Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Öskjuvatn hefur lagt á ný eftir kuldatíð síðustu vikna Öskjuvatn hefur lagt aftur eftir kuldatíð síðustu vikna og sýnir það hversu síbreytilegt umhverfið við Öskju er. Áfram er fylgst náið með eldstöðinni. 17.3.2023 14:47
„Óásættanlegt að yfir hundrað lögreglumenn slasist við störf á ári hverju“ Landssamband lögreglumanna segir í ályktun að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi lögreglumanna í starfi. Starfsstéttin búi við flest vinnuslys. Ályktunin kemur í kjölfar fréttar Vísis sem birtist í morgun, kom þar fram að fullyrðingar dómsmálaráðherra um að slysum lögreglumanna hafi fjölgað verulega standist ekki. 17.3.2023 14:31
Bjartur Steingrímsson einn af þrjátíu sem hafa kvatt VG Þrjátíu manns hafa skráð sig úr Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á síðustu tveimur dögum, eða frá því að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt. 17.3.2023 14:06
Styrkja Matvælaáætlun SÞ vegna hamfaranna í Malaví Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að verja hálfri milljón Bandaríkjadala, jafnvirði 71 milljón króna, til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna vegna neyðarástandsins sem skapast hefur í Malaví af völdum hitabeltisstormsins Freddy. 17.3.2023 13:27
Í gæsluvarðhald eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tilraun til manndráps ytra Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem handtekinn var hér á landi vegna evrópskrar handtökuskipunar. Til grundvallar handtökuskipuninni lá fyrir dómur útlensks áfrýjunardómstóls þar sem maðurinn var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til 7. apríl næstkomandi. 17.3.2023 12:47
„Alltaf mjög leitt þegar leiðir skilja í stjórnmálum“ Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, segir að það sé mjög leitt að sjá á eftir nokkrum félagsmönnum úr flokknum vegna óánægju með ný samþykkt útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Hún telur þó að þingmenn flokksins hafi unnið að málinu af heilindum og í samræmi við stefnu flokksins. 17.3.2023 11:54
Opinbert starfsfólk færist úr lokuðum skrifstofum Samkvæmt viðmiðum fjármálaráðuneytis frá árinu 2019 eiga skrifstofurými hins opinbera að færast frá lokuðum skrifstofum og yfir í verkefnamiðaða vinnuaðstöðu. Upplýsingafulltrúi Framkvæmdasýslunnar segir þessa aðstöðu taka allt inn í jöfnuna, líðan starfsfólks, skilvirkni og kostnað. 17.3.2023 11:41
Teitur Björn mun taka sæti Haraldar: „Nokkuð óvænt“ Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, mun taka sæti Haraldar Benediktssonar á Alþingi eftir að sá síðarnefndi tekur við stöðu bæjarstjóra Akraness á næstu vikum. Teitur Björn segist spenntur fyrir verkefninu. 17.3.2023 10:58
Þingmaður ráðinn bæjarstjóri Akraness Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Hann tekur við stöðunni af Sævari Frey Þráinssyni sem nýverið var ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. 17.3.2023 10:24
Stór bústaður við Apavatn var alelda þegar slökkviliðið mætti Brunavörnum Árnessýslu barst tilkynning um að kviknað væri í sumarbústað norðaustan við Apavatn klukkan rétt rúmlega sjö í morgun. Þá var bústaðurinn þegar alelda. 17.3.2023 09:44
Fullyrðingar ráðherra um verulega fjölgun slysa standast ekki skoðun Fullyrðingar Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um að slysum á lögreglumönnum hafi fjölgað verulega á síðustu árum fást ekki staðist samkvæmt gögnum frá Vinnueftirlitinu. Ráðherra hefur ítrekað vísað til þessa til að réttlæta að heimila lögreglu að bera rafbyssur. 17.3.2023 07:59
