Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flestir sprautufíklar á aldrinum 35 til 45 Meðalaldur sprautufíkla hefur hækkað hratt. Fleiri heilbrigðisvandamál hrjá eldri fíkla. Þótt færri virðist ákveða að byrja að sprauta sig minnkar hópurinn ekki. Talið er að allt að 700 fíklar séu á landinu. Sumir eru komnir yfir sextugt. 10.2.2013 16:00
Gleymdi pottinum á eldavélinni Töluverður reykur kom upp í húsi við Snorrabraut um klukkan þrjú í dag þegar að pottur gleymdist á eldavél. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fóru á vettvang en enginn slasaðist. Húsráðandi hafði farið út úr húsinu og gleymt pottinum. Verið er að reykræsta húsið svo íbúar geti snúið aftur til síns heima. 10.2.2013 15:07
Gagnrýnir stjórnvöld fyrir metnaðarleysi "Ég er mjög fylgjandi starfi Frú Ragnheiðar og hef verið hvatamaður þess að þar yrði faglega staðið að málum og reynt að styðja það eftir föngum,“ segir Magnús Gottfreðsson, sérfræðingur á smitsjúkdómadeild LSH og prófessor í smitsjúkdómum við læknadeild HÍ. Magnús segir það umhugsunarefni að heilbrigðisþjónusta eins og sú sem starfrækt er hjá Rauða krossinum, sem varðar lýðheilsu og fíklana sjálfa, sé í svo miklum mæli starfrækt af góðgerðarsamtökum. 10.2.2013 15:00
Stakk kunningja sinn með hnífi Maður gaf sig fram við lögregluna í Vestmannaeyjum í nótt eftir að hafa stungið kunningja sinn með hnífi úti á götu í bænum. 10.2.2013 14:02
Hanna Birna: Ég kom ekki nálægt þessari könnun Hanna Birna Kristjánsdóttir segist ekki hafa vitað af eða staðið fyrir könnun sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir óþekktan hóp á dögunum, þar sem yfir 80 prósent aðspurða telja að hún yrði sterkari leiðtogi Sjálfstæðisflokksins en Bjarni Benediktsson, núverandi formaður. 10.2.2013 13:11
Tíu klukkustunda björgunaraðgerð Tveir karlmenn og fjögur börn sátu föst í tveimur jeppum við Skjaldbreið í alla nótt. Björgunarsveitarmaður segir litlu hafa munað að snjóbíll björgunarsveitarinnar festist á leið til björgunar. 10.2.2013 12:09
Virðing fyrir fíklum lífsnauðsyn Sjúkrabíllinn Frú Ragnheiður er fyrsta skaðaminnkunarverkefnið á landinu. Sjálfboðaliðar sjá alfarið um verkefnið. Blaðakona slóst í för með bílnum kalt fimmtudagskvöld og kynnti sér starfsemina. 10.2.2013 12:00
Flugvél Icelandair lenti í Kanada vegna bilunar Flugvél Icelandair sem var á leið frá Seattle í Bandaríkjunum til Keflavíkur í gærkvöldi þurfti að nauðlenda í Edmonton í Kanada vegna bilunar í vélarbúnaði. 10.2.2013 11:50
Bréf hjúkrunarfræðings: Fjórum mannslífum bjargað á einni nóttu Erla Björk Birgisdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur á Landspítalanum við Hringbraut, sendi á miðnætti fjölmiðlum bréf þar sem hún segir frá atburðum aðfaranótt laugardags. Fjórum mannslífum hafi verið bjargað þessa nótt. Hún segist vera mjög hugsi yfir því í ljósi þess að fjöldi hjúkrunarfræðinga hefur sagt upp störfum. 10.2.2013 10:50
Braut rúðu með berum höndum - fluttur á slysadeild með skurði Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn í Teigahverfi tuttugu mínútur í eitt í nótt eftir að lögreglan fékk tilkynningu um þar hefðu brotist út átök. 10.2.2013 10:14
