Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sýknaður af ákæru um brot gegn syni Hæstiréttur hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn syni sínum. Manninum var gefið að sök að hafa á árinu 2009 farið upp í rúm til sonar síns, sem var í heimsókn hjá föður sínum, og brotið þar gegn honum með ýmsum kynferðislegum athöfnum, þar á meðal með því að fróa honum. 15.4.2011 09:58
Miniar táknar hluta af mér sem áður var falinn "Í fyrsta skiptið sem ég kynnti mig sem karlkyns, í fyrsta skipti sem ég leyfði mér að vera ég sjálfur, þá var það undir nafninu Miniar," segir Hans Miniar Jónsson. Mannanafnanefnd hafnaði nafninu Miniar og því fær hann ekki að bera það í opinberum skrám. "Þegar ég síðar kom út úr skápnum í gegn um netiið fór ég að nota það nafn meir og meir, og það varð að stórum hluta af mér sjálfum. Það er þess vegna sem það er nokkuð sárt að því var neitað," segir hann. Vísir greindi frá höfnun mannanafnanefndar í gær. Þá kom fram að Hans Miniar er á lokastigum kynleiðréttingarferlis en sem barn var hann nefndur Hólmfríður. Heimilt er að sækja um nafnabreytingu einu sinni á lífsleiðinni og til stóð að Hans Miniar myndi sækja um að fá nafni sínu breytt í það nafn sem hann gengur nú undir. Það er táknræn saga á bak við nafnið Miniar. "Orðið kemur upprunalega úr forn-tíbetsku og þýðir sá sem er falinn eða gleymdur. Það var táknrænt fyrir mér fyrir það að ég var ennþá að stórum hluta í felum með þetta, en einnig fyrir það að ég var að sýna hluta af mér sem ég hafði áður falið," segir Hans Miniar, sem ætlar þrátt fyrir höfnun mannanafnanefndar að nota Miniar-nafnið áfram. Sem barn var hann nefndur Hólmfríður, í höfuðið á föðurömmu sinni. "Það var einhvern veginn rökrétt að fara í akkúrat hina áttina og taka nafn móðurafa míns í staðinn. Þaðan kemur Hans nafnið alla vega," segir Hans Miniar. Hann er búinn að bíða lengi eftir því að fara í aðgerð þar sem brjóstin eru numin brott. Nú er komin dagsetning á stóra daginn, og þann 5. maí fer Hans Miniar í síðustu aðgerðina sína vegna kynleiðréttingarinnar, hið minnsta þar til tæknin gerir það kleift að endurgera kynfæri karla með áhrifaríkari hætti en nú er gert. 15.4.2011 09:52
Hvað ertu eiginlega menntaður, Sigmundur? "Hvað ertu eiginlega menntaður, Sigmundur?," spyr blaðamaður Fréttatímans vegna misvísandi upplýsinga sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur sett fram um menntun sína. Fréttatíminn fjallar um menntun Sigmundar Davíðs í dag en formaðurinn svaraði ekki fyrirspurn um nákvæma menntun hans. Aðstoðarmaður formannsins gerði það ekki heldur, og þakkaði blaðamanni einfaldlega fyrir ábendinguna þegar hann var inntur eftir svörum. Í Fréttatímanum kemur fram að Sigmundur Davíð hefur orðið minnst fjórsaga um menntun sína. "Á vef Alþingis er menntun Sigmundar Davíðs framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla. Hvergi er minnst á doktorsgráðu eða skipulagshagfræði þar. Þetta verður síðan flóknara þegar kemur að tengslanetsíðunni Linked-in. Þar er hann skráður sem independent Architecture and Planning Professional sem menntaði sig í Oxford-háskóla á árunum 1995 til 2007. Aftur svolítið ruglingslegt því á Alþingissíðunni er hann búinn að læra stjórnmálafræði og í Morgunblaðinu árið 2009 er hann að fara að verja doktorsritgerð sína í Oxford jafnvel þótt hann hafi lokið námi þaðan árið 2007 samkvæmt Linked-in. Til að kóróna hringavitleysuna titlar hann sig á Facebook sem skipulagshagfræðing, menntaðan í Oxford-háskóla í hagfræði og hagrænni landafræði.“ Sjá umfjöllun Fréttatímans í heild sinni. 15.4.2011 09:25
Nærstaddir björguðu lífi manns á Brjánslæk Karlmaður fékk hjartastopp á Brjánslæk við Breiðafjörð undir kvöld og féll í ómegin. Svo vel vildi til að nærstaddir kunnu skyndihjálp og tókst þeim að vekja hjartslátt í manninum aftur. 15.4.2011 09:13
Flestir flytja til Noregs 319.100 manns bjuggu á Íslandi í lok 1. ársfjórðungs 2011, þar af 160.300 karlar og 158.800 konur. Landsmönnum fjölgaði um 600 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.400 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.000 manns. Á 1. ársfjórðungi 2011 fæddust 1.100 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttu 15 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 270 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 260 fleiri en þeir sem fluttu frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttu frá landinu. Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttu 320 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttu 620 íslenskir ríkisborgarar af 840 alls. Af þeim 380 erlendu ríkisborgurum sem fluttu frá landinu fóru flestir til Póllands, 160 manns. Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (240), Noregi (130) og Svíþjóð (60), samtals 420 manns af 570. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttu 170 af alls 640 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst en þaðan fluttu 45 erlendir ríkisborgarar til landsins. 15.4.2011 09:08
Matarúthlutun hjálparstarfs - nýtt fyrirkomulag kynnt Hjálparstarf kirkjunnar hefur boðað til blaðamannafundar klukkan half ellefu þar sem kynntar verða „róttækar breytingar á mataraðstoð sinni til samræmis við kröfur samfélagsins, skjólstæðinga og ráðamanna,“ eins og það er orðað í tilkynningu. Yfirskrift boðunar á fundinn er „Matarpakkar úr sögunni“ en á fundinum verður skýrt frá því hvaða fyrirkomulag tekur við í staðinn. Birtar verða fréttir af því hvað tekur við, um leið og þær berast. Sem kunnugt er hefur núverandi fyrirkomulag um biðraðir hjá hjálparstofnunum vegan mataraðstoðar verið gagnrýndar mjög og virðist Hjálparstarf kirkjunnar nú hafa brugðist við þeirri gagnrýni. 15.4.2011 08:56
Þýska þyrlan biluð Þyrlan, sem þýska flotadeildin, sem kom til Reykjavíkur í gærmorgun, ætlaði að lána Landhelgisgæslunni á meðan á heimsókninni stæði, er enn um borð í einu herskipanna. 15.4.2011 08:19
Pottaslys í Grímsnesi Norskur ferðamaður, sem ætlaði að gista í orlofshúsi í Grímsnesi ásamt samferðamönnum sínum, hrasaði illilega og handleggsbrotnaði þegar hann var að stíga upp úr heitum potti um tvö leytið í nótt. 15.4.2011 08:16
Nýir eigendur fundu kókaín í þakklæðningu Benz-bifreiðar Ungir menn, sem voru að gera upp gamlan Benz Austur á Selfossi í gærkvöldi, sáu fyrir tilviljun gat inn í þakklæðninguna á bak við baksýnisspegilinn. 15.4.2011 08:13
Nokkuð um hálkuslys - nagladekk bönnuð frá og með deginum í dag Þrjú umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi, sem öll má rekja til hálku. 15.4.2011 08:11
Vilja að Ásmundur Einar segi af sér Félagsfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum, sem haldinn var í gærkvöldi, skorar á Ásmund Einar Daðason, þingmann flokksins í Norðvesturkjördæmi, að segja nú þegar af sér þignmennsku. 15.4.2011 08:09
Úrslitastundin í dag Gengið verður frá kjarasamningum Alþýðusambandsins (ASÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) í dag. Hvort samningarnir verða til nokkurra vikna eða þriggja ára ræðst af því hvort samkomulag næst í dag við ríkisstjórnina um sjávarútvegsmál, samgönguframkvæmdir og fleiri mál, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 15.4.2011 08:00
