að fara fram, eru um sextíu prósent líkur á því að fresta þurfi skotinu. 29.6.2006 09:00
Samkynhneigð ekki lengur geðveiki Bandaríska varnarmálaráðuneytið Pentagon hyggst nú breyta umdeildri reglugerð þar sem samkynhneigð er skráð á lista yfir "geðræna erfiðleika". Samkynhneigðir mega eftir sem áður ekki vera í bandaríska hernum en á síðasta ári voru 726 hermenn reknir úr hernum af þessari ástæðu. 29.6.2006 08:45
Verður að upplýsa morð stúlknanna sem fyrst Forsætisráðherra Belgíu flutti sjónvarpsávarp í gærkvöld þar sem hann sagði það vera algjört forgangsverkefni að komast til botns í máli stúlknanna tveggja sem fundust myrtar í borginni Liege í gær. Stúlkurnar, Stacy Lemmens sjö ára og Nataly Mahy tíu ára, voru stjúpsystur en þær hurfu fyrir þremur vikum. 29.6.2006 08:15
Landadrykkjan drepur marga Fjörutíu og tvö þúsund Rússar deyja árlega úr neyslu heimatilbúins landa, að því er Rashid Núrgalíeff, innanríkisráðherra Rússlands, greindi frá. Hann lét einnig hafa eftir sér að drykkjusýki Rússa væri "þjóðarharmleikur," sem hefði fækkað Rússum stórlega frá falli Sovétríkjanna. Á árunum 1991 til 2001 jókst áfengisneysla í Rússlandi um fjörutíu prósent, samkvæmt mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. 29.6.2006 07:30
Líkin fundust við lestarteina Belgíska lögreglan fann tvö barnslík í gær og staðfesti saksóknari síðar um daginn að þau væru af telpunum tveim sem saknað hafði verið í tæpar þrjár vikur. 29.6.2006 07:15
Á þriðja tug palestínskra ráðherra og þingmanna í haldi Spennan eykst enn fyrir botni Miðjarðarhafs. Ísraelskar hersveitir handtóku 20 þingmenn Hamas og 8 ráðherra samtakanna í morgun og í gærkvöld. Skriðdrekar Ísraelshers eru nú í röðum við landamærin á norðurhluta Gaza-svæðisins. Loftárásir Ísraela á Gaza síðan í gær hafa skemmt ýmis mannvirki en hafa ekki enn valdið neinum meiðslum á fólki. 29.6.2006 07:09
Ófriður á Gaza-strönd Ísraelsher réðst inn á Gaza-svæðið í gær til að reyna að frelsa hermann sem er þar í gíslingu. Ísraelar hóta áframhaldandi árásum. 29.6.2006 07:00
Eldri borgarar deyja úr hita Að minnsta kosti tveir eldri borgarar létu lífið í hitabylgju sem hefur gengið yfir norðurhluta Rúmeníu síðustu daga. Kona sem var að störfum við akuryrkju féll niður og lést úr hjartaáfalli og sömu sögu er að segja af áttatíu og átta ára gömlum manni sem var á leiðinni út í búð. Í einni borginni var hringt hundrað og fjörutíu sinnum á sjúkrabíl vegna ástandsins og hefur heilbrigðismálaráðneyti Rúmeníu varað fólk við uppþornun og ofreynslu í hitanum. 29.6.2006 07:00
Móðurmálið lykilatriði í lausn dæma Fólk sem hefur ensku að móðurmáli leysir reikningsdæmi á annan hátt en það sem elst upp við kínversku. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á virkni heilahvela við lausn á reikningsdæmum. 29.6.2006 06:45