Fleiri fréttir

Vitni ræðst á ákærða

Filippseysk kona réðst á bandarískan hermann í dómssal í Filippseyjum í gær, en maðurinn er ákærður fyrir að hafa nauðgað henni í nóvember síðastliðnum.

Sakborningar hefja lokavörn

Saddam Hussein, þrír aðrir sakborningar og lögmenn þeirra sögðust í gær ekki ætla að taka þátt í lokamálflutningi sakborninga og verjenda þeirra við réttarhöldin í Bagdad, þar sem Saddam og sjö aðrir sakborningar eiga yfir höfði sér þunga dóma.

Meira en 40 fórust

Enginn komst lífs af þegar farþegaflugvél fórst nærri borginni Multan í Pakistan í dag. Flugvélin var rúmlega fjörutíu ára gömul en hún var af gerðinni Fokker Friendship 27. Vélin var á leið til höfuðborgarinnar Islamabad, með viðkomu í Lahor, en tveimur mínútum eftir flugtak hrapaði hún til jarðar. Eldsneytisgeymar vélarinnar voru fleytifullir og því kviknaði mikill eldur þegar hún skall niður. Fjörutíu og einn farþegi vélarinnar og fjögurra manna áhöfn týndu lífi í þessu hörmulega slysi.

Japanar hugleiða árásir

Japanar íhuga að gera loftárásir á eldflaugapalla Norður-Kóreumanna en þeir hafa miklar áhyggjur af tilraunum þeirra með langdrægar eldflaugar.

Árásum á Gaza haldið áfram

Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að halda árásum á Gaza áfram svo lengi sem þurfa þykir. Þau segja ekki koma til greina að láta palestínska fanga í skiptum fyrir ísraelskan hermann sem skæruliðar hafa í gíslingu, eins og leiðtogi Hamas-samtakanna stakk upp á í dag.

Rússar ráða Basajeff af dögum

Hryðjuverkamaðurinn illræmdi, Shamil Basajeff, var ráðinn af dögum í morgun af rússneskum öryggissveitum. Basajeff var leiðtogi tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna en hann skipulagði meðal annars fjöldamorðin í barnaskólanum í Beslan haustið 2004.

Materazzi kallaði Zidane hryðjuverkamann

Samtökin SOS, sem berjast gegn kynþáttafordómum, fullyrða eftir heimildarmönnum sínum að Zinedine Zidane hafi skallað ítalska varnarmanninn Marco Materazzi í úrslitaleiknum á HM í gær eftir að sá ítalski kallaði hann "hryðjuverkamann."

Lokaspretturinn hafinn í réttarhöldunum yfir Saddam

Lokaspretturinn í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnum hans, hófst í dag. Aðalverjandi Saddams, auk fleiri verjenda sakborninganna, mættu þó ekki í réttinn í dag

Gassprenging líklega orsök hrunsins

Fjögurra hæða hús hrundi til grunna á Manhattan-eyju í New York í dag. Ekki liggur fyrir hvað olli þessu en talsmaður slökkviliðs New York borgar segir að við fyrstu sýn virðist sem gassprenging hafi orðið einhvers staðar í húsinu.

Hús hrynur til grunna á Manhattan

Hús hrundi til grunna á Manhattan-eyju í New York nú fyrir skemmstu. Lögregla segir líklegast að sprenging sé orsökin en vill þó ekki staðfesta það.

Basajeff ráðinn af dögum

Rússneskar hersveitir réðu Shamil Basajeff, leiðtoga tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna, af dögum í morgun.

Enginn talinn hafa lifað af

Farþegaflugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. 41 farþegi og fjögurra manna áhöfn eru talin af.

Ísraelski hermaðurinn enn í haldi

Leiðtogi Hamas, Khaled Mashaal, sagði á blaðamannafundi sem hann hélt í Damaskus í Sýrlandi í morgun að ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit yrði ekki látinn laus nema að Ísraelar létu sjálfir palestínska fanga úr haldi.

Minnst 124 létust í flugslysinu í Síberíu

Flaggað er í hálfa stöng um allt Rússland í dag og viðburðir hafa verið felldir niður til að minnast þeirra sem létust í flugslysinu í Síberíu í fyrrinótt.

Réttað yfir Saddam Hussein á ný

Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófust aftur í morgun. Þetta er lokahluti réttarhaldanna yfir Saddam Hussein og sex öðrum.

Fimm særðust í loftárásum Ísraelsmanna í nótt

Fimm særðust, þeirra á meðal átta ára stúlka, í loftárásum Ísraelsmanna nærri Gaza borg í nótt. Ísraelski herinn segir að loftárásin hafi verið gerð á bíl sem fluttihermenn Hamas-samtakanna.

Flugvél ferst í Pakistan

Flugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. Nýjustu fregnir herma að allir hafi farist. Ekki er vitað hvað olli slysinu og ekki liggur fyrir hvar slysið varð nákvæmlega eða hvernig vél fórst.

Röð bílasprengjuárása í Bagdad

Tólf biðu bana og 62 særðust í tveimur bílprengjuárásum í Austur-Bagdad í morgun. Þá létust sautján í tveimur slíkum árásum í höfuðborginni í gær, rétt hjá moskum sjía.

