Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óvænt áform um sameiningu Meirihlutinn í borgarráði samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að hefja undirbúning að sameiningu leikskólasviðs, menntasviðs og þess hluta íþrótta- og tómstundasviðs sem heyrir nú undir skrifstofu tómstundamála. 16.4.2011 05:00
Allt í hnút í Karphúsinu "Þetta er mjög þungt. Ég er ekki bjartsýnn á framhaldið,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtakta atvinnulífsins. Enn hefur ekki náðst saman í kjaraviðræðum aðila vinnumarkaðarins en fundahöld hafa staðið í Karphúsinu í allan dag og allt kvöld. Búist er við að fundað verði fram á nótt. "Það er engin niðurstaða í sjónmáli,“ segir Vilhjálmur. 15.4.2011 22:20
Fæddist án hægri lærleggs en lætur ekkert stöðva sig Þrátt fyrir fötlun lætur hann ekkert stoppa sig og hlakkar til að komast í Æskubúðir Össurar í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal á morgun, en búðirnar eru ætlaðar ungmennum sem notast við stoð- og stuðningstæki. 15.4.2011 21:00
Ók ölvaður á ljósastaur við Kringluna Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á sjötta tímanum í dag eftir að hann ók á ljósastaur skammt frá Kringlunni. Þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að ökumaðurinn var ölvaður. Maðurinn slasaðist ekki þegar hann ók á ljósastaurinn. 15.4.2011 21:16
Úthlutun aflaheimilda breytt í nýtingarheimildir Ríkisstjórnin mun leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða fljótlega í næsta mánuði. Frumvarpið felur í sér að úthlutun á aflaheimildum verði breytt í nýtingarheimildir samkvæmt samningum til afmarkaðs tíma. Samtök atvinnulífsins harma að ríkisstjórnin skuli ekki hafa nýtt það sem samtökin kalla einstakt tækifæri til að ná nauðsynlegri sátt um málefni sjávarútvegsins. Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram tillögur um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem fela í sér útfærslu á samningaleið í sjávarútvegi, að því er fram kemur á vef samtakanna. 15.4.2011 20:03
Orðaskipti Ólínu og Ástu Ragnheiðar - myndband Líkt og fram kom á Vísi fyrr í dag kom til snarpra orðaskipta á milli Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, og Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, á þingfundi í morgun. Ólína sakaði flokkssystur sína um valdbeitingu við fundarstjórn. Hægt er að sjá myndband frá samskiptum þeirra hér. 15.4.2011 19:58
Yfirmaður þýsku flotadeildarinnar leiður yfir ákvörðun Jóns Gnarr Yfirmaður stærsta herskips þýska flotans segist vera leiður yfir því að Jón Gnarr hafi ekki viljað taka á móti þeim. Skipið kom með þyrlu sem aðstoða mun Landhelgisgæsluna næstu daga. 15.4.2011 19:47
Samið til tveggja mánaða Kjaraviðræðum mun að öllum líkindum ljúka í kvöld. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir hugmyndir um þriggja ára samning út af borðinu. Samningurinn sem nú er rætt um í Karphúsinu mun gilda í tvo mánuði fyrst um sinn með möguleika á framlenginu. 15.4.2011 18:45
Alvarlegt umferðarslys í Vestur Landeyjum Umferðarslys varð í Vestur Landeyjum suðvestur af Hvolsvelli á fimmta tímanum í dag þegar fólksbifreið valt. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er um alvarlegt slys að ræða. Ekki fengust frekari upplýsingar hjá lögreglu. 15.4.2011 18:15
Ís innkallaður úr verslunum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur ákveðið að innkalla úr verslunum vörurnar Emmessís Bragðaref og Daim toppa í lausu þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki merktir á umbúðum þeirra. 15.4.2011 17:29
