Fleiri fréttir

Þingmenn í myrkri

Rafmagn fór af að hluta í húsakynnum Alþingis við upphaf þingfundar í morgun. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var í pontu að ræða störf þingsins þegar ljósin slokknuðu. Hann og aðrir þingmenn létu þetta lítið á sig fá, enda var enn hægt að tala í hljóðnemann úr ræðustól. Innan við tíu mínútum síðar voru ljósin komin aftur á.

Þingmaður missti bílpróf vegna ölvunaraksturs

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi missti bílprófið nýlega eftir að hann var tekinn ölvaður á bíl. Þetta kemur fram í blaðinu í Vikudegi sem kom út í gær. Höskuldur missti bílprófið í átta mánuði.

Sumarbústaður brann til kaldra kola

Mannlaus sumarbústaður Norðlingaholtsmegin við Elliðavatn, brann til kaldra kola í gærkvöldi. Bústaðurinn var alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang. Hann var ekki lengur í notkun og ekki var rafmagn tengt í hann þannig að líklegt er að kveikt hafi verið í honum. Ekki er vitað hver var þar að verki.

Bíll valt í Ártúnsbrekkunni

Bíll valt í Ártúnsbrekkunni, á móts við Ingvar Helgason, nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu sagði í samtali við Vísi að bíllinn væri á hliðinni en allir væru komnir út.

Óheimilt hafi verið að semja við Samhjálp

Innkaupastofnun og borgarlögmaður hafa staðfest að innkaupareglur borgarinnar voru brotnar þegar samið var við Samhjálp um rekstur gistiskýlisins fyrir karla að Þingholtsstræti 25. Þetta fullyrða fulltrúar VG og Sjálfstæðisflokksins í borgarráði og segja jafnframt ljóst að um sé að ræða meðvitað brot þar sem sviðið hafi skömmu áður samið við Rauðakross Íslands um rekstur gistiskýlis fyrir konur og þá fylgt innkaupareglum í hvívetna.

Segir Ólaf Ragnar hafa styrkt stöðu sína enn frekar eftir þáttinn í gær

Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að Ólafur Ragnar Grímsson hafi aðeins styrkt stöðu sína eftir umræðuþátt með forsetaframbjóðendum í gærkvöldi. Þóra Arnórsdóttir hefur hins vegar saxað á forskot Ólafs Ragnars samkvæmt nýrri könnun og munurinn á milli þeirra er nú sjö prósentustig.

Segist hata lögfræðinga

"Ég hata lögfræðinga," svaraði Guðgeir Guðmundsson þegar Skúli Eggert Sigurz spurði hvað gengi að honum á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum. Þá hafði Guðgeir stungið Skúla að minnsta kosti einu sinni í snarpri en gríðarlega ofbeldisfullri árás.

Hálendisvegir opnaðir

Vegagerðin er byrjuð að opna hálendisvegina einn af öðrum og er það heldur fyrr en í meðal ári. Nú síðast var vegurinn að Langasjó opnaður og og fjallabaksleið nyrðri, en syðri Fjallabaksleið er enn lokuð. Það er líka búið að opna Dómadalsleið og nú er opið í Landmannalaugar eftir öllum leiðum. Búið er að opna veginn inn í Laka, en Kjalvegur er aðeins jeppafær, enn sem komið er. Það er líka búið að opna veginn upp í Veiðivötn. Að sögn Bjarna Jónssonar vegaverkstjóra eru þessir vegir opnaðir heldur fyrr en í meðalári þar sem frost fór fyrr úr jörðu en vant er, en það er forsenda þess að óhætt sé að opna hálendisvegina. Öðrum kosti myndu þeir vaðast út í aurbleytu.

Skúli ber vitni gegn árásarmanninum

Skúli Sigurz sem hlaut alvarleg sár þegar hann var stunginn á lögmannsstofunni Lagastoð í mars ber vitni gegn árásarmanninum, Guðgeiri Guðmundssyni. Aðalmeðferð í málinu hófst klukkan níu og stendur fram eftir degi. Í ákæru er Guðgeiri gefið að sök tilraun til manndráps með því að stinga Skúla ítrekað. Þá er hann jafnframt sakaður um alvarlega líkamsárás þegar hann stakk Guðna Bergsson lögmann í lærið þegar Guðni hugðist koma Skúla til bjargar.

