Íbúar lúxusíbúða síður en svo sáttir við djammrekstur á jarðhæðinni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. nóvember 2022 12:29 Íbúar í húsinu eru alls ekki sáttir við rekstur Skor á jarðhæðinni. Vísir/Vilhelm Íbúar í lúxusíbúðunum að Kolagötu 1 og 3 (áður Geirsgötu 2 og 4) hafa kært ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að veita fyrirtækinu Rollsinum ehf. starfsleyfi til tólf ára til reksturs á skemmtistaðnum Skor, sem starfræktur er á neðstu hæð hússins.
Málið á sér nokkra forsögu en haustið 2021 sóttu forsvarsmenn Rollsins um byggingarleyfi hjá Reykjavíkurborg til að breyta jarðhæð hússins og innrétta sem veitingahús í flokki III. Því var hafnað á grundvelli gildandi aðalskipulags sem gerir ekki ráð fyrir slíkum rekstri en þá var aftur sótt um leyfi en í þetta sinn fyrir veitingahúsi í flokki II. Leyfið var veitt af hálfu Reykjavíkurborgar en án þess að íbúar væru upplýstir um málið, segir í kæru lögmanna íbúa. Þar segir að um sé að ræða glæsilegt fjölbýlishús við Hafnartorg í miðbæ Reykjavíkur, „sem allt frá hönnun og byggingu hefur verið markaðsett sem glæsiíbúðir og verðlagðar sem slíkar“. Í kærunni segir að við kaup hafi íbúum verið tjáð að á jarðhæð fasteignanna yrði að finna verslanir með alþjóðlegum merkjavörum og að eignirnar, þjónustan og umhverfið yrði „allt hið snyrti- og glæsilegasta“. Rollsinn fékk tímabundið restrarleyfi fyrir Skor í nóvember 2021 en þegar það rann út gekk nokkuð brösuglega að fá útgefið langtímarekstraleyfi vegna ýmissa vankanta. Íbúar höfðu þá þegar kvartað yfir fyrirhuguðum rekstri og í mars 2022 sendu lögmenn íbúa Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur formlegt erindi þar sem meðal annars var kvartað vegna hávaða og bent á að gera þyrfti óháða úttekt á hljóðvist staðarins. Í kjölfar jákvæðrar umsagnar byggingafulltrúa tók heilbrigðiseftirlitið engu að síður þá ákvörðun að gefa sömuleiðis jákvæða umsögn vegna rekstursins en með því skilyrði að forsvarsmenn staðarins gerðu allt sem í þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir ónæði og sýndu fram á að hljóðvist fullnægði kröfum. Fékk staðurinn tímabundið starfsleyfi til 25. júní. Hinn 15. júní sendu lögmenn íbúa enn erindi á heilbrigðiseftirlitið og kvörtuðu meðal annars um hávaða, lyktarmengun og umgengni í kringum staðinn. Þá var ítrekuð sú afstaða íbúa að starfsemin félli í reynd undir skilgreininguna á veitingastað í flokki III, vegna hávaða og áreitis. Kvörtuðu 37 sinnum Ef marka má kæruna og andsvör Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur gerðu eigendur Skor ýmsar tilraunir til að koma til móts við eigendur íbúðanna. Eftir kvartanir íbúa og athugasemdir yfirvalda voru gerðar úrbætur á rýminu sjálfu og þá gengust rekstraraðilar undir það skilyrði að takmarka hljóðstyrk við 80 dB. Nokkuð var deilt um hljóðmælingar en á sama tíma og íbúar kröfðust þess að hljóðmælingar yrðu gerðar á meðan staðurinn væri opinn og í fullu fjöri, sagði rekstraraðilinn að þeir hefðu tvívegis hafnað aðgengi að íbúðum sínum til að framkvæma mætti hljóðmælingar. Þá segir í kæru íbúa að þeim hafi ekki gefist ráðrúm til að veita samþykki fyrir hljóðmælingum í íbúðum í kringum verslunarmannahelgina, þegar þeir og lögmenn þeirra voru í sumarleyfum, en heilbrigðiseftirlit segir enga ákveðna tímasetningu hafa verð nefnda og að íbúum hafi í raun alltaf staðið til boða, og standi enn til boða, að fá hljóðmælingu á vegum efirlitsins. Samkvæmt andsvörum heilbrigðiseftirlitsins kvörtuðu íbúar alls 37 sinnum undan starfsemi Skor frá apríl á þessu ári og fram í júní. „Ekki var hægt að sjá samhengi milli mælds hávaða inni á staðnum og þess fjölda kvartana sem barst en kvartanir vörðuðu bæði hávaða, umgengni utandyra, hávaða frá fólki utandyra, reykingalykt, steikingarlykt o.s.frv.