Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neyðumst til að taka upp evruna fyrr eða síðar Íslendingar munu ekki komast hjá því að taka upp evruna á næstu árum að mati Þórólfs Matthíassonar, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í viðtali sem birtist í nýjasta tölublaði Samiðnar, Sambands Iðnfélaga. Hann segir einboðið að vextir muni lækka hér á landi við upptöku evrunnar og að verðtrygging muni heyra sögunni til. 15.5.2007 15:27
Samskip dæmt til að greiða ekkju sjómanns bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Samskip til að greiða ekkju skipverja, sem lést þegar skip Samskipa sökk árið 1997 á leið sinni frá Íslandi til meginlands Evrópu, 1,8 milljónir króna vegna missis framfæranda. 15.5.2007 15:24
Reykjavíkurborg tapar 4,3 milljarða króna Tap Reykjavíkurborgar á árinu 2006 nemur rúmum 4,3 milljöðrum króna þegar horft er til bæði A- og B-hluta rekstrarreiknings. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Er þetta um sex milljörðum króna lakari afkoma en gert var ráð fyrir í í fjárhagsáætlun ársins 2006 15.5.2007 14:23
Norðurál skilar frummatsskýrslu vegna álvers í Helguvík Skipulagsstofnun hefur borist frummatsskýrsla Norðuráls vegna mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs álvers í Helguvík sem framleiða mun 250 þúsund tonn af áli. 15.5.2007 13:57
Keyrði á tvo bíla og stakk af Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn eftir þriggja bíla árekstur í Breiðholti síðdegis í gær vegna gruns um ölvunarakstur. Maðurinn keyrði á tvo bíla sem voru kyrrstæðir fyrir aftan strætisvagn og stakk síðan af. Litlu munaði að hann æki yfir ófríska kona. 15.5.2007 13:44
Rannsaka ólöglegar skotveiðar í Eyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú tvö mál sem snúa að meintum brotum á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum. Grunur leikur á að skotveiði verið stunduð af nálægt fuglabjargi, annars vegar við Stórhöfða og hins vegar við Smáeyjarnar. 15.5.2007 13:30
Þrír unglingspiltar sýknaðir af ákæru um nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þrjá unglingspilta, fædda á árunum 1988 og 1989, af ákæru um að hafa nauðgað 16 ára stúlku í húsi í Reykjavík í febrúar í fyrra. 15.5.2007 13:23
Minnstu munað stórtjón yrði í Reykjanesvirkjun Minnstu munaði að stórtjón yrði í Reykjanesvirkjun þegar sjór flæddi þar inn um brostið rör og gufa fyllti verksmiðjuhúsið í kjölfar rafmagnsbilunar í gær. 15.5.2007 13:00
Telja bæjarstjóra hafa svikið gefin loforð Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur svikið gefin loforð í tengslum við framkvæmdirnar við Álafossveg að mati fulltrúa Varmársamtakanna. Gjaldkeri samtakanna segir ekkert samráð verið haft við íbúa vegna þeirra framkvæmda sem hófust í gær. Íbúar kölluðu á lögreglu morgun, í annað skiptið á innan við einum sólarhring til að stöðva framkvæmdirnar. Bæjarstjóri segir íbúa fara með rangt mál og ekki sé búið að svíkja nein loforð. 15.5.2007 12:59
Ágætar líkur á áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ágætar líkur á að ríkisstjórnarflokknum takist að endurnýja samstarf sitt. Formenn stjórnarflokkanna vonast til að málin skýrist innan fárra daga. 15.5.2007 12:29
Atkvæðamisvægi tryggir að stjórnin heldur velli Ef öll atkvæði í landinu hefju jafnmikið vægi hefðu stjórnarflokkarnir fengið 30 þingmenn og fallið en stjórnarandstaðan fengi 33 þingmenn. 15.5.2007 12:15
Miklar skemmdir unnar í háhýsi á Akranesi Mikið tjón var unnið í háhýsi sem er í byggingu við Stillholt á Akranesi á kosninganótt. Fram kemur í dagbók lögreglunnar að aðkoman hafi verið með hreinum ólíkindum, rafmagnstöflur voru eyðilagðar, málningu hellt niður um lyftugöng og yfir lyftuna, rúður brotnar og innréttingar skemmdar. 15.5.2007 11:54
