Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
1250 lítrar af landa í bílskúr í Kópavogi Rannsóknarlögreglumenn fóru í húsleit í gærkvöldi í vesturbæ Kópavogs og uppgötvuðu þar umfangsmikla landabruggverksmiðju í bílskúr. Í skúrnum reyndust vera 400 lítrar af áfengi auk 850 lítra af gambra. 1.12.2010 10:58
Brotist inn í bílasölu Brotist var inn í bílasölu við Breiðhöfða í nótt. Grunur leikur á að bíllyklar hafi verið teknir þaðan en engum bíl hefur verið stolið enn sem komið er. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um innbrotið um klukkan tvö í nótt. Ekki er vitað hverjir þarna voru að verki en lögreglan rannsakar málið. 1.12.2010 10:45
Metfjöldi barnabóka gefinn út Öll met hafa nú verið slegin hvað varðar útgáfu íslenskra barnabóka á árinu, samkvæmt upplýsingum frá bókaverslun Eymundssonar. Verslunin hefur tekið á móti 317 nýjum titlum í flokki barnabóka það sem af er árinu. Það er rétt tæplega 60% aukning frá því í fyrra og 16,5% fleiri titlar en árið 2007. Í sumum tilfellum er um að ræða endurútgáfur á eldri bókum. 1.12.2010 10:22
Þingmaður misskildi úrslit kosninganna „Frambjóðendurnir raðast nánast eftir stafrófsröð sem segir það kannski að þeir sem eru aftarlega í stafrófinu hafa lítinn sjens í persónukjöri," sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, skömmu eftir að frumúrslit kosninga til stjórnlagaþings voru kynnt í gær. Þorgeir Ástvaldsson og Kristófer Helgason ræddu við Vigdísi í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þar sem þeir leituðu viðbragða ýmissa aðila við úrslitum kosninganna. 1.12.2010 10:01
Næstum 6000 börn þurftu aðstoð barnaverndarnefnda Barnaverndanefndum á Íslandi bárust tilkynningar vegna 5773 barna á fyrstu níu mánuðum ársins, samkvæmt tölum sem Barnaverndarstofa birtir á vefsíðu sinni. Fjölgunin frá sama tímabili í fyrra nemur 1%. Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 47,1%, en 31,3% tilkynninga voru vegna vanrækslu. 1.12.2010 09:19
Hjartveikur fluttur til Reykjavíkur frá Rifi Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hjartveikann mann til Rifs á Snæfellsnesi í gærkvöldi og liðu aðeins tvær klukkustundir frá því að útkall barst og þar til sjúklingurinn var kominn á sjúkrahús í Reykjavík. 1.12.2010 08:03
Interpol lýsir eftir Assange Julian Assange stofnandi Wikileaks er nú eftirlýstur af Interpol vegna ásakana um kynferðislega áreitni í Svíþjóð. Svokölluð „rauð tilkynning" hefur verið gefin út á hendur honum en þar er ekki um að ræða eiginlega handtökuskipun heldur er fólk beðið um að hafa samband við lögreglu í viðkomandi landi hafi það upplýsingar um dvalarstað Assange. 1.12.2010 08:00
Ríkið tekur hundraðkall af hverjum bensínlítra Hlutur ríkisins í bensínverði losar nú hundrað krónur á lítrann eftir bensínhækkunina í gær. Hlutur hins opinbera hefur líklega aldrei verið hærri. 1.12.2010 07:04
Enn skelfur jörð í Krýsuvík Jarðskjálftahrina varð aftur á Krýsuvíkursvæðinu í gærkvöldi og stóð fram á nótt, en engin skjálfti mæltist yfir tvo á Richter. 1.12.2010 07:01
Vangaveltur um túlkun eins ákvæðis Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, fékk ekki frumvarp til breytinga á lögum um landsdóm til umsagnar og átti engin samskipti við forseta dómsins vegar frumvarpsins. 1.12.2010 06:00
Fréttaskýring: Ráðuneytið taldi uppsögn við Árbót óhjákvæmilega Félagsmálaráðuneytið taldi óhjákvæmilegt að segja upp samningi við Árbót. 1.12.2010 06:00
