Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einar vill að Jón rífi kvótafrumvörpin Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra segir að núverandi ráðherra ætti að fara niður í ráðuneyti sitt og rífa frumvörpin um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, nú þegar sérfræðingar á hans vegum hafa gagnrýnt frumvörpin harðlega. 19.6.2011 12:25
Haldið upp á Kvenréttindadaginn með margvíslegum hætti Kvenréttindadagurinn er í dag, 19. júní, og eru margir viðburðir skipulagðir víðsvegar um Reykjavík til að fagna honum. Í dag eru 96 ár liðin frá því að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu langþráðan kosningarrétt og kjörgengi til Alþingis. 19.6.2011 12:14
Breytingar á kvótakerfinu má ekki bara skoða út frá hagfræði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir að breytingar á kvótakerfinu eigi ekki einungis að skoða út frá hagfræði. Einnig verði að huga að samfélagslegum breytingum. Hún hefur fulla trú á að umtalsverðar breytingar verði gerðar á kvótakerfinu. 19.6.2011 11:29
Konur fá frítt inn á Árbæjarsafnið Skyggnst verður inn í heim genginna reykvískra kvenna á 19. öld af öllum stigum þjóðfélagins á Árbæjarsafni í dag, Kvennréttindadaginn. Á þessum degi árið 1915 fengu íslenskar konur kosningarétt og af því tilefni er frítt inn fyrir konur á Árbæjarsafnið í dag. 19.6.2011 10:49
Hafnaði á skeri og lenti í sjónum Karlmaður missti stjórn á sæþotu fyrir utan Arnarnes í Garðabæ í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hann hafnaði á skeri og lenti í sjónum. Maðurinn kom sér af sjálfsdáðum upp á skerið og sat þar fastur í rúman hálftíma. Slökkvilið og björgunarsveitir voru kallaðar út og komu manninum til bjargar. Hann reyndist ómeiddur þrátt fyrir allt. 19.6.2011 10:22
Átta í fangageymslum á Akureyri Nóttin var mjög erilsöm hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en þar standa Bíladagar yfir. Fjöldi fólks lagði leið sína í bæinn og sátu margir að sumbli fram undir morgun. Allir átta fangageymsluklefar voru nýttir og segir varðstjóri nokkra þeirra hafa hýst fleiri en einn yfir nóttina. Eitthvað var um slagsmál og voru tveir stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. 19.6.2011 09:56
Tekinn á ofsahraða á Vesturlandsvegi Ökumaður var tekinn fyrir of hraðan akstur á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi mældist bíll hans á 163 kílómetra hraða en þarna er 90 kílómetra hámarkshraði. 19.6.2011 09:54
Karlmaður fannst látinn Karlmaður um fimmtugt sem fjölmennt lið lögreglu- og björgunarsveitarmanna leitaði að í gær fannst látinn í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Hvolsvelli lítur út fyrir að maðurinn hafi orðið bráðkvaddur. 19.6.2011 09:29
Styðja rétt samkynhneigðra Sameinuðu þjóðirnar hafa nú, í fyrsta sinn í sögu sinni, lýst yfir stuðningi við réttindi samkynhneigðra. Bandaríkin, Evrópuríki og ríki Suður-Ameríku greiddu ályktun þess efnis atkvæði sitt og segja þetta mikilvæg tímamót en fulltrúar Afríkuríkja og íslamskra ríkja fordæma ályktunina. 19.6.2011 08:00
Í beinni frá Hrafnseyri fyrstir allra útvarpsmanna Hermann Gunnarsson og Þorgeir Ástavaldsson voru í beinni útsendingu á Bylgjunni frá Hrafnseyri í Arnarfirði í dag og í gær, fyrstir allra útvarpsmanna. 18.6.2011 20:17
Röð fyrir utan NASA - styttist í tónleika GusGus Á áttunda tímanum í kvöld hafði myndast dágóð röð fyrir utan NASA við Austurvöll vegna útgáfutónleika nýjustu plötu GusGus, Arabian Horse. Um er að ræða tvenna tónleika og uppselt er í forsölu á þá báða, en einhverjir miðar verða seldir í hurð. Þeir sem ekki komst á þessa tímamótatónleika geta glaðst vegna þess að fyrri tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 20:30 en sjálfir tónleikarnir hefjast síðan klukkan rúmlega 21. 18.6.2011 19:58