Lentu í bílslysi rétt fyrir handtöku Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna sölu og dreifingar á fíkniefnum. Lögregla hafði fylgst með mönnunum, sem báðir eru góðkunningjar lögreglu, í nokkurn tíma en ekki vildi betur til en svo að þeir lentu í umferðaróhappi þegar lögregla var um það bil að fara að handtaka þá, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. 15.4.2011 17:18
Sóley gagnrýnir virkjanaáform Orkuveitunnar Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að ganga til könnunarviðræðna við Landsamband lífeyrissjóða um fjármögnun og/eða eignarhald á Hverahlíðarvirkjun. Tillaga Sóleyjar Tómasdóttur, fulltrúa Vinstri grænna, um að málinu yrði frestað og það tekið til umfjöllunar af hálfu eigenda var felld og málið samþykkt með mótatkvæði Vinstri grænna. 15.4.2011 16:36
Starfsmaður íhaldshóps kærður fyrir fjárdrátt Starfsmaður á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins hefur verið kærður vegna gruns um stórfelldan fjárdrátt. Samkvæmt heimildum Vísis nemur fjárdrátturinn milljónum króna og hefur staðið yfir frá árinu 2009. Starfsmaðurinn var fulltrúi í svokölluðum íhaldshóp Norðurlanda. 15.4.2011 16:09
Gjaldskrárhækkanir OR kosta Landspítalann rúmar 70 milljónir Gjaldskrárhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur sem boðaðar voru á dögunum, með 8% hækkun á heitu vatni og 45% hækkun á fráveitugjaldi kosta Landspítalann 23 milljónir króna. Þessar hækkanir bætast við 50 milljóna kostnaðarauka fyrir spítalann vegna gjaldskrárhækkanna Orkuveitu Reykjavíkur sem komu til framkvæmda 1. febrúar síðastliðinn. Gjaldskrárhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur hafa því kostað Landspítalann alls 73 milljónir króna. 15.4.2011 15:41
Páll Óskar við fermingarbörnin: Bannað að fara í fýlu! „Ég trúi því að við séum öll alveg ógeðslega klár í einhverju. Við höfum öll einhverja geggjaða hæfileika á einhverjum sviðum. Við fengum öll einhverja mikla gjöf þegar við fæddumst," sagði Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður í ávarpi sínu til fermingarbarna sem fermdust borgaralega síðasta sunnudag. 15.4.2011 15:38
Samið við Læknavaktina Samningar hafa tekist milli Sjúkratrygginga Íslands og Læknavaktarinnar ehf. um móttökuvakt og vitjanaþjónustu heimilislækna utan dagvinnutíma heilsugæslustöðva í Reykjavík og nágrenni. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra staðfesti samningana í dag. 15.4.2011 15:09
Vélhjólamenn með eftirlíkingu af skotvopni Lögreglan fann eftirlíkingu skotvopns við húsleit í Reykjanesbæ í gærdag. Tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn tvítugur, voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en eftirlíkingin fannst á heimili annars þeirra. Þessir tveir karlmenn tengjast báðir vélhjólaklúbbi í Reykjanesbæ. Húsleit var einnig framkvæmd á öðrum stað í Reykjanesbæ í tengslum við þetta mál, þar sem meðal annars var lagt hald á barefli og peningaskáp. Upphaf þessa máls má rekja til þess að annar mannanna sást með hið ætlaða skotvopn í eftirlitsmyndavél í miðborg Reykjavíkur. Að aðgerðinni stóðu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum auk lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra. 15.4.2011 14:40
Kjarasamningar til þriggja ára blásnir af Ekkert verður af gerð kjarasamninga til þriggja ára eins og staðið hefur til. Heimildir Vísis úr Karphúsinu herma að ekkert samkomulag hafi náðst á milli aðila vinnumarkaðins og ríkisstjórnarinnar um ýmis mál, til dæmis stjórn fiskveiða, samgöngumál og lífeyrismál. 15.4.2011 14:24
