Ólst upp hjá kjúklingum 8. júlí 2004 00:01
Sunjit-Kumar, 32 ára frá Fídjieyjum, gengur undir nafninu kjúklingamaðurinn. Hann lærir nú að umgangast menn á nýjan leik eftir að hafa alist upp með kjúklingum. Ævi Sunjit var ein samfelld sorgarsaga þar til formaður Rótarýfélags Fídjieyja kom honum til hjálpar fyrir skemmstu. Hann var lokaður inni í herbergi fyrstu ár ævi sinnar eða allt þar til faðir hans var myrtur og móðir hans framdi sjálfsmorð. Þá fékk afi hans forræði yfir honum, en ekki tók betra við. Afinn, sem ekki vissi hvernig ala bæri drenginn upp, lét hann dveljast meðal kjúklinga frá sex til níu ára aldurs. Sunjit tókst að flýja eftir að hafa dvalið í þrjú ár á meðal fuglanna og fannst skömmu síðar illa til reika úti á þjóðvegi. Þaðan var hann fluttur á heimili fyrir eldri borgara þar sem slæmt ástand hans kom í ljós. Sunjit gat hvorki talað né gengið en gaf þess í stað frá sér fuglshljóð og hoppaði um. Umsjónarmenn heimilisins vissu ekki hvað gera skyldi við hann og bundu hann því fastann við rúm sitt. Þar dvaldi hann í heil tuttugu ár eða allt þar til Elisabeth Clayton, formaður Rótarýfélagsins á Fídjieyjum, kom honum til hjálpar. Hún leggur nú alla sína krafta í að kenna Sunjit allt það sem hann á ólært og fer honum mikið fram að hennar sögn. Þótt ótrúlegt megi virðast sýnir hann hvorki merki um einhverfu né geðsjúkdóma, þrátt fyrir þá ómannúðlegu meðferð sem hann hefur mátt þola. Það er því vonandi að honum takist að komast til manns og gæfan fari loks að taka völdin í lífi þessa ógæfusama manns.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira