Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lítur á greiðslurnar sem skilasvik Sama dag og neyðarlögin voru sett í miðju bankahruninu voru millifærðar háar fjárhæðir út af reikningum Landsbankans hjá Seðlabankanum, en húsleitir sérstaks saksóknara í dag hjá MP banka, Straumi og Seðlabankanum í dag beinast meðal annars að þessu. Saksóknari lítur á greiðslurnar sem skilasvik. 20.1.2011 18:13
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald - Var með bensínbrúsa inn í íbúðinni Hæstiréttur Íslands hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að kona á þrítugsaldri skuli sæta gæsluvarðhaldi til 15. febrúar næstkomandi. Talið er að hún hafi kveikt í íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði aðfaranótt 14. janúar. 20.1.2011 17:36
Allt óljóst um gæsluvarðhaldskröfu Yfirheyrslur eru ennþá í fullum gangi hjá sérstökum saksóknara vegna millifærslna á stórum fjárhæðum af reikningum Landsbankans í Seðlabanka Íslands yfir á reikninga í MP banka og hjá Straumi. 20.1.2011 16:59
Sigurjón Brink fékk heilablóðfall Sigurjón Brink lést úr heilablóðfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fjölskylda Sigurjóns sendi frá sér fyrir stundu. Sigurjón var, sem kunnugt er, bráðkvaddur á mánudaginn. Hann lét eftir sig konu og fjögur börn. 20.1.2011 16:41
Réttarhöldum yfir níumenningunum lokið Ákæra ríkissaksóknara á hendur níumenningunum var harðlega gagnrýnd af verjendum níumenningana í dag. Verjendurnir fjórir fóru allir fram á sýknu skjólstæðinga sinna. 20.1.2011 16:31
Þórir Örn Ingólfsson yfirheyrður Þórir Örn Ingólfsson, fyrrverandi yfirmaður áhættustýringar hjá Landsbanka, er einn þeirra fjögurra sem handteknir voru í morgun vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málum gamla Landsbankans. 20.1.2011 16:21
Kristinn hafnar ásökunum um tölvuinnbrot Kristinn Hrafnsson, talsmaður uppljóstrunarsíðunnar WikiLeaks, vísar á bug ásökunum um að WikiLeaks hafi brotist inn í tölvukerfi Alþingis. Í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér kemur fram að WikiLeaks hafi það að markmiði 20.1.2011 16:10
Ráðherra vill leyfa hjálparhunda í fjölbýlishúsum Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi þar sem lögð er til heimild til að fatlaðir fái heimild til að halda leiðsögu- eða blindrahund í fjölbýlishúsi. Frumvarpinu er ætlað að bregðast við þeirri umræðu sem verið hefur staðið síðastliðin misseri um hjálparhunda fyrir fatlaða og sambýli þeirra við aðra í fjöleignarhúsum. Eins og staðan er nú þarf að fá leyfi allra íbúa í fjölbýlishúsi áður en fatlaður einstaklingur getur flutt þangað inn hjálparhund. 20.1.2011 15:45
Lögreglurannsókn á njósnatölvu: Enginn komst í gögn þingmanna „Ekkert virðist benda til þess að nokkur hafi komist í gögn þingmanna," sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, á þingfundi þar sem hún gerði grein fyrir aðkomu sinni að rannsókn á því að dularfull tölva fannst í skrifstofuhúsnæði Alþingis þar sem skrifstofur Hreyfingarinnar og Sjálfstæðisflokks eru til húsa. 20.1.2011 14:52
Meira flutt inn af kjöti en áður - mest alifuglakjöt Samkvæmt yfirliti Bændasamtakanna hefur innflutningur á kjöti aukist milli ára. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2010 nam innflutningurinn 613 tonnum en á sama tímabili árið 2009 nam innflutningurinn 589 tonnum. Innflutningur á kjöti til landsins hefur því aukist um 3,9% á milli samanburðartímabila. 20.1.2011 14:40
Heimsþing um hreina orku: Mikill áhugi á samvinnu við Íslendinga Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur á Heimsþingi um hreina orku sem nú er haldið í Abu Dhabi átt viðræður við fjölmarga aðila, ráðamenn erlendra ríkja og fulltrúa stofnana og fyrirtækja sem lýst hafa miklum áhuga á samvinnu við íslenska sérfræðinga um nýtingu hreinnar orku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu en forseti ræddi meðal annars fyrr í dag við Adnan Amin, settan forstjóra IRENA, nýrrar alþjóðlegrar stofnunar um hreina orku, og var viðfangsefni fundarins m.a. framlag íslensks jarðhitafólks til uppbyggingar stofnunarinnar sem ætlað er að verða aðal samvinnuvettvangur ríkja heims á þessu sviði. 20.1.2011 14:40
