Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flestir vilja takmarka setu forseta Rúm sextíu prósent þeirra sem tóku þátt í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins á dögunum telja að takmarka beri þann fjölda kjörtímabila sem forseti Íslands getur setið. Það kemur ekki á óvart að mest er andstaðan við slíkt á meðal stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar. 17.6.2012 18:34
"Nunnuvæðing í nútímastíl og meyjarhaftavörn sem kallast femínismi" "Loksins er komin niðurstaða í máli sem flestir voru búnir að gleyma. Það eru svo mörg önnur spennandi þjóðmál í gangi." Svona hefst pistill Guðbergs Bergssonar rithöfundar á bloggsíðu sinni í dag. 17.6.2012 17:31
Ellefu fengu fálkaorðuna Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi ellefu einstaklinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Á meðal orðuhafa eru Gissur Guðmundsson, sem fékk riddarakross fyrir forystu í alþjóðasamtökum matreiðslumeistara og á vettvangi íslenskra matreiðslumeistara og Jóhannes Einarsson fyrrverandi skólameistari sem fékk einnig riddarakross fyrir störf í þágu iðnmenntunar og verknáms. 17.6.2012 16:38
Festi krossarann - ætla að skoða málið eftir viku Þrír Belgar á torfæruhjólum festu eitt hjóla sinna við Grettishæð á Stórasandi fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg tókst þeim ekki að losa hjólið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir en gátu komið sér til byggða á hinum tveimur hjólunum og óskuðu eftir aðstoð björgunarsveita. 17.6.2012 16:30
Þorgerður Borgarlistamaður Reykjavíkur Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri var í dag útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2012. Útnefningin fór fram í Höfða þar sem Jón Gnarr borgarstjóri veitti listamanninum að þessu tilefni ágrafinn stein, heiðursskjal og viðurkenningarfé. 17.6.2012 16:00
Ólafur Ragnar líklegastur að mati veðmálasíðu Veðmálasíðan Betsson.com telur mestar líkur á því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verði endurkjörinn í forsetakosningunum sem fara fram 30. júní næstkomandi. Ólafur Ragnar er með stuðulinn 1,2 á meðan Þóra Arnórsdóttir, sem er talin næstlíklegust til að hreppa embættið, fær stuðulinn 3,6. 17.6.2012 14:38
Jóhanna: Mikill árangur náðst frá hruni Forsætisráðherra segir þjóðina hafa náð gríðarlegum árangri frá hruni, samdráttarskeiðið hafi verið stryttra hér en annarss staðar og jöfnuður aukist til muna. Hún segir átök á vettvangi stjórnmálanna ekki hafa verið hatrammari á 34 ára ferli hennar sem stjórnmálamaður. 17.6.2012 12:09
Laug að löggunni Sex ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einn af þeim reyndist án bílprófs en hann verður einnig kærður fyrir rangar sakargiftir því hann sagði lögreglumönnum að hann væri annar en hann er, það er gaf upp rangt nafn. 17.6.2012 11:47
Snjór, þrumur og eldingar í nótt Þjóðhátíðardagurinn heilsaði ökumönnum í Svínahrauni með alhvítri jörð og þrumum og eldingum um klukkan eitt í nótt. Þetta kemur frá fréttavefnum Sunnlenska.is. Fimm stiga hiti var á heiðinni í nótt og snjóaði talsvert á litlu svæði. Annars má búast við skúrum suðvestanlands í dag en bjartviðri norðanlands. Hiti verður á bilinu sex til fimmtán stig, hlýjast á suðvesturlandi. 17.6.2012 11:33
Hópslagsmál á Bíladögum Tilkynnt var um hópslagsmál í miðbæ Akureyrar í nótt en þar í bæ fer hátíðin Bíladagar fram. Að sögn lögreglu voru fimm fluttir á slysadeild eftirð hafa lent í slagsmálum í miðbænum en mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan skemmtistaðina eftir lokun. Þrír menn ruddustu inn á heimili í bænum og lömdu húsráðanda. Árásin tengist deilum á milli aðila, segir lögregla en húsráðandi slapp með minniháttar áverka. 17.6.2012 10:05