Viðbrögð Helga Björns: Ég held að þetta sé í alvöru Allt eldvarnarkerfi Hörpu fór í gang á ellefta tímanum í gærkvöldi á miðjum tónleikum Helga Björnssonar og tvö þúsund manns þurftu að rýma tónleikasali og veitingahús. Enginn eldur hafði þó brotist út - heldur steig gufa upp úr uppþvottavél. 18.6.2011 19:51
Vill að ríki taki upp frjálsan hugbúnað Richard Stallman er umdeildur maður. Hann hefur allan sinn feril barist fyrir frjálsum hugbúnaði, lagði grunninn að GNU-Linux stýrikerfinu og boðar fagnaðarerindi tölvufrelsis víða um heim. 18.6.2011 19:45
Vann 26 milljónir í lottóinu Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann rúmum 26 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 2, 21, 22, 37 og 38. Ekki kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá hvort vinningshafinn hafi verið með tölurnar í áskrift. 18.6.2011 19:35
Afdrif ofbeldismannsins býsna endaslepp Það skyti skökku við ef ofbeldismenn fengju hraðari afgreiðslu á húsnæðisvandræðum sínum en brotaþolar, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Hún telur að lög sem leyfi að ofbeldismenn séu fjarlægðir af heimilum sínum hefðu gagnast betur ef þeir fengju strax meðferð við sinni ofbeldishneigð. 18.6.2011 18:57
Hundar sem réðust á konu aflífaðir Hundarnir sem réðust á konu í Reykjanesbæ í lok síðasta mánaðar voru aflífaðir í gær ásamt fleiri hundum sem voru í umsjá eiganda þeirra. 18.6.2011 18:42
Eldur í potti Talsverður viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á sjötta tímanum í dag þegar tilkynning barst um eld í íbúðum aldraðra í Mörkinni við Suðurlandsbraut. Skömmu síðar kom í ljós kom að um var að ræða eld í potti á eldavél í einni íbúð. Í framhaldinu var flestum bílum snúið við. Einhver reykur var í umræddri íbúð en allt lítið út fyrir að ekki hafi orðið neitt tjón. 18.6.2011 18:13
Vill sjá hausa fjúka „Í ríkisstjórnum þar sem menn gerðu faglegar kröfur og kysu gagnsæ vinnubrögð væru hausar farnir að fjúka, eftir þá útreið sem sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur fengið," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu hagfræðinga um kvótfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sérfræðinganefndin gagnrýnir frumvarp núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar, að mati sérfræðinganna. 18.6.2011 17:48
Flugmenn valda vonbrigðum Icelandair lýsir yfir vonbrigðum með að Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafi boðað til verkfallsaðgerða í formi yfirvinnubanns þrátt fyrir að flugfélagið hafi boðið flugmönnum sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal aðrir starfshópar Icelandair. 18.6.2011 15:23
Stjórnvöld virði störf kennara Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir mikilvægt að stjórnvöld meti og virði störf kennara því rannsóknir sýni að öflugt skólastarf sé langbesta forvörnin gegn rótleysi og lífsfirringu. Hann fagnar að náðst hafi kjarasamningur milli ríkis og kennara. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu Jóns Más Héðinssonar, skólameistara, þegar Menntaskólanum á Akureyri var slitið 131. sinn í dag. 18.6.2011 15:11
Lýst eftir pilti og stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Burkna Þór Berglindarsyni og Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur en ekki er vitað um ferðir þeirra frá því í hádeginu á fimmtudag þegar þau voru í Árbæjarhverfi. 18.6.2011 14:39
Bera börur og safna áheitum Hópur ungmenna frá björgunarsveit Suðurnesja gengur nú meðfram Reykjanesbraut með níðþungur börur en hópurinn lagði af stað í morgun frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík. 18.6.2011 14:30
