Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bakslag komið í kjaraviðræður Minnstu munaði að slitnaði upp úr viðræðum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins í dag vegna kröfu ASÍ um 200 þúsund króna lágmarkslaun. SA kom til móts við þessa kröfu síðdegis með því skilyrði að tiltekin hagvaxtaspá gangi eftir og að ríkisstjórnin komi að samningunum með þeim hætti sem aðilar vinnumarkaðarins telja að geti stuðlað að fjölgun starfa. 4.4.2011 19:12
Fíkniefnasalar handteknir Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í austurborginni í gær eftir að lögreglan stöðvaði þar ökutæki. Hjá þeim fundust fíkniefni en mennirnir voru einnig með nokkuð af peningum í fórum sínum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. 4.4.2011 19:00
Ungt fólk trúir því að neysla kannabis sé skaðlaus Kannabisneysla meðal íslenskra ungmenna hefur færst í aukana og þá sérstaklega neysla á marijúana. 4.4.2011 18:53
Íbúar gætu verið bótaskyldir fjúki ruslatunnurnar Íbúar Reykjavíkur sem kjósa að færa ruslatunnur sínar út að götu á sorphirðudegi eiga á hættu að verða bótaskyldir ef tunnurnar fjúka til í roki. Tryggingafélögin segja flækjustigið mikið og óttast að fjöldi slíkra mála berist. 4.4.2011 18:45
Ríkisstjórnin fundar á Ísafirði Ríkisstjórnarfundur verður haldinn á Ísafirði á morgun og verður það í fyrsta skipti sem ríkistjórn Íslands fundar á Vestfjörðum. 4.4.2011 18:19
Þrettán líkamsárásir um helgina Þrettán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Átta þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags. Líkamsárásirnar voru flestar minniháttar og mestmegnis voru þetta pústrar. 4.4.2011 17:51
Fundu gras og amfetamín Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann amfetamín og marijúana við húsleit í íbúð í Breiðholti á föstudag. Einnig var lagt hald á ýmsa muni sem grunur leikur á að séu þýfi. Tveir karlar og ein kona voru handtekin í þágu rannsóknarinnar en fólkið er allt á þrítugsaldri. 4.4.2011 17:26
Sigríður skipuð ríkissaksóknari Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur skipað Sigríði J. Friðjónsdóttur vararíkissaksóknara í embætti ríkissaksóknara. Hún tekur við embættinu af Valtý Sigurðssyni. 4.4.2011 17:23
Fékk greiddar fjórar milljónir fyrir mistök Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann til að endurgreiða 4 milljónir króna sem voru greiddar fyrir mistök inn á reikning hans í Kaupþingi um miðjan desember 2008. 4.4.2011 17:00
Engin lausn að velja óumdeildan mann Stefán Einar Stefánsson, guðfræðingur, mun taka við starfi formanns VR, eins öflugasta verkalýðsfélags landsins, seinna í mánuðinum. Hann varð hlutskarpastur sjö frambjóðanda í formannskjöri félagsins en úrslit voru kynnt í síðustu viku. 4.4.2011 16:30
Fyrrverandi ráðherrum hótað Rannsóknarlögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu rannsaka nú hótunarbréf sem barst á ritstjórnarskrifstofur DV. Í bréfinu er fyrrverandi stjórnmálamönnum, sem flestir eiga það sameiginlegt að hafa tjáð sig á jákvæðum nótum um Icesave samningana, hótað með þeim hætti að þeim er ráðlagt að fá sér lífverði. 4.4.2011 15:54
Allir gegnumlýstir en engir vindsokkar Helstu áhættuþættir í flugi á Íslandi eru tengdar hinu opinbera, að mati fráfarandi formanns Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Í fréttabréfi FÍA segir Kári Kárason flugstjóri frá því sem hann kallar miskunnarlausan niðurskurð í flugmálum. 4.4.2011 15:50
