Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjá mörg tækifæri til frekari samvinnu ríkjanna Sanna Marin og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherrar Finnlands og Íslands, segjast sjá mörg tækifæri til nánara samstarfs ríkjanna tveggja á hinum ýmsu sviðum. Sanna Marin kom til íslands í vinnuheimsókn í dag og fundaði með Katrínu. 22.11.2022 14:27
Breikkun Reykjanesbrautar milli Straumsvíkur og Hvassahrauns boðin út eftir áramót Breikkun Reykjanesbrautar á 5,6 kílómetra kafla milli Krýsuvíkurafleggjara og Hvassahrauns verður boðin út eftir áramót. Frá þessu greindi Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra í þættinum Bítið á Bylgjunni. Með verkinu lýkur tvöföldun leiðarinnar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur. 22.11.2022 12:30
Frumvarp Jóns um lögreglu afgreitt úr ríkisstjórn Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögreglulögum, sem felur meðal annars í sér heimildir til forvirkra rannsókna og vopnaburð lögreglu, var afgreitt af ríkisstjórn í morgun. Ráðherranna telur raunhæft að frumvarpið verði að lögum fljótlega eftir áramótin. 22.11.2022 12:10
Sýknaður af kynferðisbroti gegn 14 ára stúlku Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku í kjölfar samskipta þeirra á stefnumótaforritinu Tinder. Maðurinn játaði að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við stúlkuna en staðhæfði að hann hefði ekki vitað réttan aldur stúlkunnar fyrr en eftir á. Ágreiningur um sönnun í málinu var því afmarkaður við vitneskju mannsins um réttan aldur stúlkunnar. 22.11.2022 12:08
Bein útsending: Hádegisspjall Katrínar og Sönnu Hádegisspjall Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra Íslands, og Sönnu Marinar, forsætisráðherra Finnlands fer fram í dag klukkan 12:30 og verður sýnt frá því í beinni útsendingu hér á Vísi. Saman munu þær ræða um stjórar áskoranir og tækifæri samtímans. 22.11.2022 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Breytingar á lögreglulögum, ný matvælastefna, mikill fjöldi gæsluvarðhaldsfanga og breytingar á Eurovision verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar. 22.11.2022 11:42
Veitingamenn óttast að launakröfur ríði bransanum á slig Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT), segir ískyggilegar horfur í greininni ef kröfur verkalýðshreyfinganna Eflingar og Matvís gangi eftir. 22.11.2022 11:19
Slökkvilið kallað út vegna elds í þaki í Lönguhlíð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í þaki húss við Lönguhlíð í Reykjavík á ellefta tímanum í morgun. 22.11.2022 10:33
Bein útsending: Matvælaþing 2022 Matvælaþing 2022 fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag. Það er Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sem boðar til þingsins sem hefst klukkan 9:15 og stendur til 15:45. 22.11.2022 08:46
Turninn á Litla-Hrauni verður rifinn: „Liður í því að gera umhverfið minna þrúgandi“ Ásýnd Litla-Hrauns mun taka miklum breytingum á næstu árum og mun hinn einkennandi turn fangelsisins brátt heyra sögunni til. Til stendur að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á fangelsinu og segir fangelsismálastjóri að breytingarnar séu meðal annars liður í því að gera allt umhverfið manneskjulegra og minna þrúgandi. 22.11.2022 08:40
Sextíu sæta gæsluvarðhaldi og kerfið þolir ekki meira Sextíu einstaklingar sæta nú gæsluvarðhaldi en fjöldinn er að jafnaði um tuttugu. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir fjöldann mega rekja til stórra mála sem komið hafa upp á síðustu vikum; fíkniefnamál, ofbeldismál og nú síðast hópárásin á Bankastræti Club síðastliðinn fimmtudag. 22.11.2022 07:01
