Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Snöggreiddist og kastaði glasi framan í konu Tuttugu og þriggja ára gömul kona var dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að kasta glerglasi framan í aðra konu á veitingastað í miðborg Reykjavíkur í febrúar í fyrra. 23.2.2011 13:31
Rán á skyndibitastöðum upplýst - fimm handteknir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst tvö rán sem voru framin í Reykjavík, annað í vesturbænum um síðustu helgi en hitt í Grafarvogi um þar síðustu helgi. Að sögn lögreglu voru fimm menn handteknir og hafa þeir allir játað aðild sína. 23.2.2011 12:27
Játuðu fyrir dómi að hafa hreinsað út úr íbúð Tvær konur játuðu í gær fyrir Héraðsdómi Reykjaness að hafa hreinsað allt innbú út úr íbúð áður hún var sett á uppboð. Íbúðin var veðsett fyrir 30 milljónir. Tvö mál voru þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær þar sem ákært er fyrir sömu sakir. 23.2.2011 12:22
Útsmoginn þjófur stöðvaður í tölvuleikjaverslun Karl á þrítugsaldri var handtekinn í verslun á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær en þar hafði maðurinn stolið allnokkrum tölvuleikjum. 23.2.2011 12:21
Segir ríkisstjórnina hugleiða að beita 11. greininni Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur, bendir á að Alþingi geti beitt 11. grein stjórnarskrárinnar til að leysa forseta Íslands frá embætti áður en kjörtíma hans er lokið. 23.2.2011 12:09
Ísland í ESB: 28% segja aðild af hinu góða - 34% á móti 28% Íslendinga eru á því að innganga í Evrópusambandið yrði til góðs. 30% segja að innganga yrði hvorki góð né slæm og 34% segja að aðild yrði slæm fyrir landið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var fyrir sendinefnd ESB hér á landi í nóvember síðastliðinn. 23.2.2011 12:07
175 banaslys undanfarin 10 ár 175 banaslys og 1372 slys þar sem alvarleg meiðsl urðu á fólki hafa orðið á vegum landsins undanfarin tíu ár. Þar af komu vörubílar við sögu í 16% banaslysa og 6,6% slysa þar sem alvarleg meiðsl urðu á fólki. Hins vegar má rekja helming þess kostnaður sem ríkið veitir til viðhalds vega til aksturs vörubíla, en fjárveiting til viðhalds fyrir árið 2011 er tæplega 4,7 milljarðar. Þetta kom fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, um umferðarslys og vöruflutninga á þjóðvegum. 23.2.2011 11:35
Breiðafjörður og torfbæir tilnefndir á yfirlitsskrá UNESCO Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO nýja yfirlitsskrá Íslands í tengslum við samning UNESCO um verndun menningar- og náttúruminja heims frá árinu 1972. 23.2.2011 11:09
Forsetinn sendir samúðarkveðjur til Nýja Sjálands Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, senti í dag Sir Anand Satyanand, landstjóra Nýja Sjálands, samúðarkveðjur vegna jarðskjálftanna í Christchurch sem kostað hafa tugi mannslífa og valdi gríðarlegu eignatjóni. 23.2.2011 10:58
Íslenskar útgerðir á umdeildu hafsvæði Íslensk útgerðarfyrirtæki hafa um árabil stundað fiskveiðar á umdeildu hafsvæði út frá ströndum Vestur-Sahara. Evrópusambandið (ESB) hefur löngum haft veiðiheimildir á svæðinu í krafti samnings við Marokkó, sem hefur stjórnað Vestur-Sahara frá árinu 1975 í óþökk flestra landsmanna og ýmissa ríkja og alþjóðastofnana. 23.2.2011 10:15
Þyrla sótti veikann sjómann út af Malarrifi Sjómaður veiktist alvarlega um borð í línuskipi, þegar það var djúpt út af Malarrifi á Snæfellsnesi í gærkvöldi. 23.2.2011 07:22
Loðnuskipin ná góðum köstum í Faxaflóanum Loðnuskipin eru nú dreifð um Faxaflóann og hafa þau náð góðum köstum vítt og breitt. 23.2.2011 07:09
Brotist inn í pizzustað í nótt Brotist var inn í pizzustað í Breiðholti um klukkan þrjú í nótt, en þjófurinn var á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. 23.2.2011 07:06
Fundu roskinn alzheimersjúkling Ábending frá borgara leiddi til þess að björgunarsveitamenn og lögregla fundu roskinn alzheimersjúkling heilann á húfi á ellefta tímanum í gærkvöldi. 23.2.2011 07:02
Icesave snýr stjórnlagaþingi Flest bendir til að nefnd um framhald stjórnarskrárbreytinga leggi til að þeir 25 sem kjörnir voru til setu á stjórnlagaþing verði skipaðir í stjórnlagaráð. Það verði Alþingi ráðgefandi um breytingar á stjórnarskránni. Ákvörðun forsetans um að vísa Icesave-málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu hleypti upp áformum nefndarinnar. 23.2.2011 07:00