Harmleikur hjá fjölskyldu Bubba Bubbi Morthens tónlistarmaður greinir frá því að Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, eiginkona hans, hafi fætt andvana barn á dögunum. Þau komust að því þegar að þau fóru í 20 vikna sónar að barnið væri látið. Þegar þau fóru í tólf vikna sónar blasti lítið kríli við. Gleðin og þakklætið var mikið og þau hjónin pældu í nafni. 4.4.2011 15:04
Undirbúa viðbrögð við stórslysi Viðbrögð við rútuslysi verða æfð næsta laugardag þegar stórslysaæfing læknanema verður haldin við slökkviliðstöðina í Hafnarfirði. Þar verður sett á svið slys þar sem hvert námsár hefur sitt hlutverk. 4.4.2011 14:49
Kynningarbæklingurinn borinn út Íslandspóstur hóf í morgun að bera út kynningarbækling Lagastofnunar Háskóla Íslands vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana á laugardaginn. Gert er ráð fyrir að bæklingurinn berist inn á meira en helming heimila landsins í dag og að verkinu ljúki á morgun. 4.4.2011 14:13
Svanur varð fyrir flugvél Dash-flugvél frá Flugfélagi Íslands hæfði svan á flugi við flugtak frá Ísafjarðarflugvelli í gærmorgun með þeim afleiðingum að svanurinn féll særður til jarðar. Fram kemur á fréttavef Bæjarins besta að svanurinn var dauður þegar starfsmenn Ísafjarðarflugvallar komu að honum. Flugvélin skemmdist ekki og hélt áfram ferð sinni til Reykjavíkur. Að sögn starfsmanns Flugfélags Íslands á Ísafirði er það sem betur fer afar sjaldan að svo stórir fuglar rekist á flugvélar. 4.4.2011 14:01
Konur sópa að sér bókmenntaverðlaunum Konur eru handhafar allra helstu bókmenntaverðlauna landsins fyrir fagurbókmenntir auk bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ragnheiður Gestsdóttir var sú sjötta í röð skrifandi kvenna til að hljóta verðlaun og fagnar því hvað konur eru sterkar á ritvellinum. 4.4.2011 13:21
Gunnar fær 300 þúsund krónur vegna meiðyrða Þórarinn Hjörtur Ævarsson hefur verið dæmdur til að greiða Gunnari I. Birgissyni 300 þúsund krónur í bætur vegna ummæla í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðíð þann 14. júní 2009. Yfirskrift greinarinnar var "Áskorun til Gunnars Birgissonar frá sjálfstæðismanni." Gunnar taldi að ummæli í greininni hafi verið til þess fallin að sverta ímynd sína og valda honum verulegum mannorðshnekki. Hann krafðist því einnar milljónar króna í bætur og að tiltekin ummæli yrðu dæmd dauð og ómerk. 4.4.2011 12:58
Sparkaði í höfuð lögreglumanns Karlmaður sparkaði í höfuð lögreglumanns þegar að verið var að handtaka hann í Hveragerði aðfaranótt sunnudagsins. Það var rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt sunnudags að óskað var eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna átaka tveggja ölvaðra manna á heimili í Hveragerði. 4.4.2011 12:14
Vonast eftir samningum áður en vikan er liðin Aðilar vinnumarkaðarins munu í dag eða á morgun kynna stjórnvöldum breytingartillögur við útspili stjórnvalda frá því fyrir helgi. Vonast er til að nýr kjarasamningur til þriggja ára liggi fyrir áður en vikan er liðin, þar sem almennar launahækkanir verði yfir átta prósent á samningstímanum. 4.4.2011 11:58
Helmingur þjóðarinnar ánægður með Ólaf Ragnar Helmingur landsmanna er ánægður með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, samkvæmt nýrri viðhorfskönnum.Tæpur þriðjungur er hvorki ánægður né óánægður með störf forsetans. Í könnun MMR á ánægju almennings með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, kom í ljós að 17,0% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru mjög ánægðir með störf hans og 33,0% aðspurðra voru frekar ánægðir. Tæplega þriðjungur aðspurða sögðust hvorki ánægðir né óánægðir með störf forsetans. 