Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dómur í Baugsmálinu í dag Dómur verður kveðinn upp klukkan þrjú í dag í þeim hluta endurákærunnar í Baugsmálinu sem Hæstiréttur vísaði aftur í hérað. Um er að ræða níu heila ákæruliði og hluta tveggja annarra sem héraðsdómur vísaði frá í upphafi maímánaðar eftir ein umfangsmestu réttarhöld í íslenskri réttarsögu. 28.6.2007 11:05
Skiptar skoðanir um ágæti Blairs í hlutverki sáttasemjara Skiptar skoðanir eru á meðal Palestínumanna um ágæti skipunar Tony Blairs í starf sérstaks erindreka Miðausturlandakvartettsins svokallaða. Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas fagnaði tilnefningunni en Hamas, samtök herskárra Palestínumanna eru ekki eins hrifin. 27.6.2007 23:42
Bíll brann í Ármúla Eldur kom upp í bíl í Ármúla klukkan tuttugu mínútur í tíu í kvöld. Verið var að draga bílinn þegar eldurinn blossaði upp. Slökkvilið og lögregla mættu á staðinn og slökktu eldinn en bíllinn er talinn ónýtur. Örsök eldsins er ókunn sem stendur. 27.6.2007 22:23
Sjávarútvegur í Færeyjum vill engan samdrátt Ráðgjafanefnd sjómanna og útgerðarmanna í Færeyjum leggur til að tillögur fiskifræðinga um samdrátt í veiðum við Færeyjar verði algerlega hunsaðar. Einn nefndarmanna segir nánast ekkert hafi verið hlustað á varnaðarorð fræðinganna í tíu ár og reynslan sýni að ráðgjöf þeirra hafi verið vitlaus. 27.6.2007 19:20
Nasdaq og OMX funda í Keflavík Sendinefndir frá Nasdaq og OMX hafa setið á fundum í Reykjanesbæ í allan dag. Frá þessu er greint á heimasíðu Víkurfrétta. Samtals mættu um 30 manns til þessa fundar bandaríska verðbréfamarkaðarins Nasdaq og sænska fyrirtækisins OMX, sem rekur kauphallir á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum. 27.6.2007 19:12
Öryrki eftir gálausan akstur Í einum vetfangi missti fjölskyldumaður í fullri vinnu heilsuna og það líf sem hann áður þekkti - allt vegna bílstjóra sem var að flýta sér milli akreina. Baldvin Jónsson, fyrrverandi formaður Sniglanna, er öryrki í dag og svo fullur af skrúfum að hann þarf röntgenmyndir með til útlanda - svo hann komist í gegnum vopnaleitarhlið flugvallanna. 27.6.2007 19:06
Hakvæmast að stöðva þorskveiðar Samkvæmt mati Hagfræðistofnunar er það besta leiðin til að byggja upp þorskstofninn að stöðva veiðar alveg í nokkur ár. Heildarniðurstaða stofnunarinnar styður tillögur Hafró um stórfelldan samdrátt í þorskveiðum. Hagfræðistofnun metur áhrif þess að 250-550 smaár útgerðir leggi upp laupana. 27.6.2007 19:05
Brýnir heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra tekur gagnrýni sem birtist í minningargrein föður í gær mjög alvarlega. Hann segir athugasemdirnar brýna yfirvöld enn frekar í að taka á þessum málum. 27.6.2007 19:02
380 beinar útsendingar í vetur Ný sjónvarpsstöð, helguð enskri knattspyrnu, hefur útsendingar í ágúst. Beinar útsendingar frá leikjum á Sýn 2 næsta vetur verða nærri fjögur hundruð og íslenskir sjónvarpsáhorfendur fá að sjá markapakka á laugardögum á undan Englendingum sjálfum. 27.6.2007 19:00
Aðsókn að kaffihúsum dregst saman Dæmi eru um að sala á börum hafi dregist saman um allt að 70 prósent eftir að reykingarbannið tók gildi síðustu mánaðarmót. Aðstöðuleysi fyrir reykingarfólk utandyra er helsti orsakavaldur. Starfsfólk segir þó allt annað líf að að standa vaktir eftir breytinguna. 27.6.2007 18:43
Sjávarútvegsnefnd Alþingis ræðir skýrslu Hagfræðistofnunar um aflaregluna Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist telja að nánast sé pólitísk samstaða sé um það að fara að tillögum Hafrannsóknarstofnunar og skera niður afla. 27.6.2007 18:30