Blómsveigur lagður á leiði Bríetar Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti borgarstjórnar, mun leggja blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu og bæjarfulltrúa, í Hólavallakirkjugarði til að heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi á á morgun Kvenréttindadaginn. Athöfnin hefst klukkan 14:30. 18.6.2011 13:43
Flugmenn samþykkja yfirvinnubann Flugmenn Icelandair hafa samþykkt yfirvinnubann sem hefst næstkomandi föstudag verði ekki búið að semja við þá um kjarabætur. Boðað yfirvinnubann þýðir að forfallist flugmaður kemur enginn sjálfkrafa í staðinn. Bannið kemur því til með að hafa áhrif á flugferðir Icelandair. 18.6.2011 13:24
Lýst eftir 15 ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 15 ára stúlku, Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur. Kolbrún fór að heiman í Árbæjarhverfi síðastliðinn fimmtudag klukkan tólf á hádegi klædd í skærgræna íþróttapeysu, gráar íþróttabuxur og gráa íþróttaskó. Kolbrún er 168 cm að hæð, um 70 kg og með rautt sítt hár. 18.6.2011 13:11
Snjóvarnargirðing ver kálgarð fyrir kanínum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stendur í sumar fyrir könnun á kanínustofni borgarinnar. Er vonast til þess að í haust liggi fyrir nægar upplýsingar til að skipuleggja aðgerðir til að stemma stigu við fjölgun og útbreiðslu stofnsins. Villtum kanínum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og ekki eru allir sáttir við tilvist þeirra. 18.6.2011 13:00
Sérfræðingahópur Jóns gagnrýnir kvótafrumvarpið Fimm manna sérfræðinganefnd sjávarútvegsráðherra gagnrýnir frumvarp ráðherrans um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar. 18.6.2011 12:34
Ekki vísbendingar um frekari óróa Jarðskjálftahrina varð í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli um klukkan átta í morgun. Jarðskjálftahrinan stóð yfir í um 15 mínútur og mældust stærstu skjálftarnir rúmlega þrjú stig á richter. Sigþrúður Ármannsdóttir, landfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana þó ekki hafa verið marga eða um tíu talsins. 18.6.2011 12:31
Konan töluvert slösuð Átta manns slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Ökumaðurinn sem olli slysinu er grunaður um ölvunarakstur. 18.6.2011 12:26
Kjarasamningar í uppnámi Svo gæti farið að kjarasamningar, sem náðust eftir margra mánaða viðræður, verði hleypt í uppnám í næstu viku vegna aðgerða sem ríkisstjórnin lofaði en aðilar vinnumarkaðarins telja hana ekki hafa efnt. 18.6.2011 12:14
Harpa rýmd í miðjum tónleikum Helga Björns Hátt í 2000 manns þurftu að yfirgefa Hörpu í hasti í gærkvöldi, á meðan tónleikarnir Dægurperlur Helga Björns stóðu sem hæst í Eldborgarsalnum, þegar brunavarnarkerfi hússins fór í gang. 18.6.2011 10:18
Jarðskjálftahrina í Geitlandsjökli Jarðskjálftahrina varð í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli um klukkan átta í morgun og stóð hún yfir í um 15 mínútur. Stærstu skjálftarnir voru rúmlega þrjú stig og fundust meðal annars í Húsafelli. 18.6.2011 10:09
Tveir gistu fangageymslur á Akureyri Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á Akureyri en fjöldi lagði leið sína í bæinn og sat að sumbli fram á morgun. Tveir gistu fangageymslur og var einn tekinn fyrir ölvunarakstur. Þá komu nokkur fíkniefnamál inn á borð lögreglu. 18.6.2011 09:44
Á gjörgæslu eftir alvarlegt umferðarslys Alvarlegt umferðarslys varð þegar kona keyrði aftan á bifreið á ferð á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að bifreið hennar valt og hafnaði utan vegar. Konan var ein í bílnum þegar slysið átti sér stað og var hún flutt með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi, þar sem hún liggur þungt haldin á gjörgæsludeild samkvæmt vakthafandi lækni. 18.6.2011 09:43