Þremenningar ætla að starfa eftir stefnu VG Þrír þingmenn sem gengið hafa úr þingflokki Vinstri grænna eru að íhuga að stofna nýjan þingflokk. Þau ætla að styðja ríkisstjórnina í málum sem eru í samræmi við stefnu Vinstri grænna. 15.4.2011 07:45
Breytingar á tillögum um sameiningu skóla Meirihlutinn í menntaráði Reykjavíkurborgar ákvað á fundi sínum á miðvikudag að fækka nokkuð framkomnum hugmyndum um sameiningar í skóla- og leikskólakerfi borgarinnar. 15.4.2011 07:00
Nefnd vill fleiri og minni kjúklingabú Kjúklingaframleiðendur eru afar fáir hér á landi og er mun algengara að sýkingar komi upp í stórum búum heldur en í þeim sem minni eru. Einungis eru fjórir kjúklingaframleiðendur á landinu. Halda þeir úti 82 eldishúsum með pláss fyrir um 720.000 fugla. 15.4.2011 07:00
Milljónir evra fyrir verðsamráð Framkvæmdastjórn ESB úrskurðaði í gær að stórfyrirtækin Proctor & Gamble, Unilever og Henkel hefðu gerst brotleg við samkeppnislög og voru tvö fyrrnefndu fyrirtækin dæmd til að greiða rúmar 300 milljónir evra í sektir. Henkel slapp við sektir þar sem forsvarsmenn þess tilkynntu um brotin. 15.4.2011 07:00
Endurbætur fyrir 275 milljónir Framkvæmdaáætlun við endurbætur á sundlaugum í Reykjavík mun kosta borgina 275 milljónir króna. Alls er gert ráð fyrir 500 milljónum í fjárhagsáætlun ársins. Borgarráð samþykkti framkvæmdaáætlunina á fundi sínum í gær. 15.4.2011 06:00
Mikil hálka á götum borgarinnar Þó að vorið sé að nálgast þá er veturinn ekki alveg farinn því mikil hálka er nú á götum höfuðborgarsvæðisins. 14.4.2011 23:13
Fyrsta hljóðprufan í Hörpunni á morgun Sinfóníuhljómsveit Íslands mun ganga fylktu liði frá Háskólabíói niður í Hörpu þar sem fyrsta hljóðprufa í nýjum tónleikasal fer fram. Mikil gleði verður í göngunni og mæta lúðraþeytarar með lýðra og lýrur. 14.4.2011 22:14
Þjáist af arfgengri heilablæðingu: Læt ekkert stoppa mig „Ég ætla að gera allt sem mig langar til að gera og læt ekkert stoppa mig,“ segir María Ósk Kjartansdóttir, ung kona sem þjáist af arfgengri heilablæðingu, en sjúkdómurinn dregur flesta þá sem af honum þjást til dauða um þrítugt. 14.4.2011 21:30
Eigandi Bæjarins Bestu: Ríkisstjórnin gæti ekki skilað hagnaði Eigandi Bæjarins Bestu tekur undir orð formanns Framsóknarflokksins um að ríkisstjórnin geti ekki skilað rekstri pylsusölunnar í plús. Hún segir að miðað við þá skatta sem lagðir séu á atvinnurekendur, lítist henni ekki á blikuna. 14.4.2011 20:12
Guðmundur vill að framsókn gangi til liðs við ríkisstjórnina Guðmundur Steingrímsson tekur undir orð Sivjar Friðleifsdóttur og vill að Framsóknarflokkurinn gangi til liðs við ríkisstjórnina. Hann segir tímabært að gerður verði nýr stjórnarsáttmáli og ríkisstjórnin auki styrk sinn á Alþingi. 14.4.2011 19:06
Íbúðalánasjóður verðmetur eignir of hátt Alþingi samþykkti nýverið 110 prósent leið Íbúðalánsjóðs og hafa nú þegar skuldir sextíu einstaklinga verið leiðréttar en um tvö hundruð hafnað. Ekki eru allir sáttir við þetta úrræði. 14.4.2011 18:43
Lilja íhugar að stofna stjórnmálaflokk Lilja Mósesdóttir íhugar nú að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Hún segist kanna alla möguleika er varða framtíð sína í stjórnmálum. Þá mun hún stofna nýjan þingflokk ásamt Atla Gíslasyni og Ásmundi Einari Daðasyni. Það verður þó ekki gert formlega fyrr en Alþingi kemur saman að loknu páskaleyfi. Hún segir starf þingflokksformanns ekki vera eftirsótt meðal þremenningna. 14.4.2011 18:30
Búast við flóðbylgju ferðamanna undir Eyjafjöllum Eitt ár er í dag liðið frá upphafi eldgossins í toppgíg Eyjafjallajökuls. Í byggðunum undir eldfjallinu takast Eyfellingar enn á við afleiðingarnar um leið og þeir búa sig nú undir flóðbylgju ferðamanna. 14.4.2011 18:24