Stakk lögregluna af á 183 km hraða Lögreglan á Suðurnesjum veitti ökumanni eftirför á Reykjanesbrautinni um tvöleytið í nótt en bíll hans mældist á 183 kílómetra hraða. 10.2.2013 10:09
Grétars leitað á sjó Í dag munu um 25 til 30 manns frá björgunarsveitum halda áfram leit að Grétari Guðfinnssyni sem saknað er á Siglufirði. 10.2.2013 09:51
Vélarvana bátur utan við Siglufjörð Björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði var kallað út á fimmta tímanum í nótt vegna vélarvana báts sem staddur var um 30 sjómílum vestur af Siglufirði. Um er að ræða yfirbyggðan plastbát og talið er að hann sé með í skrúfunni. Þegar þetta er skrifað er björgunarskipið að draga bátinn til hafnar á Siglufirði. Áætlaður komutími þangað er um klukkan 11:00. Veður er ágætt á svæðinu og ekki talin hætta á ferðum. 10.2.2013 09:45
Samstaða ætlar ekki að bjóða fram Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar, samþykkti á landsfundi sínum í gær að bjóða ekki fram í komandi alþingiskosningum heldur einbeita sér að því að hafa mótandi áhrif á stjórnmálaumræðuna segir í tilkynningu frá flokknum. 10.2.2013 09:43
Tannbrot á Ráðhústorginu Ráðist var á mann fyrir utan skemmtistað við Ráðhústorgið á Akureyri um klukkan þrjú í nótt með spörkum og hnefahöggum. Hann var fluttur á slysadeild þar sem grunur lék á að tönn í honum hefði brotnað. Árásarmaðurinn er óþekktur og er málið nú í rannsókn hjá lögreglu. 10.2.2013 09:40
Sátu föst í átta klukkutíma Tveir fullorðnir og fjögur börn sátu föst í tveimur jeppum við Skjaldbreið í nótt. Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um að þau hefðu fest sig um hálf tíu í gærkvöldi og voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar út. 10.2.2013 09:28
Björgvin Ingimarsson látinn Björgvin Ingimarsson, eiginmaður Vilborgar Davíðsdóttur rithöfundar, lést snemma í morgun. Vilborg segir frá þessu á bloggsíðu sinni í dag. Vilborg og Björgvin hafa vakið mikla athygli að undanförnu vegna þess hve hispurslaust Vilborg hefur rætt um veikindi hans og síðustu daga. Vilborg hefur meðal annars bloggað um hinstu dagana og lagt áherslu á það að fólk ræði um dauðann. Hún var í einlægu og ítarlegu viðtali við Ísland í dag, sem birtist á þriðjudaginn. 9.2.2013 22:20
Faðirinn og rokkarinn nánir vinir Eyþór Ingi Gunnlaugsson söng sig inn í hjörtu landsmanna þegar hann flutti lagið Ég á líf í Söngvakeppninni og sigraði með yfirburðum. 9.2.2013 20:30
Tveir fá 2 milljónir Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld og verður potturinn því fjórfaldur næst. 9.2.2013 19:52
Vilja leggja áherslu á skuldamál heimilanna Forystusveit Framsóknarflokksins var kjörinn með miklum meirihluta á flokksþingi flokksins í dag. Formaðurinn segist vilja vinna með þeim flokkum sem skilja þeirra sjónarmið í mikilvægum málum. 9.2.2013 18:54
Eins og á Norðurpólnum Að minnsta kosti fjórir eru látnir og mörg hundruð þúsund eru án rafmagns á norðausturströnd Bandaríkjanna og í Kanada þar sem mikið hríðarveður hefur geisað. Íslendingar vestanhafs sem fréttastofa náði tali af í dag hafa haldið sig innandyra síðasta sólarhringinn. 9.2.2013 18:38
Reynt að blekkja viðskiptavini Símans Svo virðist sem óprúttnir aðilar úti í heimi séu að reyna blekkja viðskiptavini Símans með tölvupósti sem borist hefur á viðskiptavini síðustu daga. Þar er pósturinn sendur út í nafni fyrirtækisins og stílaður á Bäste kund. 9.2.2013 17:42
