Fleiri fréttir

Clinton hafði flugvélaskipti á Keflavíkurflugvelli

Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafði ör stutta viðdvöl og flugvélaskipti á Keflavíkurflugvelli í morgun, á leið sinni til Færeyja, þar sem hann ætlar að flytja fyrirlestur á ráðstefnu færeyska atvinnulífsins í dag.

Línubáturinn Signý dregin heim aflvana

Björgunarbáturinn Björg frá Rifi kom seint í gærkvöldi til heimahafnar með línubátinn Signýju HU í togi, eftir að vélin í Signýju bilaði á miðunum í gær. Þá var báturinn um 30 sjómílur suður af Látrabjargi. Tveir menn voru um borð og voru þeir aldrei í hættu, enda var blíðskapar veður á Breiðafirði í gær.

Hross hljóp í veg fyrir bíl

Hross hljóp á bíl á Skagafjarðarbraut skammt frá Blönduósi í gærkvöldi og meiddist það mikið, að grípa þurfti til þess að aflífa það á staðnum. Þrír ungir menn voru í bílnum, en engan þeirra sakaði. Hesturinn stökk á aðra hlið bílsins og féll við það í veginn. Bíllinn skemmdist eitthvað, en var ökufær eftir slysið.-

Lögreglan rannsakar hópslagsmál

Lögreglan á Húsavík mun í dag halda áfram rannsókn á hópslagsmálum, sme brutust út á veitingastað í bænum í fyrrakvöld með aðild heimananna og erlendra verkamanna. Einn kjálkabrotnaði, annar fótbrotnaði og var fluttur á sjukrahús á Akureyri, og þrír meiddust talsvert og þurftu að leita læknis. Tildrög eru enn óljós og býst lögregla við að kærur verði lagðar fram á báða bóga í dag.-

Ragnar klökknaði á Gullna svaninum

Ragnar Bragason kvikmyndaleikstjóri klökknaði þegar tilkynnt var á kvikmyndahátíðinni í Kaupmannahöfn í gærkvöldi að mynd hans Börn hefði verið valin besta mynd hátíðarinnar og hlotið Gullna svaninn.

Heilbrigðiskerfið of flókið

Læknafélagið vill að stofnað verði embætti umboðsmanns sjúklinga sem standi vörð um réttindi þeirra. Heilbrigðiskerfið er of flókið og sjúklingar þekkja ekki réttindi sín segir fyrsti kvenformaðurinn í 90 ára sögu Læknafélagsins.

140 börn á biðlista eftir talþjálfun hjá Talþjálfun Reykjavíkur

Talþjálfun Reykjavíkur hefur sagt upp samningi við Tryggingastofnun. Forsvarsmenn fyrirtækisins harma að trúnaðarbrestur hafi orðið milli þeirra og stofnunarinnar. Um hundrað og fjörutíu börn á öllum aldri eru á biðlista eftir að komast í talþjálfun hjá Talþjálfun Reykjavíkur.

Flugvél í Bónus

Baugur gerir þokkalega vel við þá forstjóra sem standa sig í stykkinu ef marka má frétt í breska blaðinu Telegraph.

Dauðadæmd sjávarpláss

Hátt í tugur sjávarplássa er dauðadæmdur, segir Eiríkur Stefánsson, fyrrverandi formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar. Hann er hlynntur því að fólk fái styrk til að flytja frá veikustu byggðunum. Þingmaður Frjálslynda flokksins gagnrýnir að bera eigi fé á fólk til að flytja suður.

Saving Iceland mótmæla í London

Samtökin Saving Iceland hyggja á mótmæli í London gegn ofsóknum íslenskra stjórnvalda gagnvart aðgerðarsinnum samtakanna. Mótmælin munu fara fram á þriðjudag. Samtökin berjast gegn þungri iðnvæðingu á Íslandi. Í yfirlýsingu segir að Ísland reyni að vísa öllum mótmælendum hreyfingarinnar úr landi.

Aflvana bátur undan Snæfellsnesi

Línubáturinn Signý HU frá Blönduósi er nú aflvana út af Snæfellsnesi. Tilkynning barst til hafnaryfirvalda á Rifi upp úr klukkan tvö í dag. Björgunarbáturinn Björg frá Rifi fór til aðstoðar og er nú norður undir Bjargi á leið til línubátsins sem liggur 33 sjómílur frá Rifi. Páll Stefánsson skipstjóri Bjargar segist áætla að ná til Signýjar rétt fyrir klukkan fimm.

