Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Johnnie Cochran látinn Bandaríski stjörnulögfræðingurinn Johnnie Cochran lést í gær úr krabbameini, sextíu og sjö ára að aldri. Cochran skaust upp á frægðarhimininn þegar hann fékk leikarann og ruðningshetjuna O.J. Simpson sýknaðan af ákæru um að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína. 30.3.2005 00:01
Frakkar efins um stjórnarskrá Franska ríkisstjórnin hefur efnt til herferðar til að efla stuðning franskra kjósenda við stjórnarskrá Evrópusambandsins. 30.3.2005 00:01
Vargöldin heldur áfram Á annan tug manna týndi lífi í tilræðum víðs vegar um Írak í gær. 30.3.2005 00:01
Móðir jörð í hættu Ný rannsókn sýnir að stór hluti náttúrunnar hefur orðið fyrir verulegum ágangi af völdum mannfólksins. Grípa þarf strax inn í ef ekki á að fara illa. 30.3.2005 00:01
Enn á lífi eftir 36 klukkustundir Manni var bjargað úr húsarústum í Gunung Sitoli á Nias-eyju í gær, 36 klukkustundum eftir að jarðskjálftinn reið þar yfir. Vafi leikur á fjölda látinna en færri virðast þó hafa farist en óttast var í fyrstu. 30.3.2005 00:01
Rannsókninni miðar vel áfram Danska lögreglan hefur lýst eftir tveimur mönnum í tengslum við morðið á leigubílstjóranum Torben Vagn Knudsen. Líkið af honum fannst í pörtum um páskahelgina. 30.3.2005 00:01
Á annað þúsund manns taldir látnir Nú er talið víst að á annað þúsund manns hafi farist þegar öflugur jarðskjálfti skók Súmötru í gær. Yfirvöld í Indónesíu óttast að endanleg tala þeirra sem týndu lífi gæti verið hærri. Fjögurra Svía er saknað eftir skjálftann sem reyndist mun öflugri en skjálftamælar gáfu fyrst til kynna, eða 8,7 á Richter en ekki 8,2. 29.3.2005 00:01
Noregskonunugur í hjartaaðgerð Haraldur Noregskonungur var lagður inn á norska ríkissjúkrahúsið í morgun þar sem hann mun gangast undir hjartaaðgerð. Sonja drottning fylgdi eiginmanni sínum til sjúkrahússins. Gríðarlegur fjöldi blaðamanna beið konungshjónanna á staðnum en konungurinn vildi ekkert tjá sig um sjúkrahúsdvölina. 29.3.2005 00:01
Fleiri greinast með fuglaflensu Heil fjölskylda hefur greinst með fuglaflensu í Víetnam. Um er að ræða hjón og þrjú börn þeirra og greindust þau með H5N1-stofn vírusins sem reynst hefur mönnum banvænn. Fólkið er frá héraði þar sem töluvert hefur verið um fuglaflensu í kjúklingum og er talið að þau hafi borðað kjöt af sýktum fugli. 29.3.2005 00:01
Búist við gagnrýni á Annan Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, má búast við harðri gagnrýni þegar skýrsla um áætlun samtakanna um olíu fyrir mat í Írak verður birt í dag. Paul Volcker, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, stýrði gerð skýrslunnar þar sem hermt er að Annan sé gagnrýndur fyrir að koma ekki í veg fyrir hagsmunaárekstur vegna starfa sonar hans, Kojos, fyrir svissneskt fyrirtæki. 29.3.2005 00:01
Mega nota aðrar ásakanir Dómarinn í máli Michaels Jacksons hefur ákveðið að saksóknarar megi nota upplýsingar um þau tilvik þar sem Jackson hefur áður verið sakaður um níðingsskap gagnvart ungum drengjum. Alls er um að ræða fimm drengi sem sakað hafa poppstjörnuna um kynferðisbrot, en vitnin verða fleiri, meðal annars hugsanlega leikarinn Macaulay Culkin. 29.3.2005 00:01
Mótmæla tilnefningu Boltons Fimmtíu og níu fyrrverandi bandarískir erindrekar hafa undirritað bréf þar sem skipun Johns Boltons sem sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum er mótmælt. Diplómatarnir mótmæla orðum Boltons þess efnis að Sameinuðu þjóðirnar skipti einungis máli þegar þær þjóni hagsmunum Bandaríkjanna og hvetja utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings til að hafna tilnefningu hans. 29.3.2005 00:01