Þurfa ekki leyfi fyrir blindrahundum Alþingi samþykkti í morgun lagafrumvarp þess efnis að þeir sem eru blindir eða með aðra fötlun geti haldið sérþjálfaða leiðsögu- eða hjálparhunda í fjöleignarhúsum án þess að til þurfi að koma samþykki annarra íbúa í húsinu. 15.4.2011 14:15
Fordæma vinnubrögð í skólamálum Stjórn Félags leikskólakennara fordæmir þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við greiningu tækifæra til samrekstrar eða sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila í Reykjavík. Stjórnin segir að þessi vinnubrögð hafi valdið gríðarlegu álagi og óvissu hjá nemendum, foreldrum, skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki leikskólanna í borginni sem ekki sjái fyrir endann á. 15.4.2011 13:59
Foreldrar harma ákvörðun um sameiningu skóla Stjórn Foreldrafélags Hvassaleitisskóla harmar þá ákvörðun menntaráðs Reykjavíkurborgar að falla ekki frá sameiningu Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla. Í tilkynningu frá stjórninni er ítrekað sú krafa að tillaga um sameiningu skólanna verði dregin til baka og sjálfstæði Hvassaleitisskóla tryggt. 15.4.2011 13:57
Íslenskt barn fær að leiða leikmann í Meistaradeildinni Íslensku barni mun gefast kostur á að komast í hóp barna alls staðar að úr Evrópu sem fylgja leikmönnum í úrslitaviðureign Meistaradeildarinnar í knattspyrnu, UEFA Champions League, út á Wembley leikvanginn þann 28. maí næstkomandi. Búast má við því að andrúmsloftið verði rafmagnað þegar úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram, en gera má ráð fyrir að 80 þúsund áhorfendur muni fagna leikmönnunum þegar þeir ganga inn á völlinn í einum mest spennandi knattspyrnuleik ársins. 15.4.2011 13:45
Sigmundur lauk BS prófi í viðskiptafræði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, lauk BS prófi frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 2005 með fjölmiðlafræði sem aukagrein. Þetta kemur fram á vefsíðu Háskóla Íslands. 15.4.2011 13:24
Ætla sér að ganga frá nýjum samningum í dag Samningamenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins halda fast við að ganga frá nýjum kjarasamningum klukkan korter yfir fimm í dag, þótt enn sé óljóst hvort samið verður til skamms tíma eða þriggja ára. 15.4.2011 12:37
Um tíu manns greinst með nóróveirusýkinguna á Sjúkrahúsinu á Akureyri Nóróveirusýking er komin upp á Sjúkrahúsinu á Akureyri, búið er að loka lyfjalækningadeild tímabundið og skipta upp, hand- og bæklunardeild samkvæmt norðlenska miðlinum Vikudegi. 15.4.2011 12:07
Lilju virðist hafa snúist hugur Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöld útilokaði Lilja Mósesdóttir ekki að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Í upphafi þingfundar í dag sagði hún þetta mikla spunafréttamennsku. Hins vegar vakti athygli að í máli hennar kom ekki fram að hún væri hætt að íhuga stofnun nýs flokks. 15.4.2011 12:05
Rafræn inneignarkort til bágstaddra - engir matarpokar Hjálparstarf kirkjunnar ætlar að gera róttækar breytingar á mataraðstoð sinni hérlendis um næstu mánaðarmót, meðal annars með því að úthluta rafrænum inneignarkortum en ekki matarpokum eins og tíðkast hefur. 15.4.2011 12:01
Upp úr sauð milli Ólínu og Ástu Ragnheiðar Það voru snarpar umræður um störf forseta Alþingis á þingfundi í morgun. Ólína Þorvarðardóttir sté í pontu og gerði athugasemd við málflutning Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem hún taldi að hefði borið á sig sakir. 15.4.2011 11:45
