Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ánægður með afstöðu Grindavíkur vegna fyrningar kvóta „Ég er mjög ánægður með að þeir skuli taka þessa afstöðu," segir Eiríkur Tómasson, útgerðarmaður í Grindavík, um bókun bæjarráðs Grindavíkurbæjar vegna hugmynda um fyrningu á veiðiheimildum. 7.5.2009 13:41
Brennuvargur með hass á Litla Hrauni Guðmundur Freyr Magnússon sem dæmdur var í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa meðal annars kveikt í parhúsi á Þorlákshöfn sem hann hafði skömmu áður rænt árið 2007 hefur verið kærður fyrir fíkniefnalagabrot. Guðmundur var í tvígang tekinn fyrir vörslu hass og tóbaksblandaðra kannabisefna í klefa sínum á Litla Hrauni. 7.5.2009 13:21
Ragnar gæti þurft að bíða lengi eftir dómi Íslandsdeild Amnesty International ætlar ekki að beita sér í máli Ragnars Erlings Hermannssonar sem handtekinn var vegna fíkniefnasmygls í Brasilíu. Hann situr nú í fangelsi í bænum Recife og hefur lýst slæmum aðbúnaði í fangelsinu, en hann deilir meðal annars klefa með fimmtán öðrum föngum. 7.5.2009 13:00
Háskólinn kennir fólki að stofna sprotafyrirtæki Eitt af fjölmörgum námskeiðum sem Háskóli Íslands mun standa að í sumar er Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði. Markmið með námskeiðinu er að kenna fólki að hrinda hugmyndum í framkvæmd þannig að úr geti orðið sprotafyrirtæki. Jóhann Pétur Malmquist, prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, er umsjónarkennari námskeiðsins en hann hefur tekið þátt í að stofna á annan tug fyrirtækja. 7.5.2009 12:59
Gylfi: Í takt við það sem ég óttaðist „Þetta er í takt við það sem ég hafði óttast, en ekki í takt við það sem ég hafði vonast eftir," segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands um vaxtaákvörðun Seðlabankans. 7.5.2009 12:16
Afplánun á Íslandi ekki skoðuð fyrr en dómur fellur í Brasilíu Afplánun hér á landi kemur ekki til tals fyrr en Ragnar Hermannsson hefur hlotið sinn dóm í Brasilíu segir dómsmálaráðherra. Unnið er að samningi milli Brasilíu og Íslands um flutning á föngum. Ragnar varar aðra við því að smygla eiturlyfjum, honum hafi aldrei liðið verr. 7.5.2009 12:02
Inflúensan: Mest fjölgun tilfella í Bandaríkjunum Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.217 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 568 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og Almannavarnadeild segir að inflúensan hafi nú verið staðfest í fyrsta sinn í Svíþjóð og Póllandi, eitt tilfelli í hvoru landi en sem fyrr er ástandið alvarlegast í Mexíkó þar sem staðfest tilfelli eru ríflega 1.100 og 42 dauðsföll eru rakin til veikinnar. 7.5.2009 11:22
Krabbameinssjúklingar studdir með bleikum hrærivélum Krabbameinsfélag Íslands skrifaði nýlega undir samkomulag við Einar Farestveit & co hf., umboðsaðila Kitchenaid á Íslandi þess efnis að 10 þúsund krónur af söluandvirði hverrar bleikrar Kitchenaid hrærivélar 7.5.2009 11:06
Aðsókn á skíðasvæði eykst mikið Aðsókn á öllum skíðasvæðum á landinu jókst mikið veturinn 2008 til 2009. Aukning frá því í fyrra var um 42%, en gestir voru 241 þúsund í vetur samanborið við 170 þúsund gesti árið áður. 7.5.2009 10:35
Nefbraut fórnarlambið óvart Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir tvær líkamsárásir. 7.5.2009 10:29
Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra skoðar mál Ragnars Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent fyrirspurn til Brasilíu vegna máls Ragnars Erlings Hermannssonar þar sem óskað er allra upplýsinga sem að gagni koma. Þetta segir Smári Sigurðsson yfirmaður Alþjóðadeildar við fréttastofu. Ragnar Erling var handtekinn á föstudaginn í síðustu viku í bænum Recife í Brasilíu með tæp 6 kíló af hreinu kókaíni. 7.5.2009 10:27
Styttist í nýja ríkisstjórn Vinnu við gerð stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna heldur áfram í dag og funduðu forystumenn flokkanna í stjórnarráðinu í morgun. „Við sitjum núna og förum yfir drög að stjórnarsáttmálanum,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, í samtali við fréttastofu. 7.5.2009 10:18
Höfuðpaurinn í Pólstjörnumálinu tekinn með fíkniefni Einar Jökull Einarsson sem fékk þyngsta dóminn í Pólstjörnumálinu svokallaða hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna. Einar Jökull afplánar nú níu og hálfs árs fangelsisdóm á Litla Hrauni fyrir að hafa skipulagt smygl á tæpum fjörutíu kílóum af fíkniefnum sem komu hingað til lands með skútu. 7.5.2009 09:34
Eyddu fimm kílóum af sprengiefni Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu á tólfta tímanum í gærkvöldi rúmum fimm kilóum af dynamit-sprengiefni sem fundust í gær í og við grjótnámu rétt utan við byggðina á Þórshöfn á Langanesi. Menn, sem voru að sækja efni í námuna í gær, urðu efnisins varir og lokaði lögregla svæðinu strax. 7.5.2009 08:59
„Ég vonaði að þetta væri bara ekki satt“ „Það er rosalegt að vita af honum þarna,“ segir Hermann Þór Erlingsson, faðir Íslendings sem situr nú í brasilísku fangelsi og bíður dóms vegna kókaínsmygls. Hann hefur enn ekkert heyrt í syni sínum. „Ég frétti þetta á mánudaginn. Allan daginn var ég að vona að þetta væri bara ekki satt. Ég er búinn að vera í sjokki síðan og veit satt að segja ekki mitt rjúkandi ráð,“ segir Hermann. 7.5.2009 08:00
Skoða framtíðarskipulag kirkjugarða Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri kirkjumáladeildar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, segir að rætt verði við forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur vegna skipulagningar á kirkjugörðum í framtíðinni. 7.5.2009 08:00
Alræmd brasilísk fangelsi Cotel-fangelsið nærri Recife er alræmt fyrir illan aðbúnað og uppreisnir. Það, líkt og raunar mörg önnur fangelsi í Brasilíu, hefur sætt harðri gagnrýni mannréttindasamtaka. Árið 2007 létust nokkrir fangar í uppreisn í fangelsinu og í febrúar í fyrra var einnig gerð þar uppreisn. Þá slapp 51 fangi úr fangelsinu. Í nokkurra ára gamalli skýrslu um fangelsi í Brasilíu kemur fram að árið 2002 hafi 303 fangar verið myrtir í brasilískum fangelsum af samföngum sínum. 7.5.2009 07:30
Drauganet til vandræða í heimshöfunum Talið er að 640 þúsund tonn af veiðarfærum bætist árlega við þau drauganet, sem fyrir eru í heimshöfunum, en drauganetin halda áfram að fanga fisk, fugl, skjaldbökur og hvali árum saman eftir að þau týnast eða er hent í sjóinn. 7.5.2009 07:24
Innbrot í bátaskýli í Skorradal Brotist hefur verið inn í nokkur bátaskýli í Vatnsendalandi við Skorradalsvatn í vikunni og þaðan stolið ýmsum búnaði. Lögreglan í Borgarnesi rannsakar málið og óskar eftir upplýsingum um mannaferðir við bátaskýlin. Þykir þetta til marks um hve þjófar eru farnir að leita víða fanga. 7.5.2009 07:22
Enginn strætó í Hvalfjarðarsveit Ekkert verður úr því að Strætó hefji akstur um Hvalfjarðarsveit, eins og fyrirhugað var, og Borgarbyggð hefur sagt upp samningi við Strætó um akstur upp í Borgarnes. 7.5.2009 07:19