Um 60 vistmenn í Breiðavík hafa sótt um sanngirnisbætur Búist er við að um níutíu vistmenn á Breiðavíkurheimilinu krefjist bóta á grundvelli laga um sanngirnisbætur. 1.12.2010 06:00
Ekkert ákveðið með framhald Óvíst er hvort Helga Sigríður Sigurðardóttir, tólf ára stúlka frá Akureyri, þarf á hjartaígræðslu að halda en í ljós hefur komið að hún þjáist af kransæðastíflu. 1.12.2010 06:00
Þurftu að fylla upp í fimm milljarða gat Borgaryfirvöld í Reykjavík gera ráð fyrir nær tveggja milljarða hækkun á þjónustugjöldum og sköttum í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár. Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar lagði áætlunina fram á borgarstjórnarfundi í gær. 1.12.2010 06:00
Enginn með byssu við höfuðið á Braga Björgvin Þorsteinsson, lögmaður eigenda Árbótar, sagði í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 á fimmtudaginn að Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefði undirritað starfslokasamninginn við Árbót þar sem samið var um 30 milljóna króna uppgjör við heimilið. 1.12.2010 06:00
Skortur á kjúklingi í verslunum enn á ný Salmonellusmit hjá kjúklingaframleiðendum á þessu ári hefur leitt til viðvarandi skorts á kjúklingi í verslunum, að mati framkvæmdastjóra Bónuss og Krónunnar. Upp kom smit í kjúklingum frá Matfugli og Reykjagarði í síðustu viku á ný og voru vörur innkallaðar úr verslunum í kjölfarið. 1.12.2010 05:30
Sendi 42 tonn af vatni til Haítí „Þarna er mikil neyð og við ákváðum því að gefa meira vatn,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem framleiðir átappað lindarvatn á flöskum undir merkjum Icelandic Glacial á jörðinni Hlíðarendi við Þorlákshöfn. 1.12.2010 05:00
Færri kvörtuðu til landlæknis í fyrra Nokkuð færri kvartanir bárust landlæknisembættinu í fyrra en árin tvö þar á undan. 1.12.2010 04:00
Tillögur að umbótum kynntar Skýrsla og tillögur umbótanefndar Samfylkingarinnar verða kynntar og ræddar á flokksstjórnarfundi á laugardag. 1.12.2010 03:30
Húsgagnasmíði slær í gegn hjá nýnemum Guðmundur Hreinsson, skólastjóri Byggingartækniskólans, segir ásókn í húsgagnasmíði hafa sprungið út síðustu misseri. Alls sóttu 22 um að byrja í húsgagnasmíði á komandi vorönn. Undanfarið hafa nýnemar hverju sinni verið tíu talsins. 1.12.2010 02:00
Matarkarfan hækkað um rúmar þúsund krónur á tveimur árum Innfluttar vörur hafa hækkað um allt að áttatíu prósent í matarkörfu Stöðvar tvö frá því skömmu eftir bankahrun. Verð á innfluttum matvælum virðist því ekki hafa verið að fylgja styrkingu krónunnar. 30.11.2010 18:55
Þessir voru kjörnir á stjórnlagaþing Niðurstöður stjórnlagaþingskosninganna voru kynntar í Laugardalshöll nú síðdegis. Það var Ástráður Haraldsson sem kynnti niðurstöðurnar. Listinn sem við birtum hér er ekki í samræmi við magn atkvæða sem fólk hlaut heldur er um stafrófsröð að ræða. 30.11.2010 16:02
Saksóknari segist ekki hafa rætt við forseta landsdóms Saksóknari Alþingis fékk frumvarp Alþingis um breytingar á lögum um landsdóm ekki til umsagnar og átti engin samskipti við forseta landsdóms vegna frumvarpsins. Þetta segir Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis. Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sem til stendur að ákæra fyrir landsdómi hefur gagnrýnt aðkomu saksóknarans að samningu frumvarpsins. 30.11.2010 15:23
Allir hættir að tala um Parísarklúbbinn „Það hefur enginn minnst á Parísarklúbbinn í heilt ár,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra við upphaf þingfundar í dag. Þar svaraði hann gagnrýni þingmanna stjórnarandstöðunnar þess efnis að endurreisn efnahagslífsins og uppbygging atvinnu gengi hægt. Parísarklúbburinn er stofnun sem gjaldþrota þjóðir leita til vegna úrlausna sinna mála. 30.11.2010 15:09
