Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Orkan og Atlantsolía lækkuðu verð Orkan lækkaði bensínverð um tvær krónur í morgun og Atlantsolía um sömu upphæð skömmu síðar. Bensínlítrinn hjá þessum félögum kostar nú röskar 248 krónur. Verð á Dísilolíu er óbreytt hjá báðum félögunum og er það nú alveg álíka og bensínverðið. Félögin lækkuðu bensínverðið um þrjár krónur fyrir helgi þannig að það hefur lækkað um samtals fimm krónur á nokkrum dögum. Þessar lækkanir koma í kjölfar lækkunar á heimsmarkaði, en þær héldu enn áfram í morgun. 4.6.2012 09:55
Réttað yfir Hauki í þriðja sinn í sama máli Aðalmeðferð fer fram í dag í máli ákæruvaldsins gegn Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Þetta er í þriðja skiptið sem aðalmeðferð fer fram í málinu gegn honum, því Hæstiréttur hefur tvisvar sinnum vísað málinu heim í hérað. 4.6.2012 09:49
Trjágróður skemmdist í eldi nærri Fjárborgum Skemmdir urðu á trjágróðri nærri Fjárborgum, austur af Reykjavík í gærkvöldi, þegar eldur kviknaði þar. 4.6.2012 07:21
Eldur í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn í nótt Íbúar í húsi í Þorlákshöfn hringdu á slökkviliðið upp úr klukkan þrjú í nótt og var þá orðinn töluverður reykur í húsinu. 4.6.2012 07:15
Strandveiðibátar streyma á miðin enda ekki í LÍÚ Strandveiðibátar hafa streymt á miðin í nótt til að hefja veiðar úr júníkvótanum. Um sex leitið í morgun voru 330 bátar komnir á sjó, umhverfis allt landið. 4.6.2012 06:50
Par reyndi að ræna apótek á Akureyri Ekki hefur enn verið hægt að yfirheyra karl og konu á þrítugsaldri, sem handtekinn voru eftir ránstilraun í apóteki á Akureyri í gær, þar sem fíkniefnavíma er ekki runnin af þeim. 4.6.2012 07:28
Þyrla sótti slasaðan norskan togarasjómann Þyrla Gæslunnar kom til Reykjavíkur um klukkan hálf níu í gærkvöldi með norskan sjómann, sem hafði slasast um borð í togara, þegar hann var að veiðum á Reykjaneshrygg. 4.6.2012 07:23
Gefa dagþjónustu öryggiseftirlit Dagþjónustunni fyrir fatlaða við Gylfaflöt í Grafarvogi hefur borist aðstoð víða að úr samfélaginu í kjölfar frétta um skemmdarverk í útivistargarði þjónustunnar. 4.6.2012 07:00
Samningar að nást um hótel Samningaviðræður við forsvarsmenn svissnesks fjárfestingafélags um byggingu hótelbyggingar við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu eru langt komnar, en Marriott-hótelið sem rísa mun á svæðinu verður langdýrasta hótel landsins. 4.6.2012 07:00
Kirkjan í Grafarvogi skuldar 600 milljónir Við borgum bara og borgum en lánin bara hækka,? segir Bjarni Kr. Grímsson, formaður sóknarnefndar Grafarvogskirkju um ríflega 600 milljóna króna skuld safnaðarins. Bjarni segir skuldina tilkomna vegna byggingar Grafavogskirkju sem var vígð árið 2000. Um sé að ræða verðtryggð lán sem hækkað hafi um 150 milljónir króna eftir hrunið 2008. 4.6.2012 06:30
Siglir í sumar um Diskóflóa Skipið Fram frá norska skipafélaginu Hurtigruten hafði viðkomu í Reykjavík á föstudag á leið sinni til Grænlands. Fram siglir í sumar um Diskóflóa undan vesturströnd Grænlands þar sem farþegar koma við í þorpum og öðrum athyglisverðum stöðum. Fram er sérútbúið til ferða á heimskautasvæðum og er nefnt eftir skipi landkönnuðarins Roalds Amundsen.- þj 4.6.2012 06:00
Dúxinn úr MR með 9,83 í meðaleinkunn „Ég hef notið þess öll árin í MR að vera með frábæra kennara sem hafa vakið áhuga á námsgreinunum og kennt þær vel,“ segir nýstúdentinn Hólmfríður Hannesdóttir, beðin um að uppljóstra leyndarmálinu að baki þeim árangri að útskrifast með 9,83 í meðaleinkunn af eðlisfræðibraut í Menntaskólanum í Reykjavík. Það er fjórða hæsta einkunn sem gefin hefur verið í sögu skólans. Til viðbótar við það að hafa góða kennara segir Hólmfríður árangurinn byggja á heldur einfaldri formúlu: Að skipuleggja sig og nýta tímann vel. 4.6.2012 05:00