Larry King kemur til Íslands Þáttastjórnendakóngurinn Larry King ætlar að koma til Íslands föstudaginn 23. september næstkomandi og halda stórskemmtilega sýningu fyrir Íslendinga. Sýningin verður haldin í Hörpunni. 14.4.2011 18:18
Dómar mildaðir yfir kannabisræktendum Hæstiréttur mildaði í dag dóma yfir tveimur mönnum sem dæmdur höfðu verið í 20 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í héraði. Fannst Hæstarétti réttara að dæma mennina í 14 mánaða fangelsi en þeir voru dæmdir fyrir að setja upp fullkomna ræktunarstöð fyrir kannabisplöntur í Þykkvabæ sem lögregla upprætti árið 2009. Um fimmhundruð kannabisplöntur fundust á staðnum, tæplega þrú kíló af kannabislaufum og um 11 grömm af hassi. 14.4.2011 18:17
Stjórnin sprungin ef Þráinn forfallast Forfallist Þráinn Bertelsson af þingi er ríkisstjórnin sprungin. Þráinn var kjörinn á þing fyrir Borgarahreyfinguna. Hann sagði sig úr þeim félagsskap og gekk til liðs við VG. Félagar hans í Borgarahreyfingunni stofnuðu hins vegar Hreyfinguna. Katrín Snæhólm Baldursdóttir, varamaður Þráins á þingi, fylgir þingmönnum Hreyfingarinnar að máli. 14.4.2011 17:10
Fær greiddar bætur vegna skipunar í héraðsdóm Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið og Árna M. Mathiesen, fyrrverandi ráðherra, til að greiða Guðmundi Kristjánssyni 500 þúsund krónur í miskabætur vegna skipunar í embætti Héraðsdóms Norðurlands eystra í lok árs 2007. 14.4.2011 16:50
Reykjadalur í Mosfellsdal hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu síðdegis í dag. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin. Þetta er í sjötta sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna. 14.4.2011 16:02
Nagladekk bönnuð eftir morgundaginn Nagladekk eru bönnuð á götum Reykjavíkur eftir morgundaginn. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar segir að engin ástæða sé til að vera á nöglum í borginni enda hafi slíkum hjólbörðum stórlega fækkað á liðnum árum. Um 34% bifreiða reyndust á nöglum í marsmánuði. Nagladekk spæna upp malbik margfalt hraðar en önnur dekk og eru áhrifamikill valdur að svifryki í Reykjavík. Lögreglan hefur heimild til að sekta ökumenn fyrir notkun nagladekkja eftir 15. apríl. 14.4.2011 15:11
Íslandsbanki styrkir Special Olympics Íslandsbanki og Íþróttasamband fatlaðra hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Íslandsbanki verði einn af aðal styrktaraðilum samtakanna vegna Special Olympics á Íslandi. Undirritunin fór fram í útibúi Íslandsbanka við Gullinbrú, sem er aðal viðskiptaútibú Íþróttasambands fatlaðra. Íslandsbanki og forverar hans hafa stutt ÍF og Special Olympics allt frá árinu 2000. 14.4.2011 14:40
Dómsmál skapa óvissu um útgreiðslur úr þrotabúi Landsbankans Alls óvíst er hvenær verður nákvæmlega hægt að byrja að greiða út úr þrotabúi Landsbankans. Það er háð því að Hæstiréttur komist að þeirri niðurstöðu að innistæður séu forgangskröfur líkt og neyðarlögin gerðu ráð fyrir og að neyðarlögin haldi að öðru leyti. 14.4.2011 14:10
Alcoa Fjarðaál veitir 38 milljónum króna til samfélagsverkefna Alcoa Fjarðaál veitti í gær 26 styrki til samfélagsverkefna á Austurlandi að upphæð samtals 38 milljónir króna. Afhendingin fór fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. 14.4.2011 13:54
Verzlingar halda peysufatadaginn hátíðlegan Nemendur 4. bekkjar Verzlunarskóla Íslands halda peysufatadaginn hátíðlegan í dag. Dagskráin hófst í Bláa sal Verzlunarskólans í morgun. Þaðan var haldið á Hlemm og svo gengið niður Laugaveginn að Ingólfstorgi. Þar náði myndatökumaður fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis þessari mynd af nemendum að dansa við harmónikkuleik. Í kvöld verður svo dansleikur í tilefni dagsins. 14.4.2011 13:02
