Fleiri fréttir

Fækka þarf apótekum um þriðjung

Fækka þarf apótekum á Íslandi um þriðjung til að lækka lyfjaverð, segir formaður Lyfjagreiðslunefndar. Lyf á Íslandi eru sextíu prósentum dýrari en lyf að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Varnarsamkomulag mögulega í höfn

Líklegt má telja að samkomulag um varnarsamstarf Íslands og Noregs á Norður-Atlantshafi takist á fundi Atlantshafsbandalagsþjóða sem haldinn verður í Ósló í Noregi í lok vikunnar. Þá munu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, eiga tvíhliða fund.

Enginn útlendingahatursflokkur

Við erum enginn útlendingahatursflokkur sagði frambjóðandi Frjálslynda flokksins á vinnustaðafundi í dag. Innflytjenda- og sjávarútvegsmál voru frambjóðendum flokksins ofarlega í huga á fundinum en fundarmenn höfðu meiri áhuga á að ræða hvort svonefnt kaffibandlag stjórnarandstöðuflokkanna haldi.

Á þriðja þúsund manns hafa sótt um vinnu

Undirbúningur að umhverfismati fyrir álver Alcoa á Húsavík er að hefjast eftir að fyrirtækið ákvað að hefja þriðja áfanga að undirbúningi að byggingu álvers þar. Hátt á þriðja þúsund manns hafa sótt um starf hjá Alcoa Fjarðaráli á Reyðarfirði.

Ný hús tilbúin innan tveggja ára

Borgarstjórinn í Reykjavík vonar að ný og endurbyggð hús verði risin á horni Lækjargötu og Austurstrætis innan tveggja ára. Hann hefur falið embættismönnum að hefja viðræður við eigendur húsanna um kaup borgarinnar á þeim og reiknar með niðurstöðu öðru hvoru megin við mánaðamótin.

Samið um orkusölu vegna álvers í Helguvík

Norðurál og Hitaveita Suðurnesja undirrituðu í dag samning um orkusölu til fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík. Samkvæmt samningnum mun HS útvega Norðuráli raforku fyrir álverið í Helguvík, þar á meðal allt að 150 megavött fyrir fyrsta áfanga álversins sem miðast við 150.000 tonna ársframleiðslu.

Lá við vinslitum Ingibjargar Sólrúnar og Össurar

Gróið hefur um heilt eftir að átök urðu um formennsku í Samfylkingunni milli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar. Össur segir þó að litlu hafi mátt muna að uppúr vináttu þeirra slitnaði alveg.

Geir og Guðni væntanlega verið teknir til bæna

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, gerði karlrembu og viðhorf til kvenna í pólitík að umræðuefni sínu í óvenju beinskeyttri ræðu við Háskólann á Akureyri í dag. Hún nafngreindi meðal annars nokkra karlkyns stjórnmálamenn sem að hennar mati hafa sýnt kollegum sínum af gagnstæða kyninu óvirðingu.

Segja kvótasölu ríkisins hækka matarverð

Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, mótmæla því að frítollakvótar vegna innflutnings kjöts og osta skuli hafa verið boðnir upp og seldir fyrir rúmar 430 milljónir króna á dögunum. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að kvótauppboðin séu andstæð yfirlýstum markmiðum ríkisstjórnarinnar um lækkun matvöruverðs og hugmyndum um frítollakvóta. Samtökin segja að ríkið geti hagnast um 600 milljónir á ári.

Vilja stýrimannanám til Vestmannaeyja

Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja vill hefja stýrimannanám í Vestmannaeyjum. Þannig yrði samstarf milli Fjöltækniskólans í Reykjavík og Framhaldsskóla Vestmannaeyja, en námið yrði hluti af stúdentsprófi. Nú er einungis hægt að sækja skipstjórnarnám í Fjöltækniskólanum í Reykjavík. Elliði segir að það hafi orðið til þess að stöðugt hafi dregið úr aðsókn í námið.

Silja verðlaunuð fyrir Wuthering Heights

Silja Aðalsteinsdóttir hlaut í dag, á degi bókarinnar, Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á verkinu Wuthering Heights eftir Emily Brontë sem Bjartur gaf út á síðasta ári. Silja tók við verðlaununum úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, við athöfn að Gljúfrasteini fyrr í dag.

Sektaður fyrir að valda hættu og hneykslan

17 ára drengur frá Mosfellsbæ var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir brot á áfengis- og umferðarlögum. Hann var ákærður fyrir að valda „hættu og hneykslan á almannafæri”, eins og segir í ákæru, með því að sitja uppi í afturrúðu bifreiðar sem ók eftir Austurvegi á Selfossi í desember 2006.

Gróðurhúsalömpum stolið í Hveragerði

Fimm gróðurhúsalömpum var stolið úr gróðurhúsi í Gróðurmörk í Hveragerði í gærmorgun. Lamparnir komu þó fljótlega aftur í leitirnar. Líklegt þykir að þjófnaðurinn tengist ræktun kannabisefna.

Fer gaumgæfilega yfir húsnæðismál ríkisins

Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um hagkvæmni af sölu á fasteignum ríkisins afar athyglisverða. Hann segir að farið verið gaumgæfilega yfir niðurstöður skýrslunnar. Breytingar verði þó ekki gerðar á skömmum tíma eða umhugsunarlaust. Auk þess myndu þær kalla á breytingar á fjárlögum.

Margir sektaðir fyrir hraðakstur

Alls voru 44 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku. Þá voru fjórir sektaðir fyrir að tala í síma í akstri án þess að nota handfrjálsan búnað.

Veitingahúsalisti ekki verið birtur

Samtök ferðaþjónustunnar hafa ekki ákveðið hvort þau ætli að bregðast við könnun Neytendastofu sem sýndi að meirihluti veitingahúsa hafa ekki lækkað hjá sér verð eftir fyrsta mars. Neytendastofa hefur ekki birt lista yfir þau veitingahús sem lækkuðu.

Íslenskt þjóðfélag undir smásjánni

Íslensk þjóðfélagsfræði verður viðfangsefni ráðstefnugesta á Akureyri 27. til 28. apríl næstkomandi. Á ráðstefnunni verða kynntar margvíslegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina.

Lyfjaverð í Evrópu næst hæst á Íslandi

Lyfjaverð á Íslandi er það næst hæsta á evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Af þeim 33 löndum sem könnunin náði til var lyfjaverð aðeins hærra í Sviss.

Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson fluttur til Þýskalands

Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson, skip Samherja, verður fluttur út til Þýskalands í sumar og mun framvegis gera út frá Cuxhaven. Um 26 menn eru í áhöfn skipsins og hefur flestum þeirra nú þegar verið boðin önnur vinna hjá fyrirtækinu.

Fimm lífeyrissjóðir sameinast

Stjórnir fimm lífeyrissjóða hafa undirritað viljayfirlýsingu um að sameina sjóðina. Landsbanki Íslands mun sjá um rekstur sjóðanna ef af sameiningu verður en sjóðsfélagar verða um sex þúsund talsins.

Rannsókn á afleiðingum tekjutengingar ellilífeyris

Afleiðingar þess að afnema tekjutengingu ellilífeyris og bóta til öryrkja eru skoðaðar í nýrri rannsókn Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem kynnt er í dag. Hún ber heitið "Framleiðnimæling og ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja." Í rannsókninni er gerð greining á starfsmannaskorti í atvinnulífinu, með sérstakri áherslu á verslun. Einnig eru hugsanlegar lausnir skoðaðar.

Segir Steingrím J. forhertan

Steingrímur J. Sigfússon er forhertur stuðningsmaður landbúnaðarstefnu sem á stóran þátt í uppblæstri og gróðureyðingu. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, í harðri gagnrýni á formann Vinstri grænna í Silfri Egils í dag, og sagði Steingrím auk þess slá skjaldborg um okurvexti og okurverð.

Íslensku þýðingaverðlaunin afhent á morgun

Íslensku þýðingaverðlaunin verða afhent í þriðja sinn á morgun en sex þýðendur eru tilnefndir fyrir verk sín. Afhendingin fer að venju fram á Gljúfrasteini og mun forseti Íslands afhenda verðlaunin sem nema 400 þúsund krónum.

Á þriðja tug kólumbískra flóttamanna til landsins

Á þriðja tug flóttamanna kemur hingað til lands í sumar frá Kólumbíu. Ákveðið var að taka á móti flóttamönnum þaðan vegna góðrar reynslu á móttöku þeirra hér á landi en svipaður fjöldi kom til Íslands frá Kólumbíu árið 2005.

Svikin loforð rót vandans

Sviðsstjóri geðdeilda Landspítalans segir rúmlega fimmtíu sjúklinga bíða inn á deildum spítalans eftir viðvarandi búsetuúrræðum. Vegna þeirra komast ekki aðrir sjúklingar að inn á geðdeildir spítalans því þær séu ætíð yfirfullar. Hún segir svikin loforð stjórnvalda við geðsjúka varðandi búsetuúrræði rót vandans.

Kaupviðræður hefjast á morgun

Samningaviðræður Reykjavíkurborgar um kaup á lóðunum tveimur þar sem húsin í miðborginni brunnu síðastliðinn miðvikudag hefjast á morgun. Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður vill að fimmtíu til sextíu hæða glerhýsi verði byggt á lóðinni.

Lagði bílnum upp á stein

Ökumaður í Öskjuhlíðinni í Reykjavík í dag virðist ekki hafa tekið eftir því að búið var að loka veginum sem liggur um hlíðina með steini og áfastri keðju. Keyrði hann því beint á steininn með þeim afleiðingum að bíllinn fór upp á steininn og sat þar fastur.

Andstaða við flugvöll á Hólmsheiði

Borgaryfirvöld mega búast við harðri andstöðu gegn flugvelli á Hólmsheiði frá íbúum Grafarholts. Hver einasti íbúi hverfisins, sem Stöð tvö innti álits í dag, lýsti sig andvígan hugmyndinni. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur sömuleiðis miklar efasemdir um flugvöllinn en hann yrði að stórum hluta í umdæmi Mosfellsbæjar.

Krían er komin

Krían er komin. Frá þessu greinir vefur fuglaáhugamanna á Hornafirði.

Garðar á toppinn í Bretlandi

Plata Garðars Cortes er kominn í fyrsta sæti sígildra platna í Bretlandi, en listinn verður birtur á morgun. Sjaldgæft er að frumraun klassísks söngvari nái jafn góðum árangri.

Ók á grindverk

Karlmaður á tvítugsaldri slasaðist lítillega í Keflavík í dag þegar hann missti stjórn á móturhjóli með þeim afleiðingum að hann keyrði á grindverk.

Framsókn og Samfylking tapa fylgi í Suðurkjördæmi

Framsóknarflokkurinn tapar einum þingmanni og Samfylkingin tveimur í Suðurkjördæmi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkissjónvarpið og Morgunblaðið í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tveimur þingmönnum.

Lögreglan verst frétta

Ekkert hefur enn komið út úr rannsókn lögreglu á eldsupptökum í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn miðvikudag og verst lögregla allra frétta í málinu.

Ríkisstjórnin eykur þingmeirihluta sinn

Ríkisstjórnin heldur velli og stjórnarflokkarnir auka þingmeirihluta sinn, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag. Saman fengju þeir 36 þingmenn, tveimur fleiri en í síðustu þingkosningum. Hvorki Frjálslyndir né Íslandshreyfingin næðu inn mönnum á þing, samkvæmt könnuninni.

Allir helstu þjóðvegir færir

Allir helstu þjóðvegir landins eru færir samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálka er á heiðum á Vestfjörðum og hálkublettir víða á Norðausturlandi. Ófært er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Nægur snjór í Hlíðarfjalli

Opið verður í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag frá klukkan tíu til fimm. Nægur snjór er á svæðinu og allar brautir opnar.

Orri Vigfússon hlýtur Goldman umhverfisverðlaunin

Orri Vigfússon, formaður formaður verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), hlýtur Goldman umhverfisverðlaunin í ár. Verðlaunin fær Orri fyrir baráttu sína fyrir verndun laxastofnsins í Norður Atlantshafi. Í tilkynningu frá Goldman stofnuninni segir að áratuga baráttu Orra hafi komið í veg fyrir útrýmingu laxastofnsins í Norður Atlantshafi.

Ók útaf vegna ölvunar

Ölvaður ökumaður keyrði útaf við gatnamót Laugarvatnsvegar og Biskupstungnabraut í Grímsnesi í nótt. Við leit í bílnum fann lögreglan tóbaksblandað hass. Alls stöðvaði lögreglan á Selfossi fimm ökumenn í nótt vegna ölvunaraksturs.

Sex stútar í höfuðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sex ökumenn í nótt vegna ölvun við akstur. Ekki þurfti þó að stinga neinum inn.

Ölvun og slagsmál á Suðurnesjum

Mikið annríki var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt vegna ölvunar og slagsmála. Fimm gistu fangageymslu. Þá maður sleginn í andlitið í Keflavík með þeim afleiðingum að tönn brotnaði.

Harður árekstur á Reykjanesbraut

Harður árekstur varð milli tveggja fólksbíla á Reykjanesbraut við Vífilstaðaveg um sjöleytið í kvöld. Enginn slasaðist í árekstrinum en takmarka þurfti umferð um svæðið tímabundið.

Mikil eftirspurn eftir lóðum við höfnina hjá Fjarðaráli

Mikið eftirspurn er eftir lóðum við höfnina hjá Fjarðaráli á Reyðarfirði. Á aðra milljón tonna af vörum verða flutt um höfnina á hverju ári, sem gerir hana að annarri stærstu höfn landsins á eftir Faxaflóahöfnum.

Sjá næstu 50 fréttir