Íbúar við Álafossveg kalla á lögreglu til að stöðva framkvæmdir Íbúar við Álafossveg hafa aftur kallað á lögreglu til að stöðva framkvæmdir við vegagerð á svæðinu. Þetta er í annað skipti á innan við sólarhring sem íbúar neyðast til að kalla á lögreglu vegna málsins. Deilt er um leyfi vegna framkvæmdanna. 15.5.2007 11:47
Hlusta eftir jarðskjálftum og hljóðum hvala Varðskip Landhelgisgæslunnar hefur að undanförnu lagt út fimm hlustunardufl í hafið umhverfis landið, til að hlusta eftir jarðskjálftum og hljóðum hvala. Verkið er unnið fyrir Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og bandarísku haffræði- og veðurstofuna. 15.5.2007 11:44
Heimasíða Kolviðar opnuð og fyrsta bifreiðin kolefnisjöfnuð Heimasíða kolefnissjóðsins Kolviðar var opnuð með formlegum hætti í Grasagarði Reykjavíkur í morgun að viðstöddum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. 15.5.2007 11:38
Neyðast til að gera Björn Bjarnasona að ráðherra Sjálfstæðisflokkurinn er tilneyddur til að gera Björn Bjarnason að ráðherra í nýrri ríkisstjórn til að svara atlögu Jóhannesar Jónssonar í Bónus að mati Björns Inga Hrafnssonar, oddvita framsóknarmanna í Reykjavík. Hann segir að öðrum kosti sé forysta flokksins að taka undir gagnrýni Jóhannesar á embættisfærslur Björns. 15.5.2007 11:28
Á 150 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu fimm manns fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut í nótt og mældist sá sem hraðast ók á 150 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. 15.5.2007 11:19
Landsbankinn opnar nýtt útibú Landsbankinn opnar nýtt útibú við Vínlandsleið í Grafarholti í dag en útibúið tekur við af Grafarvogsútibúi. Hið nýja húsnæði er mun stærra en það gamla og mun þjónusta einstaklinga jafnt sem fyrirtæki. 15.5.2007 10:45
DHL harmar misbrest í afgreiðslu utankjörfundaratkvæða Flutningafyrirtækið DHL hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mistök við afgreiðslu utankjörfundaratkvæða sem send voru frá Boston eru hörmuð. Starfsmenn sem sinna öryggiseftirliti í borginni ákváðu að kanna innihald umslagsins nánar. Vanalega er það ekki gert hafi umslaginu verið lokað í viðurvist starfsmanna DHL. Fyrirtækið lítur málið mjög alvarlegum augum segir í tilkynningunni. 14.5.2007 23:41
Óvenju mörg umferðaróhöpp um helgina Óvenju mörg umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu um nýliðna helgi, eða 69 talsins. Á vef lögreglunnar kemur fram að þetta sé meira en gengur og gerist. 14.5.2007 22:38
Framsóknarmenn funda á Hverfisgötu Framsóknarmenn sitja nú á fundi í höfuðstöðvum flokksins við Hverfisgötu. Á fundinum eru ráðherrarnir Jón Sigurðsson og Jónína Bjartmarz sem féllu út af þingi í Alþingiskosningunum um helgina. Auk þeirra sitja fundinn aðrir þingmenn flokksins. 14.5.2007 22:14
Ferðamaður slasaðist í Surtshelli Erlendur ferðamaður slasaðist lítilsháttar í Surtshelli í eftirmiðdaginn í dag og var fluttur með sjúkrabíl á Akranes. Þar var gert að sárum mannsins sem er frá Kanada. Hann datt í hellinum og fékk áverki á höfuð. Sauma þurfti skurð á enni mannsins en hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu á Akranesi undir kvöld. 14.5.2007 21:53
Keyrt á dreng við KR völlinn Fólksbifreið ók á átta ára gamlan dreng á Kaplaskjólsvegi við KR áhorfendastúkuna um níu leitið í kvöld. Drengurinn var á reiðhjóli og með hjálm, og mun hafa slasast lítillega að sögn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Sjúkralið kom á vettvang og hlúði að drengnum en hann er nú til skoðunar á slysadeild. 14.5.2007 21:29
