Erlent

Létust í sprengingu á lögreglustöð

Sprenging á lögreglustöð í bænum Viseu í Portúgal kostaði lögreglumann og eiginkonu hans lífið í morgun. Talið er að rekja megi sprenginguna til sprengiefnis sem notað er í flugeldagerð en lögreglan hafði lagt hald á töluvert magn slíks sprengiefnis daginn áður. Ekki liggur fyrir hvernig á því stóð að kviknaði í púðrinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×