Olíuvinnsla skal háð ströngustu reglum

Árið 2025 má búast við olíuvinnslu á þremur svæðum norðan Íslands. Samkomulag við Grænlendinga og Norðmenn um víðtækt samstarf er komið á dagskrá stjórnvalda. Afrakstur olíuvinnslu er best geymdur í sérstökum auðlindasjóði.

Nefndirnar ætla að skila í haust

Rannsóknarnefnd um fall sparisjóðanna mun skila Alþingi lokaskýrslu í fyrsta lagi þann 1. september næstkomandi. Nefndarmaður á þó frekar von á því að skilin dragist fram eftir árinu 2012.

Mismunun sögð ríkja í skjóli laga um stjórnun fiskveiða

Sjálfstæðar fiskvinnslur gagnrýna að ekkert í fiskveiðistjórnunarfrumvarpi lúti að því að jafna samkeppnisstöðu vegna hráefniskaupa. Mismunandi reglur um kaup á afla halli á fiskverkanir án útgerða. Vilja fá allan fisk á markað.

Lánið var í erlendum myntum

Húsnæðislán Íslandsbanka í erlendri mynt eru ekki ólögmæt gengistryggð lán. Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands þar að lútandi í máli hjóna sem tekið höfðu slíkt lán hjá bankanum.

Brúnin er að lyftast á Íslendingum

Íslendingar hafa orðið sífellt ánægðari með sinn hag síðustu misseri. Fleiri Íslendingar segjast dafna og færri eiga í basli en áður og þá hefur andleg líðan farið batnandi. Þetta leiðir ný könnun Capacent Gallup á líðan Íslendinga í ljós en Capacent hefur mælt stöðu og andlega líðan Íslendinga frá því í maí 2010.

Helmingur veiðigjalds renni til þeirra sem afla teknanna

Stjórn Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, leggur til að helmingur af veiðigjaldi, hið minnsta, renni aftur til þeirra svæða þar sem teknanna er aflað til að styðja við uppbyggingu og innviði samfélaga á landsbyggðinni og atvinnusköpun þar.

Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur

Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Sandgerðisvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt.

Kostnaðurinn margfaldur eftir nokkur ár

Kostnaður ríkisins er margfalt meiri ef vegir fá að grotna niður. Vegamálastjóri segir viðhald þjóðvega komið niður fyrir lágmarksþröskuld. Vegakerfið er að hrynja undan okkur, segir Ólafur Guðmundsson, fulltrúi EuroRAP á Íslandi.

Sumarbústaður við Elliðavatn alelda

Slökkviliðsmenn berjast nú við eld í sumarbústað við Elliðavatn, Norðlingaholtsmegin. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra er bústaðurinn alelda en hann stendur á svokölluðum Selásblett. Enginn hefur fundist inni í bústaðnum. Slökkviliðsmenn reyna nú að verja gróðurinn í kringum bústaðinn. Ein stöð er á staðnum, þar á meðal einn tankbíll með 10 tonn af vatni. Búist er við að slökkvistarf standi yfir eitthvað frameftir kvöldi.

Gekk um íbúðarhverfi vopnaður haglabyssu

Maður á sextugsaldri gekk um íbúðarhverfi í Reykjavík síðdegis í dag vopnaður haglabyssu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var sérsveit Ríkislögreglustjóra send á staðinn og var maðurinn afvopnaður. Við nánari athugun kom í ljós að ekki var um raunverulegt skotvopn að ræða heldur eftirlíkingu. Ekki er vitað hvað manninum gekk til, en hann var undir áhrifum áfengis og vart viðræðuhæfur. Hann verður látinn sofa úr sér í kvöld og nótt og síðan yfirheyrður í fyrramálið.

Niðurstöðurnar ekki vonbrigði

Þóra Arnórsdóttir, segir að niðurstaða skoðunarkönnunar þar sem hún mælist með 39 prósent fylgi, ekki vera vonbrigði þrátt fyrir að hún mælist með minna fylgi nú en áður. Það sé gott að mælast með fjörutíu prósent fylgi aðeins einni viku eftir að hún hóf kosningabaráttuna. Þetta kom fram í kosningaþætti Ríkissjónvarpsins í kvöld. Ólafur Ragnar sagði að niðurstöðurnar væru í samræmi við þann meðbyr sem hann hefði fundið fyrir undanfarið. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup mælist Ólafur með tæplega 46 prósent fylgi og Þóra með 39 prósent. Ari Trausti mælist með rúmlega 9 prósent fylgi en aðrir frambjóðendur minna.