Slösuðust í flugvél yfir Íslandi Sex farþegar slösuðust, en þó ekki alvarlega, þegar Boeing 747 breiðþota frá United Airlines lenti í mikilli ókyrrð yfir Íslandi á leið sinni frá meginlandi Evrópu til Bandaríkjanna í síðustu viku, að því er fram kemur á vefsíðu <em>CNN</em>. Þeir sem meiddust voru ekki í sætisbeltum þegar ósköpin dundu yfir. 29.3.2005 00:01
Langur listi yfir hugsanlegt nafn Lögreglan í Kaupmannahöfn er nálægt því að bera kennsl á manninn sem fannst myrtur á hrottalegan hátt í borginni um páskana. Hún hefur nú búið til lista yfir hugsanlegt nafn mannsins og eru alls eru 50 nöfn á listanum. Fæturnir og hönd af manninum fundust á laugardag í Klerkagötu í miðborg Kaupmannahafnar og í gær fannst búkurinn í þremur hlutum í húsasundi við Aðalgötu, nokkur hundruð metra frá Klerkagötu. 29.3.2005 00:01
Rúmenskum blaðamönnum rænt í Írak Þremur rúmenskum blaðamönnum var rænt í Írak í gær. Einn þeirra náði að senda smáskilaboð úr farsíma til fjölskyldu sinnar og vinnufélaga og láta vita af því að þeim hefði verið rænt. Blaðamennirnir voru í Írak af því tilefni að forseti landsins, Traian Basescu, var í örstuttri heimsókn í Írak, en um 800 rúmenskir hermenn eru í landinu. 29.3.2005 00:01
Enn deilt um þingstörf í Írak Enn er allt upp í loft í pólitíkinni í Írak og fresta þurfti þingfundi í dag vegna deilna, meðal annars um það hver ætti að gegna embætti þingforseta. Tveir mánuðir eru síðan gengið var til kosninga en illa gengur að komast að samkomulagi um minnstu smáatriði og mynda ríkisstjórn. 29.3.2005 00:01
Hjálpargögn berast til Nias-eyju Flugvélar með hjálpargögn eru komnar til Nias-eyja við Indónesíu en þar er talið að þúsund manns hið minnsta hafi farist í öflugum jarðskjálfta í gærdag. Skjálftinn var stærri en fyrst var talið en það var lán í óláni að þessi skjálfti varð á grunnsævi og því myndaðist ekki flóðbylgja. 29.3.2005 00:01
Búið að bera kennsl á lík Danska lögreglan hefur borið kennsl á líkið sem fannst sundurbútað í miðborg Kaupmannahafnar um helgina. Rúmlega eitt hundrað vísbendingar bárust frá almenningi eftir að mynd af líkinu birtist í fjölmiðlum í gær. 29.3.2005 00:01
Myrti 27 karlmenn í Afganistan Afgönsk húsmóðir hefur játað að hafa myrt að minnsta kosti 27 karlmenn á síðustu árum og er hún því, ef rétt reynist, einhver versti raðmorðingi sögunnar. Shirin Gul, sem er 39 ára, tældi leigubílsstjóra heim til sín í te og gaf þeim kebab með róandi lyfjum. Síðan kyrkti hún mennina. 29.3.2005 00:01
Of syfjaðir til að sofa hjá Fjölmargir Bandaríkjamenn eru alltaf svo syfjaðir að þeir eiga í hjónabandsvanda, gera mistök í vinnunni og lifa jafnvel engu kynlífi lengur. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem leiðir í ljós að 75 prósent Bandaríkjamanna þjást af svefntruflunum, sem sagðar eru rót áðurnefndra vandamála. 29.3.2005 00:01
Kafnaði í kúaskít Tékkneskur vörubílstjóri hlaut heldur ömurlegan dauðdaga um helgina þegar hann varð undir átta tonnum af kúaskít. Maðurinn, sem var 34 ára, var að sturta skítnum á hauga í vesturhluta Tékklands þegar hann af einhverjum óskiljanlegum ástæðum lenti undir skítnum með þeim afleiðingum að hann kafnaði. 29.3.2005 00:01
Akajev ætlar ekki að segja af sér Askar Akajev, forseti Mið-Asíuríkisins Kirgisistans, sem flýði land í kjölfar uppreisnar í síðustu viku segist ekki ætla að segja af sér. Í viðtali við rússneska útvarpstöð í dag lýsti hann því yfir að hann teldi sjálfan sig eina réttkjörna forseta landsins og því hefði hann ekki í hyggju að segja af sér. 29.3.2005 00:01