Fjölmiðlafrumvarpið samþykkt Ný heildarlög um fjölmiðla voru samþykkt á Alþingi fyrir stundu með 30 atkvæðum gegn 14. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði einn þingmanna grein fyrir atkvæði sínu en hann var frumvarpinu mótfallinn. Gagnrýndi hann sérstaklega að þar væri ekki tekið á eignarhaldi á fjölmiðlum. 15.4.2011 11:43
Sorphirðureglan brugguð á laun Húseigendafélagið skorar á borgaryfirvöld að hverfa frá hinni svokölluðu „15 metra reglu" vegna sorphirðu í Reykjavík. „Er skorað á borgaryfirvöld að taka sönsum og auka hvorki vanda sinn né borgarbúa frekar en orðið er með fyrirhyggjuskorti, hörku og óbilgirni í þessu viðkvæma máli," segir í ályktun aðalfundar félagsins, sem haldinn var 14. apríl. Til vara er skorað á borgaryfirvöld að slá gildistöku reglunnar á frest í minnst ár, þannig að hægt sé að kanna hvort lagastoð sé fyrir reglunni „... og ef svo reynist að tóm gefist til að undirbúa breytinguna sómasamlega með lengri aðdraganda, eðlilegu samráði og betri og markvissari undirbúningi, sem er forsenda sáttar og góðra siða og reglna. Verði þessi ósköp og endaleysa keyrð í gegn með óhjákvæmilegu klúðri og vandræðaástandi og verði 15 metra reglan ekki talin hafa stoð í lögum þá er illu verr af stað farið en heima setið," segir í ályktuninni. Gjaldtaka vegna sorphirðu ef sorptunnur eru staðsettar fjær götu en 15 metrum, hefst þann 1. maí. Gildistöku reglunnar hafði áður verið frestað vegna mikillar óánægju. Í greinargerð sem fylgir með ályktunin Húseigendafélagsins segir meðal annars: „Þessi regla var brugguð á laun án nokkurs samráðs við íbúa Reykjavíkur, húseigendur og félög og samtök þeirra. Ljóst er að staðsetning sorpíláta er víða fastbundin og njörvuð af skipulagi og byggingarskilmálum og nauðsynlegt er í mörgum tilvikum að fá formlegt leyfi byggingaryfirvalda fyrir breytingum. Það tekur tíma, fyrirhöfn, snúninga og kostar fé. Sums staðar eru breytingar óframkvæmanlegar.“ 15.4.2011 11:22
Fréttablaðið blæs til veislu á morgun Fréttablaðið verður 10 ára þann 23. apríl. Af því tilefni er efnt til mikillar afmælishátíðar fyrir lesendur í Perlunni á morgun frá klukkan 13-16. 15.4.2011 10:39
Guðfríður Lilja aftur formaður félags- og tryggingamálanefndar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, hefur tekið við formennsku í félags- og tryggingamálanefndar Alþingis. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, tilkynnti þetta við upphaf þingfundar í morgun. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tók nýlega sæti á Alþingi að nýju eftir barnseignarleyfi. Hún var formaður nefndarinnar áður en hún fór í barneignaleyfi. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður varaformaður nefndarinnar. 15.4.2011 10:34
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur í Hörpu Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur í dag úr Háskólabíói yfir í Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu. Að þessu tilefni ákvað hljómsveitin að ganga fylktu liði frá Hagatorgi niður í Hörpu. Margrét Ragnarsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, segir að undirbúningur að flutningnum hafi staðið yfir í nokkurn tíma. Nú séu menn hins vegar að undirbúa opnunartónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar í Hörpu sem verða 4. maí næstkomandi. 15.4.2011 09:59