Ásatrúarmenn blótuðu undir Hafnarfjalli

Vættarblót ásatrúarfélags Íslands var haldið í Hafnarskógi undir Hafnarfjalli í gærkvöldi. Ásatrúarfélagið heldur nokkur blót yfir árið. Á þeim er drukkið við varðeld til heilla guðum og góðum vættum. Drykkjarhorn með mjöði er látið ganga milli manna sem standa við eldinn.

Vilja strætó um allan Eyjafjörð

Háskólinn á Akureyri kannar nú grundvöll þess að strætó aki um allan Eyjafjörð. Sveitarstjórnarmenn vilja fá stuðning frá ríkinu í það verkefni. Árið 1999 var flutt tillaga á Alþingi um strætó á Eyjafjarðarsvæðinu en þar búa um 25.000 manns. Málið hlaut ekki hljómgrunn þá, en í millitíðinni hefur ýmislegt breyst. Nemendum hefur meðal annars stórfjölgað við Háskólann á Akureyri.

Mótvægisaðgerðir rothögg fyrir sumar byggðir

Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Frjálslyndra furðar sig á því að fólki verði boðinn styrkur af opinberu fé til að flytja ur sjávarplássunum þangað sem atvinnan er - það er, á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir hann í nýjum pistli á heimasíðu sinni. Samþjöppun í sjávarútvegi og fækkun starfa geti orðið svo gott sem rothögg fyrir sumar byggðir, en mótvægisaðgerðirnar séu hvorki fugl né fiskur.

Kviknaði í fjölbýlishúsi í Reykjavík

Eldur kom upp í fjölbýlishúsi að Nýlendugötu 29 í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. Fimmtán manns og tvö börn voru í húsinu, flestir komust út að sjálfsdáðun, en slökkvilið aðstoðaði aðra. Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar reykeitrun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem kom upp í eldhúsi á annarri hæð hússins.

Hoppaði í höfnina á Stokkseyri

Erilsamt var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt. Klukkan fjögur var hún kölluð út þar sem kona hafði hoppað í höfnina á Stokkseyri. Ekki er vitað hvað henni gekk til, en henni var bjargað úr sjónum áður en lögregla og sjúkrabíll komu á staðinn.

Dularfullur eldsvoði á Draugabarnum

Klukkan fimm í nótt kviknaði í stól á Draugabarnum á Stokkseyri. Stóllinn var á svölum hússins þegar kviknaði í honum. Engar skýringar eru á því af hverju hann varð alelda, en staðurinn lokaði tveimur klukkustundum áður en kviknaði í. Lögreglumenn sem voru í útkalli við höfnina tóku eftir reyk frá svölunum og könnuðu málið. Engar frekari skemmdir urðu á staðnum, en stóllinn er ónýtur.

Réðist á lögreglumann í Reykjanesbæ

Lögreglumaður í Reykjanesbæ hlaut talsverða áverka í nótt þegar maður réðist á hann á Hafnargötu og kýldi í andlitið. Lögreglumenn voru að leysa upp slagsmál þegar maðurinn réðist á einn þeirra. Árásarmaðurinn er á tvítugsaldri og var undir áhrifum áfengis. Hann var handtekinn og gistir fangageymslur en verður yfirheyrður seinna í dag.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda á morgun

Úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda verða á hátíð sem hefst í Grafarvogskirkju klukkan 15 á morgun. Menntamálaráðherra setur keppnina sem 52 grunnskólar tóku þátt í. Forseti Íslands heldur ræðu og afhendir verðlaunin. Orka og umhverfi verða í fyrirrúmi í keppninni.

Fræðsla um réttindi samkynhneigðra á Íslandi

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Frosti Jónsson formaður Samtakanna 78 undirrituðu í dag samning um að koma að gerð fræðslubæklings um réttindi samkynhneigðra á Íslandi fyrir útlendinga sem eru búsettir hér á landi.

Kvótaskerðing ekki möguleg í tíð síðustu ríkisstjórnar

Forsætisráðherra segir að ekki hafi verið hægt að grípa til nauðsynlegrar skerðingar veiðiheimilda í tíð síðustu ríkisstjórnar. Eitt það hrikalegasta sem gæti hent Íslendinga væri að missa þorskstofninn og hann ætlaði ekki að láta það gerast í tíð þessarar ríkisstjórnar.

