Fleiri fréttir

Óvíst hvenær þingstörfum lýkur

Ekki liggur fyrir hvenær þingstörfum lýkur og þingmenn fara í sumarfrí. Formenn flokkanna funduðu um málið í gær. Bjarni Benediktsson sagði enga niðurstöðu hafa fengist á fundinum. "Menn voru svona að ræða stöðuna. Það gerðist nú ekki mikið," sagði Bjarni. Hann vill ekki spá fyrir um hve lengi þingið mun dragast í viðbót. Upphaflega var stefnt að því að þinglok yrðu nú um mánaðarmótin eða í byrjun júní. Ljóst er að það mun dragast um sinn enda nokkur stór mál á dagskrá alþingis.

Allir fengu vinnu hjá Kópavogi

Öll ungmenni sem sóttu um sumarstarf hjá Kópavogsbæ fengu vinnu. Rúmlega 1.500 ungmenni munu því starfa við margvísleg störf hjá bænum í sumar. Flest starfa ungmennin við snyrtingu og fegrun bæjarins en einnig sem stjórnendur á leikjanámskeiðum, flokksstjórar í vinnuskóla, verkamenn við íþróttavelli eða við afleysingar í sundlaugum svo dæmi séu nefnd.

Árásin á Hlemmi átti sér aðdraganda

Persónulegar illdeilur urðu til þess að öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á útigangsmanni sem þar hafðist við. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, segist hafa heyrt af því að árásin sem Grapevine birti á vefsíðu sinni hafi átt sér aðdraganda og mönnunum lent saman áður.

Kæra ógildingu framboðs Ástþórs

Fimm kjósendur hafa tekið sig saman og kært ákvörðun Innanríkisráðuneytisins að ógilda forsetaframboð Ástþórs Magnússonar. Kæran hefur borist til Hæstaréttar og Umboðsmanns Alþingis.

Árásin á Hlemmi einstakt mál

"Þetta er mjög leiðinlegt atvik, en einstakt mál geri ég ráð fyrir,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, varaformaður velferðaráðs Reykjavíkurborgar. Vísir sagði í gær frá myndbandi sem Grapevine birti af öryggisverði á Hlemmi sem gekk í skrokk á útigangsmanni sem hafðist við á Hlemmi. Mikið hefur verið gert á Hlemmi til þess að reyna að koma í veg fyrir að fólk dvelji þar langtímum saman við óæskilega iðju, en sú spurning vaknar hvort nóg sé gert fyrir utangarðsfólk. Heiða Kristín telur að mikil vinna sé unnin.

Fangelsið að Sogni opnað

Nýtt fangelsi að Sogni í Ölfusi var formlega tekið í notkun þann 1. júní síðastliðinn. Fangelsið er skilgreint sem "opið" fangelsi og verður það rekið sem útibú frá öryggisfangelsinu á Litla-Hrauni. Gert er ráð fyrir að vista þar allt að 20 fanga.

Íslendingum mun fjölga gríðarlega

Íslendingar verða að minnsta kosti orðnir 393 þúsund talsins árið 2061 samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar. Ítrasta spá, eða svokölluð háspá, gerir reyndar ráð fyrir því að mannfjöldinn verði orðinn 498 þúsund og miðspá gerir ráð fyrir að mannfjöldinn verði 436 þúsund.

Fiskverð snarhækkar á innlendum mörkuðum

Fiskverð snarhækkaði á fiskmörkuðum í gær og var um það bil 20 prósentum hærra en að meðaltali í síðasta mánuði, samkvæmt heimasíðum fiskmarkaðanna.

Rebekka Rut er fundin

Rebekka Rut Baldvinsdóttur, 15 ára gömul stúlka er fundin. Lögreglan lýsti eftir henni í gærdag en þá hafði hún ekki sést frá því að hún fór í skóla á föstudaginn var.

Vonsvikin með umboðsmann

Ástæða er til að endurskoða og endurskipuleggja starf umboðsmanns skuldara vegna þess hversu hægt fólki gengur að fá úrlausn sinna mála hjá embættinu. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær.

Ferðamönnum komið til bjargar á Sólheimasandi

Björgunarsveit frá Vík í Mýrdal var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða ferðamenn sem höfðu fest bíl sinn í sandbleytu á Sólheimasandi. Þeim var þó engin hætta búin.