Flugslys í Síberíu

Talið er að hemlunarbúnaður hafi bilað þegar flugmenn Airbus A-310 farþegaflugvélar misstu stjórn á vélinni við lendingu í Irkutsk í Síberíu í fyrrinótt.

Ítalir heimsmeistarar í knattspyrnu

Ítalir urðu í gær heimsmeistarar í knattspyrnu í fjórða sinn eftir að hafa lagt Frakka að velli. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni að lokinni framlengingu.

Hafna vopnahléi

Allt virðist á leiðinni í sama farið á Gaza, eftir að Ísraelsmenn höfnuðu í gær tilboði um vopnahlé frá forsætisráðherra Palestínu. Framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna krefst þess að Ísraelsmenn leyfi hjálparstarfsmönnum að vinna óhindrað á svæðinu.

Hagvöxtur eykst

Heimsmeistaramótið í fótbolta eykur hagvöxt í Þýskalandi um núll komma þrjú prósent og tuttugu og fimm þúsund ný störf lifa áfram eftir að keppninni lýkur. Fjöldi áhorfenda er þegar mættur á Olympíuleikvanginn í Berlín, þar sem úrslitaleikurinn fer fram í kvöld.

145 létust í flugslysi í Rússlandi í morgun

145 manns fórust og 55 slösuðust þegar rússnesk Airbus A-310 farþegaflugvél fórst á flugvellinum í Irkutsk í Síberíu í nótt. Vélin rann yfir flugbrautina, skall utan í steinvegg og hafnaði loks á húsi þar sem hún brotnaði. Vélin varð alelda á skömmum tíma en um 50 manns tókst þó að forða sér úr brennanndi flakinu.

Sex ára stúlka lætur lífið í loftárás

Sex ára palestínsk stúlka lést í loftárás Ísraelshers nú undir kvöld. Það glittir þó í ljós í myrkrinu á Gasa-svæðinu, eftir að Ísraelsher dró liðsafla sinn á norðurhluta Gasa til baka í morgun.

Sjötug mamma

Sextíu og tveggja ára kona varð í vikunni sú elsta til að eignast barn í sögu Bretlands. Konan hefur verið gagnrýnd harkalega í Bretlandi fyrir að ákveða að eignast barn á sjötugsaldri.

Kallar eftir friði

Forsætisráðherra Palestínu kallaði í morgun eftir friði á Gaza svæðinu. Þá hefur Ísraelsher dregið liðsafla sinn á norðurhluta Gaza til baka yfir landamæri Ísraels. Svæðið hefur gjörsamlega logað í óeirðum undanfarna daga og enn sauð uppúr í morgun.

Komu í veg fyrir hryðjuverk

Bandaríska Alríkislögreglan, FBI, tilkynnti í dag að starfsmönnum þeirra hefið tekist að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á samgöngukerfi New York borgar. Hópur erlendra hryðjuverkamanna hafði unnið að skipulagningu hryðjuverkanna um nokkurt skeið.

Dagbækur Columbine morðingjanna gerðar opinbera

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert opinber gögn frá fjölskyldum drengjanna tveggja sem myrtu 12 skólafélaga sína og kennara í gagnfræðiskólanum Columbine árið 1998. Meðal þess sem var gert opinbert eru dagbókafærslur drengjanna.

Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraelshers

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Að minnsta kosti tuttugu og tveir Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í gærkvöld sem var einn versti átakadagur á svæðinu frá því að Ísraelsmenn réðust þar inn í leit að hermanni sem er í haldi Palestínumanna. Loftárásir Ísraela héldu áfram í nótt og í morgun og hefur Haniyeh, kallað stórsóknina glæpi gegn mannkyninu. að sögn Ísraelsher beinast aðgerðir þeirra gegn vopnuðum Palestínumönnum. Aðgerðir Ísraelsá Gaza að undanförnu eru þær umfangsmestu síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan.

Discovery tengd geimstöðinni ISS

Tenging geimskutlunnar Discovery við alþjóðlegu geimstöðina ISS gekk áfallalaust fyrir sig og er áhöfn ferjunnar nú komin um borð í geimstöðina. Á móti henni tóku rússinn Pavel Vinogradov og Bandaríkjamaðurinn Jeff Williams en áhöfnin mun dvelja í geimstöðinni í átta daga að undanskildum þjóðverjanum Thomas Reiter sem mun dvelja í geimstöðinni í hálft ár.

Bush Bandaríkjaforseti kominn á sjötugsaldur

George Bush, Bandaríkjaforseti, er sextugur í dag. Hann ætlar þó ekki að halda daginn hátíðlega. Bush gerði lítið úr aldri sínum í dag og sagði að kvöldið yrði notað til að snæða kvöldverð með stjórnmálamönnum í Chicago, þess á meðal borgarstjóranum og demókratanum Richard Daley.

Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraela

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Haniyeh segir árásirnar glæpi gegn mannkyninu en hann heimsótti fórnarlömb árásanna á Shifa spítalann í Gaza borg í kvöld.