Goðafoss kominn á flot Tveir öflugir dráttarbátar drógu flutningaskipið Goðafoss af strandstað við Noregsstrendur nú fyrir nokkrum mínútum. 23.2.2011 06:59
Aldrei verið sóst eftir mælingum á mengun Hvorki verktakar né eigendur gamalla bygginga hafa nokkru sinni leitað eftir því að kannað sé hvort PCB-efni, sem flokkast sem krabbameinsvaldandi, leynist í húsum vegna niðurrifs eða viðhalds. Engin rannsókn hefur heldur verið gerð á því hvort, og þá í hversu miklu magni, PCB leynist í gömlum byggingum. Þeir sem taka mengunarhættuna alvarlega hafa engar upplýsingar um hvert á að leita. 23.2.2011 06:00
Fá ekki bækur af ótta við sýkla Sjúklingar Landspítala - háskólasjúkrahúss hafa ekki lengur aðgang að bókasafni Rauða krossins sem starfað hefur í fjörutíu ár. 23.2.2011 06:00
Ný kjörstjórn á næstu dögum Kjördagur fyrir Icesave-samkomulagið verður kynntur á föstudag, sem og hvort og hvenær kosið verði til stjórnlagaþings. Ný landskjörstjórn verður kosin á Alþingi á næstu dögum. 23.2.2011 05:45
Brotamenn í meðferð og eftirlit sem dugir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kveðst leggja þunga áherslu á að íslensk yfirvöld taki þátt í alþjóðlegu samstarfi til að uppræta glæpastarfsemi sem snýst um miðlun og vörslu á kynferðislegu ofbeldismyndefni af börnum. 23.2.2011 05:30
Ætluðu til Túnis en enduðu á Íslandi „Í stað þess að keyra um í sól og 30 stiga hita í Túnis eru ferðamennirnir hér í snjó og þriggja stiga hita,“ sagði Jón Baldur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins ISAK, staddur á Kaldadal í gær. Hann var þar fararstjóri í ellefu bíla flota og bílstjórarnir voru allir þýskir ferðamenn. Jón Baldur leigir út sérútbúna Land-Rover Defender og aðrir ellefu bílar frá honum fóru um Kjöl í gær og að Langjökli, með hluta af sama hópi. 23.2.2011 05:15
1.800 gistirými eru ekki á skrá 1.800 gistirými á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri eru án starfsleyfa. Þetta kemur fram í könnun sem Samtök ferðaþjónustunnar gerðu nýlega, en þetta jafngildir því að um 15 prósent gistirýma á höfuðborgarsvæðinu séu rekin án leyfa og um 30 prósent á Akureyri. 23.2.2011 05:00
Nýtt mat er 50% lægra Land sem Hafnarfjarðarbær tók eignarnámi í Kapelluhrauni í apríl 2008 var 400 milljóna króna virði á þeim tíma segja tveir fasteignasalar sem voru dómkvaddir sem matsmenn af Héraðsdómi Reykjaness. 23.2.2011 05:00
Braut glerglas á höfði manns Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega þrítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 23.2.2011 04:30
Forsetahjónin heimsóttu Lækjarskóla „Börnin voru himinlifandi því forsetahjónin tóku sér tíma til að vera með þeim. Þau voru ekkert að flýta sér,“ segir Arna B. Arnardóttir, aðstoðarskólastjóri Lækjarskóla í Hafnarfirði. 23.2.2011 04:00
Aflaverðmæti jókst milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um 15,3 prósent milli áranna 2009 og 2010, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. 23.2.2011 04:00
Stálu gámi fullum af dósum Lögreglan á Vestfjörðum leitar nú eins eða fleiri sem stálu gámi í eigu björgunarsveitarinnar á Drangsnesi. 23.2.2011 03:45
Ný neytenda-samtök stofnuð Ný neytendasamtök, Samtök lífrænna neytenda, hafa nú litið dagsins ljós. Tilgangur þeirra er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu lífrænna vara á Íslandi með hagsmuni neytenda, búfénaðar, bænda og umhverfisins að leiðarljósi. 23.2.2011 03:45
Strípuðu íbúðir fyrir uppboð Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært tvær konur í Garði fyrir að hreinsa allt innan úr íbúð, sem var veðsett Landsbankanum fyrir ríflega 30 milljónir króna, áður en þær misstu hana. Þá var par í Sandgerði ákært fyrir sömu sakir. Hús þess var veðsett Glitni fyrir 22 milljónir. 23.2.2011 03:00
Réðust á mann og stórslösuðu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir mörg brot, þar á meðal líkamsárás, sem hann er talinn hafa staðið að ásamt öðrum manni. 23.2.2011 03:00