Valgerður segir viðsnúning Samfylkingarinnar grátbroslegan Valgerður Sverrisdóttir varaformaður Framsóknarflokksins segir viðsnúning Samfylkingarinnar í stóriðjumálum grátbroslegan. Alcan vill endurnýja raforkusamnings sinn við Landsvirkjun um sex mánuði en niðurstaða Landsvirkjunar gæti ráðið miklu um frekari stóriðjuuppbyggingu í landinu. 27.6.2007 18:30
Ingibjörg Sólrún á leið til Gana Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra heldur í dag af stað til Gana þar sem hún mun sækja leiðtogafund Afríkusambandsins sem hófst 25. júní og lýkur 3. júlí. Á meðan á fundinum stendur munu utanríkisráðherrar álfunnar sitja framkvæmdaráðsfund og á fimmtudag og föstudag mun ráðherrann eiga tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Afríkuríkja. 27.6.2007 18:07
Utanríkisráðherra ætlar að taka fangaflug til nánari skoðunar Utanríkisráðherra ákvað í dag að taka til nánari skoðunar lendingar ákveðinna flugvéla á Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli. Þetta var ákveðið í framhaldi af umfjöllun þings Evrópuráðsins í dag um skýrslu sem fjallar um leynifangelsi og ólöglegt fangaflug CIA. Í skýrslunni er sagt frá fangaflugvélum sem meðal annars eiga að hafa lent hér á landi. 27.6.2007 17:43
Bæjarráð vill nýta fyrirliggjandi næturferðir fyrir Shellmót og goslokahátíð Á bæjarráðsfundi í Vestmannaeyjum í dag var fjallað málefni Herjólfs en Elliði Vignisson bæjarstjóri hefur undanfarið gagnrýnt seinagang yfirvalda við að koma á næturferðum með ferjunni. Ákveðið hefur verið að koma á næturferðum fyrir Shellmót og goslokahátíð en þrýst er á stjórnvöld um að efna loforð um 20 ferðir. 27.6.2007 17:15
Símaskráin hækkar verðið um 246% Skráningar í símaskrá hafa hækkað mikið milli ára. Athugull greiðandi vakti athygli Skessuhorns á þessu. Gjald fyrir hverja aukalínu í símaskrá fór úr 491,25 krónum í 1.210 krónur og á ja.is, sem er um 246% hækkun. Viðkomandi greiðandi sem rekur fyrirtæki á Akranesi hafði 16 línur skráðar í símaskrá, greiddi í fyrra 7.856 krónur fyrir þetta en 19.360 krónur í ár. 27.6.2007 17:12
Kim Larsen með tónleika á Íslandi í haust Íslandsvinurinn Kim Larsen og hljómsveit hans Kjukken koma hingað til lands í haust og halda tónleika í Vodafone-höllinni, nýrri höll Valsmanna. Tónleikarnir fara fram þann 24. nóvember en þetta er í fjórða sinn sem Larsen sækir Ísland heim. 27.6.2007 16:32
Samvinnutryggingar styrkja Bifröst Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar veitti í dag Háskólanum á Bifröst 20 milljóna króna styrk og hvatti til þess að önnur fyritæki sýndu menntastofnunum stuðning með svipuðum hætti. 27.6.2007 15:52
Íslenski refurinn Á Íslandi lifir ein tegund refa villt. Það er tófan eða melrakkinn, sem fengið hefur latneska heitið Alopex lagopus. Tófan settist að á Íslandi í lok ísaldar, fyrir um það bil 10 þúsund árum, en hingað komst hún á hafís. Útbreiðslusvæði tegundarinnar er allt í kringum Norðurheimskautið, bæði á meginlöndum og eyjum, en útbreiðslan er takmörkuð við svæði norðan og ofan barrskóga- og birkibeltisins. 27.6.2007 15:08
Fær bætur vegna slyss við kúasmölun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til þess að greiða 19 ára stúlku nærri tvær milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem hún varð fyrir við kúasmölun hjá manninum. 27.6.2007 14:46
Framkvæmdastjóraskipti hjá Viðskiptaráði Dr. Finnur Oddsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og tekur hann við starfinu af Höllu Tómasdóttur sem lætur af störfum í haust til að stofna eigið fyrirtæki. 27.6.2007 14:23