Fjórir liðsmenn Vítisengla handteknir Lögreglan fór í húsleit í Síðumúla í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar í morgun en sá fyrir henni varð var fluttur á slysadeild með alvarlega áverka á höfði. 9.2.2013 17:00
Í Kvosinni kvartöld síðar Á sýningunni Kvosin – 1986 & 2011 má sjá myndir sem ljósmyndarinn Guðmundur Ingólfsson tók í miðbæ Reykjavíkur á 200 ára afmæli borgarinnar og af sömu stöðum 25 árum síðar. 9.2.2013 17:00
Síðasta myndin af þúfunum þar sem eldsprungan opnaðist Ljósmyndir sem taldar eru þær síðustu sem teknar voru fyrir gos á svæðinu austast á Heimaey þar gossprungan opnaðist aðfararnótt 23. janúar 1973 verða sýndar í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, sunnudag, að loknum fréttum klukkan 18.55. Guðmundur E. Jóelsson átti myndavélina en í viðtali í þættinum greinir hann frá því að myndirnar voru teknar í gönguferð 5-6 frændsystkina af Kirkjubæjartorfunni sunnudaginn 21. janúar, aðeins rúmum sólarhring áður en jörðin rifnaði þar upp. 9.2.2013 15:37
Ólafur Ragnar: Hefði ekki getað neitað Icesave án internetsins Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði á íslensku vefverðlaununum í Hörpunni í gær að hann hefði ekki getað neitað Icesave-lögunum staðfestingar ef ekki hefði verið fyrir internetið. Í febrúar árið 2011 fékk forsetinn um 38 þúsund undirskriftir þess efnis að synja lögunum - sem hann gerði. 9.2.2013 15:26
Rotaður í félagsheimili vélhjólaklúbbs Um klukkan hálf sex í morgun var tilkynnt um líkamsárás í austurborginni þar sem maður væri rotaður. 9.2.2013 14:06
Sigmundur Davíð endurkjörinn - "Framsókn Íslands er að hefjast á ný" Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var endurkjörinn formaður flokksins, á flokksþingi sem stendur nú yfir í Gullhömrum. 9.2.2013 13:55
Guðni ætlaði að kjósa sjálfan sig sem formann Gestir á flokksþingi Framsóknarflokksins gengu til formannskosninga nú fyrir stundu, en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, er sá eini sem lýst hefur yfir framboði. 9.2.2013 13:36
Stjórnarandstaðan ekki heyrt af breytingum í stjórnarskrármálinu Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ekki heyrt af stefnubreytingu í stjórnarskrármálinu hjá stjórnarflokkunum. Þingmaður hreyfingarinnar segist ekki trúa því að verið sé að falla frá heildarendurskoðun á stjórnskipunarlögum. 9.2.2013 12:02
Hnífaárás í miðbænum Um klukkan hálf fjögur í nótt náðu dyraverðir að yfirbuga mann á skemmtistað við Hafnarstræti eftir að hann hafði veitt öðrum manni áverka, á hendi og víðar, með hníf. Hnífamaðurinn nefbrotnaði í átökunum en upplýsingar um líðan mannsins sem varð fyrir árásinni liggja ekki fyrir að svo stöddu. 9.2.2013 11:01
Grétar enn ófundinn - 50 manns halda áfram leit í dag Leitin að Grétari Guðfinnssyni Á Siglufirði hefur engan árangur borið en leitað hefur verið að honum frá því á miðvikudag. 9.2.2013 10:48
Bíræfnir þjófar í Reykjanesbæ Þjófnaður úr verslun í Reykjanesbæ var tilkynntur til lögreglunnar á Suðurnesjum í fyrrakvöld. 9.2.2013 10:42
Framsóknarmenn kjósa formann Kosið verður til embætta á flokksþingi Framsóknarflokksins eftir hádegi í dag. 9.2.2013 10:25