Skiptar skoðanir um að loka grunnskólanum Fundur var haldinn í vikunni með foreldrum barna sem stunda nám í Grunnskólanum austan Vatna á Hólum. Á fundinum var ræddur sá möguleiki að leggja niður starfsemi í skólanum þar sem einungis níu börn stunda þar nám núna. 17.3.2023 07:01
Tæpar 160 milljónir í sekt fyrir skattsvik Karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik. Honum ber að greiða 158 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs fyrir glæpinn innan fjögurra vikna, ella sæta fangelsi í 360 daga. 17.3.2023 07:01
Slagsmál, eldur og innbrot Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna slagsmála í Kópavogi í gærkvöldi. Tveir einstaklingar voru handteknir og vistaðir í fangageymslum vegna rannsóknar málsins. 17.3.2023 06:51
CERT-IS varar við vefveiðum í gegnum smáskilaboð Netöryggis- og viðbragðsteymi CERT-IS segir ástæða til að vara við vefveiðum í gegnum smáskilaboð, sem teymið segir hafa færst í aukana á síðustu vikum. Nýmæli er að nú virðist svindlið beinast gegn rafrænum skilríkjum fólks. 17.3.2023 06:42
Um 132 milljörðum af séreignarsparnaði verið ráðstafað í húsnæði Um 81 þúsund manns hafa frá 2014 notað einhvern hluta séreignarsparnaðar síns til að greiða niður höfuðstól húsnæðislána. Samtals hafa 132 milljarðar af séreignarsparnaði verið nýttir til að greiða inn á lán eða vegna kaupa á fyrsta húsnæði. 17.3.2023 06:24
Veðrið veldur því að fleiri fá straum en áður Þurrt og kalt veður veldur því að fólk fær í miklu mæli straum þegar það snertir málma eða raftæki þessa dagana. Rakastiginu fer hækkandi um helgina að sögn veðurfræðings. 16.3.2023 23:37
Beinlínis hættulega lítill raki á sumum heimilum Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirbergs segir að það versta fyrir loftgæði heimilisins sé að loka öllum gluggum og hækka ofna í botn. Of lítill raki á heimilinu geti beinlínis verið hættulegur heilsu. 16.3.2023 23:00
„Því miður er ekkert sérstaklega bjart yfir mér“ Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist vonsvikin yfir því að staðan í leikskólamálum sé jafnslæm og raun beri vitni. Hún vill fjölga leikskólaplássum og lagði fram tillögu í borgarráði í dag um daggæslu fyrir börn starfsmanna á stærri vinnustöðum. 16.3.2023 22:53
„Ég sé ekki fram á það verði gert neitt fyrir fólk eins og okkur“ Fjögurra manna fjölskylda neyddist til að flytja úr íbúð sinni og leigja hana út til að ná endum saman, þar sem yngsta barnið kemst ekki inn á leikskóla. Foreldrar segja nóg komið af innantómum yfirlýsingum og krefjast tafarlausra aðgerða. Mótmæli hafa verið boðuð á ný í næstu viku. 16.3.2023 21:30
Elva Hrönn hættir í VG Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi meðlimur stjórnar Vinstri grænna og varaformaður þeirra í Reykjavík, sagði sig úr flokknum fyrr í dag. Hún segist ekki geta kennt sig við hreyfingu „sem samþykkir þau mannréttindabrot sem nýsamþykkt útlendingafrumvarp felur í sér.“ 16.3.2023 21:21
Enn aukast flækjur Lindarhvolsmálsins á Alþingi Þingmenn eru enn að vandræðast með hvort opinbera eigi greinargerð frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda um eignarhaldsfélag ríkisins utan um eignir sem það leysti til sín eftir hrun bankanna. Málið verður furðulegra með hverjum deginum sem líður 16.3.2023 21:01