67 milljónir í viðbót frá ríkinu vegna eldgosanna Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun 67 milljóna króna framlag til verkefna í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. 27 milljónir króna verða veittar til greiðslu kostnaðar við átaksverkefni á gossvæðinu þar sem einstaklingar voru ráðnir af atvinnuleysisskrá til ýmissa verkefna og 12 milljónum króna verður varið til að mæta kostnaði við viðgerðir á varnargörðum í Markarfljóti. 30.11.2010 14:53
Leiðrétting: Lögregla hvatti til kæru Vísir greindi frá því 27. október síðastliðinn að 22. ára gömul kona hefði verið lött til þess að kæra nauðgun af yfirmanni kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Björgvini Björgvinssyni. Konan lýsti reynslu sinni þar sem hún sagðist hafa orðið fyrir nauðgun í Vestmannaeyjum síðustu verslunarmannahelgi. Þegar hún hafi ætlað kæra árásina sagði hún í viðtali við Vísi að hún hefði fengið þau svör að það væri tímasóun að kæra málið í ljósi þess að hún sá aldrei gerandann. 30.11.2010 14:43
Fjölskylduhjálpin opnar í Reykjanesbæ Fjölskylduhjálp Íslands opnar nýja starfsstöð í Reykjanesbæ þann 9. desember. Er þetta þriðja starfsstöð Fjölskylduhjálparinnar sem fyrir starfar í Reykjavík og á Akureyri. 30.11.2010 14:36
Útgerðarfélag stefnir íslenska ríkinu Útgerðarfélagið Rammi hf. hefur stefnt íslenska ríkinu vegna þeirrar ákvörðunar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að gefa ekki út úthafsrækjukvóta á yfirstandandi fiskveiði. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi og fær flýtimeðferð. 30.11.2010 13:48
Stærstur hluti launþega með lausa samninga Kjarasamningar aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaðir voru 17. febrúar 2008 renna út í dag. 30.11.2010 13:31
Úrslit kosninganna kynnt síðar í dag Formaður landskjörstjórnar segir að vel hafi gengið að vinna úr úrslitum stjórnlagaþingskosninganna í morgun og hann reikni með að hægt verði að kynna úrslitin seinnipartinn í dag. 30.11.2010 13:25
Björninn unninn á Langjökli Bjargey Ólafsdóttir myndlistarmaður teiknaði fjögur þúsund fermetra stóran ísbjörn á Langjökul á föstudag. 30.11.2010 13:09
Nítján Íslandsmet í ár Sundmaðurinn frækni, Jón Margeir Sverrisson, hefur sett nítján Íslandsmet i ellefu sundgreinum á þessu ári. Jón Margeir er átján ára gamall og þroskaheftur en hann lætur ekki fötlun sína aftra sér frá því að taka þátt í íþróttum fremur en öðru. 30.11.2010 13:06
Rændi verslun í Kópavogi Rán var framið í verslun í Kópavogi á föstudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru málsatvik þau að átján ára piltur kom í verslunina, ógnaði starfsmanni hennar og krafði um peninga og hafði síðan eitthvað af þeim á brott með sér. Kauði komst hinsvegar ekki langt með ránsfenginn því hann var handtekinn skömmu seinna í húsi skammt frá vettvangi. 30.11.2010 12:33
Grannt fylgst með landrisi við Krýsuvík Jarðvísindamenn fylgjast nú grannt með skjálftahrinum og landrisi við Krýsuvík og hafa upplýst almannavarnir um þróun mála. Aukinn þrýsingur í jarðskorpunni þar undir er talinn geta stafað annaðhvort af kvikuinnstreymi eða breytingum í jarðhitakerfum. 30.11.2010 12:15
Reykjavíkurborg hækkar skatta Skattar verða hækkaðir á borgarbúa í nýrri fjárhagsáætlun sem meirihlutinn í Reykjavík leggur fyrir borgarstjórn í dag. Stefnt er að blandaðri leið hagræðingar og gjaldahækkana til að stoppa upp í 5 milljarða halla á borginni. 30.11.2010 12:04