Enginn stuðningur við börn sem eru fórnarlömb kynferðisofbeldis

Enginn stuðningur er við börn sem verða fyrir kynferðisofbeldi líkt og fyrir fullorðin fórnarlömb kynferðisbrota, fyrr en búið er að taka af þeim skýrslu fyrir dómi, segir hæstaréttarlögmaður. Brýnt sé að koma á úrræðum sem veiti börnum og foreldrum þeirra stuðning frá upphafi.

Byltingarkennd tilraun

Verulega mætti draga úr koltvísýringsmengun á Íslandi og víðar í heiminum ef tilgátur vísindamanna um bindingu koltvísýrings í jörðu reynast réttar. Sögulegur samningur var undirritaður í Hellisheiðarvirkjun í dag um byltingarkennda tilraun, segir forseti Íslands.

Ráðherra burt af þingi

Framsóknarmenn vilja að ráðherrar fái ekki að gegna þingmennsku samfara ráðherrastörfum. Það sé mikilvægt til að styrkja þingræðið í landinu.

Birna Jónsdóttir formaður læknafélagsins

Birna Jónsdóttir röngtenlæknir hefur tekið við formennsku Læknafélags Íslands af Sigurbirni Sveinssyni heimilislækni. Sigubjörn hefur gengt formannsembættinu í átta ár, en það er lengsta samfellda seta formanns í félaginu frá árinu 1952. Birna er fyrsta konan í sögu félagsins til að gegna embættinu.

Launafólki tryggð réttindi við uppsögn

Alþýðusamband Norðurlands skorar á Alþingi að fullgilda svo kallaða ILO-samþykkt nr. 158 sem tryggir launafólki lágmarks mannréttindi við uppsagnir úr starfi. Slíkt ákvæði vanti í íslenska löggjöf. Þetta kom fram á 30. þingi sambandsins í dag.

Hrafn vill ólétta hafmeyju

Hrafn Gunnlaugsson vill byggja risastóra kasólétta hafmeyju sitjandi á steini í Laugarnesinu. Í viðtali í Blaðinu í dag segist hann vilja hafa hana jafnstóra og risablokk, svo hún rími vel við friðarsúlu Yoko Ono. Annars væri ekkert gaman að henni.

Wuhan verður vinabær Kópavogs

Vinabæjarsamband var í dag undirritað milli Wuhan borg í Hubei héraði í Kína. Stefnt er að því að auka gagnkvæman skilning og vináttu þjóðanna tveggja.

Fundu 80 kannabisplöntur við húsleit

Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Kópavogi síðdegis en við húsleit hjá honum fannst 1,7 kíló af ætluðu maríjúana. Í tilkynningu frá lögreglu segir að á sama stað hafi fundist 80 kannabisplöntur. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.

Segir óábyrgt að tala krónuna niður

Forsætisráðherra segir málfrelsi ríkja í Sjálfstæðisflokknum til að tala um Evrópumál. Hann segir hins vegar óábyrgt ef menn vilji tala niður gjaldmiðil Íslands. Samband ungra sjálfstæðismanna ályktaði nýlega að tímabært væri að taka til alvarlegrar skoðunar kosti og galla þess fyrir íslenskt hagkerfi, almenning og athafnalíf, að halda úti eigin mynt.

Vill að þriðjungur námslána verði styrkur

Framsóknarflokkurinn vill að þriðjungi námslána verði breytt í styrk ljúki menn námi á tilsettum tíma. Það myndi auka bæði skilvirkni og hagkvæmni í skólakerfinu, segir Birkir Jón Jónsson þingmaður Framsóknar.

Umfangsmikið vísindaverkefni á Íslandi

Umfangsmikið vísindaverkefni sem miðar að bindingu koltvísýrings sem steintegundar í iðrum jarðar verður undirritað við Hellisheiðarvirkjun í dag. Það eru fulltrúar vísindasamfélags og atvinnulífs á Íslandi, Bandaríkjunum og Frakklandi sem innsigla samkomulagið nú á eftir.

Endurheimting aflaheimilda forsenda mótvægisaðgerða

Forsætisráðherra segir forsendur mótvægisaðgerða vegna skerðingar þorskvótans vera þær að þeir sem tapi aflaheimildum fái þær aftur þegar kvótinn aukist á nýjan leik. Aðgerðirnar séu til þess að hjálpa þeim byggðarlögum sem eigi allt sitt undir þorskveiðum þangað til aflaheimildir komi til baka.

Fagna losunarheimildum til stóriðjufyrirtækja

Náttúrverndarsamtök Íslands fagna áformum umhverfisráðherra um úthlutun losunarheimilda til stóriðjufyrirtækja sem kynnt voru í gær. Álfyrirtæki á Íslandi hafi notið sérstakrar undanþágu frá Kyoto-bókuninni fyrir ókeypis losunarheimildum. Stjórnvöld verði að stöðva þessa þróun og; „gera þeim sem menga skylt að borga fyrir mengunarheimildir,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Sakar bæjarfulltrúa á Akureyri um heigulshátt

Félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, Vörður, sakar bæjarfulltrúa flokksins um heigulshátt í ályktun sem var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær. Hin þungu orð eru vegna nýs hlutverks Þóru Ákadóttur í félagsmálaráði Akureyrarbæjar.

Kínversk áhrif í Gerðarsafni

Fjölmargir, og sumir ævafornir, kínverskir dýrgripir verða til sýnis næstu vikurnar í Gerðarsafni í Kópavogi en þar verður Kínverska menningarhátíð sett í dag klukkan þrjú. Fjölbreytt dagskrá verður á menningarhátíðinni. Á sýningunni í Gerðarsafni verða málverk, listmunir og aðrir gripir frá borgarsafni Wuhan í Kína.

Fíkniefni og haglabyssa fundust í Borgarnesi

Tveir menn um tvítugt voru handteknir í Borgarnesi um fimmleytið í nótt fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Gramm af amfetamíni fannst í bílnum og voru báðir látnir gista fangageymslur í nótt. Þeir bíða nú yfirheyrslu. Þá stoppaði lögreglan rúmlega fertugan mann í bænum upp úr miðnætti í nótt með haglabyssu í aftursætinu.

9 milljarðar til jarðvarmaverkefna í Afríku

Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Reykjavík Energy Invest kynnti í gær ásamt foseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni og Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta að Reykjavík Energy ætli að setja 150 milljónir dollara eða 9 milljarða íslenskra króna til jarðvarmaverkefna í Afriku á næstu 5 árum.

Hefur áhyggjur af ástandinu í Mjanmar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hefur miklar áhyggjur af ástandinu í Mjanmar. Þetta kom fram í ræðu hennar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi.

Keyrt á stúlku á Akureyri í nótt

Mikil ölvun og erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt. Keyrt var á stúlku innan við tvítugt á Eimskipafélagsplaninu austast í Strandgötu bæjarins. Tilkynnt hafði verið um hópslagsmál á svæðinu í nótt og þegar lögreglan kom á vettvang var þar hópur fólks um og yfir tvítugt og voru nokkrir með barefli á lofti.

Vatnsleki á Kleppsvegi

Slökkvilið var kallað út á um níu leitið í gærkvöldi vegna vatnsleka á Kleppsvegi. Ofn hafði bilað á sjöundu hæð og lak vatn niður tvær hæðir. Ekki var um mikið vatnsmagn að ræða, en slökkvilið dældi vatni af sjöundu hæðinni og hreinsaði af hinum hæðunum tveimur. Töluvert tjón hlaust af fyrir íbúana.

Hópslagsmál á Klapparstíg

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hópslagsmál á Klapparstíg á sjötta tímanum í morgun. Sex menn tóku þátt í áflogunum og var einn rotaður þegar lögregla kom á vettvang. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Enginn var handtekinn vegna málsins en það er í rannsókn hjá lögreglu.

Lyfjaverð 18.000 kr. hærra á íbúa hér en á Norðurlöndum

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra gerði hátt lyfjaverð hérlendis m.a. að umræðuefni sínu er hann ávarpaði aðalfund Læknafélags Íslands í morgun. "Það gengur ekki að meðallyfjakostnaður á íbúa hér sé 100 og upp í 200 evrum hærri á ári en það sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndunum," segir Guðlaugur Þór. "Þessu verður að breyta."

Svartaþoka á Hellisheiði

Mikil þoka hefur verið og er enn á Hellisheiðinni. Lögreglan á Selfossi beinir því til vegfarenda að fara varlega.

Sjá næstu 50 fréttir