Krefjast breytinga og skaðabóta: „Þetta eru ár sem ég fæ ekki til baka“ Ung kona sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi hefur ásamt föður sínum höfðað skaðabótamál á hendur bænum. Þau krefjast breytinga á barnaverndarkerfinu til að koma í veg fyrir að fleiri börn „verði rænd æskunni,“ líkt og feðginin komast að orði. 16.3.2023 19:49
Forsætisráðherra ítrekar ágreining við dómsmálaráðherra um rafbyssur Forsætisráðherra er sammála umboðsmanni Alþingis um að það hefði verið betri stjórnsýsla hjá dómsmálaráðherra að ræða rafbyssuvæðingu lögreglunnar á ríkisstjórnarfundi, áður en hann gaf út reglugerð sem heimilaði notkun þessara vopna. 16.3.2023 19:45
Seðlabankinn segir þjóðaröryggi kalla á íslenska greiðslumiðlun Seðlabankinn segir það varða þjóðaröryggi að koma upp innlendri greiðslumiðlun fyrir kortagreiðslur sem allra fyrst. Bregðist bankarnir ekki við því þurfi að óska eftir lagasetningu um málið. Seðlabankastjóri segir að tryggja verði öryggi og hagkvæmni í þessum viðskiptum. 16.3.2023 19:30
Skilur ekki hvernig Persónuvernd komst að niðurstöðunni Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir úrskurð Persónuverndar sem héraðsdómur felldi úr gildi í dag vera furðulegan. Fyrirtækið hafi einungis verið að sinna því verkefni sem sóttvarnalæknir fól þeim. 16.3.2023 18:36
Staðnir að verki grunaðir um innbrotin Þrír voru handteknir í Gerðunum í dag grunaðir um innbrot í geymslur á svæðinu. Einstaklingarnir voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Meintu þýfi hefur verið skilað til eigenda. 16.3.2023 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ung kona sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi hefur ásamt föður sínum höfðað skaðabótamál á hendur bænum. Þau krefjast breytinga á barnaverndarkerfinu til að koma í veg fyrir að fleiri börn „verði rænd æskunni,“ eins og feðginin orða það. 16.3.2023 18:00
Fiskur þakti Suðurlandsveg Farmur sem innihélt fisk féll af vörubíl á Suðurlandsvegi við Svínahraun á fimmta tímanum í dag. Lögregla segir að hreinsun hafi gengið vel á vettvangi. 16.3.2023 17:45
Snjóflóð á Austfjörðum Nokkur snjóflóð hafa fallið á Austfjörðum síðustu daga, þau stærstu nálægt Eskifirði. Veik lög eru í snjónum vegna skafrennings og kuldakasts síðustu daga. Veðurstofa biður fólk um að fylgjast vel með. 16.3.2023 17:23
Kári lagði Persónuvernd Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Persónuverndar um að Íslensk erfðagreining hefði brotið persónuverndarlög í þremur málum sem sneru að notkun blóðsýna sjúklinga með Covid-19. 16.3.2023 17:11
„Meiriháttar trúnaðarbrestur“ innan ríkisstjórnarinnar Umboðsmaður Alþingis mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag vegna samráðsleysis dómsmálaráðherra um rafbyssur. Annar varaformaður nefndarinnar segir að um sé að ræða meiriháttar trúnaðarbrest milli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. 16.3.2023 17:04
Barist um tvö embætti í VG Barist verður um tvö embætti á landsfundi Vinstri grænna sem hefst í Hofi á Akureyri á morgun. Ekki hafa borist framboð til formanns og varaformanns. Á fundinum verður einnig kosnir fjörtíu fulltrúar í flokksráð. 16.3.2023 15:43
Íslensk vegabréf í 21. sæti Íslenskir ríkisborgarar geta ferðast til 147 landa án þess að þurfa til þess fyrirframfengna vegabréfsáritun („visa“). Þá geta handhafar íslenskra vegabréfa ferðast til 28 landa án þess að framvísa vegabréfi. 16.3.2023 15:26
