Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar Ragnar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts hefur verið ráðinn sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar. Borgarráð samþykkti ráðninguna samhljóða á fundi í gær. Ragnar er með MA próf í stjórnun með sérstakri áherslu á mannauðsstjórnun frá Viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Hann er einnig menntaður kennari í grunn- og framhaldsskóla frá KHÍ og með BS próf í landafræði og jarðfræði frá HÍ. 2.2.2007 16:13
Ölvun á framhaldsskólaböllum Nokkur ölvun var á tveimur skólaböllum framhaldsskólanema sem haldin voru í Reykjavík í gærkvöld. Á öðrum staðnum var hringt í foreldra á þriðja tug nemenda og þeir látnir sækja börn sín. Eitt ungmennið var svo illa haldið af áfengisdrykkju að því var ekið á slysadeild. Annar ölvaður unglingur var handtekinn vegna óláta og færður á lögreglustöð. 2.2.2007 15:08
Umdeildu hafsvæði loks skipt Samskipti Íslands og Færeyja voru rædd á hádegisverðarfundi Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra í dag og Jóannesar Eidesgaard lögmanns Færeyja. Undirritaður var samningur um skiptingu umdeilds hafsvæðis milli landanna og sérstaklega farið yfir stöðu og framkvæmd Hoyvíkursamningsins, sem er fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja. 2.2.2007 14:55
Iðnaðarráðherra vill auðlindasjóð Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra lagði til í dag að stofnaður yrði auðlindasjóður sem myndi styðja við bakið á nýsköpunarfyrirtækjum. Þetta kom fram í ræðu sem hann hélt við upphaf Sprotaþings í Laugardalshöll í dag. 2.2.2007 14:30
Ríkiseinokun bjór- og vínsölu aflétt? Frumvarp um að aflétta ríkiseinokun af sölu á víni og bjór var lagt fram á Alþingi í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður lagði frumvarpið fram og sagði að það hafi komið honum á óvart hversu margir tóku þátt í umræðunni, en flutningsmenn voru 14. Frumvarpið leggur til að aldurstakmark sölufólks verði 20 ár eins og kaupendanna. 2.2.2007 14:17
Áhrifaleysi Seðlabankans vex Aukin notkun erlendra gjaldmiðla á íslenska markaðnum stuðlar að áhrifaleysi Seðlabanka Íslands. Þetta sagði Guðmundur Ólafsson hagfræðingur í þætti Sigurðar G. Tómassonar á Útvarpi Sögu í dag. Hann sagði að áhrifasvæði vaxtastefnu Seðlabankans í dag væri líklega 13% peningamarkaðarins. Þannig vísaði hann til álits Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins. 2.2.2007 13:49
Viðskiptasendinefnd og nýtt sendiráð í S-Afríku Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra mun leiða viðskiptasendinefnd Útflutningsráðs til S-Afríku í lok mánaðarins. Um 15 fyrirtæki hafa staðfest þátttöku í ferðinni. Í fréttatilkynningu frá Útflutningsráði íslands kemur fram að skráningarfrestur hafi verið framlengdur til 7. febrúar. Það sé gert til að gefa fleiri fyrirtækjum tækifæri á að taka þátt í ferðinni og nýta sér þetta tækifæri til að koma vöru sinni og þjónustu á framfæri við rétta aðila í S-Afríku. 2.2.2007 13:33
Fagaðstoð fyrir heyrnarlaus fórnarlömb ábótavant Félag heyrnarlausra segja tvö dómsmál og ábendingar vera kveikju að könnun um kynferðislega misnotkun heyrnarlausra á Íslandi. Kristinn Jón Bjarnason framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra segir í fréttatilkynningu að könnunin hafi verið gerð til viðmiðunar fyrir aukin og markviss úrræði fyrir fórnarlömb kynferðislegrar misnotkunar. Hún hafi ekki verið unnin í þeim tilgangi að finna sökudólga. 2.2.2007 13:00
Stórauknar tekjur og fjölgun starfa Skatttekjur af álverinu í Straumsvík munu aukast um allt að þrjá milljarða á ári, þar af um milljarð til Hafnarfjarðar, við stækkun þess. Beinum og óbeinum störfum fjölgar um tæplega tólf hundruð en við hvert starf í álverinu verða til 2,5 störf annars staðar, að mati Samtaka atvinnulífsins. Talsmaður Sólar í Straumsvík segir nær að styðja við bakið á annarri og minna mengandi starfsemi. 2.2.2007 11:57