Svona er dagskráin í dag Þjóðhátíðardagur Íslendinga sautjándi júní verður haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Hátíðarhöld í Reykjavík hefjast með guðsþjónustu í Dómkirkjunni núna klukkan korter yfir tíu og verður hátíðardagskrá á Austurvelli upp úr klukkan ellefu og lýkur með skrúðgöngu að kirkjugarðinum við Suðurgötu þar sem forseti borgarstjórnar mun leggja blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar. 17.6.2012 09:58
Borgarbúar verða að flokka rusl Brátt þurfa allir Reykvíkingar að flokka pappír samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar. Óheimilt verður að setja pappír í sorpílát fyrir blandað sorp. 17.6.2012 06:00
Eldur í Breiðholti Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Dalaseli í Breiðholti á fimmta tímanum í dag. Að sögn varðstjóra kviknaði í húsbúnaði á svölum einnar íbúðarinnar. Stuttan tíma tók að ráða niðurlögum eldsins sem var ekki mikill. Mikið hefur verið að gera hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag og hafa slökkviliðsmenn sinnt allskyns útköllum, þar á meðal vatnslekum í íbúðum. 16.6.2012 18:03
OR hefur lagt milljarða í Gagnaveituna Orkuveita Reykjavíkur hefur frá árinu 1999 lagt 13 milljarða í fjarskiptastarfsemi. Þar af hafa 4,7 milljarðar farið beint í Gagnaveitu Reykjavíkur frá stofnun hennar. RÚV greinir frá þessu. 16.6.2012 17:30
Þriðju hverri ferð seinkaði hjá WOW air Þriðju hverri ferð WOW air frá landinu seinkaði á fyrri hluta mánaðarins. Komutímar stóðust hins vegar oftar og í heildina mælist stundvísi fyrirtækisins 69 prósent á tímabilinu. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Fyrsta flug WOW air fór í loftið um mánaðarmótin. 16.6.2012 17:13
Dorrit hljóp í Kvennahlaupinu Hátt í fimm þúsund konur lögðu af stað í Kvennahlaupinu í Garðabæ í dag en hlaupið er einn fjölmennasti íþróttaviðburður sem fer fram hér á landi ár hvert. Á meðal þeirra sem hljóp var Dorrit Moussaieff forsetafrú. Hlaupið var frá áttatíu stöðum hér landi og sextán stöðum erlendis. Blíðskaparveður var í Garðabænum í dag þegar konurnar "jogguðu“ af stað. 16.6.2012 15:32
Simmi og Jói gerðu símahrekk í Brynju-ís Simmi og Jói hringdu í morgun í ísverslunina Brynju á Akureyri og tjáðu afgreiðslustúlkunni að þeir væru að hringja fyrir Universal Studio í Bandaríkjunum. 16.6.2012 15:27
Lögreglan hikar ekki við að beita sektum Skipulögð þjóðhátíðardagskrá í Reykjavík hefst klukkan 10 í fyrramálið með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Eftir það tekur við fjölbreytt dagskrá með skemmtiatriðum um alla miðborg auk hefðbundinna hátíðardagskrárliða eins og ávarps fjallkonunnar. 16.6.2012 15:00
Þyrlan verið kölluð út vegna sinubrunans Þyrla landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til að aðstoða slökkviliðsmenn sem berjast við sinubruna í Ásfjalli í Áslandi í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra er töluvert mikill eldur á svæðinu en þrír slökkviliðsbílar hafa verið kallaðir út sem og sexhjól slökkviliðsins. Mikinn reyk leggur frá svæðinu og sést hann greinilega frá höfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað hvort hús eru í hættu. 16.6.2012 14:57
Mikill sinubruni í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú á leið á Ásfjall í Áslandi í Hafnarfirði vegna mikils sinubruna í fjallinu. Að sögn varðstjóra eru tveir slökkviliðsbílar á leiðinni, tankbíll og sexhjól. Verið er að kanna hvort að það þurfi að kalla út þyrlu til að hjálpa til við slökkvistarf. Mikinn reyk leggur frá svæðinu og sést hann greinilega frá höfuðborgarsvæðinu. 16.6.2012 14:31
Kvennahlaupið í dag Kvennahlaupið er í dag og verður hlaupið frá áttatíu stöðum hér á landi og sextán stöðum erlendis en kvennahlaupið er einn fjölmennasti íþróttaviðburður sem fram fer hér á landi ár hvert.. Í Garðabæ hefst hlaupið klukkan tvö en í Mosfellsbæ, Reykjanesbæ og á Akureyri hefst það klukkan ellefu. Upplýsingar um alla hlaupastaði má finna á sjova.is. 16.6.2012 11:46