Ellefu ára piltur undir stýri Selfosslögregla stöðvaði í gær bifreið á sandinum vestan við Óseyrarbrú eftir að hún hafði veitt ökumanni bílsins athygli. Fram kemur á fréttavefnum Suðurland.is að ellefu ára gamall piltur hafi setið undir stýri en forráðamaður hans sat í aftursætinu og leiðbeindi honum við aksturinn. 27.6.2007 13:37
Asparglytta herjar á íslensk tré Meindýrið asparglytta sem herjar á tré hefur í fyrsta sinn fundist hér á landi að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Asparglytta ber latneska heitið Phratora vitellinae og er bjalla en hún er vel þekkt meindýr á trjám af víðiætt í norðanverðri Evrópu. 27.6.2007 13:15
Athygli vakin á pyndingaraðferðum á Austurvelli Íslandsdeild Amnesty International efnir til uppákomu á Austurvelli Laugardaginn 30. júní til að vekja athygli á þeim pyndingaraðferðum sem eiga sér stað í "stríðinu gegn hryðjuverkum". Uppákoman stendur yfir frá 13-17 og eru það ungir Amnesty-félagar sem standa fyrir henni. 27.6.2007 12:36
Björn áfram formaður Þingvallanefndar Björn Bjarnason dómsmálaráðherra verður áfram formaður Þingvallanefndar en hann var kosinn til starfans á fyrsta fundi nýrrar Þingvallanefndar í gær. 27.6.2007 12:34
Ólöglegum innflytjanda bjargað um borð í Búðafell við Möltu Ólöglegum innflytjanda var bjargað um borð í togarann Búðafell úti fyrir ströndum Möltu í síðustu viku. Aðrir þrír björguðu sér með því að hanga á fleka sem skipið dró á eftir sér. Talið er að tuttugu félagar mannanna hafi drukknað þegar lítilli bátskænu þeirra hvolfdi. 27.6.2007 12:19
Kostnaður við nýja Grímseyjarferju yfir 400 milljónir Nýja Grímseyjarferjan er komin á flot. Samgönguráðherra vonast til að hún verði komin í áætlunarsiglingar eftir þrjá mánuði. Forstjóri Vélsmiðju Orms og Víglundar segir deilur um endurbætur nánast leystar. Heildarkostnaður er 130 milljónum meira en áætlað var og fer yfir 400 milljónir króna. 27.6.2007 12:12
Lithái kominn af gjörgæslu Lithái sem höfuðkúpubrotnaði í samkvæmi í Breiðholti aðfararnótt sunnudags var útskrifaður af gjörgæslu í gær. Hann liggur nú á heila og taugadeild. Annar maður sem hlaut stungusár í sama samkvæmi reyndist ekki alvarlega slasaður. 27.6.2007 12:05
Skerðing þorskkvóta kallar á skerðingu í veiðum á öllum bolfisktegundum Sjómenn og útvegsmenn segja að draga verði sjálfkrafa úr veiðum á öllum bolfisktegundum verði þorskvótinn lækkaður niður í 130 þúsund tonn nema að menn vilji gerast brotlegir við lög. 27.6.2007 12:00
Ellý kjörin forseti bæjarstjórnar í stað Gunnars Ellý Erlingsdóttir var einróma kjörin forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á fundi í gær. Hún tekur við af Gunnari Svavarssyni sem gengt hefur stöðunni til þriggja ára en hann sóttist ekki eftir endurkjöri þar sem hann hefur tekið sætið á Alþingi. 27.6.2007 11:58
Hjörtur fagnar úrskurði siðanefndar Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur telst ekki hafa brotið siðareglur Prestafélags Íslands með ummælum sínum um Þjóðkirkjuna. Hjörtur fagnar úrskurðinum og því að deiluaðilar eru hvattir af siðanefndinni til að takast á opinberlega. 27.6.2007 11:56
Ný sjónvarpsstöð kynnt í hádeginu Ný sjónvarpsstöð verður formlega kynnt í hádeginu í dag. Sjónvarpsstöðin, sem fengið hefur nafnið Sýn 2, mun nánast eingöngu sýna efni tengt enska boltanum. Fyrirferðarmest verða beinar útsendingar úr ensku Úrvalsdeildinni, en einnig verða sendar út beinar útsendingar frá leikjum úr 1. deildinni. 27.6.2007 11:49
Tyrkir vilja samvinnu í orkumálum Ólafur Ragnar Grímsson, er nú staddur í Istanbúl Tyrklandi á ráðstefnu OECD um framfarir þjóða. Þangað var honum boðið til að flytja erindi um loftlagsbreytingar og orkumál. Forsætisráðherra Tyrklands hefur óskað eftir fundi með forsetanum til þess að ræða samvinnu í orkumálum. 27.6.2007 11:45