Blaðamannasamtök undrast skipan ráðherra Þing norrænu blaðamannasamtakanna hefur sent Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra bréf vegna skipunar fulltrúa í stjórn Norræna blaðamannaskólans, NJC, í Árósum. Að sögn Örnu Schram formanni Blaðamannafélags Íslands tilnefndi félagið tvo aðila að beiðni ráðuneytisins í stjórnina. Menntamálaráðherra skipaði hins vegar aðra aðila í stjórn skólans. 2.2.2007 11:13
Gæsluvarðhald vegna innflutnings fíkniefna Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í gærkvöldi tvo menn á þrítugsaldri í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á innflutningi fíkniefna. Annar maðurinn fékk úrskurð um gæsluvarðhald til fostudagsins 9. febrúar og hinn til þriðjudagsins 6. febrúar. Lögreglan í Árnessýslu fer með rannsókn málsins en gefur ekki frekari upplýsingar á þessu stigi. 2.2.2007 11:04
Netsímaþjónusta í fyrsta sinn hérlendis Lággjaldasímafyrirtækið SKO hefur nú slegist í hóp þeirra sem bjóða upp á svokallaða netsímaþjónustu. Netsíminn verður að sögn Ragnhildar Ágústsdóttur framkvæmdastjóra ódýrari valkostur á netsímamarkaði hérl á landi. Með nýju þjónustunni geta viðskiptavinir SKO hringt og tekið á móti símtölum í tölvum og lækkað þannig símkostnað sinn. 2.2.2007 10:40
Bandaríkin ætla ekki að ráðast á Íran Bandaríkin ætla sér ekki að ráðast á Íran til þess að koma í veg fyrir að þau sjái hryðjuverkamönnum í Írak fyrir vopnum. Þetta fullyrti háttsettur bandarískur embættismaður í dag. 1.2.2007 23:42
Stúlkan fundin Sigríður Hugrún Sigurðardóttir, stúlkan sem hefur verið leitað að síðan á laugardaginn 27. janúar, er fundin. Lögregla skýrði frá þessu í kvöld. Hún vildi einnig koma þökkum á framfæri fyrir aðstoðina. 1.2.2007 21:56
Skattur lagður á nagladekk? Umhverfisráðuneytið og Akureyrarbær boðuðu til blaðamannafundar á Akureyri í dag þar sem kynnt var ný skýrsla um svifryksmengun á Íslandi og leiðir til úrbóta. Þar kom fram að svifryksmengun horfir í að verða alvarlegt vandamál og boðar umhverfisráðherra aðgerðir sem byggðar eru á tillögu starfshóps. Þar verður þeim sem aka um á nagladekkjum refsað með því að greiða hærri tolla en þeir sem nota ónegld dekk. 1.2.2007 20:17
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks líklegust Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að núverandi stjórnarflokkar endurnýi samstarf sitt að loknum kosningum, fái þeir til þess traustan meirihluta. Að öðrum kosti myndi Sjálfstæðisflokkur ríkisstjórn með Samfylkingunni. Þetta kom fram í hádegisviðtalinu á Stöð 2. 1.2.2007 19:13
Tölvuleikjafíkn vaxandi vandamál Unglingur í Hafnarfirði gekk berseksgang á heimilinu sínu í gærkvöldi af því að foreldrar hans sögðu upp nettengingu og hann gat ekki spilað uppáhalds tölvuleikinn sinn. Lögreglan var kölluð á staðinn og segir að tilfellum af þessu tagi fara fjölgandi. Engin sérstök úrræði eru fyrir tölvuleikjafíkla hér á landi og viðfangsefnið er órannsakað. Ólafur Guðmundsson yfirlæknir á barna og unglingageðdeild landsspítalans telur þörf á rannsóknum en segir um hegðunarvanda að ræða. 1.2.2007 18:53
Fjármunir verði teknir frá hátæknisjúkrahúsi í vegagerð Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, vill að framkvæmdum við hátæknisjúkrahús verði frestað og fjármunirnir settir í staðinn í vegagerð. Stjórnarandstaðan þrýstir á að samgönguáætlun verði lögð fram og að í henni verði gert ráð fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar. 1.2.2007 18:30
Utanríkisráðherra ekki ofboðið af forseta Íslands Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra telur að ekki verði neinir eftirmálar af því að forseti Íslands settist í þróunarráð Indlands, án samráðs við utanríkisráðuneytið, en telur að brýna þurfi samskiptareglur forsetans og ráðuneytisins. Formaður utanríkismálanefndar hefur kallað utanríkisráðherra á fund nefndarinnar vegna forsetans. 1.2.2007 18:30