Forsetinn ber ábyrgð á því að landið verði ekki stjórnlaust

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í kosningaþætti í Ríkissjónvarpinu í kvöld að Bessastaðir væri síðasta stoppistöðin ef flokkarnir ná ekki að mynda ríkisstjórn í landinu eftir næstu þingkosningar, það gæti hugsanlega gerst þar sem margir flokkar verði í framboði. "Þá er það forsetinn einn sem ber ábyrgð á því að landið verði ekki stjórnlaust.“

Fékk viðskiptahugmynd við dauðans dyr

Ungur maður sem var við dauðans dyr segist vilja veita dauðvona fólki huggun með því að gera þeim kleift að taka upp og senda skilaboð til ástvina. Þannig sé ekkert eftir ósagt ef allt fer á versta veg.

Líklegt að hnakkar verði boðnir til sölu

Tilkynnt var um þrjú innbrot í hesthús í Víðidal í dag og segir lögregla að ekki sé ólíklegt að í framhaldinu bjóði einhverjir illa fengna hnakka og hjálma til sölu. "Reiðtygjum var einnig stolið í tveimur innbrotum í hesthús í Mosfellsbæ á dögunum og því rétt að fólki hafi þetta hugfast ef því býðst að kaupa slíkar vörur.

Draga á úr nammiáti Íslendinga

Velferðaráðherra segir það komi til greina að setja reglur um stæðir á sælgætisumbúðum, líkar þeim sem yfirvöld í New York hafa þegar samþykkt um drykkjarílát á gosi, til að draga úr neyslu. Þá telur hann þarft að verslanir endurskoði afslátt á sælgæti á laugardögum. Verslunin Víðir losaði sig við nammibarina í dag.

Segir mótmælendur á fullu kaupi að klappa fyrir LÍÚ

"Nú hafa útgerðarmenn siglt öllum sínum flota í land og stefnt öllu sínu starfsfólki á fullu kaupi til að standa þarna og hylla sig á Austurvelli,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Hún var ásamt Einari K. Guðfinnssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Brimborg átti ekki rétt á að skila lóðinni

Hæstiréttur telur að Brimborg hafi ekki átt rétt á því að skila lóð sem fyrirtækið hafði fengið afhenta frá Reykjavíkurborg gegn endurgreiðslu lóðagjalda. Dómur Hæstaréttar um þetta var kveðinn upp í dag. Brimborg sótti 25. janúar 2006 um 33 þúsund fermetra lóð við Lækjarmel á Esjumelum í Reykjavík. Á fundi borgarráðs áfrýjanda 16. febrúar 2006 var samþykkt að úthluta stefnda lóðinni og honum tilkynnt það bréflega samdægurs. Þar var tekið fram að lágmarksgatnagerðargjald væri 113 milljónir.

Fjögurra ára nauðgunardómur staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í dag fjögurra ára fangelsisdóm yfir tveimur erlendum karlmönnum fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll í október á síðasta ári. Mönnum er gert að greiða fórnarlambinu 1200 þúsund krónur í miskabætur.

Lánið ekki ólögmætt

Enn einn gengislánadómur féll í Hæstarétti í dag. Þar komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að lántakendur hefðu fengið lánsfjárhæðina greidda inn á reikning sinn í íslenskum krónum væri engu að síður um lán í erlendum myntum að ræða, en ekki krónulán með gengistryggingu. Lánið var því ekki ólögmætt.

Kveiktu á blysum á Austurvelli

Enn er nokkur fjöldi fólks samankominn á Austurvelli þar sem samstöðufundur vegna fiskveiðistjórnunarfrumvarpsins og auðlindagjaldsfrumvarpsins fóru fram. Nú rétt fyrir klukkan fimm kveiktu menn á blysum til að minna á málstaðinn. Ein kona fékk sár á höfuðið, svo úr blæddi, þegar hún var að mótmæla.