Endurnýjun á samstarfi D og B nauðsynleg Geir H. Haarde sagði í dag að endurnýjun á sáttmála milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar væri nauðsynleg og hugsanlega breytt verkaskipting eftir fylgistap framsóknar í kosningunum. Ekki væri þó þörf á stjórnarmyndunarviðræðum nú þar sem stjórnin hefði haldið velli. Talsverðar efasemdir hafa heyrst meðal manna í röðum flokksins hvort endurnýja eigi samstarf við Framsókn. 14.5.2007 20:53
Athyglissjúkt andapar í tilhugalífinu Andarsteggur sem átti leið um Skaftahlíðina beitti afar óvenjulegri aðferð til að ganga í augun á kollu sem var þar skammt hjá. Hann vildi ekkert gefa upp um það hvort aðferðin væri algeng í tilhugalífi anda en svo virðist sem hún hafi borið árangur. 14.5.2007 20:41
Niðurstöður kosninga í samræmi við veður Niðurstöður kosninganna á laugardag eru í góðu samræmi við veðrið á kjördag. Eins og greint hefur verið frá virðast náin tengsl vera á milli veðurs á kjördag og úrslita kosninga. Sigurður Þ. Ragnarsson bar saman úrslit kosninganna við veðrið á kjördag og komst að ýmsu forvitnilegu eins og fréttin hér ber með sér. 14.5.2007 20:30
Kvótasvindl fyrirtækis á Norðurlandi til rannsóknar Fiskistofa hefur til rannsóknar stórfellt kvótasvindl hjá fiskvinnslufyrirtæki á Norðurlandi. Fyrir liggur vitnisburður um að þetta fyrirtæki hafi landað framhjá vigt að minnsta kosti þúsund tonnum af þorski á ári í sex ár. Með þessu hefur verið skotið undan verðmætum uppá vel yfir hálfan annan milljarð króna. 14.5.2007 20:21
Stjórnin hefði fallið ef vægi atkvæða væri jafnt Ef öll atkvæði í landinu hefju jafnmikið vægi hefðu stjórnarflokkarnir fengið 30 þingmenn og fallið en stjórnarandstaðan fengi 33 þingmenn. Mismörg atkvæði eru á bak við hvern þingmann samkvæmt núverandi kosningakerfi. Þetta gerir það að verkum að stjórnarflokkarnir halda meirihluta þingmanna - 32 - þrátt fyrir að stjórnarflokkarnir séu að fá samtals minnihluta atkvæða eða 48,3 prósent. 14.5.2007 20:14
Útstrikanir Björns enn í talningu Útlit er fyrir að útstrikanir á Birni Bjarnasyni og Árna Johnsen verði til þess að færa þá niður um eitt sæti á listum sínum. Enn er verið að telja atkvæði með útstrikunum. Á Suðurlandi strikaði ríflega fimmtungur kjósenda flokksins yfir nafn Árna Johnsen. Þetta veldur því að Kjartan Ólafsson færist upp fyrir Árna og verður annar kjördæmakjörinn þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi en Árni verður þriðji. 14.5.2007 19:22
Josh Groban á Íslandi Bandaríski tónlistarmaðurinn Josh Groban treður upp í Laugardalshöllinni á morgun. Groban sem kom til landsins í gær er heillaður af landi og þjóð. 14.5.2007 19:14
Heilsast vel á afmælisdeginum Forseti Íslands hafði í nógu að snúast í dag þegar barnahópur heimsótti hann á afmælisdeginum. Heilsa forsetans er með besta móti en aðeins er rúm vika síðan hann var fluttur á spítala með hraði. Hann segir atvikið ekki hafa áhrif á ákvörðun sína um hvort hann bjóði sig aftur fram sem forseta. 14.5.2007 19:10
Sætar stelpur á glugga Geirs Guðni Ágústsson varaformaður Framsóknarflokksins segir bæði Samfylkingu og Vinstri græna komna á gluggann hjá Geir Haarde til að vera næstsætasta stelpan á ballinu. Hann segir alveg ljóst að Framsóknarflokkur gefi eftir ráðuneyti til Sjálfstæðisflokks, endurnýi flokkarnir samstarf sitt. 14.5.2007 19:07
Tilbúinn að aðstoða ef til þess kemur Því var velt upp í aðdraganda kosninganna hvert hlutverk Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, gæti orðið við myndun ríkisstjórnar eftir kosningar. Sjálfur segir hann eðlilegast að stjórnmálaflokkarnir leysi málið sín á milli en hann sé þó tilbúinn að aðstoða ef til þess kemur. 14.5.2007 19:06
