Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Læknum fækkaði um 10% Læknum á íslenskum heilbrigðisstofnunum hefur fækkað um meira en 10 prósent síðan þeir voru hvað flestir árið 2008 og þar til nú. 3.9.2011 12:12
HIV-faraldur hjá sprautufíklum Aldrei hafa sprautufíklar verið jafnstór hluti þeirra sem greinast með HIV og nú. Það sem af er ári hafa sautján greinst með veiruna, þar af eru þrettán sprautufíklar. Á síðasta ári greindust 24 með HIV-smit, fleiri en nokkru sinni, þar af voru tíu sprautufíklar. 3.9.2011 09:00
Tveir handteknir vegna fíkniefnasölu á Akureyri Tveir karlmenn voru handteknir við húsleit á Akureyri í gærkvöld. Húsleitin var gerð vegna gruns um að þar færi fram fíkniefnasala. Sá grunur reyndist réttur því þar fundust 50 grömm af amfetamíni, e-töflur, sterar og kannabisefni. Þá fannst jafnframt ein og hálf milljón króna í reiðufé sem ætla má að hafi verið fengin með sölu fíkniefna. Karlmennirnir tveir voru handteknir en sleppt aftur að lokinni yfirheyrslu. Lögreglan rannsakar málið áfram. 3.9.2011 08:59
Nýtt athvarf fyrir fólk á leið úr vændi Stígamót opnuðu nýtt athvarf fyrir konur sem eru að stíga út úr vændi og mansali í gær. Athvarfið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Fjöldi sjálfboðaliða mun vinna á staðnum, en heimilisfangið verður ekki gefið upp til að vernda þá sem þangað sækja. 3.9.2011 08:30
Elstu teikningarnar frá 1944 Sýning með teikningum eftir Erró opnar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi í dag. Um 200 teikningar eru á sýningunni sem er skipulögð í náinni samvinnu við Erró og byggð á verkum sem koma úr einkasafni listamannsins og safneign Listasafns Reykjavíkur. 3.9.2011 08:15
Þráinn stöðvaði stjórnkerfisbreytingar Til stóð að allsherjarnefnd afgreiddi frumvarp um stjórnkerfisbreytingar í gær en til þess kom þó ekki. Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og þar með var ekki meirihluti fyrir því. 3.9.2011 08:00
Opinber útgjöld nær helmingur landsframleiðslu Opinber útgjöld, að frádregnum ellilífeyrisgreiðslum almannatrygginga, eru hlutfallslega hæst á Íslandi meðal Evrópuríkja. Þetta kemur fram í tölum sem Samtök atvinnulífsins (SA) hafa birt. 3.9.2011 07:30
Rafbækur og nettónlist í lægra þrep Efnahags- og skattanefnd afgreiddi í gær frumvarp um að lækka virðisaukaskatt á rafbækur og tónlist á netinu. Þessir vöruflokkar eru nú í hærra skattþrepi og bera 25,5 prósenta skatt, en munu bera 7 prósenta skatt verði breytingin að veruleika. 3.9.2011 06:30
Fagnar áhuga Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar áhuga kínverska auðjöfursins Huangs Nubo á fjárfestingum hérlendis. Þetta kemur fram í viðtali breska dagblaðsins Financial Times við forsetann. 3.9.2011 06:15
Allt á uppleið eða í kaldakoli Ætla mætti að stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar lifi ekki í sama samfélaginu, ef marka má umræður á Alþingi. Þing kom saman að nýju í gær og til umræðu var munnleg skýrsla forsætisráðherra um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum. Stjórnarliðar gerðu mikið úr þeim árangri sem náðst hefði í efnahagsmálum og vitnuðu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og erlendra, jafnt sem innlendra, álitsgjafa máli sínu til stuðnings. 3.9.2011 05:45
Reglum um erfðabreyttan mat frestað Neytendamál Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur frestað til áramóta gildistöku reglugerðar um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla, sem átti að taka gildi síðastliðinn miðvikudag. Neytendasamtökin mótmæla frestuninni harðlega en lögfræðingur í ráðuneytinu segir innflytjendur hafa beðið um frestinn. Sá hluti reglugerðarinnar sem veit að merkingum dýrafóðurs úr erfðabreyttum hráefnum hefur þegar tekið gildi. 3.9.2011 05:30