Gróðrarskúr loksins í Reykjavík

Hlé varð á samfelldum níu daga þurrviðriskafla í Reykjavík í dag þegar regndropar tóku að falla laust fyrir klukkan fjögur en síðast rigndi að ráði í borginni fyrr hálfum mánuði. Úrkoman í Reykjavík mældist 0,5 millimetrar á síðustu klukkustund á mælum Veðurstofu,

Allri ábyrgðinni velt yfir á Byr

Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs sparisjóðs og Ragnar Zophonías Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri voru fundnir sekir um umboðssvik fyrir að hafa veitt fyrirtækinu Exeter Holdings ehf. lán án fullnægjandi veða til að kaupa stofnfjárbréf í sparisjóðinum Byr.

Segir það ígildi Hells Angels að efast um frumvörp ríkisstjórnarinnar

"Það er ígildi Hells Angels að voga sér að efast um gildi frumvarpanna,“ sagði Ólöf Ýr Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Vélfags á Ólafsfirði, en hún hvetur almenning til þess að kynna sér kvótafrumvörpin. Það hafi hún gert án aðstoðar LÍÚ eins og hún orðaði það sjálf. Hún sagði ennfremur að henni hefði brugðið við að sjá sama tóninn í öllum þeim umsögnum sem hafa verið gerðar um frumvörpin, "þessi frumvörp eru vanhugsuð og gerð í fljótfærni,“ bætti hún við.

Óvíst um fordæmisgildi dómsins

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, var ekki búinn að fá dóm Hæstaréttar í hendur þegar Vísir náði tali af honum í dag. Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, voru dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik.

Sjómenn byrstu sig við mótmælendur

Smávægileg átök áttu sér stað á milli stríðandi fylkinga á mótmælum sjómanna og útvegsmanna á Austurvelli fyrir stundu. Þannig byrstu sjómenn sig við konu og Eiríkur Stefánsson, sem hrópuðu kröftuglega á meðan Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, hélt ræðu. Sjómenn byrstu sig við þau og ýttu við þeim.

Einar K.: Fiskveiðistjórnunarkerfið ekki mannréttindabrot

Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, fagnar þeirri niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna að fiskveiðistjórnunarkerfi Íslendinga sé ásættanlegt. Áður hafði nefndin ályktað að kerfið bryti gegn mannréttindum en nú hefur málinu verið lokað.

Vélarvana við Engey - aðeins nokkrum metrum frá strandi

Um klukkan hálf tvö í dag barst beiðni um aðstoð frá vélarvana báti sem staddur var norðan við Engey. Björgunarsveitin Ársæll var kölluð út og fór þegar á staðinn á tveimur björgunarbátum. Einnig var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út. Þegar björgunarsveitin kom að hafði bátinn rekið vestur fyrir eyjuna og var aðeins nokkra metra frá strandi.

Fjögurra og hálfs árs fangelsi í Exeter-málinu

Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar Z. Guðjónsson voru dæmdir í fjögurra og hálf sárs fangelsi í Hæstarétti í dag vegna Exeter málsins. Mál Styrmis var sent aftur í hérað. Héraðsdómur hafði sýknað alla mennina af ákærum en sérstakur saksóknari vísaði því frá.

Segja vinnubrögð útgerðarmanna ámælisverð

ASÍ telur vinnubrögð útgerðarmanna ámælisverð samkvæmt tilkynningu sem sambandið sendi frá sér. Þar segir að vinnustöðvun LÍÚ sé ólögmæt auk þess sem stéttarfélögum hefur verið meinaður aðgangur að fundum sem hafa verið haldnir með starfsfólki útgerðanna.

Nokkur þúsund manns á Austurvelli - bein útsending á Vísi

Áætlað er að nokkur þúsund manns séu komnir saman á Austurvelli þar sem samstöðufundur útgerðarmanna og sjómanna hefst á slaginu fjögur. Fulltrúar útvegsmanna, sjómanna og sveitastjórna á landsbyggðinni munu tala á fundinum. Smelltu á hnappinn horfa á myndskeið með frétt til að sjá útsendinguna.

Ungar einstæðar mæður í mestum vanda

Foreldrar sem þiggja fjárhagsaðstoð eru í meirihluta ungar, einhleypar konur og algengt er að þær hafi ekki menntað sig að loknum grunnskóla. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem Velferðarsvið Reykjavíkurborgar lét gera um aðstæður barnafjölskyldna í Reykjavík.

Sjá næstu 50 fréttir