Reyndi að ræna matvöruverslun vegna ótta við handrukkara Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa reynt að ræna peningum úr verslun 10/11 við Dalveg í Kópavogi á fimmtudaginn var. 27.6.2007 11:08
Meirihluti trúir á kraft Snæfellsjökuls Liðlega helmingur lesenda fréttavefjarins Skessuhorns á Vesturlandi telur að sérstakur kraftur búi í Snæfellsjökli samkvæmt óformlegri könnun gerð var á vefnum. 27.6.2007 10:32
Lansbjörg hvetur til aðgæslu í sundi Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna tíðra slysa í sundlaugum undanfarið. Félagið vill með því minna á öryggisatriði varðandi sundferðir. 27.6.2007 10:31
Ökumaður bifhjóls keyrði útaf við Hvalfjarðargöng Bifhjól fór útaf Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöngin um hálfátta leytið í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er óljóst um orsakir þess að hjólið fór útaf veginum en meiðsli ökumanns munu hafa verið minniháttar. 26.6.2007 22:24
Kópavogsbær neitar að svara Mannlífi Kópavogsbær hefur synjað beiðni tímaritsins Mannlífs um upplýsingar vegna viðskipta bæjarins við verktakafyrirtæki blaðið segir með ýmsum hætti tengjast Gunnari Birgissyni bæjarstjóra. Þetta kemur fram á heimasíðu tímaritsins. 26.6.2007 21:42
Þúsundir fylgdust með Rosberg í Smáralind Á sjötta þúsund manns horfðu á Nico Rosberg, formúluökumann hjá Williams liðinu, aka formúlubíl sínum í blíðskaparveðri við Smáralind í dag. Mikil öryggisgæsla var á staðnum til að tryggja öryggi áhorfenda enda náði bíllinn allt að 160 km hraða á tímabili. 26.6.2007 21:24
Hringferð á fjarstýrðum bíl lokið Leiðangursmenn sem óku fjarstýrðum bíl hringinn í kringum landið hafa lokið ferðinni en þeir komu í Tómstundahúsið klukkan hálf átta í kvöld. Sex manns voru í hópnum sem fylgdi bílnum og var lagt af stað klukkan hálf þrjú aðfararnótt sunnudagsins síðasta. Hringferðin tókst vonum framar að sögn bílstjóra bílsins. 26.6.2007 20:10
Heilsast vel eftir slys í Sundlaug Akureyrar Sex ára dreng var bjargað með miklu snarræði frá drukknun af sundlaugargestum í sundlaug Akureyrar í gær. Drengnum heilsast nú vel. Sjúkraflutningamaður sem kom að björguninni segir mikilvægt að foreldrar fylgist vel með börnum sínum í sundi. 26.6.2007 19:36
Faðir gagnrýnir stjórnvöld í minningargrein um dóttur sína Rúmlega tvítug kona, sem lést eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af fíkniefnum, var borin til grafar í dag. Faðir konunnar segir í minningargrein um hana að langbrýnasta verkefni samfélagsins sé að sporna gegn eiturlyfjasölu. 26.6.2007 19:16
Hjúkrunarfræðingar flýja álag á spítölunum Dæmi eru um að sjúklingar þurfi að dvelja á bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut í allt að fjóra sólarhringa vegna skorts á öðrum úrræðum. Þetta segir hjúkrunarfræðingur sem þar hefur starfaði í á sjötta ár en hefur nú sagt upp störfum eftir að hafa fengið nóg af því erfiða ástandi sem ríkir á bráðadeildinni. 26.6.2007 19:11
Biðlistum Greiningastöðvarinnar eytt á tveimur árum Eftir tvö ár verður búið að eyða biðlistum barna hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að hefja aðgerðir til að tryggja styttri biðtíma eftir greiningu en hann er nú allt að þrjú ár. 26.6.2007 19:05
Þjóðhagslega hagkvæmt að draga úr þorskveiðum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir þjóðhagslega hagkvæmt að draga verulega úr þorskveiðum á næsta ári. Minni þorskveiði mun koma harðast niður á Vestfirðingum, þar sem þorskveiðar vega mikið í atvinnumálum heimamanna. 26.6.2007 18:56