Sýknaður af ákæru um brot gegn syni Hæstiréttur hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn syni sínum. Manninum var gefið að sök að hafa á árinu 2009 farið upp í rúm til sonar síns, sem var í heimsókn hjá föður sínum, og brotið þar gegn honum með ýmsum kynferðislegum athöfnum, þar á meðal með því að fróa honum. 15.4.2011 09:58
Miniar táknar hluta af mér sem áður var falinn "Í fyrsta skiptið sem ég kynnti mig sem karlkyns, í fyrsta skipti sem ég leyfði mér að vera ég sjálfur, þá var það undir nafninu Miniar," segir Hans Miniar Jónsson. Mannanafnanefnd hafnaði nafninu Miniar og því fær hann ekki að bera það í opinberum skrám. "Þegar ég síðar kom út úr skápnum í gegn um netiið fór ég að nota það nafn meir og meir, og það varð að stórum hluta af mér sjálfum. Það er þess vegna sem það er nokkuð sárt að því var neitað," segir hann. Vísir greindi frá höfnun mannanafnanefndar í gær. Þá kom fram að Hans Miniar er á lokastigum kynleiðréttingarferlis en sem barn var hann nefndur Hólmfríður. Heimilt er að sækja um nafnabreytingu einu sinni á lífsleiðinni og til stóð að Hans Miniar myndi sækja um að fá nafni sínu breytt í það nafn sem hann gengur nú undir. Það er táknræn saga á bak við nafnið Miniar. "Orðið kemur upprunalega úr forn-tíbetsku og þýðir sá sem er falinn eða gleymdur. Það var táknrænt fyrir mér fyrir það að ég var ennþá að stórum hluta í felum með þetta, en einnig fyrir það að ég var að sýna hluta af mér sem ég hafði áður falið," segir Hans Miniar, sem ætlar þrátt fyrir höfnun mannanafnanefndar að nota Miniar-nafnið áfram. Sem barn var hann nefndur Hólmfríður, í höfuðið á föðurömmu sinni. "Það var einhvern veginn rökrétt að fara í akkúrat hina áttina og taka nafn móðurafa míns í staðinn. Þaðan kemur Hans nafnið alla vega," segir Hans Miniar. Hann er búinn að bíða lengi eftir því að fara í aðgerð þar sem brjóstin eru numin brott. Nú er komin dagsetning á stóra daginn, og þann 5. maí fer Hans Miniar í síðustu aðgerðina sína vegna kynleiðréttingarinnar, hið minnsta þar til tæknin gerir það kleift að endurgera kynfæri karla með áhrifaríkari hætti en nú er gert. 15.4.2011 09:52
Hvað ertu eiginlega menntaður, Sigmundur? "Hvað ertu eiginlega menntaður, Sigmundur?," spyr blaðamaður Fréttatímans vegna misvísandi upplýsinga sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur sett fram um menntun sína. Fréttatíminn fjallar um menntun Sigmundar Davíðs í dag en formaðurinn svaraði ekki fyrirspurn um nákvæma menntun hans. Aðstoðarmaður formannsins gerði það ekki heldur, og þakkaði blaðamanni einfaldlega fyrir ábendinguna þegar hann var inntur eftir svörum. Í Fréttatímanum kemur fram að Sigmundur Davíð hefur orðið minnst fjórsaga um menntun sína. "Á vef Alþingis er menntun Sigmundar Davíðs framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla. Hvergi er minnst á doktorsgráðu eða skipulagshagfræði þar. Þetta verður síðan flóknara þegar kemur að tengslanetsíðunni Linked-in. Þar er hann skráður sem independent Architecture and Planning Professional sem menntaði sig í Oxford-háskóla á árunum 1995 til 2007. Aftur svolítið ruglingslegt því á Alþingissíðunni er hann búinn að læra stjórnmálafræði og í Morgunblaðinu árið 2009 er hann að fara að verja doktorsritgerð sína í Oxford jafnvel þótt hann hafi lokið námi þaðan árið 2007 samkvæmt Linked-in. Til að kóróna hringavitleysuna titlar hann sig á Facebook sem skipulagshagfræðing, menntaðan í Oxford-háskóla í hagfræði og hagrænni landafræði.“ Sjá umfjöllun Fréttatímans í heild sinni. 15.4.2011 09:25