Forsendubrestur gæti stytt kjarasamninga Aðilar vinnumarkaðarins telja skorta á efndir stjórnvalda í mörgum af þeim lykilatriðum sem þau tiltóku í aðgerðaáætlun sinni vegna nýrra kjarasamninga. Því gætu forsendur samninganna verið brostnar. 18.6.2011 08:00
Formaður SÁÁ vill skattleggja knæpur og næturklúbba Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir óbeinan kostnað af næturlífi Reykjavíkur gríðarlegan og furðulegt að barir og skemmtistaðir beri ekki samfélagslegan kostnað í samræmi við þann óbeina kostnað ríkisins sem hlýst af. Í grein á heimasíðu SÁÁ segir Gunnar að nær allt lið lögreglu höfuðborgarsvæðisins sé haft á vakt um helgar, hópar verkamanna mæti undir morgun til að hreinsa götur og torg, læknar og hjúkrunarlið þurfi að gera að sárum þeirra sem verða undir í gleðinni og þá sé ótalinn gríðarlegur óbeinn kostnaður af áfengis- og vímuefnanotkun einstaklinga. 18.6.2011 10:04
Næturklúbbar ættu að greiða hærri skatt "Kannski ættum við að rifja upp þetta hugtak; kostnaðarvitund. Og beita því á miðbæ Reykjavíkur. Þá myndum við skattleggja næturklúbbana svo þeir gætu staðið undir nauðsynlegri löggæslu, hreinsun gatna og aðhlynningu sjúkra. Stöðunum myndi þá hugsanlega fækka, opnunartíminn styttast og tekjur og gjöld úr sameiginlegum sjóðum vegna þessarar starfsemi leita jafnvægis." Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í nýjum pistli á vef samtakanna. Þar segir hann að það sé víðar en í bankaheiminum sem menn einkavæða gróða en þjóðnýta tap. Gunnar Smári tekur dæmi af þrátt fyrir háa skatta á bíla og bensín sé ólíklegt að þeir standi undir því sem samfélagið þarf að greiða vegna umferðar slysa og mengunar, svo eitthvað sé nefnt. Þá bendir hann einnig á hversu lágt verð er á sætindum og gosi, og fer því kostnaður vegna heilsutjóns af ofneyslu þeirra ekki inni í vöruverð. Að mati Gunnars Smára ætti kostnaðarvitund þegar kemur að neyslu áfengis og vímuefna að leiða til hærri skattbyrði á næturklúbba. "Við gætum þá varið meira fé úr sameiginlegum sjóðum til velferðar og sinnt þeim sem eru veikir og hjálparþurfi. Þótt umfangsmiklar stuðningsaðgerðir hins opinbera til eflingar amfetamínsdrifins næturlífs fram á morgun í miðbæ Reykjavíkur séu ekki færðar undir sérstakan lið á fjárlögum eða fjárhagsáætlunum; þá eru þær staðreyndir engu að síður. Og það er síendurtekin ákvörðun ríkis- og borgarstjórnar að styðja myndarlega við bakið á þessari starfsemi og auka stuðninginn fremur en hitt. Á sama tíma og þessir aðilar taka ákvarðanir um að skerða framlög til þeirra sem glíma við neikvæðar afleiðingar þessarar starfsemi." Pistil Gunnars Smára má lesa í heild sinni á vef SÁÁ. http://www.saa.is/islenski-vefurinn/felagsstarf/pistlar/nr/117631/ 17.6.2011 23:00
Rólegheit í miðbænum - kalt og næðingur Var á röltinu í miðborginni og getur sagt með mikilli ánægju að ástandið var mjög gott. Vart að sjá vín á fólki og drykkja ungmenna vart merkjanleg. Frekar fátt var í bænum enda kalt og næðingur Töluvert minna af hátíðargestum heldur en öllu jafna, svona fljótt á litið. 17.6.2011 22:50