Hefur ekki lagt fram formlegt tilboð Byggingarreiturinn sunnan við tónlistarhúsið Hörpu var boðinn út í júlí síðastliðnum. Eignarhaldsfélaginu Sítus, dótturfélagi Austurhafnar ehf., bárust sex formleg tilboð frá aðilum sem lýstu yfir áhuga á að reisa þar hótel. Samkvæmt upplýsingum frá Sítusi var Nubo ekki einn þeirra. Þeir sem gerðu tilboð í reitinn koma meðal annars frá Indlandi, Sviss og Íslandi. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hver þessara sex aðila, ef einhver, fái reitnum úthlutað en verið er að fara yfir málið. 3.9.2011 05:15
Segir Samkeppniseftirlitið leggja Forlagið í einelti Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi hjá Forlaginu, segir Samkeppniseftirlitið hafa lagt fyrirtækið í einelti síðustu ár. Þrátt fyrir blómlega samkeppni í útgáfu láti eftirlitið fyrirtækið ekki í friði. 3.9.2011 04:30
Segja Jóhönnu fara rangt með Samtök atvinnulífsins (SA) segja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi farið með rangt mál á Alþingi í gær þegar hún fullyrti að hlutur launa í landsframleiðslu hefði aldrei verið lægri en nú, eða 59 prósent samanborið við yfir 72 prósent árið 2007. 3.9.2011 04:30
Huang Nubo vill reisa lúxus-hótel við hliðina á Hörpu Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo vill reisa 300 herbergja lúxushótel í Reykjavík. Nubo vill hefja framkvæmdir við uppbyggingu ferðamannaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum sem fyrst, en hann bíður nú eftir undanþágu frá innanríkisráðuneytinu fyrir kaupum á lóðinni. Þetta segir Halldór Jóhannsson, aðstoðarmaður Nubo á Íslandi. 3.9.2011 04:15
ÍLS braut ekki jafnréttislög Íbúðalánasjóður braut ekki jafnréttislög þegar hann réð Sigurð Erlingsson sem framkvæmdastjóra sjóðsins haustið 2010. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála. 3.9.2011 04:15
Sendi 100 dali í þakkarskyni Bandarískur ferðamaður sem björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ bjargaði úr sjálfheldu snemma í ágúst sendi sveitinni þakkarbréf frá Bandaríkjun-um, og lét fylgja með ávísun að andvirði 100 Bandaríkjadala, sem jafngildir um 11.500 krónum. 3.9.2011 03:30
Borgina vantar 43 starfsmenn Reykjavíkurborg vantar enn 43 starfsmenn til að manna stöður á frístundaheimilum. Fjöldi barna á biðlista eftir plássi er nú um 350. Í síðustu viku vantaði 86 starfsmenn og um 650 börn voru á biðlista. Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs, vonast til þess að búið verði að ráða í allar stöður á næstu tveim til þrem vikum. „Það endaði að minnsta kosti þannig í fyrra. Þetta small saman að lokum,“ segir Eva.- sv 3.9.2011 02:45
Slasaðist illa og hjólið brotnaði í tvennt Þegar Guðbjörg Halldórsdóttir fór í hjólreiðatúr í Fossvogsdalnum á góðviðrisdegi í júlíbyrjun átti hún ekki von á því að hún yrði meira og minna frá vinnu næstu tvo mánuðina. 3.9.2011 02:30
Meintur nauðgari neitaði sök Ákæra hefur verið gefin út á hendur manni sem situr í varðhaldi, grunaður um nauðgun á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Ákæran var þingfest fyrir Héraðsdómi Suðurlands á fimmtudag og neitaði maðurinn sök. 3.9.2011 02:15
Arineldur veldur uppþoti í Asparfelli Eldsvoðinn í Asparfelli reyndist ekki vera annað en bjarmi af arineldi sem speglaðist í rúðum einnar íbúðar í húsinu. 5 bílar frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á staðinn. Þegar þeir komu á vettvang var ekki um neinn eldsvoða að ræða. 2.9.2011 23:53