11,7% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust frekar óánægðir og 8,1% voru mjög óánægðir með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Mikill munur var á afstöðu eftir aldri, búsetu, stjórnmálaskoðun og stuðning við ríkisstjórnina. Ánægja með störf forsetans minnkar með hækkandi aldri. Þannig voru 59,2% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar í aldurshópnum 18-29 ára ánægðir með störf forsetans borið saman við 50,8% á aldrinum 30-49 ára og 40,4% á aldrinum 50-67 ára. Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar og búa á landsbyggðinni sögðust 54,2% ánægðir með störf forsetans borið saman við 47,5% sem búa á höfuðborgasvæðinu. Þá voru 75,1% þeirra sem sögðust kjósa Framsóknaflokkinn, ef kosið yrði nú, ánægðir með störf forsetans samanborið við 54,1% sjálfstæðismanna, 39,2% sem sögðust kjósa Vinstri græna og 24,3% stuðningsfólks Samfylkingarinnar. Af þeim sem styðja ríkisstjórnina sögðust 32,7% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar ánægðir með störf forsetans borið saman við 58,0% sem ekki styðja ríkisstjórnina. Sjá nánar á vef MMR. 4.4.2011 11:53
Keypti eldspýtur og lím - listinn allur birtur á morgun Kostnaður Birnu Þórðardóttur vegna framboðs hennar til stjórnlagaþings var 11.564 krónur. Fyrir þessa upphæð keypti hún 500 eldspýtustokka, límstauta og límúða. "Vinna við álímingu og aðra framkvæmd var gefin. Gefendur: börn og vinir undirritaðrar," segir í skilagrein Birnu til Ríkisendurskoðunar. Með skilagreininni lét hún fylgja síðasta eldspýtustokkinn af þeim sem keyptur var vegna framboðsins. Sem kunnugt er náði Birna ekki kjöri. Ríkisendurskoðun ætlar á morgun, 5. apríl, að birta upplýsingar um þá sem hafa sent inn skilagreinar en kveðið var á um það í lögum um stjórnlagaþing að frambjóðendur skyldu skila inn uppgjöri. Skilafresturinn rann út 28. febrúar Lárus Ögmundsson, yfirlögfræðingur Ríkisendurskoðunar, sagði í samtali við Fréttatímann fyrir helgina að aðeins helmingur þeirra sem þegið hafa sæti í stjórnlagaráði hafi skilað upplýsingum um kostnað við framboð sitt. Þá sagði hann að alls hefðu aðeins 138 frambjóðenda skilað inn uppgjöri Ríkissendurskoðun hefur sent út ítrekun til frambjóðenda vegna skilagreinanna. 4.4.2011 10:50
Láta meta áhrif lækkunar bensíngjalda Gera má ráð fyrir að umferð hafi dregist saman um allt að 8% á fyrstu þremur mánuðum ársins samkvæmt tölum sem birtar voru á vef Vegagerðarinnar á föstudag. 4.4.2011 10:49
Karlmönnum með kvíða komið til bjargar Hjálparsími Rauða krossins 1717 stendur fyrir átaki þessa vikuna undir yfirskriftinni ,,Geta pabbar ekki grátið?" Rauði krossinn segir að þetta sé vegna þess að margir finni fyrir fjárhagsáhyggjum um þessar mundir sem valdi miklum kvíða., streitu og jafnvel þunglyndi. Ekki megi gera lítið úr slíkum tilfinningum. 4.4.2011 10:30
Vorhreingerning og næturlokanir í Hvalfarðargöngunum Hvalfjarðargöngin verða lokuð í alls átta nætur í fyrri hluta aprílmánaðar vegna viðhalds og vorhreingerningar. Fyrsta næturlokunin verður í nótt, en um er að ræða tvær tarnir. Fyrri viðhalds- og hreingerningartörnin verður 5. til 8. apríl (aðfaranætur þriðjudags, miðvikudags, fimmtudags og föstudags) í 14. viku. Þá verða göngin lokuð frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Síðari törnin verður 12. til 15. apríl, aðfaranætur þriðjudags, miðvikudags, fimmtudags og föstudags, í 15. viku.. Þá verða göngin einnig lokuð frá miðnætti til kl. 6 að morgni. 4.4.2011 10:06
"Réttur transfólks á Íslandi er enginn" "Meginástæðurnar fyrir stofnun nefndarinnar er sú að réttur transfólks á Íslandi er enginn," segir Anna Kristjánsdóttir sem situr í nýskipaðri nefnd velferðarráðherra sem gera á tillögur að úrbótum á réttarstöðu transfólks. "Það er ekki til einn einasti lagabókstafur um þessi mál auk þess sem nafnalögin eru hreinlega andstæð okkur enda ekki gert ráð fyrir því í nafnalögunum að kynferði fólks sé breytt í opinberum skjölum," segir Anna. Formaður nefndarinnar sem velferðarráðherra hefur skipað er Laufey Helga Guðmundsdóttir, tilnefnd af velferðarráðuneytinu. Aðrir nefndarmenn eru Skúli Guðmundsson, tilnefndur af innanríkisráðuneytinu, Óttar Guðmundsson, tilnefndur af landlæknisembættinu og Margrét Steinarsdóttir, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands. Anna er tilnefnd af samtökunum Trans Ísland. Eitt af því sem transfólk berst fyrir er að fá að breyta nafni sínu í opinberum skrám, og þar með á skilríkjum, í samræmi við eigin upplifun á kyni. Nafnalögin í mótsögn við sig sjálf Önnu finnst nafnalögin í raun vera í mótsögn við sig sjálf, en Anna bar hún karlmannsnafn áður en hún fór í kynleiðréttingu. Hún bendir á að í nafnalögunum segi að stúlku skuli gefið kvenmannsnafn en dreng skal gefa karlmannsnafn. Ennfremur segir þar: "Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama." Anna segir að yfirmenn hjá Þjóðskrá hafi verið jákvæðir í garð transfólks og að þar sé litið á aðgerð til leiðréttingar á kyni sem staðfestingu á að breyta megi nafni fólks. "Með áliti umboðsmanns Alþingis hefur sú regla verið útaukin og bætt svo að nú getur fólk fengið nafnabreytingu þegar langt er liðið á meðferðarferlið," segir Anna. Brothætt mál Hún bendir á að það skipti afar miklu að þeir aðilar sem kom að þessum málum séu jákvæðir. "Málið er brothætt og nægir að einhver einn aðili sé neikvæður og allt stöðvast í kerfinu og við lendum aftur í sömu vandamálum og fyrir 1995. Þá á ég aðallega við að hér er um að ræða langa keðju aðila sem koma að málinu og um leið og einn aðili verður neikvæður slitnar keðjan," segir Anna. Til eru nokkrar rannsóknir á stöðu transfólks í ýmsum ríkjum. Anna segir að Norðurlöndin hafi staðnað í þessum málum. "Svíþjóð, Noregur og Danmörk hafa dregist aftur úr öðrum Evrópuþjóðum á þessu sviði, en Finnland sem er með nýjustu löggjöfina á Norðurlöndunum er komið lítið lengra í þessum málum. Í dag þurfum við að horfa meira til annarra landa í Vestur-Evrópu til að sækja okkur fyrirmyndir," segir hún, þar sem nútímavæða þarf löggjöfina í nágrannalöndum okkar. Gert er ráð fyrir að nefndin sem Anna situr í skili tillögum til velferðarráðuneytisins fyrir árslok. 4.4.2011 09:51
Gríðarlegt áfall fyrir drenginn "Það voru miklir fagnaðarfundir þegar við loksins hittum hann,“ segir Óskar P. Friðriksson úr Vestmannaeyjum sem hitti átta ára gamalt barnabarn sitt, Leif Magnús Grétarsson, í síðustu viku. 4.4.2011 09:30
Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur Tveir voru fluttir á slysadeild eftir fjögurra bíla árekstur sem varð á Breiðholtsbraut um klukkan hálf níu. Þeir eru ekki taldir alvarlega slasaðir en þurfa á aðhlynningu að halda. 4.4.2011 08:57
Fjögurra bíla árekstur á Breiðholtsbraut Fjögurra bíla árekstur varð á Breiðholtsbraut, til móts við Vatnsendahvarf, nú um klukkan hálf níu í morgun. Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort slys urðu á fólki. Lögregla og sjúkralið er á staðnum, og er Breiðholtsbrautin lokuð í báðar áttir. Nánari upplýsingar verða birtar um leið og þær berast 4.4.2011 08:43
Óvenjumikil þorskveiði í netarallinu Óvenjumikil þorskveiði hefur verið hjá flestum netabátunum, sem hófu svonefnt netarall Hafrannsókanstofnun á föstudag. 4.4.2011 07:55
Óljóst hvenær Landeyjahöfn opnar að nýju Ekki er útlit fyrir að Landeyjahöfn opnist fyrir næstu helgi og óljóst hvenær það verður hægt, að því er farm kemur á heimasíðu Siglingastofnunar. 4.4.2011 07:51
Kanadískar herþotur annast loftrýmisgæsluna Þrjár herþotur frá kanadíska flughernum komu til Keflavíkurflugvallar í gærkvöldi til að annast hér loftrýmisgæslu næstu vikurnar. Ein til viðbótar og eldsneytisvél eru væntanlegar í dag. 4.4.2011 07:44
Erlend ferðakona slasaðist á Þingvöllum Erlend ferðakona um sextugt slasaðist í andliti þegar hún féll í tröppu rútubíls við Hakið á Þingvöllum um miðnæturbil. 4.4.2011 07:21
Missti samstarfsmenn sína í árás í Afganistan "Þetta sýnir sennilega að fólk er hvergi óhult hér í Afganistan,“ segir Erlingur Erlingsson, starfsmaður Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. Samstarfsmenn hans og vinir voru myrtir af æstum múgi á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í borginni Mazar-i-Sharif á föstudag. 4.4.2011 06:30
Óttast aukna leynd með nýjum lögum „Þetta er afturför því þarna er verið að fjölga en ekki fækka undanþágum frá því sem er í lögunum frá 1996,“ segir Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, um frumvarp um breytingar á lögum um upplýsingamál. 4.4.2011 06:30
Skólameistarar bíða eftir fundi „Mér vitandi hefur ekkert verið rætt við stjórnendur framhaldsskóla um þessi mál. Við vitum bara að við eigum að skera niður kostnað um 5,5 prósent á þessu ári og búumst við öðru eins á því næsta. Ég sé ekki hvernig þetta á að vera mögulegt miðað við fjárveitingar til framhaldsskólanna,“ segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri. 4.4.2011 05:30
Umferð jókst um 4% Meðalumferð um Bolungarvíkurgöng er tæpum 4 prósent meiri það sem af er ári en umferð um Óshlíðarveg á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram á fréttavefnum BB.is. 4.4.2011 04:00
Þriðjungur eldri pilta hefur reykt gras þrisvar eða oftar Samfélagsmál Þriðjungur pilta yfir átján ára aldri í íslenskum framhaldsskólum hefur reykt marijúana þrisvar sinnum eða oftar. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar sem unnin var af Rannsóknum og greiningu við Háskólann í Reykjavík. 4.4.2011 00:00
Stórleikari gistir á Ísafirði Breski leikarinn og Óskarverðlaunahafinn Jeremy Irons er staddur á Íslandi og er væntanlegur til Ísafjarðar í dag samkvæmt fréttavef DV. 3.4.2011 17:27
Steingrímur og Katrín hvetja VG til þess að segja já Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hvetja flokksmenn Vinstri grænna til þess að kjósa já í kosningunum um Icesave næstkomandi laugardag, í ávarpi sínu á heimasíðu flokksins. 3.4.2011 15:37
Mögnuð ræða borgarstjórans: Varaliturinn gerði þau mennsk á ný Ræða Jón Gnarrs, borgarstjóra Reykjavíkur vakti talsverða athygli á opnunarhátíð Reykjavík fashion festival (RFF). 3.4.2011 13:36
Loftur Altice: Engin áhætta af því að segja nei Forsvarsmenn Samstöðu þjóðar gegn Icesave gagnrýna málflutning Alþýðusambandsins um Icesave málið í nýlegu fréttabréfi. Ýmislegt vanti uppá þegar kemur að umfjöllun um samningana. 3.4.2011 18:46
Lægstu launin verða alltaf of lág Lægstu launin verða alltaf alltof lág, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Aðilar vinnumarkaðarins koma saman í Karphúsinu í dag til að ræða launalið komandi kjarasamninga. 3.4.2011 12:05
Varalitaður borgarstjóri skelfir tískuheiminn með stríðssögum Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, setti tískuhátíðina RFF í gærkvöldi en setningaræðan hans skelfdi beinlínis gesti tískuhátíðarinnar samkvæmt Bleikt.is. 3.4.2011 10:53
Seldi skákborðið fyrir tæpar átta milljónir Einvígisborðið úr þriðju einvígisskák einvígis aldarinnar var selt á uppboði í dag hjá Philip Weiss samkvæmt skák.is. Borðið seldist á 67.500 dollara, eða á um 7.750.000 krónur. 3.4.2011 09:58