Avant heldur samningum Avant er fyrsta fjármögnunarfyrirtækið sem hefur samþykkt kröfur Samtaka lánþega (SL) og riftir ekki lánasamningum til bílakaupa við fólk í greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara. 23.2.2011 03:00
Markmiðið miðstöðvarinnar að útrýma ofbeldi Rannsóknarmiðstöð um ofbeldi var opnuð í Háskólanum á Akureyri á mánudag. Markmiðið með miðstöðinni er að útrýma ofbeldi. 23.2.2011 02:45
Reisa fyrsta ökugerðið Fyrsta ökugerði landsins verður að öllum líkindum vígt við Reykjanesbrautina í lok sumars. Um er að ræða aðstöðu þar sem æfa má akstur við mismunandi aðstæður og nýtist bæði ökunemum og öðrum. 23.2.2011 02:45
Vilja rannsókn á ódæðunum Amnesty International kallaði í gær eftir tafarlausri rannsókn öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins vegna dráps á hundruðum mótmælenda í Líbíu. 23.2.2011 02:15
Margfalt meira af marijúana Lögregluembættin á Norðurlandi lögðu hald á rúmlega eitt kíló af marijúana á síðasta ári sem er mun meira en árin þar á undan. 23.2.2011 02:00
Ræður fólki frá ferðalögum Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá öllum ferðalögum til Líbíu vegna ótryggs ástands í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins. 23.2.2011 00:15
Siðaðra manna háttur að útkljá mál fyrir dómstólum Hæstaréttarlögmaðurinn Ragnar Hall sagði í kastljósi að það væri hans mat að það væri Íslendingum fyrir bestu að gangast við nýju Icesave-frumvarpi en áréttaði þó að hann viðurkenndi ekki beinlínis greiðsluskyldu ríkissjóðs í málinu. Reimar Pétursson hæstaréttarlögmaður, sagði eðlilegt og í raun siðaðra manna háttur að láta reyna á málið fyrir dómstólum. Hann benti á að það væri svo hægt að semja á öllum tímum dómsmálsins þar til niðurstaða félli. 22.2.2011 20:11
Fréttaskýring: Vinsæll á ný eftir tvær Icesave-synjanir Þrír fyrstu forsetar lýðveldisins hreyfðu sig varla út fyrir landsteinana. Landkynningartímabil forseta hefst í tíð Vigdísar Finnbogadóttur. Kosning Ólafs Ragnars Grímssonar markar skil í sögu embættisins að mati sagnfræðings. 22.2.2011 20:00
Ólafur Ragnar fær einkafund með páfanum Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fer til Rómar í næstu viku til fundar við Benedikt páfa sextánda til að færa honum að gjöf styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur. Forsetinn fær þá einkaáheyrn páfa. 22.2.2011 19:30
Tannlæknar segja upp gjaldfrjálsri forvarnarskoðun barna Langflestir tannlæknar landsins hafa sagt upp samningi við sjúkratryggingar um gjaldfrjálsa forvarnaskoðun barna en þeirri skoðun var komið á laggirnar til að reyna að tryggja að sem flest börn kæmust til tannlæknis. 22.2.2011 19:04
Atlanta flytur hergögn fyrir Bandaríkin Íslenska flugfélagið Atlanta flýgur með hergögn fyrir bandaríska herinn til Afganistans. Flugmálastjórn Íslands veitti leyfi til flutninganna í samráði við innanríkisráðuneytið. 22.2.2011 18:38
Össur: Gaddafi sekur um stríðsglæpi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að ef fregnir frá Líbíu séu réttar þá hafi Gaddafi leiðtogi landsins gerst sekur um stríðsglæpi. Össur sagði fregnir greina frá því að flugvélum og þungum vopnum hafi verið beitt gegn saklausu fólki. "Íslenska ríkisstjórnin fordæmir mjög harkalega framferði stjórvalda í Líbíu,“ bætti hann við. 22.2.2011 16:36
86 dagblöð í áskrift og 13 héraðsfréttablöð Innanríkisráðuneytið og stofnanir þess eru alls með áskrift að 86 dagblöðum og 13 dagblöð í netáskrift. Mánaðarlega eru greiddar tæpar 307 þúsund krónur vegna þessa. Þá greiðir ráðuneytið og stofnanir þess mánaðarlega fyrir áskrift að 24 héraðsfréttablöðum, alls rúmar 33 þúsund krónur. 22.2.2011 15:43
Buchheit um nýju samningana - myndband Lee Buchheit sem var formaður nýju Icesave-samninganefndarinnar hélt fyrirlestur í Öskju, Háskóla Íslands, hinn 10. desember síðastliðinn, daginn eftir að samningarnir voru kynntir í Iðnó. Í fyrirlestrinum í Öskju fór hann ítarlega yfir nýju Icesave-samningana og kosti þeirra og galla. 22.2.2011 15:41
Steingrímur og Bjarni sammála um synjunarvald forseta Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vill láta breyta 26. grein Stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta. Fleiri þingmenn tóku undir þetta í umræðum á Alþingi í dag. 22.2.2011 15:13