Níumenningar - „Málatilbúnaðurinn byggður á lofti" „Þetta voru bara mótmæli sem fóru úr böndunum," segir Tryggvi Agnarsson, verjandi tveggja af níumenningunum. Hann segir það fjarstæðu að saka níumenningana um árás á Alþingi. Málatilbúnaðurinn sé byggður á lofti. 20.1.2011 14:15
Nýr Lottóþulur: Reynir Örn Reynir Örn Þrastarson hefur verið ráðinn sem nýr stjórnandi Lottós og mun hann hefja störf laugardaginn 22. janúar næstkomandi. 20.1.2011 14:11
Stefán Héðinn einn hinna handteknu Stefán Héðinn Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eignastýringasviðs Landsbankans og stjórnarformaður Landsvaka, er einn þeirra sem var færður í yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara í morgun, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. 20.1.2011 14:07
Öskjuhlíðarskóli og Safamýrarskóli sameinast Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að sameina starfsemi Safamýrarskóla og Öskjuhlíðarskóla. Gert er ráð fyrir að nýr sameinaður sérskóli verði til húsa í Öskjuhlíðarskóla og taki til starfa næsta haust. Unnið verði að undirbúningi sem tekur til breytinga á húsnæði, starfsmannahaldi og upplýsingamiðlun í samstarfi við helstu hagsmunaaðila. 20.1.2011 13:46
Mæður sakborninga með ilmolíur í dómsal Mikil notkun á ilmolíum hjá áhorfendum á réttarhöldunum yfir níumenningunum hefur vakið athygli. Stundum liggur við að sígi á mann höfgi þegar salurinn fyllist ilmi jurta og lárviðarlaufa. Að sögn mæðra sakborningana vilja þær bæta andrúmsloftið í dómsal. 20.1.2011 13:44
Milljarðar millifærðir daginn sem neyðarlög voru sett Sama dag og neyðarlögin voru sett í miðju bankahruninu voru millifærðar háar fjárhæðir út af reikningum Landsbankans hjá Seðlabankanum, en húsleitir sérstaks saksóknara í dag hjá MP banka, Straumi og Seðlabankanum beinast meðal annars að þessu. 20.1.2011 13:04
Ný könnun MMR: Mikil andstaða við veggjöld Mikill meirihluti landsmanna er andvígur því að sett verði veggjöld til að fjármagna nýframkvæmdir í samgöngumálum. Lítill munur á afstöðu fólks eftir búsetu. Andstaðan við veggjöld mest á meðal Sjálfstæðismanna. Þetta kemur fram í nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR. 20.1.2011 13:03
Segja Strætó-loforð svikin Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins bókuðu á fundi borgarráðsfundi í morgun gegn ákvörðun meirihlutans að skerða þjónustu Strætó bs. Þar segir Sjálfstæðisflokkurinn að það sé ljóst að með þessari ákvörðun svíkji meirihlutinn loforð við kjósendur. 20.1.2011 12:38
Bjarni vissi ekkert um tölvuna í Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það rangt að hann hafi vitað af tölvu í húsakynnum Alþingis. Tölvan fannst í febrúar á síðasta ári. Morgunblaðið greinir frá því í dag að grunur leiki á að tölvuþrjótar á vegum uppljóstrunarvefsíðunnar Wikileaks hafi komið tölvunni fyrir þar sem hún fannst. 20.1.2011 12:09
Sérstakur saksóknari handtók fjóra í morgun Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Landsbankans í morgun. Einn hinna handteknu er Jón Þorsteinn Oddleifsson, fyrrverandi forstöðumanni fjárstýringar í Landsbankanum, 20.1.2011 11:58
Ragnar Aðalsteinsson - mál níumenningana á sér pólitískar rætur "Það kom mér á óvart þegar ég hlustaði á ræðu saksóknara hversu lítillar hlutlægni gætti þar," sagði Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af níu sakborningum í níumenningamálinu svokallaða. Munnlegur málflutningur fer nú fram og gagnrýndi Ragnar réttinn harðlega og sagði brot hafa verið framin á skjólstæðingum sínum. 20.1.2011 11:33
Afturvirkur niðurskurður „stórmál“ hjá Reykhólahreppi Reykhólahreppi barst á föstudag tölvupóstur frá fjármálaráðuneyti þess efnis, að vegna efnahagserfiðleika ríkissjóðs hafi stjórnvöld þurft að minnka umsvif og lækka fjárveitingar sem ætlaðar eru til reksturs öldrunarheimila. 20.1.2011 11:31