Meirihluti landsmanna vill aðildarviðræður Meirihluti landsmanna, eða rúmlega 61 prósent, vill aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt skoðanakönnun Ríkisútvarpsins. Mest er fylgið meðal tekjuhárra vel menntaðra íbúa höfuðborgarsvæðisins, en andstaðan er mest á landsbyggðinni. 7.5.2009 07:10
Innbrotsþjófur á fermingaraldri Fjórtán ára piltur og annar nokkrum árum eldri voru handteknir undir morgun eftir að þeir brutust inn í Nýherja við Borgartún og stálu þaðan stórum flatskjá. 7.5.2009 07:04
Þúsund störf gætu bjargast Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍSF) mun reyna að ná samstöðu meðal sveitarstjórnarmanna um að laun starfsmanna verði lækkuð um fimm prósent í stað þess að segja fólki upp starfi í þeim óumflýjanlega niðurskurði sem er fram undan. Hugmyndin verður kynnt á samráðsfundi í næstu viku þar sem fjárhagsstaða sveitarfélaganna verður rædd. 7.5.2009 07:00
Svo vonar maður það besta Heilbrigðismál Valgerður Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur heldur í dag til Íraks á vegum Rauða kross Íslands til starfa fyrir Alþjóða Rauða krossinn. Mun hún dvelja í hálft ár í borginni Najaf og vinna að eflingu bráðaþjónustu á sjúkrahúsi borgarinnar. 7.5.2009 04:30
Hafragrautur þrisvar í viku Að bjóða upp á hafragraut í matinn þrisvar í viku í leikskólum er meðal hagræðingaraðgerða sem Reykjavíkurborg hefur gripið til vegna efnahagsástandsins. 7.5.2009 03:45
Sjö boð bárust í hafnargæsluna Sjö sendu inn tilboð í útboð Faxaflóahafna á hafnargæslu vegna komu skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur. Lægsta boð var frá Öryggismiðstöð Íslands og hefur verið samið við fyrirtækið um verkefnið. 7.5.2009 03:45
Fjölsmiðjan stækkar við sig samfélagsmál „Við tókum ekki þátt í góðærinu og verðum eiginlega bara vör við kreppuna í aukinni aðsókn ungs fólks,“ segir Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar. 7.5.2009 03:30
Lömbin fá nafn Sex lömb höfðu bæst í hóp dýra í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær en sauðburður hófst í garðinum í fyrradag. 7.5.2009 03:30
Hengdi sig eftir tap Arsenal Suleiman Alphonso Omondi, 29 ára Keníumaður og aðdáandi enska knattpyrnuliðsins Arsenal, framdi sjálfsmorð eftir leik liðsins gegn Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fyrrakvöld. Arsenal tapaði leiknum og féll úr keppni. 7.5.2009 03:15
Erfitt að yfirgefa ofbeldissambandið Samfélagsmál Erlendum konum hefur fækkað mjög hjá Kvennaathvarfinu síðan í haust en á sama tíma hefur íslenskum konum fjölgað mjög mikið. Þetta segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. 7.5.2009 03:00
Ending hjálma þrjú til fimm ár Ending reiðhjólahjálma er fimm ár frá framleiðsludegi en þrjú ár frá söludegi. Þetta kemur fram í frétt frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem hvetur hjólreiðafólk til að nota hjálma nú þegar átakið „Hjólað í vinnuna“ er hafið. 7.5.2009 02:45
Catalina aftur í gæsluvarðhald Lögreglumál Catalina Mikue Ncogo, sem komst í fréttir vegna meints mansals fyrr á árinu, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 12. maí. Hún er grunuð um aðild að nokkuð umfangsmiklu smygli á fíkniefnum hingað til lands. 7.5.2009 02:15
Bíltúr eftir ís borgaði sig upp Það getur margborgað sig að bjóða börnunum sínum í ísbíltúr, eins og kona ein sem búsett er á Suðurlandi komst að um síðastliðna helgi. 7.5.2009 01:00