Kippt út vegna ölvunaraksturs Breskum gamanleikara, sem er þekktur í heimalandi sínu fyrir að leika í sjónvarpsauglýsingum fyrir bifreiðatryggingar, hefur verið kippt út úr auglýsingunum eftir að hann var handtekinn um helgina fyrir ölvunarakstur. Leikarinn Vic Reeves lenti í árekstri við bæinn Kent á Englandi og var ákærður fyrir að aka undir áhrifum og fyrir að hafa stungið af frá slysstað. 29.3.2005 00:01
Farið fram á 10 ára dóm Saksóknarar í Moskvu hafa farið fram á það að rússneski olíujöfurinn Míkhaíl Khodorkovskí, aðaleigandi olíurisans YUKOS, verði dæmdur í tíu ára fangelsi ýmiss konar fyrir skatt- og fjársvik. Réttarhöldum yfir Khodorkovskí fer nú að ljúka, en þau hófust í júní á síðasta ári. 29.3.2005 00:01
Fjallgöngugarpa leitað í Japan Um tuttugu manns er saknað í fjöllum í norðurhluta Japans en fólkið fór í fjallgöngu snemma í morgun að japönskum tíma og hafði ekki skilað sér til byggða við dagsetur. Samkvæmt Kyodo-fréttastofunni er óttast að hópurinn hafi lent í slysi, en snjóbylur gekk yfir svæðið í dag. Héraðið er vinsælt meðal skíðafólks en þar er einnig að finna heitar uppsprettur sem ferðamenn sækja í. 29.3.2005 00:01
Hinn myrti var leigubílstjóri Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur ljóstrað upp hver maðurinn er sem var drepinn á hrottalegan hátt í borginni um páskana. Maðurinn hét Torben Vagn Knudsen og var leigubílstjóri í Kaupmannahöfn, en lögregla fann leigubíl hans við Aðalgötu 6, sömu götu og fæturnir og höndin fundust í. 29.3.2005 00:01
Enn einn Serbinn gefur sig fram Bosníu- Serbinn Ljubomir Borovcanin, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að þjóðarmorði, hefur ákveðið að gefa sig fram við Stríðsglæpadómstólinn í Haag. Frá þessu greindi Dragan Cavic, forseti Bosníu-Serba, í dag. Borovcanin, sem er fyrrverandi lögreglustjóri, er gefið að sök að hafa átt þátt í fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995, en þar voru nærri átta þúsund múslímar teknir af lífi í þjóðernishreinsunum Serba. 29.3.2005 00:01
Kosið um hækkun giftingaraldurs Efri deild franska þingsins greiðir atkvæði um það síðar í dag hvort hækka eigi lágmarksaldur stúlkna, sem mega giftast, úr 15 árum í 18 ár, í þeirri viðleitni að koma í veg fyrir nauðungarhjónabönd. Í meira en tvær aldir hafa gilt lög í Frakklandi sem hafa gert stúlkum kleift að gifta sig fyrr en strákar en verði lagabreytingin samþykkt mun sami lágmarksaldur gilda fyrir bæði kynin. 29.3.2005 00:01
Kom ekki að ákvörðun um samning Nefnd, sem rannsakað hefur hvernig staðið var að áætlun Sameinuðu þjóðanna um olíu fyrir mat, komst að þeirri niðurstöðu í dag að Kofi Annan, framkvæmdastjóri samtakanna, hefði ekki komið að þeirri ákvörðun að veita svissneska fyrirtækinu Cotecna, sem sonur hans Kojo starfaði hjá, samning í tengslum við áætlunina. Annan er hins vegar gagnrýndur fyrir það í skýrslunni að hafa ekki kannað nægilega vel tengsl sonar síns við fyrirtækið. 29.3.2005 00:01
Heiftarlegar deilur á Íraksþingi Upplausn er á írakska þinginu sem tekst ekki að ná samkomulagi um ríkisstjórn landsins. Deilurnar hafa leitt til þess að tafir hafa orðið á fjölmörgum verkefnum og jafnvel aukið á ringulreiðina í landinu 29.3.2005 00:01
Rúmenum rænt í Írak Þremur fréttamönnum frá Rúmeníu hefur verið rænt í Írak. Þetta staðfestu rúmensk stjórnvöld í gær. Brottnám blaðamannanna gæti reynst mikil pólitísk prófraun fyrir rúmenska forsætisráðherrann Traian Basescu og ríkisstjórn hans, en hún sendi nýlega 100 manna liðsauka í raðir rúmenska herliðsins í Írak. 29.3.2005 00:01
Annan gagnrýndur í nýrri skýrslu Í rannsóknarskýrslu sem birt var í gær um olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak segir að ekki liggi fyrir nægilegar sannanir fyrir því að Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, hafi vitað um tengsl sonar síns og svissnesks fyrirtækis sem var úthlutað verkefni í nafni áætlunarinnar. En Annan er gagnrýndur fyrir ónógt eftirlit með stjórnun hennar. 29.3.2005 00:01