Bandarískur hermaður játaði nauðgun og morð

Steven Green, fyrrverandi bandarískur hermaður, játaði í dag að hafa nauðgað stúlku í Írak og drepið hana og fjölskyldu hennar. Maðurinn sem er 21 árs var leystur frá störfum í hernum þar sem hann var sagður þjást af persónuleikaröskun.

Sautján látnir í átökum á Gaza í dag

Að minnsta kosti sextán Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í kvöld. Herinn hefur fengið skipanir um að ráðast enn lengra inn á Gazasvæðið. Ofbeldið í dag er það mesta síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan.

Felipe Calderon næsti forseti Mexíkó

Nú þegar búið er að telja yfir nítíu og átta prósent atkvæða í forsetakosningunum í Mexíkó er ljóst að frambjóðandi hægrimanna Felipe Calderon hefur tryggt sér nauman meirihluta. Kosningarnar fóru fram á sunnudaginn var og endurtelja þurfti atkvæðin. Felipe Calderon fór jafnframt með sigur af hólmi eftir að atkvæði höfðu fyrst verið talin. Frambjóðandi vinstrimanna, Andres Manuel Lopez Obrador, frambjóðandi vinstrimanna, ætlar ekki að sætta sig við úrslitin og segjist ætla að láta ákveðinn kjördómstól fara yfir þau. Endanleg úrslit liggja því jafnvel ekki fyrir fyrr en í september. Lopez Orbador hefur skorað á stuðningsmenn sína að fjölmenna á mótmælafund í Mexíkóborg á laugardaginn og sýna þannig stuðning við hann.

Sumarstarfsmaður forðar tuttugu bílum úr eldsvoða

Sextán ára norskur strákur í sumarvinnu á bílasölu sem selur lúxusbíla, vann aldeilis fyrir kaupinu sínu þegar kviknaði í næsta húsi við bílasöluna, um nótt. Strákurinn kom á vettvang klukkan fimm um morguninn og sá strax að eldurinn var að berast í bílasöluna. Hann fór því inn í sýningarsalinn og keyrði tuttugu bíla út, hvern á eftir öðrum, meðal annars rándýran Ferrari. Hann ræddi svo við lögregluna sem gerði ekki athugasemdir við aksturinn, þótt stráksi sé ekki kominn með bílpróf.

Hatursglæpur að dreifa áróðri

Fjórir Svíar hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæp í Hæstarétti landsins. Þeir höfðu áður verið sýknaðir í undirrétti. Mennirnir höfðu dreift fluguritum, fyrir utan skóla, þar sem því var meðal annars haldið fram að útbreiðsla alnæmis væri fyrst og fremst samkynhneigðum að kenna.

Forsætisráðherra fluttur á spítala eftir býflugnaárás

Anders Fogh, forsætisráðherra Danmerkur, var fluttur lífshættulega veikur á sjúkrahús, um síðustu helgi, eftir að svermur af býflugum réðist á hann. Forsætisráðherrann var að klippa hekk í garði sínum þegar þetta gerðist. Hann forðaði sér á hlaupum, en fékk fimm eða sex stungur í höfuðið og hálsinn.

Ekkert lát á árásum Ísraelshers

Ekkert lát virðist vera á árásum Ísraelshers á Gaza svæðinu en hernum hefur verið fyrirskipað að herða á aðgerðum sínum til að tryggja lausn hermanns þeirra sem er í haldi Palenstínumanna og koma í veg fyrir árasir á ísraelskt landsvæði. Sameinuðu þjóðirnar hafa sakað Ísrael um að hafa brjóta grundvallarreglur alþjóðlegra mannréttinda gegn óbreyttum borgurum.

Endurtalningar krafist í Mexíkó

Stuðningsmenn hins vinstrisinnaða Andres Manuel Lopez Obrador krefjast endurtalningar í Mexíkósku forsetakosningunum sem fram fóru síðustu helgi. Hinn hægrisinnaði Felipe Calderon, sem samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er sigurvegari kosninganna, er ekki tilbúinn að fallast á þær kröfur og hefur lýst yfir sigri þrátt fyri ásakanir um mistalningu á atkvæðum. Flokkur Obradors heldur því fram að ekki hafi öll atkvæði verið talin og allt að þrjár milljónir atkvæða vantað í talningu. Nú stendur yfir endurtalning 35% atkvæða og er meirihluti þeirra talin tilheyra flokki Obradors. Calderon sem er úr flokki fráfarandi forseta Vicente Fox, segist tilbúinn til að stofna stjórn með andstæðingi sínum Obrador ef til þess kemur.

Hlupu hálfnakin gegn nautahlaupi

Dýraverndunarsinnar hlupu fáklæddir og sumir jafnvel natkir um götur Pamplona á Spáni í dag til að mótmæla árlegu nautahlaupi sem verður þar í borg á föstudaginn. Aðstandendur mótmælanna telja að um það bil þúsund manns hafi tekið þátt í hlaupinu í dag en yfrvöld draga þá talningu i efa.

Sjá næstu 50 fréttir