Fyrrverandi forstöðumaður hjá Landsbankanum handtekinn Jón Þorsteinn Oddleifsson var handtekinn í morgun á sama tíma og sérstakur saksóknari gerði húsleit hjá Seðlabankanum, MP banka og ALMC sem áður var Straumur. Jón var áður forstöðumaður fjárstýringar í Landsbankanum. Rannsókn sérstaks saksóknara í dag miðar að því að afla gagna vegna upplýsinga sem komu fram við rannsókn á Landsbankamálinu. 20.1.2011 11:25
Hagræðingarkrafa til Strætó ekki meiri en annarra viðkvæmrar þjónustu Niðurstaða meirihlutans í Borgarstjórn Reykjavíkur er að hagræðingarkrafa til Strætó Bs. sé ekki meiri en í annarri viðkvæmri þjónustu, svo sem leikskólum og grunnskólum. Því eru ekki forsendur til að draga samþykkta fjárhagsáætlun til baka. Þetta kemur fram í bókun Besta flokksins og Samfylkingar frá fundi borgarráðs í morgun. 20.1.2011 11:14
Húsleit í Seðlabanka tengist föllnu viðskiptabönkunum Húsleit sérstaks saksóknara í Seðlabankanum tengist rannsókn á föllnum viðskiptabönkum, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. 20.1.2011 11:09
Óvíst hvort húsleit beinist að starfsemi MP Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP banka, staðfesti við fréttastofu í morgun að húsleit hefði verið framkvæmd í höfuðstöðvum bankans. Að sögn Gunnars Karl mættu lögreglumenn frá embætti sérstaks saksóknara laust eftir klukkan tíu í morgun. 20.1.2011 10:58
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur vissu af tölvunni „Mér finnst skrýtið að mér hafi ekki verið sagt frá þessu, enda fannst tölvan í herberginu við hliðina á mér,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, um dularfulla tölvu sem fannst í skrifstofuhúsnæði á vegum Alþingis við Austurvöll. Birgitta segir engn hafa sagt þingmönnum Hreyfingarinnar frá tölvunni né hafi formaður eða þingmenn Vinstri grænna verið látnir vita. 20.1.2011 10:53
Húsleitir hjá Seðlabanka, Straumi og MP - handtökur gerðar Sérstakur saksóknari hefur gert húsleitir í dag. Samkvæmt upplýsingum Vísis tengist rannsóknin MP banka, Straumi og Seðlabankanum. Sérstakur saksóknari vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið þegar að Vísir hafði samband við hann í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hafa handtökur verið gerðar í tengslum við rannsóknina. 20.1.2011 10:46
Skerðing á þjónustu Strætó staðfest í borgarráði Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar felldi tillögu Vinstri grænna um að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu Strætó bs á borgarráðsfundi í dag þrátt fyrir að allmargir fulltrúar Besta flokksins, þar með talinn borgarstjórinn sjálfur hefðu fullyrt að þeir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að tryggja óbreytta þjónustu. 20.1.2011 10:25
Eygló ósátt við aðkomu ríkisins að Sjóvá „Eins og við sjáum á athugasemdum ESA þá virðist vera að okkur bar engin skylda til að standa í þessu, og þarna er í raun verið að yfirfæra skuldir sem hefðu lent á þeim sem voru með tryggingar hjá Sjóvá, yfir á alla skattgreiðendur," segir segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. 20.1.2011 10:15
Saksóknari líkti níumenningum við pólskt glæpagengi Lára V. Júlíusdóttur, settur ríkissaksóknari, segir að árás níumenningana hafa verið fyrirframskipulögð og öryggi Alþingis hafri verið stefnt í hættu. Hún vísaði í Keilufellsmálið, þar sem hópur Pólverja réðust vopnaðir hnífum, sleggjum og hömrum inn í hús og misþyrmdu húsráðendum, máli sínu til stuðnings. 20.1.2011 10:11
Tekist á um forystusætið í VR Það verður tekist á um leiðtogastólinn hjá VR á næstunni. Kosið verður um formennsku í félaginu í mars. Lúðvík Lúðvíksson tilkynnti um framboð sitt í gær en áður hafði Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur tilkynnt um framboð. 20.1.2011 09:52