Reiðubúnir að leggja fram tillögu um að stöðva umræðu Allt kapp var lagt á að ná samkomulagi um þinglok í gær. Þingfundi var frestað ítrekað og þegar Fréttablaðið fór í prentun stóð til að funda klukkan 22. Útkoma fundanna ræður því hvort þing klárast í dag. Ef ekki, er vilji fyrir hendi til að beita ákvæði um að ljúka umræðu með atkvæðagreiðslu. 16.6.2012 09:00
Gefa íslenskum börnum fánann Um 4.500 börn sem luku öðrum bekk grunnskóla nú í júní hafa fengið litlar fánaveifur að gjöf frá Skátahreyfingunni og Eimskip. 16.6.2012 07:00
Efla erlenda fjárfestingu á Íslandi Alþingi hefur samþykkt stefnumörkun um beina erlenda fjárfestingu, en hún var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Samkvæmt tillögunni, sem efnahags- og viðskiptaráðherra lagði fram, skal hann, ásamt iðnaðarráðherra, leggja fram tímasetta áætlun um aðgerðir til að bæta samkeppnisstöðu Íslands. 16.6.2012 06:00
Þingholtin hæst metna hverfið Hækkun fasteignamats er mjög misjafnt eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Nýtt fasteignamat fyrir næsta ár var kynnt á fimmtudag. 16.6.2012 05:30
Málskotsrétturinn er ykkar fólksins Ólafur Ragnar Grímsson, forseti og forsetaframbjóðandi, heimsótti Marel á dögunum ásamt Dorrit Moussaieff, eiginkonu sinni. Yfirfullt var í matsal Össurar þegar Ólafur Ragnar kynnti stefnumál sín og útskýrði sýn sína á hlutverk forsetans. 16.6.2012 05:00
Varað við meðferð elds - gróður eins og púðurgeymsla Skógurinn er eins og púðurgeymsla eftir langvarandi þurrka, segir slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, sem segir eldnotkun úti í náttúrunni sérlega hættulega um þessar mundir. Almannavarnir prófa á morgun viðbragðskerfi fyrir Skorradal vegna skógarelda. Um sjöhundruð sumarbústaðir eru í Skorradal en almannavarnir héldu í gærkvöldi fund á Hvanneyri þar 15.6.2012 21:30
Dóttir Þóru þyngst um kíló í kosningabaráttunni "Hún er fjögurra vikna í dag og það hefur gengið ótrúlega vel,“ sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi, þegar hún var spurð í Reykjavík síðdegis í dag hvernig það gengi að standa í kosningabaráttu með kornabarn í fanginu. 15.6.2012 21:00
Sneri á lesblinduna og dúxaði Sem barn taldi hún sig vera heimska og lesblindan háði henni fram á fullorðinsár. Hún var komin á sextugsaldur þegar hún lærði nýja tækni við lestur, og tók stúdentspróf. Guðríður Gyða Halldórsdóttir segir að þá fyrst hafi lífið byrjað. 15.6.2012 20:30
Þyrla Landhelgisgæslunnar leigð í kvikmyndgerð Norðurflug leigði TF-SYN í tvo daga til að ferðast með framleiðendur og tökumenn myndarinnar Oblivion á tökustaði. 15.6.2012 19:30
Ólafur Ragnar með afgerandi forystu Ólafur Ragnar Grímsson hefur tvöfalt meira fylgi en Þóra Arnórsdóttir í nýjustu skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Þóra toppaði of snemma, segir stjórnmálafræðingur. 15.6.2012 19:00
Nauðgunarmál gegn Agli Einarssyni fellt niður Ríkissaksóknari hefur fellt niður kærumál gegn Agli Einarssyni. Tæpir sjö mánuðir eru Egill var fyrst kærður fyrir nauðgun. 15.6.2012 18:20
Lögreglan kölluð út vegna háværra klósettferða Því miður gengur ekki öllum jafnvel að lifa í sátt og samlyndi við nágranna sína. Þessa dagana er lögreglan annað slagið að sinna útköllum, sem kalla má árstíðabundin. 15.6.2012 17:53
Segir það bull og vitleysu að þingmenn geti keypt sér endurkjör "Aðeins um þetta, ungir sjálfstæðismenn á Akureyri, það er ekki mánuður síðan þeir ályktuðu á allt annan hátt, þá var þeirra skoðun sú að þingmenn sem ekki styddu þetta verkefni ættu að hugsa sinn gang,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um harðorða ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) þar sem þeir gagnrýndu Kristján Þór og Tryggva Þór Herbertsson, sem báðir eru þingmenn í Norðausturkjördæmi, fyrir að hafa keypt sér endurkjör á næsta kjörtímabili, eins og það er orðað. 15.6.2012 17:37
