Erlent

Myrti 27 karlmenn í Afganistan

Afgönsk húsmóðir hefur játað að hafa myrt að minnsta kosti 27 karlmenn á síðustu árum og er hún því, ef rétt reynist, einhver versti raðmorðingi sögunnar. Shirin Gul, sem er 39 ára, tældi leigubílsstjóra heim til sín í te og gaf þeim kebab með róandi lyfjum. Síðan kyrkti hún mennina. Lík af átján karlmönnum fundust grafin í bakgarðinum heima hjá henni og að auki fannst lík fyrsta eiginmanns hennar falið undir gólffjölunum í húsi hennar. Átta önnur lík fundust í nálægum görðum. Talið er að átján ára sonur Gul ásamt unnusta hennar og fjórum öðrum hafi tengst þessum morðum. Saksóknari í Afganistan hefur krafist dauðarefsingar yfir þeim öllum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×