Karlmenn sem stunda kynlíf með karlmönnum fá mögulega að gefa blóð eftir áramót Karlmenn sem stunda kynlíf með öðrum karlmönnum munu mögulega fá að gefa blóð eftir áramót, ef marka má svör heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ingu Bjarkar Margrétar Bjarnadóttur, varaþingmanns Samfylkingarinnar, um breytingar á reglugerð um blóðgjafir. 22.11.2022 06:47
Fleiri telja Ísland veita of mörgum flóttamönnum hæli en of fáum Fleiri telja nú að Ísland veiti of mörgum flóttamönnum hæli en of fáum. Afstaða landsmanna til málsins hefur harðnað nokkuð milli kannanna. 22.11.2022 06:34
Ökumaður í vímu velti bílnum, ók á ljósastaur og á húsvegg Tilkynnt var um tvö umferðarslys í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt þar sem ökumenn sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna komu við sögu. 22.11.2022 06:16
Ekki eins vongóður eftir loftslagsþingið Deildar meiningar eru þann árangur sem náðist á COP27 loftslagsþinginu sem lauk í Egyptalandi í gær. Samþykkt um stofnun loftslagshamfarasjóðs þykir mikil tímamót en vonbrigðum hefur verið lýst yfir með samþykktir um samdrátt í losun og notkun á jarðefnaeldsneyti. 21.11.2022 23:15
Bæjarstjóri Ölfuss spáir því að íbúar verði tíu þúsund innan fimmtán ára Bæjarstjóri Ölfuss spáir því að íbúafjöldi sveitarfélagsins geti fimmfaldast á næstu fimmtán árum og Þorlákshöfn orðið tíu þúsund manna bær. Lykillinn er stækkun hafnarinnar en hafnarframkvæmdirnar þar eru þær mestu í landinu um þessar mundir. 21.11.2022 22:50
Tæplega þrjátíu verið handtekin en tveggja enn leitað Lögreglan hefur handtekið 27 manns í tengslum við rannsókn á hnífstunguárás á Bankastræti Club á aðfaranótt föstudags í síðustu viku. Tíu þeirra hefur verið sleppt úr haldi en lögreglan leitar enn að tveimur einstaklingum. 21.11.2022 22:44
Hætta við uppboð á beinagrind grameðlu vegna efa um sanngildi Uppboðshúsið Christie's hefur hætt við að bjóða upp beinagrind grameðlu eftir að upp kom efi um hvort hún væri ekta eða eftirlíking. Talið var að beinagrindin myndi seljast á allt að 3,6 milljarða króna. 21.11.2022 21:30
Lögreglan kalli ekki eftir forvirkum rannsóknarheimildum Dómsmálaráðherra hefur boðað stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal aðgerða í stríðinu er að auka forvirkar rannsóknarheimildir og skoða aukinn vopnaburð, til dæmis með tilkomu rafbyssa. Þingmaður Samfylkingarinnar segir lögreglumenn ekki kalla eftir því sem dómsmálaráðherra vill veita þeim. 21.11.2022 21:08
Spilar á 20 kílóa hljóðfæri í tveimur lúðrasveitum Það er heilmikil vinna og fyrirhöfn hjá 15 ára strák í Kópavogi að koma sér á lúðrasveitaæfingu í þeim tveimur lúðrasveitum, sem hann spilar með, því hljóðfærið hans er það allra stærsta í lúðrasveitum, eða túba. Hljóðfærið vegur um 20 kíló. 21.11.2022 20:05
Hæsti stigabíll landsins „algjör bylting“ Hæsti stigabíll landsins var tekin í notkun á Akranesi og Hvalfjarðarsveit í haust. Stigi bílsins nær upp í 42 metra hæð og er sá fyrsti sem nær upp í hæstu byggingar bæjarfélagsins. Slökkviliðsstjórinn segir tækið algjöra byltingu. 21.11.2022 20:01
Nemendur Grandaborgar færðir öðru sinni vegna myglu í bráðabirgðahúsnæði Foreldri barns á leikskólanum Grandaborg, þar sem mygla fannst í sumar, segist orðið þreytt á endalausu hringli og loðnum svörum frá borginni. Mygla er í bráðabirgðahúsnæði sem hluti nemenda var færður í en færa á þá enn annað í byrjun desember. 21.11.2022 19:31