Breiðþota lenti með veikan farþega Breiðþota Air France flugélagsins af Boeing 777-300 gerð millilenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis í dag með veikan farþega. Sjúkrabifreið ók með manninn á sjúkrahús í Reykjavík. Vélin var á leið frá París til Los Angeles í Kaliforníu þegar ákveðið var að lenda hér á landi. 14.5.2007 18:17
Sautján ára sviptur á 171 km Sautján ára piltur var sviptur ökuréttindum um helgina þegar hann mældist á 171 km hraða á Vesturlandsvegi. Einungis þrjár vikur eru síðan pilturinn fékk bílpróf. Að sögn lögreglu voru alls 69 umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina og er það yfir meðallagi. Í sjö tilfellanna var grunur um ölvun, eða áhrif lyfja. 14.5.2007 17:53
Helgi Tómasson sæmdur stórkrossi fálkaorðunnar Helgi Tómasson var sæmdur stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu við tilfinningaþrungna athöfn á Bessastöðum í dag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti Helga verðlaunin sem eru æðsta viðurkenning lýðveldisins til einstaklinga. Halldór Laxness hlaut viðurkenninguna á sínum tíma. 14.5.2007 17:35
Fangelsi og miskabætur vegna líkamsárásar Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, þar af tvo mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa ráðist á annan mann, kýlt hann í jörðina og svo sparkað í hann. 14.5.2007 16:56
Eins mánaðar fangelsi fyrir að vera með falsað vegabréf Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmenskan ríkisborgara í eins mánaðar fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi. Upp komst um brotið þegar maðurinn hugðist kaupa sér flugmiða á Reykjavíkurflugvelli til Færeyja í desember síðastliðnum en hann var þá í farbanni. 14.5.2007 16:45
Dæmdur í fangelsi fyrir ofsakstur Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af þrjá óskilorðsbundna, fyrir ofsakstur. Þá var manninum einnig gert að greiða 300 þúsund krónur í sekt til ríkissjóð. 14.5.2007 16:35
Stolni sendibíllinn fannst Hvítur sendibíll sem var stolið fyrir utan Nóatún í porti JL hússins í hádeginu í dag fannst síðdegis í Yrsufelli, óskemmdur. Sendibíllinn er frá heildsölunni Bugt og var að koma með vörur í verslunina. Lyklarnir voru í bílnum. Þjófurinn beið færis eftir því að ökumaðurinn færi inn í verslunina og keyrði svo á brott. 14.5.2007 16:33
Reykjavík styrkir björgunarsveitir um 18 milljónir Reykjavíkurborg mun styrkja fjórar björgunarsveitar á höfuðborgarsvæðinu um 18 milljónir króna á næstu þremur árum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, undirritaði samkomulag þessa efnis í dag. 14.5.2007 16:25
Fjögurra mánaða fangelsi fyrir heimilisofbeldi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gagnvart sambýliskonu sinni. Var honum gefið að sök að hafa kýlt hana í andlit og höfuð þannig að hún hlaut skurð á höfði, fyrir ofan efri vör og missti fjórar tennur. 14.5.2007 16:16
Kanna verður sein viðbrögð vegna veikinda við Kárahnjúka Kanna verður betur afhverju ekki var brugðist fyrr við þegar hópur vinnumanna veiktist við Kárahnjúkavirkjun í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í nýútkomnum Farsóttafréttum sóttvarnarlæknis. 14.5.2007 15:26
Haraldur tekur við af Ragnheiði Ákveðið hefur verið að Haraldur Sverrisson taki við af Ragnheiði Ríkharðsdóttur sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ í sumar þegar Ragnheiður heldur til starfa á Alþingi. 14.5.2007 15:08
Kosningakerfið andsnúið Frjálslynda flokknum Kosningakerfið er andsnúið Frjálslynda flokknum að mati Guðjóns Arnars Kristjánssonar, formanns Frjálslynda flokksins. Hann segir atkvæði greidd flokknum nýtast illa enda séu þingmenn frjálslyndra með flest atkvæði á bak við sig. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins Besta. 14.5.2007 14:49