“ Á Skor er hægt að fara í pílu og skella sér í karíókí.Vísir/Vilhelm Þegar tímabundið starfsleyfi rann út í júní var annað tímabundið leyfi gefið út en forsvarsmönnum Rollsins gert grein fyrir því að rekstrarleyfi til tólf ára yrði ekki gefið út nema ráðist yrði í úrbætur vegna hljóðvistar. Það var svo í lok júlí sem heilbrigðiseftirlitið staðfesti að úrbætur hefðu verið gerðar á Skor og óskað eftir aðgengi að íbúðum á annarri hæð til að gera hljóðmælingar. Lögmenn íbúa óskuðu hins vegar eftir fresti, eins og fyrr segir sökum sumarleyfa, en eftirlitið mat það sem svo að íbúar hefðu haft nægan tíma til að taka afstöðu til þess hvort þeir vildu heimila mælingar. Til að staðfesta árangur úrbóta var engu að síður farið í hljóðmælingar á íbúðagangi beint fyrir ofan veitingastaðinn en þær leiddu í ljós að hljóðstig væri innan viðmiðunarmarka. Þá voru kvartanir vegna steikingarlyktar einnig rannsakaðar en þær höfðu bæði komið frá íbúum og verslunareiganda. Niðurstaðan var sú að loftræsting staðarins væri aðskilin loftræstingu hússins en mögulegt væri að lykt gæti borist frá útkastsventli veitingastaðarins að loftræstisamstæðu atvinnurýma við ákveðin veðurskilyrði. Unnið er að úrbótum hvað þetta varðar, segir í andsvörum heilbrigðiseftirlitsins. Segja staðinn rýra virði íbúðanna Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafnar því að hafa tekið hagsmuni rekstraraðila Skor fram yfir hagsmuni íbúa og útlistar í andsvörum sínum ýmsar aðgerðir sem það segist hafa gripið til til að tryggja jafnræði. Það ver jafnframt þá ákvörðun að fella Skor undir flokk II í flokkun veitingastaða, enda sé Skor „krá með lágmarksmatargerð“ en ekki skemmtistaður. Ekki sé boðið upp á fjölbreyttar veitingar á staðnum né lögð áhersla á dans, tónlist né langan afgreiðslutíma. Gildir þá einu hvort boðið sé upp á karíókí, eins og dregið er fram í kæru íbúa. Í andsvörum heilbrigðiseftirlitsins er einnig bent á að hinn mánaða kærufrestur sé í raun útrunninn, þar sem starfsleyfið var gefið út 5. ágúst en kæra hafi ekki borist fyrr en 9. september. Harla ólíklegt verði að teljast að engir af kærendum hafi orðið þess varir að starfsemin hafi verið hafin að nýju 5. ágúst og ekki fyrr en 9. ágúst, þegar fyrirspurn barst frá lögmanni íbúa. Ein er hins vegar kvörtun íbúa sem heilbrigðiseftirlitið virðist ekki taka til umfjöllunar og varðar rýrnun fasteignaverðs vegna reksturs skemmtistaðarins en í kærunni segir: „Starfsemi Skor hefur haft slæm áhrif á gæði og virði þeirra eigna sem í húsinu eru sökum þess mikla hávaða, lyktarmengunar og þess mikla ónæðis sem stafar frá rekstrinum. Því er óhjákvæmilegt, vegna eðlis rekstrar Skor og áhrifa hans á nánasta umhverfi, að hann hafi neikvæð áhrif á verðmæti íbúða húsanna þar sem gæði þeirra eru ekki söm og gera má kröfu til enda liggur það í hlutarins eðli að virði fasteigna sem sitja ofan á skemmtistað er ekki hið sama og enginn væri skemmtistaðurinn.“ Hér má lesa gögn málsins.
Reykjavík Næturlíf Veitingastaðir Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Fleiri fréttir LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli Sjá meira