Ósætti á milli mótórhjólasamtaka - hnífur kom við sögu Tveir voru handteknir í miðborginni í nótt eftir að hafa beitt hnífum í átökum. Rétt eftir eitt brutust út slagsmál á skemmtistað við Tryggvagötu og var hnífur þar dreginn upp. Sá sem það gerði var sleginn í höfuðið en aðra sakaði ekki. Lögregla telur að rekja megi atvikið til ósættis manna í bifhjólasamtökum. 9.2.2013 09:47
Þykir varla styrkja stöðu formannsins Könnun sýnir mikinn stuðning við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í formannsembætti Sjálfstæðisflokkins. Hún stefnir þó á varaformannsembættið. Stjórnmálafræðingur segir stöðu Bjarna Benediktssonar varla hafa styrkst við þessa könnun. 9.2.2013 09:00
Sigurður H. Richter hefur fjallað um Hönnunarkeppni verkfræðinema í 20 ár: Kominn tími til að aðrir taki við „Ég er að verða sjötugur svo það er alveg kominn tími til að aðrir taki við keflinu,“ segir Sigurður H. Richter. Hann stóð á tímamótum í gær þegar hann lét af störfum sem umsjónarmaður sjónvarpsmynda um árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands. 9.2.2013 08:00
Samkeppni um lækna hefur aukist Læknaskortur er fyrirséður í landinu. Forstjóri Landspítalans segir reynt að bregðast við eftir megni. Hingað til lands hafa verið ráðnir læknar frá Asíu til að fylla stöður sem innlendir læknar fást ekki í. Vinir og fjölskylda toga lækna aftur heim. 9.2.2013 07:00
Pallbíllinn er of stór fyrir bílastæði í 101 Íbúi í Þingholtunum fær ekki íbúakort frá Bílastæðasjóði þar sem pallbíll hans er of stór fyrir bílastæðin samkvæmt reglugerð um bílastæði og hámarkslengd bíla. Verið að passa upp á lífsgæði íbúa, segir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. 9.2.2013 07:00
Mikilvægi norðurslóða eykst sífellt Áhugi alþjóðasamfélagsins á norðurslóðum eykst ár frá ári. Norðurskautsráðið er í miðri hringiðunni en nýstofnaðri fastaskrifstofu ráðsins verður stýrt næstu árin af Magnúsi Jóhannessyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Hann kannast ekki við kapphlaup þjóða 9.2.2013 06:00
Ná ekki yfir á græna kallinum Borgaryfirvöld endurskoða nú svokallaðan græntíma fyrir fótgangandi á umferðarljósum. 9.2.2013 06:00
Mannshvörf - Mál Valgeirs Víðissonar Hvarf Valgeirs Víðisson var eitt umtalaðasta mál seinni hluta síðari aldar. Valgeir yfirgaf heimili sitt aðfaranótt 19 júní árið 1994 og snéri aldrei aftur heim til sín. Málið var rannsakað sem sakamál og var talið að honum hefði verið ráðinn bani. 8.2.2013 21:47
Best í heimi Hann kom, sá og sigraði, íslenski hópurinn sem keppti í listhlaupi á skautum á Special Olympics í suður Kóreu. Sigurvegararnir í Íslandi í dag 8.2.2013 21:36
„Vímuefnanotkun er vágestur sem við verðum að takast á við“ „Vímuefnanotkun er vágestur sem við verðum að takast á við," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sagði nýverið upp ellefu sjómönnum eftir að þeir féllu á vímuefnaprófi. Ísfélagið hefur í hyggju að framkvæma svipuð próf. 8.2.2013 20:22
Sögulegur stólfótur úr Gúttó-slanum kominn á Árbæjarsafn Tæplega aldargamall stólfótur sem verkamenn notuðu sem barefli í Gúttó-slagnum hefur fengið samastað á Árbæjarsafninu. Sagnfræðingur segist aldrei hafa komist í tæri við jafn merkilegt vopn áður. 8.2.2013 19:40
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent