Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sölunni á eignum NATO vísað til umboðsmanns alþingis Einar Thorlacius, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, segir að allar líkur séu á að málsmeðferðinni við söluna á eigum NATO í Hvalfirði verði vísað til umboðsmanns Alþingis. 7.11.2007 11:04
Nauðlendingin á Egilsstöðum: Slökkviliðið langt frá því að vera undirmannað „Átta mínútum fyrir lendingu vélarinnar voru allir klárir og það má segja að það hafi verið toppmæting í þetta útkall,“ segir Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri brunavarna á Austurlandi, um nauðlendinguna á Egilsstaðaflugvelli í gærkvöldi. 7.11.2007 10:53
Framsóknarmenn nota REI málið til að hefna sín á Sjálfstæðisflokknum Framsóknarmenn nota málefni Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest til að ná sér niðri á Sjálfstæðisflokknum að mati dómsmálaráðherra. Þetta kemur fram á heimasíðu hans. 7.11.2007 10:24
Skipar nefnd til að styrkja ímynd Íslands Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um hvernig megi styrkja ímynd Íslands. 7.11.2007 10:02
Flugvirkjar á leið austur Flugvirkjar frá Flugfélagi Íslands eru nú á leið til Egilsstaða til að skoða og gera við Fokker-vélina, sem lenti þar skömmu eftir flugtak í gær vegna þess að annar hreyfill hennar bilaði. 7.11.2007 09:28
Eldur í jeppa í Fossvogi Stór nýlegur jeppi skemmdist töluvert eftir að eldur kom upp i honum mannlausum á bílastæði í Fossvogshverfi í Reykjavík í gærkvöldi. 7.11.2007 09:25
Ekið á hross við Akureyri í gær Hross drapst eftir að vöruflutningabíll ók á það á þjóðveginum norðan við Akureyri í gærkvöldi. Ökumaðurinn slapp ómeiddur en bíllinn skemmdist eitthvað. 7.11.2007 09:23
Fáfnismenn verða Vítisenglar um áramót Mótorhjólasamtökin Fafner Iceland MC munu væntanlega verða tekin inn í Hells' Angels um áramótin næstu. Heimildarmenn Vísis sem þekkja vel til málsins segjast fullvissir um að þetta standi til. Gerist það mun Fáfnisheitið hverfa af vestum meðlima Fáfnis og Hells' Angels merkið koma í staðinn. 7.11.2007 08:50
Uppdópaður á flótta með þýfi Ölvaður og lyfjaður ökumaður reyndi að stinga lögregluna á höfuðborgarsvæðinu af upp úr klukkan fjögur í nótt, ók yfir tvenn gatnamót á móti rauðu ljósi og öfugu megin í gegnum hringtorg, uns hann gafst upp á Hringbrautinni. 7.11.2007 08:06
Hélt að mín síðasta stund væri runnin upp Davíð Davíðsson, einn farþeganna sem voru um borð í Fokker vél Flugfélags Íslands sem nauðlenti á Egilsstaðaflugvelli í kvöld segist hafa haldið að hans síðasta stund væri runnin upp þegar flugfreyjan tilkynnti að nauðlending á landi væri fyrirhuguð og bað fólk um að halla sér fram í sætum sínum. Hann segir áhöfn vélarinnar hafa staðið sig með sóma en gagnrýnir flugfélagið fyrir að gera ekki betur við farþegana þegar vélin hafði lent heilu og höldnu. 6.11.2007 23:17
Vítisengill í Leifsstöð með morðingjamerki á vestinu Annar Vítisengillinn sem var hér á landi í vor og Vísir sagði frá í gær var á meðal þeirra sem reyndu að komast inn í landið á föstudaginn var. Hann hefur nú öðlast full réttindi innan samtakanna auk þess sem hann skartar merki sem þýðir að hann hafi myrt í þágu félaga sinna. 6.11.2007 21:06
Flugmálastjórn segir ásakanir slökkviliðsmanna rangar Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ásakanir þær sem komi fram í ályktun fulltrúaráðs Landssambands slökkviliðsmanna séu rangar. Ekki hafi verið dregið úr öryggiskröfum á flugvellinum og þvert á móti hafi viðbúnaður við hreinsun og hálkuvarnir á flugbrautum verið aukinn. 6.11.2007 22:44
Fokker flugvél nauðlenti á Egilsstaðaflugvelli Fokker flugvél frá Flugfélagi Íslands þurfti að nauðlenda á Egilsstaðaflugvelli í kvöld vegna bilunar í öðrum hreyfli vélarinnar. 41 farþegi var um borð. 6.11.2007 22:00
Andlát: Marta G. Guðmundsdóttir Marta G. Guðmundsdóttir kennari og Grænlandsjökulsfari lést á krabbameinsdeild Landspítalans í gær, 37 ára að aldri. 6.11.2007 21:32
Ekið á gangandi vegfaranda á Bústaðavegi Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl á Bústaðavegi á móts við Grímsbæ fyrir stundu. Að sögn lögreglu liggja engar upplýsingar fyrir um líðan hins slasaða en hann er þó með meðvitund. Ekkert liggur heldur fyrir um tildrög slyssins. 6.11.2007 22:32
Óttast um öryggi flugfarþega á Keflavíkurflugvelli Fækkað hefur um tæplega helming á vöktum slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli frá brotthvarfi hersins. Kæmi upp alvarlegt flugslys á vellinum myndi slökkvilið vallarins einungis hafa mannskap til að berjast við eld utanfrá, ekki bjarga fólki. Þetta segir Borgar Valgeirsson formaður félags slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli. 6.11.2007 21:01
Vestfirska þurrviðrið gerir besta harðfiskinn Þeim fækkar sem þurrka fisk á hjöllum en sífellt fleiri kjósa að fara þá leið að þurrka hann við blásara. Fiskþurrkun í hjöllum upp á gamla mátann er enn stunduð á Vestfjörðum en þar segja menn vestfirska þurrviðrið gera besta harðfiskinn. 6.11.2007 19:47
Ósmekklegt að draga Geir inn í málið Forsætisráðherra var tilkynnt um samning um samruna REI og Geysis Green Energy áður en kynningarfundur var haldinn á samrunanum í byrjun október. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ósmekklegt að draga forsætisráðherra inn í málið. 6.11.2007 19:09
Villi sagði Geir frá samrunanum í „tveggja manna tali“ Geir Haarde segir fráleitt að halda því fram að hann hafi lagt blessun sína yfir samruna Geysis Green Energy og REI. Hann segir að Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur hefði ekki kynnt honum efnislega fyrirætlanir um samrunann áður en kynningarfundur var haldinn um málið fyrir borgarstjórnarmeirihlutann. Vilhjálmur hafi reyndar minnst á fyrirætlanirnar í „tveggja manna tali“, án þess að fara efnislega yfir málið. Þetta kom fram í viðtali sem Geir veitti í kvöldfréttum RÚV. Geir hefur neitað að tjá sig um málið við Vísi og fréttastofu Stöðvar 2 í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. 6.11.2007 18:41
Umhverfisráðherra hnekkir ákvörðun Skipulagsstofnunar Umhverfisráðuneytið hefur hnekkt ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð virkjun í Hverfisfljóti skuli ekki sæta mati á umhverfisáhrifum. Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið telji að umhverfisáhrif framkvæmdanna geti orðið umtalsverð og því verði ekki komist hjá því að fallast á kröfu kærenda um að framkvæmdin sæti mati á umhverfisáhrifum. 6.11.2007 17:22
Gísli Marteinn: Björn Ingi er konungur smjörklípunnar Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, deildi hart á Björn Inga Hrafnsson á borgarstjórnarfundi í dag vegna REI-málsins og kallaði Björn Inga meðal annars konung smjörklípunnar. 6.11.2007 17:09
Lögreglan myndar Skagfirðinga Dagurinn virðist hafa verið rólegur hjá helstu lögregluembættum landsins. Á Sauðárkróki eru menn að prófa sig áfram með hraðamyndavél sem er nýjasta græja embættisins. Myndavélin hefur fest nokkra skagfirðingi á ólöglegum hraða það sem af er degi. 6.11.2007 16:49
Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur um helgina Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók alls fjórtán ökumenn fyrir ölvunarakstur um síðustu helgi. Í öllum tilvikum var um að ræða karlmenn á aldrinum 22 til 47 ára. 6.11.2007 15:53
Þriðjungur ökumanna ók of hratt á Korpúlfsstaðavegi Um þriðjungur ökumanna sem ók um Korpúlfsstaðaveg á einni klukkstund eftir hádegi í gær reyndist aka of hratt og á von á sektum. Eftir því sem segir í frétt lögreglunnar voru brot 37 manna mynduð þar sem þeir óku vestur Korpúlfsstaðaveg til móts við Bakkastaði. 6.11.2007 15:23
Jóhannes í Bónus ósáttur með ritstjóra Morgunblaðsins Jóhannes Jónsson hefur sent frá sér grein þar sem hann undrast vinnubrögð Styrmis Gunnarssonar ritstjóra Morgunblaðsins. Skyldi þetta vera enn ein ofsóknin af hálfu ritstjórans í garð fyrirtækja fjölskyldu minnar? Spyr Jóhannes og heldur því einnig fram að fréttamat Morgunblaðsins ráðist af persónulegri óvild ritstjórans. 6.11.2007 15:21
Funda með fjárlaganefnd vegna manneklu á hjúkrunarheimilum Fulltrúar frá Aðstandendafélögum heimilisfólks á hjúkrunarheimilunum Skjóli og Droplaugarstöðum í Reykjavík og Holtsbúð í Garðabæ ganga í fyrramálið á fund fjárlaganefndar Alþingis vegna manneklu á hjúkrunarheimilunum þremur og víðar. 6.11.2007 15:11
Alþingi staðfestir bráðabirgðalög vegna raflagna á varnarsvæðinu Alþingi staðfesti í dag bráðarbirgðalög ríkisstjórnarinnar frá því í júlí um notkun raflagna og raffanga á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. 6.11.2007 15:05
Íslendingar í slagtogi við einn frægasta rasista Bandaríkjanna Heimasíðan skapari.com, sem hefur vakið mikla athygli undanfarna daga fyrir ýmiss konar rasískan áróður sem þar er að finna er haldið út af einum þekktasta talsmanni þjóðernishyggju í Bandaríkjunum. 6.11.2007 14:27
Kexpakkar kallaðir inn Nathan & Olsen hefur af öryggisástæðum kallað inn tiltekna tegund af súkkulaðikremkexi sem nefnist Crawford´s vegna ótta við að í einhverjum kexkökum kunni að leynast örsmáir bútar af vír. 6.11.2007 14:21
OR gerir athugasemdir við leiðara Moggans Orkuveita Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem gerðar eru athugasemdir vegna „meinlegs misskilnings eða vanþekkingar sem fram kemur hjá leiðarahöfundi Morgunblaðsins í dag," eins og það er orðað. 6.11.2007 14:02
Staðfesti að Vilhjálmur hafi kynnt REI málið fyrir forsætisráðherra Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, kynnti samruna Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest fyrir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, áður en kynningarfundur var haldinn um málið fyrir þáverandi borgarstjórnarmeirihluta. Þetta staðfesti Jón Kristinn Snæhólm, fyrrverandi aðstoðarmaður Vilhjálms, í samtali við Vísi. 6.11.2007 13:53
Vill ekki tjá sig um vitneskju sína um REI-mál Geir H. Haarde forsætisráðherra vill ekki tjá sig um ummæli Björns Inga Hrafnssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, um vitneskju Geirs um samruna REI og Geysis Green Energy. 6.11.2007 13:18
Óvenjuleg halastjarna sést með berum augum Óvenjuleg halastjarna, sem að jafnaði er svo dauf að hún sést ekki nema í öflugum sjónaukum, sést nú allt í einu með berum augum, ef skyggni er gott. 6.11.2007 12:54
Baugur aldrei fengið úthlutað lóð í Reykjavík Baugur hefur aldrei fengið úthlutað lóð í Reykjavík undir matvöruverslun samkvæmt yfirlýsingu frá forstjóra Haga. 6.11.2007 12:35
Aukin eftirspurn hækkar matvælaverð Matvælaverð mun hækka í framtíðinni þar sem eftirspurn eftir landbúnaðarvörum mun aukast á sama tíma og vatn til framleiðslunnar verður af skornum skammti segir Martin Hawthorn, yfirmaður stefnumótunar ensku bændasamtakanna. 6.11.2007 12:15
Ekki hægt að yfirtaka íbúðalán á lægri vöxtum en nú gilda Kaupþing hefur tekið fyrir þann möguleika að íbúðakaupendur geti yfirtekið húsnæðislán við bankann á lægri vöxtum en nú gilda. Talið er að þetta geti gert fólki erfitt að selja eignir sínar. 6.11.2007 12:08
Áhrif fíkniefnafundar kemur fram eftir tvo mánuði Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að það komi í ljós eftir einn til tvo mánuði hvaða áhrif umtalsverður fíkniefnafundur á síðustu vikum hafi á fíkniefnamarkaðinn. 6.11.2007 11:50
Toys 'R' Us á Íslandi tekur Bindeez úr sölu Toys 'R' Us leikfangaverslunin, sem opnaði í Kópavogi fyrir skemmstu, hefur ákveðið að taka svokölluð Bindeez leikföng úr sölu. Þetta er gert eftir ábendingar um að hættulegt sé fyrir börn að stinga perlum sem fylgja leikfanginu upp í sig. 6.11.2007 11:32
Auðvelt að fá jólasveina en vantar Grýlu Jólasveinaþjónustur eru nú að fara í fullan gang fyrir jólavertíðina. Yfirjólasveinninn Sæmundur Magnússon hjá jólasveinaþjónustunni Jólasveinarnir segir að ekkert þýði að auglýsa eftir fólki til að leika jólasveina, fólk leiti til hans af afspurn ef það hafi áhuga á að leika jólasvein; „Annað hvort hefurðu þetta í þér eða ekki. Nú sárvantar hins vegar Grýlu.“ 6.11.2007 11:22
Sakar Neytendasamtökin um hótanir Formaður Tannlæknafélags Íslands segir Neytendasamtökin hafa staðið í hótunum í tengslum við könnun samtakanna á verðskrá tannlækna. Samtökin birtu lista þeirra tannlækna sem ekki svöruðu könnuninni. Eðlileg vinnubrögð segir formaður Neytendasamtakanna. 6.11.2007 11:09
Framtíð Caitlin litlu ræðst eftir þrjár vikur „Það kemur fyrir að ég horfi löngunar augum á fólkið koma til landsins. Þá er ég að vona að hann gefist bara upp og hún birtist allt í einu. Ég veit þetta hljómar hálf geðveikislega en ég sveiflast bara upp og niður alla daga,“ segir Dagbjört Rós Halldórsdóttir sem stendur í forræðisdeilu við bandarískan eiginmann sinn. 6.11.2007 11:08
Saman í forvali vegna nýs Herjólfs Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin hafa komist að samkomulagi um að taka saman þátt í forvali vegna útboðs á rekstri ferju sem ætlað er að sigla milli Eyja og Bakkafjöru. 6.11.2007 11:03
Segir forsætisráðherra hafa vitað um samruna fyrir kynningarfund Geir H. Haarde forsætisráðherra var tilkynnt um samruna REI og Geysir Green Energy áður en frægur kynningarfundur var haldinn um samrunann í stöðvarstjórahúsi Orkuveitunnar þar sem saman voru komnir meirihlutinn í borgarstjórn, yfirstjórn Orkuveitunnar og fulltrúar Akraness og Borgarbyggðar. 6.11.2007 10:46
Mikill verðmunur milli tannlækna Allt að þrefaldur verðmunur er á þjónustu tannlækna samkvæmt könnun Neytendasamtakanna. Fjöldi tannlækna neitaði að senda samtökunum upplýsingar um verðskrá. 6.11.2007 10:13
Ung stúlka slapp með skrekkinn Sautján ára stúlka slapp með skrekkinn þegar hún missti stjórn á bíl sínum í fljúgandi hálku á Akureyri í gær. 6.11.2007 07:52
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent