Fleiri fréttir

Fimm ára drengur lést af slysförum

Fimm ára drengur lést þegar hann lenti í drifskafti vélar á sveitabæ í Borgarbyggð síðdegis í gær. Drengurinn var þar gestkomandi á bænum sem á Mýrum. Ekki verður hægt að greina frá nafni drengsins að svo stöddu.

Færð: Víða hálka

Hálka er á Hellisheiði, Sandskeiði og í Þrengslum. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Fróðárheiði, Vatnaleið og á Bröttubrekku. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði.

Hugsanlega þarf að farga flugvélinni

Dash átta flugvél Flugfélags Íslands hefur nú verið komið fyrir á svæði í eigu Air Greenland á Nuuk flugvelli á Grænlandi, en Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir Air Greeland hafa aðstoðað Íslendinga mikið eftir flugslysið. Vélin er því ekki fyrir neinum núna.

Líkamsárás og bílaþjófnaður á N1

Einn karlmaður var handtekinn vegna líkamsárásar á bensínstöðinni N1 við Hringbraut í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni komu upp átök nokkurra manna á bensínstöðinni sem varð til þess að lögreglan var kölluð á vettvang.

Nítján ára stúlka ók utan í lögreglubíl og stakk af

Nítján ára stúlka ók utan í lögreglubíl þegar hún reyndi að komast undan vegna ölvunaraksturs. Stúlkan hafði verið að aka í Þingholtunum klukkan fjögur í nótt þegar lögreglan tók eftir undarlegu aksturslagi stúlkunnar.

Stjórnmálaþátttaka kvenna einna mest á Íslandi

Rúanda er eina ríkið í heiminum þar sem konur eru í meirihluta á þjóðþinginu. Á Íslandi og í Suður-Afríku vantar lítið upp á að jafn margar konur og karlmenn sitji á þingi. Þetta kemur fram á vef breska blaðsins Independent. Blaðið hefur gert úttekt á stöðu kvenna á þjóðkjörnum þingum í heiminum í tilefni þess að alþjóðlegur baráttudagur kvenna er á þriðjudaginn.

Vítisenglarnir koma til landsins síðdegis á morgun

Von er á íslensku Vítisenglunum til Ísland síðdegis en norsk yfirvöld vísuðu þeim úr landi eftir að þeir voru stöðvaðir á Gardemoen-flugvelli í gær. Þá sagði varðstjóri lögreglunnar að mennirnir, sem voru átta, væru í öryggisgæslu þar sem erindi þeirra til landsins var kannað.

Víða hvassviðri - óveður við Hafnarfjall

Á Suðurlandi eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálkublettir og éljagangur er víða á Vesturlandi. Óveður er við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi.

Dollar fann kannabisefni á Ísafirði

Lögreglan á Vestfjörðurm fann tæp 70 grömm af kannabisefnum í gærmorgun. Efnið fannst við húsleit á Ísafirði. Ungur maður var handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Hann hefur viðurkennt að hafa átt efnið og ætlað það til dreifingar á svæðinu.

Lést í gufunni í World Class - fannst daginn eftir

Karlmaður fannst látinn í gufubaði World Class á miðvikudaginn en maðurinn lést skyndidauða samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar liggja fyrir en þær staðfesta að andlát mannsins hafi ekki borið að með saknæmum hætti.

Fundað um RÚV

Framtíðarþing um hlutverk, stöðu og dagskrárstefnu Ríkisútvarpsins verður haldið í Hafnarhúsinu í dag undir yfirskriftinni Framtíðarþing þjóðarútvarps. Þingið hefst núna klukkan tíu og stendur til tvö.

Vatnsleki í Héraðsdómi Reykjavíkur

Vatn lak í kjallara Héraðsdóms Reykjavíkur í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var um minniháttar atvik að ræða.

Lamdi mann í andlitið með bjórglasi

Karlmaður er í haldi lögreglunnar eftir að hafa slegið annan mann í andlitið með bjórglasi. Sá sem fékk glasið í sig skast verulega illa en árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistað við Tryggvagötuna í nótt.

Félagar í MC Iceland orðnir Vítisenglar

Átta félagar vélhjólaklúbbsins MC Iceland voru stöðvaðir á Gardemoen-flugvelli í Osló í gær og meinað að fara inn í landið. Þar hugðust þeir taka þátt í inntökuathöfn í samtökin Hells Angels, eða Vítisengla, sem veitt hafa MC Iceland formlega inngöngu í samtökin. Evrópska lögreglan, Europol, skilgreinir Vítisengla sem skipulögð glæpasamtök.

Dæmdir fyrir hrottafengna árás

Tveir menn voru á fimmtudag dæmdir í fangelsi fyrir "frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás, ólögmæta nauðung og tilraun til fjárkúgunar“ auk fíkniefnabrota. Mennirnir, Eyþór Helgi Guðmundsson og Gestur Hrafnkell Kristmundsson, voru dæmdir í tveggja og hálfs árs og tuttugu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Brot mannanna eru sögð alvarleg, hrottafengin og niðurlægjandi.

Engar veðsettar eignir seldar

Capacent sendi í gær frá sér fréttatilkynningu í tilefni af frétt sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Þar kom fram að skiptastjóri GH1, sem áður hét Capacent, hefði óskað eftir því við efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra að hafin yrði rannsókn á sölu á rekstri og vörumerki Capacent í september. Þykir leika grunur á að veðsettar eignir hafi verið seldar án heimildar veðsala.

Gæti numið 33 milljónum

Sjúkratryggingar Íslands munu endurgreiða kostnað sjúkratryggðra einstaklinga sem dvöldu á sjúkrahótelinu Lind á tímabilinu 15. september 2005 til og með 30. september 2009. Endurgreiðslur gætu numið 33 milljónum króna í heild þar sem um 5.000 reikningar voru greiddir á tímabilinu.

Málinu lýkur ekki hjá dómstóli EFTA

Ekki er ólíklegt að ár líði frá þjóðaratkvæðagreiðslu til dóms hjá EFTA-dómstólnum, hafni þjóðin nýjum Icesave-samningi. Þá tæki að öllum líkindum við málarekstur fyrir íslenskum dómstólum. Þeir þyrftu svo að leita álits EFTA-dómstólsins um vafaatriði í túlkun á EES-samningnum.

Leyfir mótmæli hommahatara

Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði á miðvikudag að ekki mætti banna baptistakirkjunni í Westboro í Kansas að mótmæla við útfarir hermanna.

Óvíst hvað olli því að Dash 8 vélin brotlenti

Ekkert liggur fyrir um það hvað olli því að Dash 8 vél Flugfélags Íslands brotlenti á flugvellinum í Nuuk í Grænlandi í dag. Fram kemur í tilkynningu frá Rannsóknarnefnd umferðarslysa að samkvæmt alþjóðlegum samningum muni rannsókn á slysinu vera í höndum Rannsóknarnefndar flugslysa í Danmörku.

Undantekning að ofvirknilyf séu misnotuð

Hópur Barna- og unglingageðlækna segir umræðu á Íslandi um ADHD, eða athyglisbrest með ofvirkni, vera fordómafulla á Íslandi. Þetta hafi meðal annars komið skýrt fram á Læknaþingi á dögunum.

Föstudagsviðtalið: Þróunarmál fái stað í þjóðarsálinni

Engilbert Guðmundsson, nýr framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá starfi og framtíðarsýn ÞSSÍ á niðurskurðartímum, frá mikilvægi þróunaraðstoðar og starfsferli á vettvangi alþjóðamála.

Fyrrverandi fangelsisstjóri handtekinn í dag

Fyrrverandi forstöðumaður fangelsisins á Kvíabryggju var í dag handtekinn og húsleit gerð á heimili hans síðdegis hann er grunaður stórfelldan fjárdrátt. Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi forstöðumaður fangelsisins á Kvíabryggju, er grunaður um stórfelldan fjárdrátt meðan hann gengdi starfi sínu á Kvíabryggju.

Kópavogsbær fellst ekki á rökstuðning FME

Bæjarráð Kópavogs fellst ekki á rökstuðning Fjármálaeftirlitsins um staðsetningu nýs húsnæðis stofnunarinnar og telur hann ómálefnalegan. Þetta var bókað á fundi bæjarráðs í gær. Bæjarráð ætlar að fylgja málinu eftir og óskar eftir því að FME fresti ákvörðun um leigu á nýju húsnæði.

Íslensk vél brotlenti á flugvellinum í Nuuk - allir farþegar ómeiddir

Dash 8 flugvél Flugfélags Íslands brotlenti á flugvellinum í Nuuk á Grænlandi fyrir rúmum hálftíma síðan. Vélin var að koma inn til lendingar þegar hún fær vindhnút á sig og í lendingunni gefur hjólastellið hægra megin sig og brotnar undan vélinni. Vélin rann út af flugbrautinni og út á öryggissvæði þar sem hún stöðvast.

Félagar í MC Iceland fá ekki að heimsækja Noreg

Norsk yfirvöld hafa tekið þá ákvörðun að vísa íslenskum meðlimum mótorhjólaklúbbsins MC Iceland frá landi en þeir voru stöðvaðir af lögreglu við komu sína til Noregs í morgun. Lögreglan Gardemoen flugvelli í Osló staðfestir þetta í samtali við Vísi. Mennirnir eru enn á flugvellinum og ekki er ljóst hvenær þeir verða sendir til baka.

Marel gefur barnavog

Marel afhenti Kvennadeild Landspítalans sérhannaða barnavog til notkunar fyrir ungabörn á fæðingardeild og sængurkvennagangi í dag. Vogin er framlag fyrirtækisins til landssöfnunar Líf styrktarfélag, GEFÐU LÍF, sem fer fram í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld.

Lögreglan fær 47 milljónir til að berjast gegn skipulögðum glæpum

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að tillögu innanríkisráðherra að veita 47 milljónum til tólf mánaða átaks lögreglunnar til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi. Átakið á að hefjast þegar í stað. Reynslan af átakinu verður metin fyrir lok ársins og ákveðið þá hvort halda skuli áfram.

Mottur til sýnis í Kringlunni

Mikil gróska er á efri vörum íslenskra karla um þessar mundir en eins og flestir vita er Mottumars hafinn annað árið í röð.

Verzlingar etja kappi við fræga fólkið

Nemendur í Verzlunarskóla Íslands mæta svokölluðu All star liði í árlegum fótboltaleik á morgun. Það er Góðgerðaráð skólans sem stendur fyrir leiknum sem fer fram í Kórnum í Kópavogi á morgun.

Kannast þú við þessa stolnu muni?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undir höndum mikið magn muna sem hald hefur verið lagt á síðustu vikur. Um er að ræða hluti sem innbrotsþjófar hafa komist yfir en tugir slíkra mála hafa verið upplýst af lögreglu undanfarið. Leitar lögreglan nú eigenda hlutanna á meðfylgjandi myndum.

Dagbladet: Einar Ingi í hópi handtekinna

Samkvæmt frétt í norska blaðinu Dagbladet er Einar Ingi Marteinsson, oft auknefndur Búmm, í hópi þeirra félaga MC Iceland, sem nú eru í haldi lögreglunnar á Gardermoen flugvelli við Osló. Einar Ingi er forsprakki MC Iceland.

Löggan stoppaði 160 ökumenn í nótt

Um hundrað og sextíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld og nótt í umferðareftirliti lögreglunnar. Sjö ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið eða undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Fjórir til viðbótar voru handteknir og fluttir á lögreglustöð en þeir voru farþegar í bíl ökumanns sem var undir áhrifum fíknefna. Líkt og ökumaðurinn voru þeir allir í annarlegu ástandi en fíkniefni fundust í bílnum.

Sjá næstu 50 fréttir