ESB umsókn dauð innan ríkisstjórnarinnar eða stjórnin sjálf Stóru tíðindin eru þau að ríkisstjórnin missti mann frá borði og annaðhvort er ESB-umsóknin dauð innan ríkisstjórnarinnar, eða ríkisstjórnin sjálf. Þetta er mat stjórnmálafræðings á pólitíkinni eftir atkvæðagreiðsluna á Alþingi í gær. 14.4.2011 12:34
Grunaðir barnaníðingar ganga nú lausir Mönnunum tveimur sem sátu í gæsluvarðhaldi, grunaðir um að hafa beitt sjö ára dreng kynferðislegu ofbeldi, eru lausir úr haldi. Lögreglan sleppti þeim seinni part gærdags og eru þeir því frjálsir ferða sinna. Ekki var talin ástæða til að fara fram á framlengingu á varðhaldi sem raunar var í gildi til dagsins í dag, hvorki á grundvelli rannsóknarhagsmuna né almannahagsmuna. Lögreglan hefur meðal annars farið yfir tölvur mannanna og tölvugögn. Grunur lék á að þar væri myndefni með barnaníð að finna en svo var ekki. "Leitin leiddi ekki í ljós neitt efni sem innihélt barnaníð,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins er þó enn í fullum gangi og lögreglan heldur áfram að vinna úr þeim gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir. Umræddir menn eru faðir og frændi drengsins sem þeir eru grunaðir um að hafa misnotað. Faðir drengsins á að bak langan sakaferil og hefur meðal annars hlotið dóm fyrir árás á móður drengsins. Þegar mennirnir voru hnepptir í gæsluvarðhald flúði móðirin af heimili sínu ásamt barnsföður sínum, börnum og syninum. 14.4.2011 12:23
Lilja útilokar ekki stofnun þingflokks með Atla og Ásmundi Lilja Mósesdóttir útilokar ekki að stofna nýjan þingflokk með þeim Atla Gíslasyni og Ásmundi Einari Daðasyni. Brotthvarf Ásmundar úr Vinstri grænum kom flatt upp á Atla en Lilja segist skilja afstöðu hans mjög vel. Þingflokksformannsmálið hafi verið kornið sem fyllti mælinn. 14.4.2011 12:04
Samfélagaverðlaun Fréttablaðsins afhent í dag Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í dag. Verðlaunin verða afhent í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 15. Þetta er sjötta árið í röð sem verðlaunin eru afhent. Yfir þrjú hundruð tilnefningar til Samfélagsverðlaunanna bárust frá lesendum í ár. Veitt verða verðlaun í fimm flokkum; frá kynslóð til kynslóðar, hvunndagshetja ársins, til atlögu gegn fordómum, heiðursverðlaun og samfélagsverðlaunin sjálf. Verðlaunahafar munu fá gsm síma, utan samfélagsverðlaunahafans sem mun fá eina milljón króna. 14.4.2011 11:57
Aðgerðarleysi bankanna verði ekki liðið Reglum verður breytt þannig að það hafi í för með sér mikinn kostnað fyrir fjármálafyrirtæki að hafa lán í vanskilum. Þetta verður gert til að þrýsta á fjármálafyrirtæki að vinna úr skuldamálum fyrirtækja. 14.4.2011 11:27
Traust til fjölmiðla: Vísir sækir á Í nýrri könnun MMR um traust almennings til fjölmiðla sést að traust til Vísis hefur farið stöðugt vaxandi allt frá efnahagshruninu 2008 þegar nær allir fjölmiðlar glötuðu trausti almennings. Nú segjast 32,7 prósent aðspurðra bera mikið traust til Vísis. Vísir og Fréttablaðið eru einu miðlarnir sem vinna á í trausti. 14.4.2011 11:11
Jón Gnarr vill ekki tengjast hernaðarbrölti „Ég er friðarsinni og á móti hernaði í hvaða mynd sem er,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, en hann hyggst ekki taka á móti yfirmönnum af herskipum þýska flotans sem liggja nú við Skarfabakka í Sundahöfn. 14.4.2011 11:04
Nýtir öll tækifæri til að tala máli Íslands „Auðvitað hef ég notað öll þau tækifæri sem ég hef haft þegar ég hef sótt fundi erlendis að tala máli íslands," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra við upphaf þingfundar í dag. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði forsætisráðherra hvernig hún hefði staðið að því að kynna málstað Íslands eftir Icesave kosningarnar um helgina. Jóhanna hefur verið gagnrýnd meðal annars fyrir að segja að niðurstaða Icesave kosninganna væri versta mögulega niðurstaðan. 14.4.2011 10:58