Til mannréttindadómstólsins

Mál Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi ráðuneytisstjóra hefur verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta kom fram á RÚV í gær.

Merkingar geta verið villandi

„Ef það stendur íslenskar lopapeysur, merkt með íslensku fánamerki, þannig að það sé gefið í skyn að þetta sé alíslenskt, þá get ég nú tekið undir að þetta geti virkað villandi,“ segir Gísli Tryggvason talsmaður neytenda spurður út í vörumerkingar á lopapeysum.

Sektuðu fyrir nagladekkin

Ökumenn 30 bíla á höfuðborgarsvæðinu voru sektaðir um helgina fyrir að aka um á nagladekkjum. Notkun þeirra er óheimil á þessum árstíma.

Laufskrúð og byggð dregur úr vindinum

Lækkun ársmeðalvindhraða í Reykjavík er 0,1 m/s á áratug frá 1950. Mögulega enn meiri lækkun síðustu ár, að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings.

Fimm ára fá inni í Flataskóla

Flataskóli í Garðabæ mun í haust bjóða foreldrum fimm ára barna upp á val um að senda barn sitt í grunnskóla einu ári fyrr en áður. Ólöf Sigurðardóttir skólastjóri Flataskóla segir ráðist í verkefnið á faglegum forsendum.

Kveðst saklaus af innherjasvikum

Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi millistjórnandi hjá Glitni, neitaði því fyrir dómi í gær að hafa gerst sekur um tuttugu milljóna króna innherjasvik árið 2008.

Enginn sáttatónn og skip enn við bryggju

Sjávarútvegsráðherra segir aðgerðir LÍÚ ekki koma til með að hafa áhrif. Hann hafi aldrei hafnað því að ræða við útvegsmenn. Framkvæmdastjóri LÍÚ neitar að um lögbrot sé að ræða og kallar eftir því að málið verði leyst í breiðri sátt.

Farsímamarkaður að ná jafnvægi

Tíu þúsund áskriftir bættust við íslenskan farsímamarkað á síðasta ári. Hlutdeild Símans fór í fyrsta sinn niður fyrir 40 prósent og Vodafone fór niður fyrir 30 prósent. Nova og Tal bæta við sig. Samkeppnin jafnari frá næstu áramótum.

Of feitum börnum fækkað um helming

Niðurstöður rannsóknar sem kynnt var á ráðstefnu Samtaka norrænna næringarfræðinga sýna að helmingi færri sex ára börn á Íslandi eru of feit nú en fyrir tíu árum. Minni prótínneysla ungbarna er stór áhrifavaldur segir sérfræðingur.

Dreifa ókeypis tölvuleik á íslensku

Íslenska tölvufyrirtækið Gamatic hefur í dag dreifingu á nýjum tölvuleik að nafni Samsærið. Um er að ræða ævintýraleik sem snýst um að upplýsa glæp með því að leysa þrautir. Sérstaða leiksins er sú að hann hefur verið íslenskaður að fullu og verður dreift hér á landi án endurgjalds.

Bensín ætti að lækka meira

Enn er svigrúm fyrir frekari lækkanir á eldsneytisverði að mati FÍB þrátt fyrir að gengi krónunnar vinni á móti verðlækkunum á heimsmarkaði. Forstjóri N1 segir verðlækkanirnar þegar hafa skilað sér að fullu.

Aðgerðir LÍÚ ólögleg og ósvífin árás á Alþingi

„Þær aðgerðir sem Landssamband íslenskra útvegsmanna er að fara í núna, sem að mínu viti eru ólöglegar, eru ekkert annað en ósvífnar aðgerðir og eiga auðvitað ekki að líðast.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á þingi í gær um þá ákvörðun útgerðarmanna að halda fiskiskipaflota landsins í höfn næstu daga til að mótmæla kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar.

„Skapar glundroða og óeiningu“

Fjölmenni var á fundi landverkafólks og sjómanna í Vestmannaeyjum í gær og var þar samþykkt harðorð ályktun gegn fiskveiðifrumvörpum stjórnvalda. Þau séu „klárlega aðför að kjörum sjómanna og landverkafólks“ að mati fundarins og „skapi glundroða og óeiningu meðal þjóðarinnar“. Skoraði fundurinn á stjórnvöld að sækja Eyjar heim til að heyra sjónarmið Eyjamanna.