Sjá fyrir sér hagstofu atvinnulífsins Meðal þess sem horft er til með sameiningu hagsmunasamtaka sem starfa fyrir atvinnulífið er að búa til öfluga hagdeild, nokkurs konar hagstofu atvinnulífsins. Samkvæmt heimildum blaðsins er í yfirstandandi viðræðum einna helst horft til þess að sameina með einhverjum hætti starfsemi Samtaka atvinnulífsins (SA) og Viðskiptaráðs Íslands (VÍ). Greint var frá því í blaðinu 10. þessa mánaðar að þreifingar hefðu átt sér stað á vettvangi samtakanna um nánara samstarf. 4.6.2012 05:00
Aukningin 1,3 prósent í maí Umferð um landið jókst um 1,3 prósent í nýliðnum maímánuði samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Það er mesta aukningin milli mánaða á árinu. 4.6.2012 04:00
1000 ára gamall ruslahaugur grafinn upp Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands munu taka þátt í uppgreftri á Görðum á Grænlandi í júlí og ágúst. Rústasvæðið kom í ljós árið 2005 þegar unnið var að framræslu votlendis skammt frá. Vegna framræslunnar hefur mýrin þornað upp og er varðveislu leifanna því hætta búin. 4.6.2012 03:15
Hægt er að horfa á alla útsendingu Stöðvar 2 frá kappræðunum hér Fyrir þá sem vilja fylgjast með viðburðarríkri útsendingu Stöðvar 2 sem fram fór í Hörpu fyrr í kvöld geta nálgast þættina í þremur hlutum í sjónvarpshluta Vísis. 3.6.2012 21:26
Öll andvíg eða full efasemda gagnvart ESB Herdís segist hafa efasemdir um aðild Íslendinga að ESB eins og staðan sé núna. Hún sagði í kappræðunum á Stöð 2 í kvöld að það væri mikil óvissa innan ESB. 3.6.2012 20:39
Þóra er í fæðingarorlofi Þóra Arnórsdóttir er í fæðingarorlofi á sama tíma og hún heyir sína kosningabaráttu. Þetta kom fram í fyrirspurn af netinu. Þóra sagðist ennfremur ætla að vera í orlofi til 31. júlí, en bætti við að barnið væri svo heppið að eiga föður sem kæmi til móts við móður þess. Þóra eignaðist, eins og kunnugt er, dóttur þann 18. maí síðastliðinn. 3.6.2012 20:34
Segir rannsóknarskýrsluna hafa verið fulla af rangfærslum Ólafur Ragnar Grímsson segir kaflann um forsetaembættið í rannsóknarskýrslu Alþingis ekki hafa verið byggða á réttum heimildum. 3.6.2012 20:04
Herdís: Mikilvægt að forseti sé þroskaður og með reynslu Í landi æskudýrkunar að þá er maður kominn framyfir síðasta söludag 38 ára, sagði Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi þegar talið barst að aldri forsetaframbjóðenda í dag. Herdís sagði að sér þætti mikilvægt að ung fólk sé kappsfullt og bryddi upp á nýjunum. "En mér finnst skipta máli að sá sem leiðir og er í forystu , að hann sé kominn með þroska og reynslu,“ sagði Herdís. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var spurður að því hvort hann væri ekki orðinn of gamall í starfið, í ljósi þess að hann yrði sjötugur á næsta ári. Hann svaraði því til að þótt hann vildi ekki líkja sér við Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, eða Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, þá hefðu þeir báðir verið eldri en hann í embætti. "Þetta er annasamt starf, er þá ekki gott að fá einhvern sem er tilbúinn til að leggja sín orkuríkustu ár í þetta,“ sagði Þóra Arnórsdóttir þegar hún var spurð út í það hvort aldur skipti máli. 3.6.2012 19:52
Ólafur Ragnar segist ekki hafa teygt stjórnskipun landsins Ólafur Ragnar Grímsson sagðist ekki sammála orðum Þóru Arnórsdóttur um að hann hefði teygt stjórnskipun landsins og spurði Þóru um dæmi þess eðlis að hann hefði gert slíkt. 3.6.2012 19:38
Þóra vill láta þjóðinni líða betur "Ég held að ég vildi láta minnast mín fyrir að hafa þjónað þjóðinni vel, að hafa náð til hennar, að ég hafi getað hafa látið henni líða örlítið betur og að hún gæti verið stolt af mér,“ sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar Elín Stephensen, áhorfandi úr sal, spurði hana hvernig hún vildi láta minnast sín sem forsetaframbjóðanda í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 og Vísis í kvöld. 3.6.2012 19:34