Ákærðir fyrir brot á vopnalögum eftir átök í Borgarholtsskóla Fimm hafa verið ákærðir fyrir sinn þátt í vopnuðum slagsmálum sem áttu sér stað í og við Borgarholtsskóla þann 13. janúar í fyrra. Hnífur, hafnaboltakylfa og ljósapera voru meðal þess sem beitt var í átökunum. 21.11.2022 19:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rúðubrot á heimili þriggja barna þungaðrar móður og alvarleg líkamsárás á 17 ára dreng eru á meðal afleiðinga stigvaxandi átaka tveggja hópa í undirheimum. Dómsmálaráðherra segir átökin grafalvarleg og boðar stríð gegn skipulagðri glæpastarfsemi. 21.11.2022 18:00
Hlaut viðurkenningu fyrir óbilandi trú sína á ungu fólki Össur Geirsson, skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs hlaut í dag viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2022. Um er að ræða árlega viðurkenningu sem veitt er fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. 21.11.2022 17:49
Sagðist í fyrstu skýrslutöku hafa átt að fá greiddar 30 milljónir Karlmaður á sjötugsaldri sem sætir ákæru í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar viðurkenndi í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu að hann hefði átt að fá þrjátíu milljónir króna fyrir sinn hlut í innflutningnum. Í næstu yfirheyrslum dró hann úr framburði sínum og sagði óljóst hve há greiðslan hefði átt að vera. 21.11.2022 16:52
Leita enn vitna vegna umferðarslyss við Kringlumýrarbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar enn eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík sl. föstudagsmorgun, 18. nóvember. 21.11.2022 16:23
Þorlákshöfn byggist svo ört að hún segist varla rata orðið um þorpið „Þetta byggist svo ört að maður ratar varla orðið um þorpið,“ segir Katrín Stefánsdóttir sem árið 1965 fór sem ung stúlka úr Hrunamannahreppi til að vinna í Þorlákshöfn. „Skrapp á vertíð og hef eiginlega ekkert farið heim síðan.“ 21.11.2022 15:33
Hannes verður fyrsti sendiherra Íslands í Varsjá Sendiráð Íslands í Varsjá í Póllandi tekur til starfa 1. desember næstkomandi. Hannes Heimisson, sem áður var sendiherra Íslands í Stokkhólmi, verður fyrsti sendiherra Íslands í Póllandi. Fyrirsvar vegna Úkraínu, Rúmeníu og Búlgaríu verður fært til hinnar nýju sendiskrifstofu. 21.11.2022 14:55
97 fíkniefnabrot í október Þrjú stórfelld fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í október. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2022. 21.11.2022 14:36
Ráðherra hætti að ráðast að fangelsum í stað þess að ráðast í stríð Þingmaður Viðreisnar sakar dómsmálaráðherra um að fjársvelta fangelsi landsins þannig að dæmdir menn komist ekki í afplánun. Ráðherrann ætti frekar að hætta að ráðast að fangelsunum í stað þess að hefja stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi. 21.11.2022 14:30
Lögregla man ekki eftir eins umfangsmiklum átökum í undirheimum Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það vel þekkt að hópar í undirheimum hóti fjölskyldumeðlimum hver annars. Hann man þó ekki eftir eins umfangsmiklum átökum og hafa myndast í kring um hnífstunguárásina á Bankastræti Club. Fjölskyldumeðlimir mannanna sem hafa verið handteknir grunaðir um árásina hafa sætt stöðugum hótunum og árásum síðan og einhverjir hafa flúið út á land vegna ástandsins. 21.11.2022 14:22
Enn ekkert spurst til Friðfinns: Leitarsvæðið stækkað Enn hefur ekkert spurst til hins 42 ára gamla Friðfinns Frey Kristinssonar sem saknað hefur verið í tíu daga. Samkvæmt varðstjóra Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fór fram fjölmenn leit á laugardaginn sem bar engan árangur. 21.11.2022 14:06