Fyrrverandi ballettmær í faldbúningi Íslendingar voru flestir flottir í tauinu í dag en fyrrverandi balletmær bar þó af þeim flestum. Hugrún Halldórsdóttir hitti og ræddi við þessa einstaklega prúðbúnu konu í dag. Unnur Guðjónsdóttir, fyrrverandi balletmeistari Þjóðleikhússins, mætir iðulega í íslenska þjóðbúningnum niður í bæ á þjóðhátíðardaginn sjálfan, en í ár var hún sérstaklega prúðbúin. „Ég er núna í sérstaklega fallegum búningi af því þetta er faldbúningur en annars er eg vön að fara í upphlut. 0g hver er munurinn á þessum tveimur? Það er náttúrulega höfuðfatið, þetta er það sem kallað er faldur og þessi hringur um hálsinn, kraginn. Þetta er mikið eldri búningur en upphluturinn," segir hún. Unnur saumaði búninginn sjálf en silfrið lét hún smíða eftir munum úr þjóðminjasafninu. Þá ber hún spaða á höfði úr silfri en hann er vanalega úr taui. „Ég vil hafa þetta almennilegt. Og vekurðu ekki athygli? Jú jú, fólk er að spá í þetta. Mér finnst bara synd að það skuli ekki vera miklu fleiri í búningum. Ég meina ef ekki í dag, 200 ára fæðingarafmæli Jóns, nema hvað?" 17.6.2011 22:00
Sirkus og sápukúlur - blómlegur bær á þjóðhátíð Borgin bókstaflega blómstraði í dag þegar fagurmáluð andlit, full af gleði, virtust á hverju götuhorni. Viðamikil dagskrá var um alla borg og mátti sjá sirkusfólk á stultum, klifurgarpa og ungar stúlkur í skautbúningum. Haraldur Guðjónsson ljósmyndari var á ferðinni í allan dag og í meðfylgjandi myndasafni má líta afrakstur dagsins. 17.6.2011 21:06
Þröngt á þingi í alþingishúsinu Háskóli Íslands fagnaði hundrað ára afmæli sínu í dag og því var haldin hátíðarsamkoma í þinghúsinu, þar sem háskólinn starfaði einmitt fyrstu þrjá áratugina. 17.6.2011 20:53
Fékk á sig torfærubíl Betur fór en á horfðist þegar torfærubíll sem var til sýnis á Selfossi í dag rann af stað og hafnaði á konu sem var að njóta hátíðarhaldanna. Konan er meidd á fæti en talin vera óbrotin. Torfærubíllinn var ásamt öðrum bílum til sýnis í brekku við hátíðarsvæðið í bænum og leikur grunur á að drengur sem fékk að setjast í bílinn hafi rekið sig í gírstöng með þeim afleiðingum að bíllinn rann af stað. 17.6.2011 20:36
Kviknað í bíl við Hörpu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrr í kvöld þegar eldur kviknaði í bifreið sem stóð á bílastæðinu við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu í miðbæ Reykjavíkur. Vel gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki. Töluverðar skemmdir urðu hins vegar á bílnum en upptök eldsins eru enn ókunn. 17.6.2011 20:31
Skjálftahrina í Mýrdalsjökli - sá stærsti 3 stig Skjálftahrina reið yfir Mýrdalsjökul á sjötta tímanum og var stærsti skjálftinn um 3 stig. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar voru skjálftarnir um tíu talsins og flestir litir, en þar er tekið fram að um óyfirfarnar tölur er að ræða. Enginn skjálfti hefur mælst síðan á svæðinu, samkvæmt Veðurstofunni. 17.6.2011 20:20
Átta ára gömul við stofnun lýðveldisins og man vel eftir því Sautjándi júní var haldinn hátíðlegur á elliheimilum landsins þar sem boðið var upp á kökur og spilað og sungið fyrir íbúa. Símon Birgisson heimsótti Hrafnistu í Hafnarfirði og talaði við konu sem var átta ára gömul við lýðveldisstofnun, Kristín H. Tryggvadóttir, fyrrum skólastjóra og Svarfdælingur í húð og hár. "Ég man eftir 1944, 17. júní. Það voru svo mikil hátíðarhöld heima í svarfaðardal, við sundlaugina. Það voru leikfimisýningar, sund. Ísland var látið fljóta á lauginni. Mér fannst þetta alveg hreint stórkostlegt að upplifa þetta,“ segir hún. 17. júní hefur einnig sérstaka merkingu í huga Kristínar, en hún útskrifaðist sem stúdent úr menntaskólanum á Akureyri á þessum degi. "Svo þetta fer í hjartað á mér þegar rennur upp þessi dagur," segir Kristín. Spurð út í þá tíma sem við lifum núna, hrunið og kreppuna segir Kristín að græðgin hafi orðið mönnum að falli. "Og kannski ágætt á tímamótum sem þessum að hugsa um framtíðina? Já, ég er sammála þvðí Þó ég eigi ekki langt eftir þa hugsar maður um börnin sín og barnabörnin og vill þeim allt vel. En ég trúi ekki öðru en við eigum góða framtíð. Ísland er svo gott land, ef fólkið reynir að standa sig, segir hún. 17.6.2011 20:03