Ruglingur að matarverð lækki um 16% Ríkisstjórnin hefur horfið frá fullyrðingu sinni um tæplega sextán prósenta lækkun matarverðs. Búist er við að matarverð lækki um níu til ellefu prósent. Samræmdar aðgerðir ýmissa aðila eiga að sjá til þess að lækkun matarverðs nái fram að ganga. 1.2.2007 18:30
Tap fyrir Rússum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld fyrir Rússum 28-25 og leika því um 7. sætið á HM í handbolta. Rússar höfðu yfir í leikhléi 16-14, en íslenska liðið komst í fyrsta sinn yfir um miðjan síðari hálfleik. Eftir það tóku Rússar öll völd og tryggðu sér sigurinn með því að breyta stöðunni úr 22-24 í 27-22 sér í hag. 1.2.2007 18:25
Fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun. Hann nauðgaði konu í heimahúsi í Reykjavík sl haust og hafði hún nokkra áverka af. Maðurinn, sem er með hreinan sakaferil, neitaði allri sök, en framburður konunnar og vitna þótti hins vegar trúverðugur. 1.2.2007 17:37
3 mánaða fangelsi vegna umferðarlagabrota Ung kona var í dag dæmd í Hæstarétti í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa tívegis ekið án ökuréttinda. Í annað skiptið var hún undir áhrifum áfengis. Þyngd dómsins er tilkomin vegna fyrri dóma um ölvunarakstur og akstur án ökuréttinda. 1.2.2007 17:15
Nauðgaði stúlku á tjaldsvæðinu á Laugarvatni Tuttugu og sex ára karlmaður var í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir nauðgun. Maðurinn nauðgaði stúlku í bifreið á tjaldsvæðinu á Laugarvatni í júlí 2004 en stúlkan gat ekki spornað við sökum ölvunar og svefndrunga. 1.2.2007 16:56
Eins árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í eins árs fangelsi fyrir kynferðisbort gegn konu á veitingastað fyrir þremur árum. Hann var ákærður fyrir að hafa haft og reynt að hafa mök við konuna gegn vilja hennar með því að klippa göt á buxur hennar og sokkabuxur á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna ölvunar og svefndrunga eins og segir í dómnum. 1.2.2007 16:49
Fimmtugur maður dæmdur fyrir að misnota stúlkur Tæplega fimmtugur karlmaður var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti Íslands í dag fyrir vörslu barnakláms og fyrir kynferðisbrot gegn nokkrum stúlkum. 1.2.2007 16:38
Tollar á ónegld dekk verði felld niður Niðurfelling tolla á ónegld dekk og aukin kynning á þeim er meðal þess sem starfshópur umhverfisráðuneytisins leggur til sem mögulegar leiðir til úrbóta vegna svifryksmengurnar á höfuðborgarsvæðinu. Tillögurnar voru kynntar á blaðamannafundi umhverfisráðherra á Akureyri í dag. 1.2.2007 16:31
Eldur í húsi í Keflavík Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á eldi sem logaði glatt á efri hæð hús við Kirkjuteig í Keflavík. Brunavarnir Suðurnesja voru á fjórða tímanum kallaðar út vegna eldsins sem þá logaði út um glugga. Enginn var í húsinu þegar eldsins varð vart. Slökkviðliðsmenn eru nú að slökkva í glæðum. 1.2.2007 16:04
Rannsóknaðferðir eins og í lögregluríkjum Félag íslenskra stórkaupmanna mótmælir því harðlega að Samkeppnieftirlitið hvetji starfsfólk fyrirtækja sem vinni við framleiðslu, dreifingu og sölu á matvörum til að tilkynna um hugsanleg brot á samkeppnislögum og segir slíkar rannsóknaraðferðir aðeins tíðkast í lögregluríkjum. 1.2.2007 15:14
Fangaverðir ósáttir við þvinganir Fangaverðir eru ósáttir við að þvinga eigi þá til að vinna hálfu ári lengur en venjubundinn uppsagnarfrestur gerir ráð fyrir. Um helmingur fangavarða hefur sagt upp stöfum og hyggst Fangelsismálastofnun nýta sér lagaheimild til að lengja uppsagnarfrest þeirra haldi þeir uppsögnum sínum til streitu. 1.2.2007 14:49
Rangt greint frá meðaltalssölu Morgunblaðsins Upplagseftirlit Viðskiptaráðs Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að mistök hafi átt sér stað þegar tilkynning var send út í gær. Þar var sagt að í júlí til desember 2005 hefði meðaltalssala Morgunblaðsins verið 52.321 eintök en hið rétta sé að þau voru 50.312. Biðst Upplagseftirlitið velvirðingar á þessum mistökum. 1.2.2007 14:33
