Fleiri fréttir

Rúmlega 200 þreyta íslenskupróf til að fá ríkisborgararétt

Alls munu 205 útlendingar þreyta íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt sem haldin verða í fyrsta sinn 8. til 12. júní. Umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verða að hafa staðist próf í íslensku samkvæmt breytingum sem gerðar voru á reglum um íslenskan ríkisborgararétt um áramótin. Próftökugjaldið er 7000 krónur.

Fjármál stjórnmálamanna rannsökuð tíu ár aftur í tímann

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða lög um fjármál stjórnmálaflokka. Nefndinni hefur jafnframt verið falið að leiða til lykta hugmyndir Jóhönnu um að Ríkisendurskoðun, í kjölfar lagabreytingar eftir atvikum, verði falið að gera úttekt á fjármálum þeirra stjórnmálaflokka sem átt hafa fulltrúa á Alþingi og frambjóðendum þeirra á árunum 1999 til 2006.

66 sumarhúsalóðir í Grímsnesi á uppboð

Mikill samdráttur hefur orðið í sumarhúsabyggingum í uppsveitum Árnessýslu og eru nú 66 sumarhúsalóðir í grennd við Kerið í Grímsnesi, að fara á uppboð.

Hætt verði við aukna hesthúsabyggð við Elliðaárnar

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, vill að fallið verði frá áformum um aukningu á hesthúsabyggð á svæði norðan Elliðaánna, vestan Breiðholtsbrautar. Tekist hefur verið á um málið síðustu vikur og 7. apríl kærði Stangveiðifélag Reykjavíkur deiliskipulag svæðisins. Tillaga Ólafs verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar í dag.

Landlæknir vill að læknar neiti beiðnum um detox-blóðprufur

Landlæknisembættið beinir því til lækna að þeir neiti staðfastlega beiðnum um blóðrannsóknir sem ekki eru gerðar á læknisfræðilegum forsendum. Þetta kemur fram á heimasíðu embættisins en tilefnið er ábendingar sem Landlækni hafa borist frá læknum vegna námskeiða á vegum www.detox.is, sem Jónína Benediktsdóttir líkamsræktarfrömuður stendur fyrir.

Alvarlegt vinnuslys í Garðinum: Ekki í lífshættu

18 ára starfsmaður verktaka við Grunnskólann í Garði á Reykjanesi höfuðkúpubrotnaði, hlaut áverka í andliti og fótbrotnaði, þegar hann varð undir fleka úr steypumóti um klukkan átta í morgun.

Sendinefnd AGS væntanleg

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ætlar að koma hingað til lands í vikunni til viðræðna við ríkisstjórnina og fleiri og stefnt er að því að endurskoða samstarfsáætlanir sjóðsins og ríkisins í kjölfarið.

Vélhjólamaður slasaðist á Hringbraut

Vélhjólamaður slasaðist í gærkvöldi þegar hann féll í götuna á Hringbraut, rétt við beygjuna inn á háskólasvæðið. Í fyrstu var óttast að maðurinn væri alvarlega slasaður, en svo reyndist ekki við skoðun og aðhlynningu á slysadeild Landspítalans.

Á 150 á Hellisheiði

Ungur ökumaður var stöðvaður á Hellisheiði í nótt eftir að hafa mælst á 150 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna opnaði í Sóltúni

Ný starfsstöð Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var opnuð í Sóltúni 26 í dag. Þar starfa 10 manns. Á vefsíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins kemur fram að töluverður erill hafi verið frá því að opnað var klukkan 9 í morgun og í lok dags hafi rúmlega 30 manns leitað sér ráðgjafar.

ESB er hluti af lausn á bráðavanda

Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er hluti af lausn á þeim bráðavanda sem Íslendingar glíma við um leið og hún leggur grunninn að traustri framtíð og er leiðarljós stöðugleika inn í framtíðina, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni í kvöld.

Krefjast aðgerða vegna vanda heimilanna

Framsýn- stéttarfélag Þingeyinga tekur heilshugar undir með Hagsmunasamtökum heimilanna um að þegar í stað verði gripið til aðgerða til að forða fjölda heimila í landinu frá gjaldþroti. Þetta segir í ályktun sem Framsýn sendi frá sér í kvöld.

Hefði þurft þjóðstjórn í vetur

Það hefði átt að mynda þjóðstjórn eftir að upp úr stjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins slitnaði, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Samfylkingin hefði hins vegar ekki tekið það í mál vegna þess að flokkurinn hefði viljað forsætisráðuneytið.

ESB engin töfralausn

Stjórnarmyndinun var ekki án fórna og málamiðlana," sagði Steingrímur J. Sigfússon í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Bjarni gagnrýnir fyrirhugaða fyrningu aflaheimilda

Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um fyrningu aflaheimilda eru hugmyndir um þjóðnýtingu og setur sjávarútveginn í uppnám, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Matvöruverð hefur hækkað um fjórðung á einu ári

Matvöruverð hefur hækkað um rúm 25% síðustu 12 mánuði. Þegar skoðuð er breyting á verði vörukörfu ASÍ frá maí í fyrra má sjá að karfan hefur hækkað mest hjá lágvöruverslununum eða frá 20%-31%, í klukkuverslunum er hækkunin 20%-28% og þjónustuverslanir hafa hækkað verðin frá 12%-21%.

Dyr opnast að olíuiðnaði

Fyrstu olíuborpallarnir gætu verið komnir inn í íslenska lögsögu eftir þrjú til fjögur ár, að mati umsækjenda um Drekasvæðið en þeir reyndust báðir vera norsk olíuleitarfélög. Iðnaðarráðherra segir að í dag hafi dyr opnast að nýjum iðnaði fyrir Íslendinga.

Vill afþakka aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Ríkisstjórnin er ráðalaus og engin stefna var í stefnuræðu forsætisráðherra, sagði Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra í kvöld.

Vill að ríkið styðji við rekstur Strætó bs.

Námsmönnum verður ekki boðið upp á fríar strætóferðir næsta vetur vegna hagræðingar í rekstri. Stjórnarformaður Strætó vill að ríkið styðji við rekstur félagsins, meðal annars með niðurfellingu opinberra gjalda.

Flugvöllur kominn á Hólmsheiði

Flugvöllur hefur verið tekinn í notkun á Hólmsheiði, á sama stað og margir sjá fyrir sér að innanlandsflugið verði í framtíðinni. Þangað til hafa fisflugmenn svæðið til umráða.

Þjóðhagslega hagkvæmt að bólusetja fyrir hlaupabólu

Ný rannsókn sem unnin var við hagfræðideild Háskóla Ísland sýnir að upptaka skipulagðrar bólusetningar gegn hlaupabólu á Íslandi væri þjóðhagslega hagkvæm. Þjóðhagslegur sparnaður við bólusetninguna væri 210 milljónir á ári samkvæmt rannsókninni. Í tilkynningu frá Háskólanum segir í rannsókninni hafi verið gerð kostnaðarábatagreining á upptöku bólusetningar gegn hlaupabólu út frá sjónarhorni alls samfélagsins.

Fjórum sinnum stöðvaður með amfetamín í blóði eða bíl

Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að keyra bifreið undir áhrifum fíkniefna, eða með fíkniefni í fórum sínum, sviptur ökuréttindum fjórum sinnum á hálfu ári. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út ákæruna en málið var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Samfylkingin auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Framkvæmdastjórastaða Samfylkingarinnar verður auglýst laus til umsóknar á næstu dögum. Formaður framkvæmdastjórnar flokksins á síður von á að óflokksbundnir einstaklingar sæki um stöðuna.

Landsbjörg óttast niðurskurð

Slysavarnafélagið Landsbjörg lýsir þungum áhyggjum af þeim niðurskurði á fjármagni sem ætlað er til reksturs stofnana er sinna öryggis- löggæslu- og björgunarmálum á landinu. „Ætla má að slíkur niðurskurður muni valda því að leitað verði í auknu mæli til aðildareininga félagsins sem reknar eru af sjálfsaflafé og hafa orðið fyrir verulegum samdrætti á tekjum í kjölfar þess efnahagsástands er ríkir,“ segir í ályktun 6. landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem haldið var nýverið á Akureyri.

Sigmundur Ernir talar fyrir Samfylkinguna

Sigmundur Ernir Rúnarsson nýr þingmaður Samfylkingarinnar mun vera einn ræðumanna um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld. Umræðurnar skiptast í þrjá umferðir en forsætisráðherra byrjar á tuttugu mínútna framsögu. Í kjölfarið koma fulltrúar frá öllum flokkum og tala að hámarki 12 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri umferð og 5 mínútur í þriðju og síðustu umferð. Umræðurnar verða í beinni útsendingu í útvarpi og sjónvarpi klukkan 19:50 í kvöld.

Fær ekki að vitna í grófu ofbeldismáli

Hæstiréttur meinaði fyrr í mánuðinum barnsmóður og fyrrum sambýliskonu meints ofbeldismanns að vitna í máli gegn honum. Maðurinn er talinn hafa beitt aðra konu sem hann bjó með grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á fjögurra ára tímabili.

Norrænir sérsveitamenn æfðu sig á Íslandi

Sérsveit ríkislögreglustjóra stóð fyrir námskeiði í síðustu viku með þátttöku sérsveita frá Noregi, Danmörku og Finnlandi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ýmis atriði varðandi klifur og sig hafi verið æfð og fóru æfingar að mestu fram í klettabeltum Esjunnar og á Suðurnesjum.

Norskur skipakóngur vill leita að olíu á Drekasvæðinu

Það var norska fyrirtækið Aker Exploration sem átti hitt tilboðið í olíuleit á Drekasvæðinu en tilboðin voru opnuð klukkan 14:00 hjá Orkustofnun. Tvö tilboð bárust en hitt tilboðið á einnig norskt félag, Sagex Petrolium, sem reyndar er að fimmtungi í eigu Íslendinga. Þeir sendu inn tilboð í samtarfi við íslenskt félag, Lindir Petrolium.