Þóra Arnórsdóttir: "Ég sé enga skriðdreka“ Ólafur Ragnar Grímsson segir enga tengingu á milli þess að Þóra Arnórsdóttir fór í barneignarleyfi á sama tíma og hann ákvað að hefja kosningabaráttu sína. Hann hafnaði forsendum spurningarinnar og sagði að hann hefði hafið sína baráttu vegna þess að það var orðið ljóst hverjir byðu sig fram og að kjörstjórnir væru búnar að óska eftir meðmælendalistum frambjóðanda. 3.6.2012 19:33
Ólafur Ragnar: Sextán ár nóg ef aðstæður væru eðlilegar "Vissulega, í eðlilegum kringumstæðum og eðlilegum aðstæðum, þá væri það langur tími,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, aðspurður um það hvort ekki væri nóg að forsetinn sæti í sextán ár eins og hann hefur gert. 3.6.2012 19:17
Herdís gekk ekki út - mikilvægara að ávarpa áhorfendur Herdís Þorgeirsdóttir segist taka undir sjónarmið forsetaframbjóðandanna þriggja sem gengu út úr sjónvarpssal í mótmælaskyni við Stöð 2 vegna fyrirkomulags um að ræða við tvo frambjóðendur í einu í Hörpu og láta Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur mætast tvö ein. 3.6.2012 19:08
Brýnt að kenna börnum forritun snemma Það má í raun segja að börn í dag kunni að lesa en ekki að skrifa, út frá tækninni. Þetta segir framkvæmdastjóri menntafyrirtækisins Skema sem ætlar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík að efla kennslu barna í forritun, ekki síst með þarfir atvinnulífsins í huga. 3.6.2012 19:00
Segja að forseti eigi ekki að skipta sér af pólitískum deilumálum Forseti Íslands á ekki að skipta sér að pólitískum deilumálum heldur hvetja til upplýstrar umræðu um málefni líðandi stundar. Þetta er mat Hannesar Bjarnasonar og Ara Trausta Guðmundssonar, forsetaframbjóðenda. 3.6.2012 18:30
Lögreglan rannsakar mann sem býst til þess að laga stéttir Lögreglunni á Suðurnesjum bárust í vikunni tvær tilkynningar um grunsamlegan mann sem færi um Reykjanesbæ og byði húsráðendum að laga stéttar við hýbýli þeirra samkvæmt fréttavef Víkurfrétta. 3.6.2012 14:53
Reyndi að smygla kókaíni til landsins Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins. Maðurinn sem er útlendur var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá Lundúnum samkvæmt vf.is. 3.6.2012 14:48
Gestur í Heiðmörk sleginn yfir umgengni - fann dömubindi og glerbrot "Fólk er að ganga örna sinna þarna,“ segir Guðbergur Guðmundsson sem var á ferð í Heiðmörk í gærdag en hann var sleginn yfir slæmri umhirðu á svæðinu, en þar mátti finna rusl út um allt, líkt og meðfylgjandi myndir sýna. 3.6.2012 13:34
Borgarfulltrúi vill meta betur hættuna af hraunflóði Huga þarf betur að líkum á eldsumbrotum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og hraunsflóðs af völdum þeirra. Þetta segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Hann segir gagnrýni eldfjallasérfræðings á áhættumati Almannavarna réttmæta. 3.6.2012 13:00
Kappræðurnar í Hörpu í beinni útsendingu á Vísi Hægt er að horfa á kappræður frambjóðenda til embættis forseta Íslands hér fyrir ofan og á sjónvarpssíðu Vísis. Dagskráin fer fram í Hörpu og stýra fréttamennirnir Helga Arnardóttir og Þorbjörn Þórðarson umræðunum, sem eru einnig í opinni dagskrá á Stöð 2. 3.6.2012 18:45
Tekið á móti spurningum til frambjóðenda í gegnum Facebook og Twitter Frambjóðendur til embættis forseta Íslands mætast í kappræðum í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 18.55 í kvöld. Dagskráin fer fram í Hörpu og munu fréttamennirnir Helga Arnardóttir og Þorbjörn Þórðarson stýra umræðunum. Andri Ólafsson fréttamaður tekur einnig á móti spurningum áhorfenda í sal, auk áhorfenda heima í stofu, sem gefst kostur á því að spyrja frambjóðendur í gegnum Facebook og Twitter. 3.6.2012 17:15