Nærstaddir björguðu lífi manns á Brjánslæk Karlmaður fékk hjartastopp á Brjánslæk við Breiðafjörð undir kvöld og féll í ómegin. Svo vel vildi til að nærstaddir kunnu skyndihjálp og tókst þeim að vekja hjartslátt í manninum aftur. 15.4.2011 09:13
Flestir flytja til Noregs 319.100 manns bjuggu á Íslandi í lok 1. ársfjórðungs 2011, þar af 160.300 karlar og 158.800 konur. Landsmönnum fjölgaði um 600 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.400 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.000 manns. Á 1. ársfjórðungi 2011 fæddust 1.100 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttu 15 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 270 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 260 fleiri en þeir sem fluttu frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttu frá landinu. Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttu 320 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttu 620 íslenskir ríkisborgarar af 840 alls. Af þeim 380 erlendu ríkisborgurum sem fluttu frá landinu fóru flestir til Póllands, 160 manns. Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (240), Noregi (130) og Svíþjóð (60), samtals 420 manns af 570. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttu 170 af alls 640 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst en þaðan fluttu 45 erlendir ríkisborgarar til landsins. 15.4.2011 09:08
Matarúthlutun hjálparstarfs - nýtt fyrirkomulag kynnt Hjálparstarf kirkjunnar hefur boðað til blaðamannafundar klukkan half ellefu þar sem kynntar verða „róttækar breytingar á mataraðstoð sinni til samræmis við kröfur samfélagsins, skjólstæðinga og ráðamanna,“ eins og það er orðað í tilkynningu. Yfirskrift boðunar á fundinn er „Matarpakkar úr sögunni“ en á fundinum verður skýrt frá því hvaða fyrirkomulag tekur við í staðinn. Birtar verða fréttir af því hvað tekur við, um leið og þær berast. Sem kunnugt er hefur núverandi fyrirkomulag um biðraðir hjá hjálparstofnunum vegan mataraðstoðar verið gagnrýndar mjög og virðist Hjálparstarf kirkjunnar nú hafa brugðist við þeirri gagnrýni. 15.4.2011 08:56
Þýska þyrlan biluð Þyrlan, sem þýska flotadeildin, sem kom til Reykjavíkur í gærmorgun, ætlaði að lána Landhelgisgæslunni á meðan á heimsókninni stæði, er enn um borð í einu herskipanna. 15.4.2011 08:19
Pottaslys í Grímsnesi Norskur ferðamaður, sem ætlaði að gista í orlofshúsi í Grímsnesi ásamt samferðamönnum sínum, hrasaði illilega og handleggsbrotnaði þegar hann var að stíga upp úr heitum potti um tvö leytið í nótt. 15.4.2011 08:16
Nýir eigendur fundu kókaín í þakklæðningu Benz-bifreiðar Ungir menn, sem voru að gera upp gamlan Benz Austur á Selfossi í gærkvöldi, sáu fyrir tilviljun gat inn í þakklæðninguna á bak við baksýnisspegilinn. 15.4.2011 08:13
Nokkuð um hálkuslys - nagladekk bönnuð frá og með deginum í dag Þrjú umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi, sem öll má rekja til hálku. 15.4.2011 08:11
Vilja að Ásmundur Einar segi af sér Félagsfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum, sem haldinn var í gærkvöldi, skorar á Ásmund Einar Daðason, þingmann flokksins í Norðvesturkjördæmi, að segja nú þegar af sér þignmennsku. 15.4.2011 08:09
Úrslitastundin í dag Gengið verður frá kjarasamningum Alþýðusambandsins (ASÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) í dag. Hvort samningarnir verða til nokkurra vikna eða þriggja ára ræðst af því hvort samkomulag næst í dag við ríkisstjórnina um sjávarútvegsmál, samgönguframkvæmdir og fleiri mál, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 15.4.2011 08:00