Segir kjaraviðræður við OR hafa siglt í strand Samninganefnd VM og RSÍ segir að kjaraviðræður við Orkuveitu Reykjavíkur hafi siglt í strand. Lýst er yfir vonbrigðum með það sem samninganefndin lýsir sem óbilgjarnri og einstrengingslegri afstöðu OR í viðræðunum. 16.3.2023 14:58
Fær ekki tugmilljónir eftir bakvaktadeilu Fyrrverandi slökkviliðsstjóri slökkviliðs Snæfellsbæjar hafði ekki erindi sem erfiði er hann reyndi að sækja hátt í 40 milljónir króna sem hann taldi sig eiga inni hjá sveitarfélaginu vegna ógreiddra bakvakta. 16.3.2023 14:39
Mosfellsbær tekur á móti áttatíu flóttamönnum Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, undirrituðu í morgun samning um samræmda móttöku flóttafólks í Mosfellsbæ. Samningurinn kveður á um að Mosfellsbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að áttatíu flóttamönnum. 16.3.2023 13:54
Óttast frekar jarðakaup útlendinga því þeir vilji „vera í friði“ Formaður Samút, samtaka útivistarfélaga á Íslandi, segir að fréttir af kaupum kanadísks auðjöfurs á jörðinni Horni sé ekkert einsdæmi. Það sé enn eitt dæmið sem falli undir ferðafrelsisbaráttu samtakanna. Hann segist frekar óttast kaup erlendra aðila á íslenskum jörðum því þeir loki frekar fyrir aðgengi fólks að jörðum sínum því þeir vilji vera í friði. 16.3.2023 13:25
Of algengt að fólk leiti ítrekað til læknis áður en það fær krabbameinsgreiningu „Þetta er ekki einsdæmi því miður, og þetta eru auðvitað algjörar sorgarsögur þegar við heyrum þær. Þær eru of margar. Það er einfaldlega þannig,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastýra Krabbameinsfélagsins. 16.3.2023 13:18
Dragi úr notkun einkabíla og vinni heima vegna loftmengunar Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur borgarbúa til þess að draga úr notkun einkabíls og skorar á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu vegna svifryksmengunar í dag. Styrkur svifryks var hár í morgun og líklegt er að hann hækki aftur í síðdegisumferðinni. 16.3.2023 11:53
Varaþingmaður VG tekur þung skref og segir sig úr flokknum Varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sagði sig úr flokknum nokkrum mínútum eftir að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt í gær. Hann ætlar ekki að taka sæti aftur á þingi jafnvel þótt hann yrði kallaður inn. 16.3.2023 11:48
Foreldrar mótmæltu í ráðhúsinu: „Ætlum ekki að hætta fyrr en eitthvað gerist“ Foreldrar komu saman í ráðhúsi Reykjavíkur í morgun og mótmæltu þeirri stöðu sem enn á ný er komin upp í leikskólamálum. Dæmi er um að börn þurfi að bíða í á þriðja ár eftir leikskólaplássi. Borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins segir ástandið grafalvarlegt og það sé tilkomið vegna trassaskapar. 16.3.2023 11:46
Seðlabankastjóri segir íslenska bankakerfið með sterkar varnarlínur Seðlabankastjóri segir ekki hægt að útiloka að vandræði smærri banka í Bandaríkjunum smitist til annarra landa. Íslenska bankakerfið væri hins vegar undir strangasta eftirlit sem þekktist á Vesturlöndum og hann teldi að varnarlínur í fjármálakerfinu muni halda. 16.3.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður fjallað um hið umdeilda útlendingafrumvarp sem samþykkt var á Alþingi í gær. 16.3.2023 11:37
Loka sundlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins Búið er að loka suðndlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins sem gengið hefur yfir í norðanáttinni. Þrýstingur hefur fallið í hitaveitu í bænum á síðustu dögum, fyrst í efri byggðum en síðar í öllum bænum. 16.3.2023 11:19