Samkomulag í augsýn á Alþingi Eftir mikil fundahöld virðist samkomulag vera í augsýn á Alþingi um þinglok. Enn er verið að funda um málið í þinghúsinu en samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að frumvarp um veiðigjöld verði samþykkt á morgun. 15.6.2012 16:23
Mörður aflífaður á dýraspítala Loðdýr af marðarætt, sem kom til landsins með Norrænu á dögunum, er komið í leitirnar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að dýrið hafi fundist við húsleit á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Mörðurinn var tekinn í vörslu lögreglu sem flutti hann á dýraspítala þar sem "viðeigandi ráðstafanir“ voru gerðar, eins og það er orðað. 15.6.2012 15:27
Konunni enn haldið sofandi Konu sem stökk út úr brennandi húsi er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Líðan hennar er óbreytt og vakthafandi læknir getur ekki gefið frekari upplýsingar um batahorfur. 15.6.2012 15:20
Vilja allar virkjanahugmyndir á Hellisheiði á ís Fimm náttúruverndarsamtök hvetja til þess að allri frekari jarðvarmavinnslu á Hellisheiði verði frestað uns lausn finnst á þeim mengunarvandamálum sem virkjunum fylgja. Þetta kemur fram í ályktun frá félögunum í tilefni af þeim fregnum að Orkuveitan sjái ekki fram á að standast þau heilsuverndarmörk sem sett hafa verið fyrir árið 2014. 15.6.2012 16:43
Sumargötur í Reykjavík frá 17. júní Frá og með þjóðhátíðardeginum 17. júní taka gildi sumarlokanir á Laugavegi neðan Vatnsstígs og á Skólavörðustíg neðan Bergstaðastrætis. 15.6.2012 14:23
Tóku skóflustungu að nýjum framhaldsskóla í Mosfellsbæ Í dag var fyrsta skóflustungan að byggingu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ við Bjarkarholt tekin. Fyrsti áfangi verkefnisins gerir ráð fyrir fjögur þúsund fermetra byggingu og búist er við að 400 til 500 nemendur sæki skólann. 15.6.2012 14:46
SUS sakar Kristján og Tryggva um að kaupa sér atkvæði Samband ungra sjálfstæðismanna gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi harðlega fyrir að hafa samþykkt gerð Vaðlaheiðarganga á þingi í gær. Í ályktuninni er þeim Kristjáni Þór Júlíussyni og Tryggva Þór Herbertssyni óskað til hamingju með að hafa keypt sér endurkjör á næsta kjörtímabili, eins og það er orðað. Ungir sjálfstæðismenn bæta því við að verðið sem þeir greiði fyrir endurkjörið, 8,7 milljarðar, komi reyndar ekki úr þeirra vösum, heldur renni það úr vösum skattgreiðenda. 15.6.2012 13:57
Ók á Leifsstöð Síðdegis í gær varð ökumanni stigabíls sem notaður er á flugstöð Leifs Eiríkssonar á að aka á flugstöðina. Lögregla var kölluð til vegna óhappsins og sagðist ökumaðurinn hafa gleymt því hve hár bíllinn var. Hann ók því undir tengibygginguna og við það rakst bíllinn upp undir. Tjón varð á ytra byrði byggingarinnar og smávægilegt tjón á lyftu stigabílsins. 15.6.2012 13:50
Verðandi biskup prédikar í kvennamessu Verðandi biskup yfir Íslandi, séra Agnes M. Sigurðardóttir mun prédika í kvennamessu sem haldin verður við Þvottalaugarnar í Laugardal á kvenréttindadaginn 19. júní næstkomandi klukkan átta. Kvennakirkjan stendur fyrir guðsþjónustunni í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. 15.6.2012 13:21
Vill rannsaka rassskellingarnar Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, vill að íþróttahreyfingin rannsaki rassskellingar meðal ungra íþróttamanna. Hún hvetur hreyfinguna ennfremur til að fordæma slíka vígslur. 15.6.2012 13:14
Kínverskar silkhænur urðu hundi að bráð Hundur í Keflavík þefaði uppi og drap í gær hænur þegar hann slapp úr pössun. Lögreglu var tilkynnt um málið en þegar hún kom á vettvang hafði hundinum tekist að drepa þrjár kínverskar silkihænur sem voru á baklóð húss í bænum. Hundurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. 15.6.2012 13:12