Matfugl svarar neytendum: Enginn fugl í búri „Hluti neytenda gerir kröfu til þess að geta keypt ómeðhöndlaðar kjúklingabringur meðan aðrir neytendur kjósa að geta fengið safaríkari kjúkling sem inniheldur viðbætt vatn. Við því hefur Matfugl brugðist með að bjóða uppá hvorutveggja. Sem dæmi um það þá framleiðum við kjúklingabringur sem innihalda ekkert viðbætt vatn undir vörumerkjunum Ali og Ferskir kjúklingar. Í öllum tilfellum þar sem vatni er bætt í vörur frá okkur kemur það fram á innihaldslýsingu. " Þetta kemur fram í svari Matfugls til áhugafólks um velferð dýra sem hefur á Facebook-síðu Matfugls óskað eftir upplýsingum um aðbúnað kjúklinga í búum fyrirtækisins. Þá óskuðu umræddir neytendur einnig eftir myndum sem teknar eru í kjúklingabúunum, og hefur Matfugl einnig orðið við því. Myndirnar má sjá hér. http://www.flickr.com/photos/61660020@N07/ Sumir vilja vita sem minnst Ekki hafa þó allir neytendur áhuga á aðbúnaði þeirra dýra sem það síðar neytir. Þannig segir Þorstína Sigurjónsdóttir. „Myndi manni líða betur með að vita að það sem er á diski manns, hafi verið haft sem gæludýr og síðan drepið ? Það hefði verið drepið hvort sem var. Fólk þarf að gera upp við sig hvort það vilji vera grænmetisætur eða ekki. Það er ekkert fagurt við það að ala eitthvað eingöngu með það í huga að drepa það síðan, en svona er það nú samt. Það er ekki heldur vel farið með fiskana í sjónum. Á meðan ég er ekki grænmetisæta, vil ég sem minnst vita um aðbúnað dýra sem ég kýs að borða og ekki myndi ég vilja koma inní sláturhús heldur," segir hún á síðunni. Enginn fugl í búri Í svari Matfugls til neytenda kemur fram að starfsfólk á þeim bænum fagni sýndum áhuga á starfseminni; „Jafnframt viljum við mótmæla tilhæfulausum ásökunum um slæma meðferð á dýrum." Þá er bent á að starfsreglur alifuglaræktar á Íslandi eru settar af Landbúnaðarráðuneytinu og að öll bú eru tekin reglulega út á vegum Matvælastofnunar. „Starfsmenn Matfugls hafa frá upphafi lagt metnað sinn í það að hafa aðbúnað dýranna á búum sínum eins góðan og kostur er í nútíma landbúnaði. Sem dæmi um það hafa dýralæknar verið í fullu starfi hjá okkur frá árinu 1999 og hefur þeirra hlutverk verið að stýra gæðum framleiðslunnar og huga að velferð dýranna. Allur búnaður á búunum er af fullkomnustu gerð og enginn fugl hjá okkur hefur nokkru sinni verið alinn í búrum heldur fá þeir að valsa um húsin að vild," segir í svarinu. Of kalt úti Þeir neytendur sem leituðu eftir upplýsingum frá Matfugli höfðu einnig sérstakan áhuga á vistvænni framleiðslu. „Kjúklingaframleiðsla á Íslandi er nálægt því að vera vistvæn. Það eina sem vantar upp á er að fuglarnir geta ekki gengið inn og út úr húsum. Ástæður fyrir því eru aðallega tvær; annarsvegar að á Íslandi er of kalt fyrir fuglinn til að þrífast utandyra en kjörhitastig í kjúklingaeldi er á bilinu 21-31°C og hins vegar strangar heilbrigðiskröfur varðandi campylobakter til verndar neytendum, en fugl sem gengur úti er oftar en ekki sýktur af campylobakter. Af þessum sökum er ekki í boði að selja ferskan „free range" kjúkling á Íslandi þó að það tíðkist erlendis enda eru heilbrigðiskröfur ekki eins strangar þar," segir í svari Matfugls. 14.4.2011 10:52
Ásmundur tilkynnti úrsögn í tölvupósti Ásmundur Einar Daðason þingmaður sendi VG töluvpóst í morgun þar sem hann tilkynnti að hann hafi sagt sig úr þingflokki VG. 14.4.2011 10:35