Íbúar lúxusíbúða síður en svo sáttir við djammrekstur á jarðhæðinni Íbúar í lúxusíbúðunum að Kolagötu 1 og 3 (áður Geirsgötu 2 og 4) hafa kært ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að veita fyrirtækinu Rollsinum ehf. starfsleyfi til tólf ára til reksturs á skemmtistaðnum Skor, sem starfræktur er á neðstu hæð hússins. 21.11.2022 12:29
Forseti Íslands greip spreybrúsann og stækkaði verkefnið um helming „Ég var drullustressaður,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á viðburði í Mjódd í dag. Þar var því fagnað að þrjú hundruð römpum hefur verið komið upp um landið í átaksverkefninu Römpum upp Ísland. 21.11.2022 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður fjallað áfram um árásina í Bankastræti Club á dögunum, niðurstöðu COP27 ráðstefnunar í Egyptalandi og verkefnið Römpum upp Reykjavík sem náði merkisáfanga í morgun. 21.11.2022 11:35
Bein útsending: Lúðrablástur og fyrirmenni við vígslu ramps númer þrjú hundruð Römpum upp Ísland vígir ramp númer þrjú hundruð klukkan 11:30 í Mjóddinni. Verkefnið snýr að því að setja upp eitt þúsund rampa um allt land á fjórum árum. Sýnt verður beint frá athöfninni á Stöð 2 Vísi. 21.11.2022 10:42
Inga sakar andstæðinga sína á þingi um popúlisma og bellibrögð Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sakar þingmenn annarra flokka um popúlisma, fláræði og sýndarmennsku. Þeir segi eitt í kosningabaráttu sem reynast svo orðin tóm. 21.11.2022 10:33
Fyllir í skarð Mugga í Ísafjarðarhöfn Hilmar Kristjánsson Lyngmo hafnarvörður hefur verið ráðinn sem hafnarstjóri hjá höfnum Ísafjarðarbæjar og mun hann hefja störf sem slíkur í ársbyrjun. 21.11.2022 09:16
Boðar stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi Dómsmálaráðherra boðar stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi með átaki sem lögreglan ætlar að ráðast í á næstunni. Vel geti verið að stigin verði umdeild skref í því átaki, meðal annars varðandi vopnaburð lögreglumanna. 21.11.2022 08:58
Herjólfur kominn til Eyja en morgunferðir falla niður Ferðir Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs riðluðust í gær þegar upp kom bilun í stefnishurð skipsins þar sem það var statt í Þorlákshöfn. 21.11.2022 07:17
Óvelkomnir í annarlegu ástandi neita að fara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur útköllum í gærkvöldi þar sem menn í annarlegu ástandi neituðu að yfirgefa staði þar sem þeir voru óvelkomnir. Þá barst henni einnig tilkynning um líkamsárás á veitingastað. 21.11.2022 06:25
Fjallahjólagarður vekur lukku hjá börnum og fullorðnum í Ölfusi Fjallahjólagarður sem opnaður var í Þorlákshöfn í sumar hefur óspart verið nýttur í veðurblíðunni að undanförnu og þar má sjá jafnt börn sem fullorðna fljúga upp á stökkbrettum. 20.11.2022 23:26
Bilaður Herjólfur fastur í Þorlákshöfn: „Lengra ferðalag en til Balí“ Herjólfur situr fastur í Þorlákshöfn eftir að bilun varð í stefnishurð ferjunnar. Farþegar hafa beðið í rúma fjóra tíma eftir að skipið, sem er tiltölulega nýkomið úr slipp, sigli af stað. 20.11.2022 23:06
Gekk sárkvalin á milli lækna í sjö ár vegna breytingaskeiðs Fimmtug kona sem reyndi að svipta sig lífi vegna heilsuleysis og stanslausra verkja segir nauðsynlegt að heilbrigðisstarfsmenn kynni sér einkenni breytingaskeiðs. Hún gekk á milli lækna í sjö ár og þurfti hálfpartinn að sannfæra sérfræðinga um að skrifa upp á hormónin sem breyttu lífi hennar. 20.11.2022 19:31