Eldsvoði í Asparfelli Hringt var vegna eldsvoða í Asparfelli í Breiðholti nú rétt í þessu. Þrír dælubílar og tveir körfubílar frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru samstundis sendir á staðinn. Ekki er enn vitað hve alvarlegur eldsvoðinn er og slökkviliðið vill ekki tjá sig frekar um málið í bili. 2.9.2011 23:27
Enn vatnslaust eftir Grímsvatnagos Bærinn Múlakot á Kirkjubæjarklaustri hefur verið vatnslaus síðan Grímsvötn gusu í vor á þessu ári. Sigurður Baldursson, íbúi á Múlakoti, segir hvern einasta dag hefjast á því að hann keyri yfir á næsta bæ með 1000 lítra vatnsker að sækja vatn ofan í fólkið og skepnurnar. „Og svo erum við bara að andskotast í þessu allan daginn og langt fram á kvöld,“ segir Sigurður. 2.9.2011 20:07
Erró opnar sýningu á morgun Íslenski málarinn Erró heldur í fyrsta skipti sýningu á teikningum sínum hér á landi allt frá því hann var tólf ára til dagsins í dag. Hann segir þær alla tíð hafa verið mikið feimnismál og hann hafi langt í frá verið talinn besti teiknarinn þegar hann var að læra. Hann verður áttræður á næsta ári og segist ekki taka það í mál að setjast í helgan stein. 2.9.2011 22:30
Árangur skógræktar kemur í ljós Árangur skógræktarátaks, sem hófst fyrir tuttugu árum, er nú að koma í ljós og landið mun klæðast miklum skógi á næstu árum og áratugum, segir formaður Skógræktarfélags Íslands. Helsta áhyggjuefni skógræktarmanna er þó sauðkindin, enn sem fyrr. 2.9.2011 21:30
Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltu Bíll valt í Ártúnsbrekkunni uppúr klukkan sjö í dag. Tveir farþegar voru í bílnum og voru þeir báðir fluttir á slysavarðstofu. Hvorugur reyndist alvarlega slasaður. 2.9.2011 21:15
Mannekla á frístundaheimilum Rúmlega þrjú hundruð og fimmtíu reykvísk börn hafa enn ekki fengið pláss á frístundaheimilum, en ellefu dagar eru síðan skólahald hófst. Allt kapp lagt á að manna stöður svo börnin komist að segir formaður íþrótta og tómstundaráðs. 2.9.2011 21:00
Þingfundir hefjast undir mótmælum Mótmælendur ráku hátt í 200 svarta krossa í túnið á Austurvelli þegar þingfundir hófust að nýju í morgun. Innan dyra Alþingis körpuðu þingmenn um árangur ríkisstjórnarinnar í baráttunni við efnahagsvandann. 2.9.2011 20:30
Perlan auglýst til sölu á morgun Perlan í Öskjuhlíð verður auglýst til sölu í dagblöðum á morgun. Perlan er ein þeirra eigna sem stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti að selja í janúar síðastliðnum. Fasteignasalan Miklaborg sér um söluferlið. 2.9.2011 20:20
Ætlaði aldrei að verða lífstíðar þingmaður Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar hefur sagt af sér þingstörfum og ætlar að hefja nám í Háskóla Íslands í haust. Tilkynningin kom þingmönnum í opna skjöldu í dag. 2.9.2011 20:00
Icesave ekki lokið Icesave málinu er ekki lokið þrátt fyrir að heimtur úr þrotabúi Landsbankans dugi fyrir allri kröfunni. Enn standa deilur yfir um málalyktir, en fjármálaráðherra segir að hægt hefði verið að ljúka málinu endanlega með síðustu Icesave samningum. 2.9.2011 19:30
Eiga ekki að þurfa að óttast mannorðsmorð Viðskiptaráðherra segir að fjárfestum megi ekki líða eins og þeir hætti á mannorðsmorð með því að fjárfesta á Íslandi. Hann spyr hvort efnisleg rök séu fyrir því að banna Kínverskum fjárfestum það sem Evrópubúum er leyfilegt. 2.9.2011 18:52
Nauðsynlegt að eyða í menntakerfið Dr. Jonathan R. Cole, mikill sérfræðingur í háskólamálum, hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands í dag. Á fyrirlestrinum fjallaði hann um stöðu og framtíð rannsóknarháskóla. 2.9.2011 18:30