Telur of erfitt að segja upp ríkisstarfsmönnum Full ástæða er til að breyta lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna til að auðvelda forstöðumönnum ríkisstofnana að segja upp starfsmönnum, að mati Ríkisendurskoðunar. 20.1.2011 09:00
Rannsaka rusl við strendur landsins Umhverfisráðuneytið, í samráði við Umhverfisstofnun, aflar nú upplýsinga um rusl og úrgang á ströndum hér við land og um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til við hreinsun stranda á undanförnum árum. Í þeim tilgangi hefur ráðuneytið sent öllum sveitarfélögum sem eiga land að hafi bréf þar sem þau eru beðin um að leggja mat á það hvort rusl á ströndum sé útbreytt vandamál innan sveitarfélagsins og hvort það ógni lífríki hafs og stranda, heilsu manna eða hafi önnur neikvæð áhrif á notkun strandarinnar. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. 20.1.2011 08:46
Njósnatölva fannst á þingi - hafa Wikileaks grunaða Dularfull tölva fannst í húsnæði á vegum Alþingis í febrúar á síðasta ári sem grunur leikur á að hafi haft þann tilgang að brjótast inn í tölvur þingmanna og tölvukerfi Alþingis. Morgunblaðið greinir frá því að starfsmenn Alþingis hafi kallað lögregluna á höfuðborgarsvæðinu á sinn fund í febrúar í fyrra, eftir að fartölva fannst í auðu herbergi í húsnæði á vegum Alþingis við Austurstræti. 20.1.2011 08:39
Peningakassinn verðmætari en innihaldið Innbrot var framið í verslun í miðborginni í nótt og þaðan stolið sjóðsvél, eða peningakassa, í heilu lagi. Talið er að í honum hafi verið um það bil tíu þúsund krónur í skiptimynt, en kassinn er margfalt þess virði. Þjófurinn spennti upp hurð og komst þannig inn. Hann er ófundinn. 20.1.2011 08:04
Fimmtán ára handtekin fyrir innbrot 15 ára piltur er nú vistaður á vegum lögreglunnar á Selfossi eftir að hann var handtekinn á Eyrarbakka í gærkvöldi vegna ráns sem hann framdi á Selfossi undir kvöld. 20.1.2011 08:00
Spara á 540 milljónir í skólum Reykjavíkur Draga á saman um helming í starfsemi bókasafna grunnskóla Reykjavíkur og skera niður námsráðgjöf um tíu prósent, samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs borgarinnar. Auk þess á að lækka viðbótarstjórnendakostnað um tíu prósent, sem og kostnað vegna matráða í mötuneytum, við ritara og umsjónarmenn húsnæðis. 20.1.2011 08:00
17 ára piltur í einangrun Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sautján ára pilti sem er grunaður um innbrot og þjófnað á töluverðum verðmætum í Reykjavík. Hann var handtekinn síðustu helgi og daginn eftir úrskurðaður í varðhald til föstudags. 20.1.2011 08:00
Ræningjar handteknir í nótt Tveir karlmenn um tvítugt frömdu rán í Bónus-vídeo við Smiðsbúð í Garðabæ undir miðnætti með því að hóta starfsstúlku með hnífi. 20.1.2011 07:56
Segir það sérkennilegt að Gunnar gagnrýni Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hafnar gagnrýni Gunnars I. Birgissonar, bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra, vegna veislu sem bæjarfulltrúar og nokkrir yfirmenn hjá bænum ásamt mökum sátu fyrir jól. 20.1.2011 07:00
Formaður segir starf á áætlun Róbert R. Spanó, formaður rannsóknarnefndar sem rannsaka á viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar í kjölfar ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi, segir starf nefndarinnar vera á áætlun. 20.1.2011 06:00
Nemendur úr Verzló með hæstu einkunn Þeir nemendur Háskóla Íslands (HÍ) sem koma úr Verzlunarskólanum mældust með hæstu meðaleinkunn í úttekt HÍ á nemendum fimm framhaldsskóla síðustu þrjú ár. Skólaárið 2009 til 2010 var meðaleinkunn þeirra 4.115 nemenda úr Verzlunarskólanum 7,04. Nemendur frá Menntaskólanum Hraðbraut, sem voru 692 talsins, mældust með lægstu meðaleinkunnina, 6,35. 20.1.2011 06:00
Ólína segir kerfið vera að kyrkja byggðirnar „Það má ekki dragast lengur að koma á gagngerum breytingum á fiskveiðistjórn okkar, kerfið er að kyrkja byggðirnar,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir, Samfylkingu, á Alþingi í gær. 20.1.2011 05:00