Lögregla leitar enn 16 ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir sextán ára stúlku, Sigríði Hugrúnu Sigurðardóttur en síðast sást til hennar í Fossvogi laugardaginn 27. janúar. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að Sigríður Hugrún glími við veikindi og þurfi að taka lyf af þeim sökum. 1.2.2007 14:22
ASÍ, Neytendastofa og Neytendasamtök fylgjast með matarverði Viðskiptaráðherra hefur gert samkomulag við Alþýðusamband Íslands, Neytendasamtökin og Neytendastofu um um að fylgjast með því hvaða áhrif aðgerðir ríkisstjórnarinnar til lækkunar á matvælaverði hafi. 1.2.2007 14:15
Atvinnuástand á Vestfjörðum gott þrátt fyrir stórt gjaldþrot Langfæstir eru á atvinnuleysisskrá á Vestfjörðum um þessar mundir á landinu eftir því sem segir á vef svæðisvinnumiðlunar Vestfjarða. Þar er bent að þrátt fyrir allstórt gjaldþrot hjá trésmíðaverkstæði Ágústs og Flosa á Ísafirði þar sem um 30 manns unnu sé atvinnuástandið almennt gott á Vestfjörðum og mikil eftirspurn eftir iðnaðarmönnum. 1.2.2007 14:06
Skilorðsbundinn dómur og sekt fyrir skattsvik Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að skjóta undan virðisaukaskatti, greiða ekki opinber gjöld og fyrir bókhaldsbrot. 1.2.2007 13:15
Eyjamenn ósáttir við hækkun á fargjöldum Herjólfs Um fimm hundruð manns mótmæltu hækkunum á far- og farmgjöldum Herjólfs á Básaskersbryggju í Vestmannaeyjum. Gjöldin hækka að meðaltali um ellefu og hálft prósent. 1.2.2007 13:00
Dæla beint í flugvélar frá Helguvík Öllum flutningum á þotueldsneyti um höfuðborgarsvæðið og Reykjanesbraut til Keflavíkurflugvallar verður hætt eftir að Esso tók við eldsneytissölunni á Keflavíkurflugvelli á miðnætti. Þess í stað verður því dælt frá olíuhöfninni í Helguvík og beint á flugvélarnar. 1.2.2007 12:45
Hafa heimild til að lengja uppsagnarfrest fangavarða Fangelsismálastofnun hyggst nýta sér lagaheimild til að lengja uppsagnarfrest fangavarða um sex mánuði haldi þeir uppsögnum sínum til streitu. Um fjörutíu uppsagnarbréf hafa borist stofnuninni. 1.2.2007 12:30
Tillaga að spurningu vegna kosningar um stækkun Alcan lögð fram Tillaga um orðalag spurningar vegna íbúakosningar í Hafnarfirði í tengslum við stækkun álvers Alcan í Straumsvík var lögð fram á bæjarráðsfundi í Hafnarfirði í dag. 1.2.2007 12:24
Stjórnarandstaðan að springa á biðinni Samgönguráðherra vildi ekki upplýsa það á Alþingi í morgun hvenær von væri á samgönguáætlun til umræðna á þinginu. Mikill hiti var í umræðunni og snupraði forseti þingsins einn þingmann fyrir brot á þingsköpum í ræðu sinni. 1.2.2007 12:07
Boðið upp á námskeið við tölvufíkn Fjórtán ára unglingur trylltist í gærkvöldi þegar foreldrar hans létu aftengja Netið svo hann gæti ekki haldið áfram í tölvuleik, sem hafði heltekið hann. Hafin eru námskeið í Reykjavík til að koma vaxandi fjölda tölvufíkla til hjálpar. 1.2.2007 12:02
Kominn til meðvitundar eftir snjóflóð Maðurinn sem slasaðist í snjóflóði í Hlíðarfjalli á dögunum er kominn til meðvitundar. Hann er á batavegi að sögn læknis á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri en of snemmt er að segja til um hvort hann nær fullum bata. 1.2.2007 11:55
Kostnaður vegna Wilson Muuga þegar orðinn nærri 50 milljónir Kostnaður Umhverfisstofnunar vegna strands flutningaskipsins Wilson Muuga er nú þegar kominn í tæpar 48 milljónir króna en útgerð og tryggingafélag skipsins hafa lýst því yfir að þau muni ekki greiða meira en rúmar 70 milljónir króna fyrir hreinsun á strandstað. 1.2.2007 11:52
Stórauka umferðarlöggæslu á næstu tveimur árum Samgönguráðuneytið og Ríkislögreglustjóri undirrituðu í dag samstarfssamning um að stórauka umferðarlöggæslu á næstur tveimur árum. Verða 218 milljónir króna veittar til aukins eftirlits á tímabilinu. 1.2.2007 11:48
Fangelsi fyrir að neita að greiða fyrir mat og leigubíl Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir að neita að greiða fyrir veitingar sem hann snæddi á veitingastað í borginni og fyrir að neita að borga leigubílafargjald. 1.2.2007 11:31