Veruleg hækkun á bensínverði Veruleg hækkun á verði bensíns liggur í loftinu eftir að tonnið af bensíni fór yfir 800 dollara á heimsmarkaði í gær. Sérfræðingar búast við að hækkunin geti orðið að minnsta kosti fimm krónur á lítrann og reið Skeljungur á vaðið nú á tólfta tímanum. 30.11.2010 11:28
Árásin á Ólaf: Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manninum sem réðst á Ólaf Þórðarson tónlistamann hefur verið framlengdur til 27. desember næstkomandi. 30.11.2010 11:05
Tók lögreglumann hálstaki Liðlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa veist að lögreglumanni, sem var að færa mann í lögreglutök, og tekið hann hálstaki með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn marðist. Árásin átti sér stað fyrir framan skemmtistaðinn Glaumbar þann 17. október í fyrra. 30.11.2010 10:47
Hlín Einars: „Þetta var rosalegt sjokk“ „Þetta var ekki alveg leiðin sem ég ætlaði að nota til að kynna vefinn, en þeir sem vissu ekki hvað bleikt.is var í gær þeir vita það í dag," segir Hlín Einardóttir, ritstjóri vefritsins bleikt.is, sem fór úr axlarlið í hljóðveri Bylgjunnar í gær þar sem hún ætlaði að kynna vefinn í þættinum Í bítið. Fjallað var um atvikið á öllum helstu fréttamiðlum landsins og því óhætt að segja að óhapp Hlínar hafi orðið til þess að enn fleiri en ella heyrðu af vefnum hennar sem væntanlegur er í loftið innan tíðar. 30.11.2010 10:33
Ólafur kominn af gjörgæsludeild Ólafur Þórðarson, tónlistarmaður úr Ríó tríóinu, er kominn af gjörgæsludeild. Ólafur varð fyrir fólskulegri árás um miðjan nóvember og hefur legið á Landspítalanum síðan þá. Samkvæmt upplýsingum Vísis var Ólafur svo færður á heila- og taugadeild fyrir örfáum dögum og má merkja hægar en jákvæðar breytingar á líðan hans. 30.11.2010 10:25
Vill fund í allsherjarnefnd vegna kosninganna Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í allsherjarnefnd með landskjörstjórn og yfirlögfræðingi Alþingis vegna nýliðinna kosninga til stjórnlagaþings. Vigdis bendir á það í tölvubréfi til Róberts Marshall, formanns allsherjarnefndar, að fréttir hefðu borist af miklu magni ógildra og gallaðra atkvæðaseðla. Upphaflega stóð til að úrslit kosninganna yrðu kunngjörð í gær, en landskjörstjórn sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem tilkynnt var að það myndi dragast vegna mikils fjölda vafaatkvæða. 30.11.2010 09:38
Fátækt í Danmörku: Biðraðir eftir mat aldrei verið lengri Það er ekki aðeins á Íslandi þar sem biðraðir eftir matargjöfum hafa verið að lengjast því í Danmörku hefur ástandið ekki verið verra á síðari tímum. Danska blaðið Politiken greinir frá þessu og segir að ásókn fólks í hjálp fyrir jólin hafi sjaldan eða aldrei verið meiri. 30.11.2010 08:22
Da Vinci fléttan: Hugði á húsakaup á Íslandi - parið enn í varðhaldi Hæstiréttur í New York ríki í Bandaríkjunum hefur hafnað beiðni Vickrams Bedi um að fá tryggingu sína lækkaða, en hann situr nú í gæsluvarðhaldi ásamt Helgu Ingvarsdóttur unnustu sinni. 30.11.2010 07:58
Kannabisræktun: Nafnlaus ábending kom lögreglu á sporið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt kannabisræktun í heimahúsi og handtók sjö menn ef erlendum uppruna. 30.11.2010 07:09
Brutust inn í Breiðholti og stálu sígarettum Brotist var inn í myndbandaleigu og söluturn í Breiðholti í nótt og þaðan stolið 17 kartonum af sígarettum. 30.11.2010 07:03