Heimilin sitja eftir í skuldasúpunni

Hagsmunasamtök heimilanna segja sorglegt að ríkið afskrifi milljarða skuldir fyrirtækja en láti heimilin sitja eftir í skuldasúpunni. Samtökin vilja leiðréttingu á bæði gengistryggðum og verðtryggðum lánum.

Olíuleitartilboð opnuð klukkan tvö

Tilboðin tvö sem bárust í olíuleit á Drekasvæðinu verða opnuð hjá Orkustofnun klukkan tvö í dag. Upplýst hefur verið um annað tilboðið en spenna ríkir um hvaðan hitt tilboðið kom.

Fer á tölvuleikjaráðstefnu í Málmey

Katrín Jakobsdóttir menntamála- og samstarfsráðherra setur norrænu tölvuleikjaráðstefnuna Nordic Game 2009 í Málmey á morgun. Hún mun jafnframt veita þar styrki að jafnvirði þriggja milljóna danskra króna sem renna munu til sex nýrra tölvuleikjaverkefna.

Ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Tvítug stúlka hefur verið ákærð fyrir sértaklega hættulega líkamsárás með því að hafa slegið pilt í höfuðið með glerglasi í Árbæ í september í fyrra. Við höggið hlaut pilturinn tvo djúpa skurði vinstra megin á höku, tvo grunna skurði yfir vinstra kinnbeini og grunnan skurð á hálsi vinstra megin. Það er ríkissakskóknari sem gefur út ákæru á hendur stúlkunni en þess er krafist að hún verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarskotnaðar.

Hætt verði við byggingu Tónlistarhússins í núverandi mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra, segir að við núverandi aðstæður í efnahagsmálum sé skynsamlegt að leggja núverandi áætlanir Tónlistar- og ráðstefnuhús til hliðar og skoða uppbygginguna upp á nýtt.

Vilja stjórnmálasamband við stjórn Hamasliða í Palestínu

Félagið Ísland-Palestína skorar á ríkisstjórnina að koma þegar í stað á sambandi við ríkisstjórn Palestínumanna á Gazaströndinni, sem er á yfirráðasvæði Hamassamtakanna, til jafns við bráðabirgðastjórnina sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, skipaði í Ramallah.

Þjófnaðarbrotum fjölgar á milli ára

Afbrotatölfræði ríkislögreglustjóri fyrir apríl sýnir að töluverð fjölgun er í þjófnaðarbrotum samanborið við sama mánuð í fyrra. Þannig var tilkynnt um 392 þjófnaðarbrot í apríl í ár en þau voru 268 á sama tíma í fyrra. Hegningarlagabrot almennt hafa einnig aukist en þau eru 20% fleiri á milli ára.

Jóhanna flytur stefnuræðu sína í kvöld

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína á Alþingi laust fyrir klukkan átta í kvöld og í framhaldinu fjalla þrír fulltrúar hvers flokks á þingi um ræðuna. Ekki er búið að draga um röð flokkanna.

Ræða endurnýjanlega orkugjafa

Utanríkisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sheikh Abdullah bin Zayed al-Nahyan, er hér á landi í dag. Hann mun funda með Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, í fjarveru Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, en Össur sækir ráðherrafund EES ríkja í Brussel.

Verð á kjarnfóðri hækkar

Fyrirtækið Lífland hækkar í dag verð á kjarnfóðri til bænda um fimm til sex prósent, en kjarnfóðurshækkanir þrýsta á hækkun landbúnaðarvara til neytenda.

Taldi lögreglu hafa hirt bílinn

Hann var heldur óhress ungi maðurinn sem kom á lögreglustöðina á Selfossi í gær og kvartaði yfir því að lögreglan skyldi hafa hirt af sér bílinn í heilu lagi, þótt hann hafi ekki sinnt tilmælum lögreglu um að færa hann til skoðunar.

Velti bílnum með heila björgunarsveit á eftir sér

Hann var lánsamur í óláni sínu, ökumaðurinn sem velti bíl sínum út af þjóðveginum sunnan við Staðarskála í Hrútafirði síðdegis í gær, því næsti bíll á eftir honum var björgunarsveitarbíll, með heila björgunarsveit um borð.

Lést í bílslysi

Guðlaugur Magni Óðinsson lést í bílslysi skammt sunnan við Dalsá í Fáskrúðsfirði á laugar­dag. Guðlaugur var sautján ára gamall, til heimilis að Króksholti 6 á Fáskrúðsfirði.

Gæti tafist allt fram í ágúst

Endanleg niðurstaða ESA, Eftirlitstofnunar EFTA, um fjárfestingarsamning um álver í Helguvík, gæti verið tilbúin í byrjun ágúst.

Lífsýni úr 300 þúsund Íslendingum varðveitt

Varðveitt eru lífsýni úr um 300.000 Íslendingum í lífsýnasafni sem að stærstum hluta er geymt á Landspítalanum en einnig á Akureyri og í lítilli rannsóknarstofu í einkaeigu á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá næstu 50 fréttir