Almennir borgarar handtóku vopnaða ræningja á Akureyri Almennir borgarar handtóku karlmann og konu á þrítugsaldri í hádeginu í dag þegar þau reyndu að ræna apótek á Akureyri. Fólkið var í annarlegu ástandi þegar þau komu inn í apótekið vopnuð kúbeinum og með hulin andlit. Þau ógnuðu starfsfólki sem tókst þó að hrekja þau á flótta. 3.6.2012 17:07
Steingrímur vill skattaívilnanir fyrir sjómenn í framtíðinni Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, sagði í hátíðarræðu sinni í tilefni af sjómannadeginum í dag að hann vildi ekki varpa frekari skugga á hátíðarhöldin með því að ræða um harðvítug átök LÍÚ og ríkisstjórnarinnar. "Það kynni ég að hafa látið eftir mér ef mál hefðu ekki skipast með þeim hætti sem raun bar vitni í gær,“ sagði Steingrímur og vitnaði þar til mótmælaaðgerða LÍÚ en nær allur skipafloti Íslendinga mun verða bundin við bryggju í næstu viku í svokölluðu neyðarkalli útgerðarmanna. 3.6.2012 15:48
Aflýsa sýningaflugi - þurfa að sækja slasaðan sjómann Landhelgisgæslan þarf að aflýsa sýningarflugi í Reykjavík og Vestmannaeyjum í dag en þeir fengu tilkynningu um slasaðann sjómann í norskum togara fyrir stundu. 3.6.2012 15:15
Hannes Bjarnason: Ætlar ekki nakinn niður Laugaveg fyrir athygli Einungis þrír af þeim 1.500 sem voru spurðir í nýjustu skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 nefndu nafn þitt sem næsta forseta Íslands. Ertu með raunverulegar væntingar til þess í dag að komast á Bessastaði? 3.6.2012 14:30
Gerði LÍÚ tilboð í beinni: Sendið skipin út og við skulum funda "Ég skal gera þér tilboð. Nú skulum við hætta þessum skærum, sendið skipin á sjó og ég skal sjálfur, prívat og persónulega sjá til þess að við setjumst niður í vikunni og ræðum þetta,“ sagði Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, þegar hann gerði framkvæmdastjóra LÍÚ, Friðriki Arngrímssyni, tilboð um sáttafund á milli sambandsins og ríkisstjórnar. 3.6.2012 11:54
Þrír stútar teknir í morgun Þrír ökumenn voru stöðvaðir í morgun fyrir ölvunarakstur og fíkniefnaakstur. Þannig voru tveir teknir á sjöunda tímanum í morgun. Annar var stöðvaður á Hringbraut í Reykjavík en hinn á Vesturlandsvegi við Korputorg. Báðir voru fluttir á lögreglustöð þar sem málin voru gerð upp. 3.6.2012 11:05
Veifaði hnífi á Vesturgötunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem veifaði hníf á Vesturgötunni í miðborg Reykjavíkur um klukkan hálf sjö í morgun. Þegar lögreglan kom á vettvang hafði maðurinn slíðrað hnífinn en lögreglan fann hann við leit á manninum. 3.6.2012 10:58
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Fjölbreytt dagskrá er víða í boði. Hægt verður að skella sér í lundaskoðun, hlusta á ljúfa tóna og smakka makríl og loðnu svo eitthvað sé nefnt. 3.6.2012 10:26
Kappræður í beinni í kvöld - lesendur geta sent spurningar Í kvöld fara fram kappræður milli forsetaframbjóðendanna sex í beinni útsendingu frá Hörpunni á Stöð 2 og Vísi.is. Fréttamennirnir Helga Arnardóttir og Þorbjörn Þórðarson sem munu stýra umræðum. 3.6.2012 10:03
Bannað að nefna eftir Aðalvík Ekki er leyfilegt að nefna barn sitt eftir hinni fögru Aðalvík á Hornströndum þar sem mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um að nafnið Aðalvíkingur verði fært í mannanafnaskrá. 3.6.2012 09:59
Skálavörður fann villta göngumenn Par sem var í gönguferð á Rjúpnafelli í Þórsmörk villtist af leið og lenti í sjálfheldu í gærkvöldi. Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Bróðurhöndin undan Eyjafjöllum voru kallaðar út til leitar. 3.6.2012 09:56
Stúlka skölluð í andlitið Stúlka var flutt á slysadeild skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt en óprúttinn aðili virðist hafa skallað hana í andlitið á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. 3.6.2012 09:53