Dyraverðir grunaðir um nauðgun Mennirnir tveir sem handteknir voru um helgina grunaðir um að hafa nauðgað nítján ára stúlku við Tryggvagötu um helgina, starfa báðir sem dyraverði. Samkvæmt heimildum Vísis störfuðu þeir á sitthvorum skemmtistaðnum nálægt Tryggavgötunni. 6.5.2009 22:15
Sextán ríkisborgarar í erlendum fangelsum Alls dvelja sextán íslenskir ríkisborgarar í erlendum fangelsum samkvæmt fréttastofu RÚV. Ekki er útilokað að fleiri einstaklingar dvelji í erlendum fangelsum. Utanríkisráðumneytið hefur reynt að ná sambandið við Ragnar Erling sem var handtekinn fyrir helgi með rúm fimm kíló af kókaíni í farangri sínum. 6.5.2009 21:11
Tugmilljóna kosningabarátta skilar sér í ESB könnun „Það er alltaf spurning um það hvernig spurt er," segir Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, um skoðanna könnunn Gallup sem RÚV greindi frá í kvöld. Þar kom fram að 61,2 prósent vilja fara í aðildarviðræður við ESB. Þá voru rétt tæp 27 prósent sem voru alfarið á móti því. Tæp tólf prósent tóku ekki sérstaka afstöðu til málsins. 6.5.2009 20:46
Ragnar Erling: „Ég mun deyja hérna“ „Ég er kominn með matareitrun," sagði Brasilíufanginn Ragnar Erling Hermannsson grátandi þegar fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við hann í dag. Ragnar er vistaður í fangelsinu Cotel en þar deilir hann klefa með fimmtán öðrum enstaklingum. Honum líður illa og vill koma heim. 6.5.2009 18:37
Ragnar Erling: Símaviðtal Brasilíufanginn Ragnar Erling Hermannsson óttast um líf sitt og þarf að deila fangaklefa með fimmtán öðrum mönnum. Hér má hlusta á átakanlegt viðtal við Ragnar Erling. 6.5.2009 20:03
Ný ríkisstjórn borin undir atkvæði á laugardaginn Samfylkingin hefur tekið Nasa á leigu á laugardaginn klukkan tvö um daginn. Samkvæmt heimildum Vísis þá mun flokkstjórn Samfylkingarinnar verða kallað saman þá til þess að samþykkja ráðherra lista og stjórnarsamstarf Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. 6.5.2009 20:14
Hagkvæmara að vera atvinnulaus en í láglauna starfi Öll laun undir tvö hundruð þúsund krónum eru komin í samkeppni við atvinnuleysisbætur. Hagstæðara getur verið að vera á bótum en vinna fullan vinnudag á lægstu launum. Viðurlög eru þó hörð þverneiti fólk að taka störf sem bjóðast. 6.5.2009 18:54
Auður ríkra rýrnað um þúsund milljarði Auður tuttugu og fimm ríkustu Íslendinganna árið 2007 hefur rýrnað um eitt þúsund og tvö hundruð milljarða króna en hrein eign flestra þeirra er engin í dag. Tapið slagar upp í landsframleiðslu ársins 2007. 6.5.2009 18:46
Lóðum fyrir 130 milljónir skilað í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í gær að taka við afsölum af sex lóðum í gær en verðmæti þeirra samanlagt eru 136 milljónir króna. Mikið hefur verið um að einstaklingar hafi skilað lóðum sem þeim var úthlutað fyrir efnahagshrunið. 6.5.2009 18:00
Vegaframkvæmdir á Akureyri Lögreglan á Akureyri tilkynnir að vegna gerðar undirganga á Hörgárbraut, norðan Skúta, verður Hörgárbraut lokuð milli Hlíðarbrautar og Undirhlíðar frá 7. maí til 4. júní næst komandi. Hjáleið er um Krossanesbraut. 6.5.2009 17:45
Brasilíufangi í viðtali við Fréttastofu Rætt verður við Brasilíufangann Ragnar Erling Hermannsson í fréttum Stöðvar 2 í kvöld 6.5.2009 17:35
Illugi formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins Illugi Gunnarsson, þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var í dag kjörinn formaður þingflokks sjálfstæðismanna á fundi þingflokksins. Illugi gegndi stöðu varaformanns þingflokksins á síðasta kjörtímabili. 6.5.2009 17:24