Minna hafdýpi minnkaði flóðbylgju Fyrstu fréttum svipaði mjög til þeirra sem bárust á annan í jólum, þegar flóðbylgja af völdum jarðskjálfta í Indlandshafi breiddi dauða og eyðileggingu um strandríkin í kring. Jarðskjálftinn sem varð á svipuðum slóðum á mánudag reyndist þó ekki valda neinni viðlíka flóðbylgju, þar sem hann var allnokkru veikari og á minna dýpi. 29.3.2005 00:01
Skemmdir mestar á Nias-eyjum Hundruð manna eru látin eftir mikinn jarðskjálfta í Indónesíu í gær og svo virðist sem tjónið hafi orðið mest á Nias-eyjaklasanum. Hins vegar myndaðist ekki flóðbylgja líkt og í skjálftanum annan dag jóla og er það að hluta til skýrt með því að skjálftinn hafi orðið á grunnsævi. 29.3.2005 00:01
Hitti banamann sinn á krá Líkið sem fannst sundurbútað í Kaupmannahöfn um páskana, var af rúmlega fertugum dönskum leigubílstjóra. Leigubíll hans fannst yfirgefinn í dag, skammt frá þeim stað þar sem líkið fannst. Lögreglan telur hann hafa hitt banamann sinn á krá í nágrenninu. 29.3.2005 00:01
Tvö þúsund manns týndu lífi Þótt engin flóðbylgja hafi fylgt jarðskjálftanum í Bengaflóa á sunnudaginn er talið að allt að tvö þúsund manns hafi farist. Hjálpargögn eru farin að streyma til Nias-eyju en erfitt er þar um aðdrætti. 29.3.2005 00:01
Sundurlyndi á íraska þinginu Stjórnlagaþing Íraka kom saman í annað sinn í gær en bragurinn á samkomunni var annar en á fyrsta fundinum. Í stað fögnuðar og vinarþels voru komin hróp, ásakanir og rifrildi. 29.3.2005 00:01
Schiavo verður krufin Michael Schiavo, eiginmaður Terri Schiavo, segir að þegar kona sín andist muni hann láta kryfja lík hennar til að sýna fram á hversu sködduð á heila hún hafi verið. 29.3.2005 00:01
Akajev íhugar afsögn Askar Akajev, fyrrverandi forseti Kirgisistan, sagði í samtali við rússneska ríkissjónvarpið í gær að til greina kæmi að hann segði af sér embætti ef honum væri tryggð einhvers konar friðhelgi. 29.3.2005 00:01
Boston Globe átelur Íslendinga Enn fjölgar þeim fjölmiðlum sem átelja þá ákvörðun Íslendinga að veita Bobby Fischer ríkisborgararétt. Í gær birtist í bandaríska dagblaðinu Boston Globe pistill eftir Alex Beam, sem segir að Íslendingar hafi leikið alvarlega af sér með tiltæki sínu. 29.3.2005 00:01
Sonur indíánahöfðingja handtekinn Rannsókn skotárásarinnar í grunnskólanum í Red Lake í Minnesota hefur tekið nýja stefnu eftir að lögreglan handtók Louis Jourdain, son höfðingja Chippewa-ættbálksins, vegna gruns um aðild að henni. 29.3.2005 00:01
Efnafræðitilraun úr böndunum Leggja þurfti nítján nemendur í grunnskólanum í Brandrup á Jótlandi á sjúkrahús eftir að efnafræðitími endaði með skelfingu í gær. 29.3.2005 00:01
Höfuðið var af leigubílsstjóra Danska lögreglan hefur borið kennsl á líkið sem fannst hlutað í sundur í Kaupmannahöfn um helgina. Hann hét Torben Vagn Knudsen og ók leigubíl. 29.3.2005 00:01
Handtóku átta skæruliða í Jenín Ísraelskar öryggissveitir réðust inn í borgina Jenín í morgun og handsömuðu þar átta skæruliða, að sögn talsmanna ísraelsku öryggissveitanna, sem segja að skæruliðarnir hafi verið viðriðnir smíði frumstæðra flugskeyta og sprengjuvarpa sem nota hafi átt gegn ísraelskum þorpum og bæjum. 28.3.2005 00:01
Létust í sprengingu á lögreglustöð Sprenging á lögreglustöð í bænum Viseu í Portúgal kostaði lögreglumann og eiginkonu hans lífið í morgun. Talið er að rekja megi sprenginguna til sprengiefnis sem notað er í flugeldagerð en lögreglan hafði lagt hald á töluvert magn slíks sprengiefnis daginn áður. Ekki liggur fyrir hvernig á því stóð að kviknaði í púðrinu. 28.3.2005 00:01