Par í sjálfheldu á Helgafelli

Fjallabjörgunarmenn úr björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið á Helgafell þar sem par er í sjálfheldu. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hugðist parið ganga á fellið og fór óhefðbundna leið.

Steingrímur situr fund Brims hf. um kvótafrumvörp

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, mun sitja opin fund útgerðarfélagsins Brims hf. um áhrif frumvarpa um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Skipafloti Brims fór ekki til veiða í dag og mun flotinn vera við bryggju út vikuna í mótmælaskyni.

Forsetinn í flokksbundinni pólitík

Ólafur Ragnar Grímsson er að bjóða upp á alveg nýja tegund af forseta, að mati álitsgjafa fréttastofu í kosningabaráttunni.

ASÍ íhugar að stefna LÍU

Alþýðusambandið telur útvegsmenn hafa farið langt út fyrir það sem skynsamlegt getur talist með ákvörðun sinn um binda flotann við bryggju. Ákall til stjórnvalda segir framkvæmdastjóri LÍÚ sem vonar að ekki þurfi að koma til frekari aðgerða.

Grímuklæddir þjófar lentu í átökum við starfsmann apóteks

Karlmaður og kona, með grímur fyrir andlitum sínum og vopnuð kúbeini, réðust inn í Akureyrarapótek í Kaupangi á Akureyri í hádeginu í gær. Til átaka kom á milli þessara aðila og starfsmanns apóteksins, sem hlaut minni háttar áverka á höfði, og reyndi maðurinn og konan síðan að flýja af vettvangi en voru handsömuð af vegfarendum sem leið áttu hjá og var þeim haldið þar til lögregla kom á vettvang. Um er að ræða einstaklinga á þrítugsaldri sem marg oft hafa komið við sögu lögreglu áður. Þau voru bæði í mjög annarlegu ástandi og fannst lítilræði af fíkniefnum á karlmanninum. Þau voru vistuð í fangageymslu og farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim.

Sjómenn styðja ákvörðun útgerðarmanna

Sjómenn styðja ákvörðun Landssambands íslenskra útvegsmanna um að halda skipum heima til þess að mótmæla frumvörpum stjórnvalda um auðlindagjald og fiskveiðistjórnunarkerfið.

Höfði opinn almenningi í allt sumar

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að opna Höfða fyrir gestum og gangandi á morgun og verður húsið opið í allt sumar milli klukkan 11 og 16 virka daga. Húsið hefur verið notað sem vettvangur fyrir gestamóttökur á vegum borgarinnar og aðeins verið opið fyrir gesti á menningarnótt Reykjavíkurborgar. En nú verður breyting á og allir áhugasamir eiga þess kost að skoða húsið frítt en tekið er við frjálsum framlögum á staðnum.

Aratúnsmálið flutt fyrir Hæstarétti

Málflutningur fór fram í svokölluðu Aratúnsmáli fyrir Hæstarétti í dag. Í málinu er blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, krafinn um bætur vegna umfjöllunar hans um nágrannaerjur í Aratúni.

Sýslumaður synjar lögbannskröfu á Landsbankann

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur synjað lögbannskröfu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda gegn Landsbankanum. Í lögbannskröfunni var farið fram á að stöðvuð yrði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána, vegna þeirrar miklu óvissu sem uppi er varðandi lánin sem Hæstiréttur hefur dæmt ólögmæt, og endurútreikninga þeirra.

Vistvænar byggingar ryðja sér til rúms hér á landi

Huga þarf betur að byggingarefni og hönnun til að þær uppfylli kröfur um vistvænar byggingar. Fyrirsjáanlegar eru breytingar í takt við Evrópureglugerðir. Nýr skóli í Mosfellsbæ verður vistvæn bygging.

Tveir krúttlegir kópar

Tveir landselkópar svamla nú um í selalauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Tvær af þremur urtum garðsins kæptu sitt hvoru megin við sjómannadaginn.

Þrjátíu ökumenn stöðvaðir á nagladekkjum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjátíu ökumenn um helgina sem voru á bílum á nagladekkjum. Það er óheimilt á þessum árstíma. Þeim verður gert að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur þetta verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum.

Hrædd um að ekkert samráð hafi verið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist hrædd um að ekki hafi verið haft samráð við sjómenn og landverkafólk þegar ákveðið var að gera hlé á veiðum. Útgerðarmenn séu í pólitísku verkfalli sem feli í sér ólögmæta árás á stjónvöld.

Sjá næstu 50 fréttir