Starfsmenn Kvikmyndaskólans boða til sáttafundar Eftir að starfsmenn Kvikmyndaskóla Íslands sendu frá sér sáttartillögu síðastliðinn miðvikudag hafa þeir lítið heyrt frá Menntamálaráðuneytinu. Stjórn Kvikmyndaskólans hefur hins vegar lýst sig reiðubúna til að fara yfir tillögur þeirra. Til þess að fylgja málinu eftir hafa starfsmenn skólans boðað deiluaðilana á sáttarfund, í stað þess að sitja með hendur í skauti og horfa á dagana "brenna upp". 2.9.2011 17:25
Formaður ungra Framsóknarmanna segir sig úr flokknum Formaður Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) Sigurjón Norberg Kjærnested, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum. Hann fylgir því á eftir Guðmundi Steingrímssyni sem sagði sig úr flokknum í síðustu viku og situr sem óháður þingmaður. Þá sagði Einar Skúlason, varaþingmaður, sig einnig úr flokknum. 2.9.2011 16:51
Halda minningartónleika um Sissu Minningartónleikar um Sigrúnu Mjöll Jóhannesdóttur verða haldnir í Hofi, menningarhúsinu á Akureyri, föstudaginn 30. september næstkomandi. Það eru stelpur á Meðferðarheimilinu á Laugalandi sem fengu þá hugmynd á vordögum að halda tónleika til þess að styrkja minningarsjóð Sissu, eins og hún var jafnan kölluð, en hún var í meðferð þar. Sissa lést í júní í fyrra eftir of stóran skammt af læknadópi aðeins 17 ára gömul. 2.9.2011 16:27
Langanesbyggð gagnrýnir kvótafrumvarp harðlega Sveitastjórn Langanesbyggðar skorar á sjávarútvegsráðherra að draga frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða til baka. Sveitastjórnin lýsir ennfremur yfir þungum áhyggjum vegna frumvarps sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. 2.9.2011 16:21
Lúðvík hugsar sig um: Það mætir einhver á þingfund á mánudaginn „Þetta ber mjög skjótt að,“ segir Lúðvík Geirsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi en honum stendur til boða að taka þingsæti Þórunnar Sveinbjarnardóttur sem tilkynnti í dag að hún segði af sér þingmennsku frá og með mánudeginum næsta. 2.9.2011 15:23
Hættir á þingi til að læra siðfræði "Þetta er ákvörðun sem er tekin af mjög vandlega hugsuðu máli,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem tilkynnti í dag að hún segði af sér þingmennsku. Spurð hvað komi til segist hún hafa verið að bræða með sér hugmyndina í nokkurn tíma. 2.9.2011 14:23
Konur á leið úr vændi fá athvarf Tímamót urðu í sögu Stígamóta í dag þegar nýtt kvennaathvarf fyrir konur á leið úr vændi og mansali var opnað. Vændi er falið og marar í kafi segir verkefnisstýra athvarfsins. 2.9.2011 22:00
Þórunn segir af sér þingmennsku Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku frá og með mánudeginum 5. september samkvæmt tilkynningu sem hún sendi á fjölmiðla. 2.9.2011 13:59
Strætó-kort hækka í verði - stök fargjöld standa í stað Verð á mánaðar-, þriggja mánaða og níu mánaða strætókortum hækkar um 9-10% hinn 1. október næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá Strætó bs. 2.9.2011 13:53
Radarvörum stolið og fíkniefni gerð upptæk Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í gær og radarvara stolið úr þeim öllum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 2.9.2011 13:33
Ætlaði að ræna verslun en fann engan starfsmann Rétt tæplega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir vopnuð rán og þjófnað. Maðurinn er meðal annars sakaður um að hafa rænt verslun 10-11 í Grímsbæ í desember á síðasta ári vopnaður hnífi. Maðurinn hafði rúmar fimmtán þúsund krónur upp úr krafsinu auk sígarettupakka samkvæmt ákærunni. 2.9.2011 13:03
Vill taka upp evru til þess að losna við verðtryggingu Formaður efnahags- og skattanefndar vill taka upp evru til að losna við verðtrygginguna. Hagfræðingur hjá Seðlabankanum telur að afnám verðtryggingarinnar nú myndi fela í sér hærri raunvexti til lántaka en nú er. 2.9.2011 12:21