Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vígí Árna Johnsen heldur Vígi Árna Johnsen er eina kjördæmið þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig fylgi milli mánaða. Árni fagnar niðurstöðunni og þakkar hana því að sunnlenskir Sjálfstæðismenn séu traustir. 1.12.2006 18:56
Tómlegt í Háskóla Íslands í tilefni fullveldisdags Í dag er fullveldisdagur Íslendinga en nú eru 88 ár frá því við urðum fullvalda þjóð. Það má spyrja sig hversu djúpt þjóðerniskenndin ristir, því í dag mættu innan við þrjátíu manns á málþing Stúdentaráðs Háskóla Íslands í hátíðarsal skólans í tilefni af fullveldisdeginum. Forseti Íslands lét ekki sitt eftir liggja, en það er ljóst að hin íslenska fornaldarfrægð hefur líklega fallið í skuggann af öðrum viðburðum á þessum degi, eins og alþjóða alnæmisdeginum og degi rauða nefsins. 1.12.2006 18:54
Meirihluti sprakk í Árborg Slitnað hefur upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sveitarfélaginu Árborg. Báðir aðilar segja að trúnaðarbrestur hafi verið viðvarandi frá kosningunum í vor. Meðal annars steytti á kröfu framsóknarmanna um að hækka laun bæjarfulltrúa. 1.12.2006 18:54
Ólund í Frjálslyndum Margrét Sverrisdóttir fullyrðir að gagnrýni hennar á rasísk ummæli Jóns Magnússonar hafi ráðið því að hún var rekin úr starfi framkvæmdastjóra þingflokks Frjálslynda flokksins í gærkvöld. Þessu vísar Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins á bug. Bæði vísa frá sér spurningum um klofning í flokknum. 1.12.2006 18:48
Þrjátíu gefa kost á sér Þrjátíu manns eru í framboði í forvali Vinstri grænna í þremur kjördæmum höfuðborgarsvæðisins sem fram fer á morgun. Fyrstu tölur verða birtar upp úr klukkan tíu annað kvöld. 1.12.2006 18:35
Bein útsending á Vísir.is í kvöld Bein útsending verður á Vísi.is í kvöld frá skemmtidagskrá Stöðvar tvö vegna dags rauða nefsins. Verður útsendingin í alls þrjá tíma og mun landslið grínara kitla hláturtaugar landsmanna. 1.12.2006 18:03
Ekki hægt að rekja hækkun til Landsvirkjunar Landsvirkjun mótmælir því að rekja megi hækkun hjá Orkuveitu Reykjavíkur til hækkunar á raforkuverði Landsvirkjunar. Upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar hefur haldið því fram að hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins upp á 2,4% megi rekja til 10% hækkunar á raforku frá Landsvirkjun. 1.12.2006 16:47
Verulegir gallar á matarskattsfrumvarpi Samtök iðnaðarins segja verulega galla á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um matarskatt. Engin rök séu fyrir því að sætindi og sælgæti beri áfram vörugjöld. 1.12.2006 16:30
Reykingar eru á hægri en stöðugri niðurleið Samvæmt samantekt Capacent Gallup fyrir Lýðheilsustöð er umfang reykinga á hægri en stöðugri niðurleið hér á landi. Helstu niðurstöðurnar í samntektinni eru, að 18,8% fólks á aldrinum 15-89 ára reykja daglega nú, miðað við 30% árið 1991. Kannað var umfang reykinga á Íslandi á árinu 2006. 1.12.2006 16:16
Enginn sérstakur viðbúnaður í dómnum vegna strokufanga Mál strokufangans Ívars Smára Guðmundssonar var tekið fyrir í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ívar afplánar nú tuttugu mánaða dóm á Litla Hrauni en síðast þegar farið var með hann í héraðsdóm náði hann að flýja frá fangavörðum. 1.12.2006 15:53
Nýtt hönnunarsafn Íslands verður byggt í Garðabæ Nýtt hönnunarsafn Íslands verður byggt í Garðabæ samkvæmt samningi sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálráðherra skrifuðu undir með Gunnari Einarssyni bæjarstjóra Garðabæjar í dag. Í samningnum um rekstur menntamálaráðuneytisins og Garðabæjar sem tekur gildi 1. janúar 2007 er kveðið á um að Garðabær taki við rekstri og stjórn Hönnunarsafns Íslands. Safnið mun starfa sem stofnun á vegum bæjarfélagsins. 1.12.2006 15:45
Valgerður á ráðherrafundi EFTA Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sat í dag ráðherrafund EFTA ríkjanna í Genf í Sviss. Á fundinum var rætt um fríverslunarsamning EFTA ríkjanna og aukin samskipti við önnur ríki. Ráðherrarnir funduðu einnig með Kamal Nath, viðskiptaráðherra Indlands, en undirritað var samkomulag um sameiginlega hagkvæmnikönnun vegna mögulegs fríverslunarsamnings milli ríkjanna. 1.12.2006 15:44
Snjóflóð féll á veginn í Súðavíkurhlíð Lítið snjóflóð féll á veginn um Súðavíkurhlíð í dag. Engan sakaði. Búið er ryðja veginn þarna að sögn Vegagerðarinnar, en enn er þó talin snjóflóðahætta þarna. Vegagerðin vill biðja fólk að vera ekki á ferðinni þarna að óþörfu. 1.12.2006 15:38
Rúmenar dæmdir fyrir hraðbankasvindl Tveir Rúmenar voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa sett upp leynilegan afritunarbúnað á hraðbanka til að afrita banka- og greiðslukortanúmera viðskiptavina. Annar mannanna fékk tólf mánaða fangelsisdóm en hinn átta. 1.12.2006 15:22
FÍS: Verðhækkanir á víni afturför Félag íslenskra stórkaupmanna segir verðhækkanir á áfengi í söluhæstu flokkunum óásættanlegar, þar sem verð er afgerandi þáttur þegar fólk velur vín. Félagið telur að hækkun áfengisgjalda virki verðbólguhvetjandi og að hún muni koma við pyngju hins almenna borgara. 1.12.2006 15:03
Tekinn á 165 kílómetra hraða Lögreglan á Akranesi stöðvaði í morgun ökumann á 165 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi í Kollafirði. Samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi í dag, um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum, getur maðurinn átt von á 90.000 króna sekt og ökuleyfissviptingu í sex mánuði. 1.12.2006 14:19
Landspítalinn sýknaður af skaðabótakröfu Landspítali-Háskólasjúkrahús var í dag sýknað, í Héraðsdómi Reykjavíkur, af skaðabótakröfu konu sem taldi sig hafa hlotið skaða við mistök lækna er gerðu á henni brjósklosaðgerð. 1.12.2006 13:48
Ölgerðin varar við hugmyndum um hækkun áfengisgjalds Fyrirhugaðar breytingar á áfengisgjaldi og virðisaukaskatti á áfengi munu hafa í för með sér stórfelldar verðhækkanir á áfengi að óbreyttu að mati Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Bendir fyrirtækið á að með fyrirhuguðum lagabreytingum standi tekjur ríkissjóðs ekki í stað heldur munu aukast sem sé öfugt við það sem haft hafi verið eftir fjármálaráðherra í fjölmiðlum. 1.12.2006 12:56
Hættir störfum þegar nýr mjólkurrisi tekur til starfa Forstjóri Norðurmjólkur hættir störfum þegar nýr mjólkurrisi, Mjólkursamsalan, tekur til starfa um áramót. Öll mjólkurvinnsla flyst frá Reykjavík. Félagið verður undanþegið samkeppnislögum. 1.12.2006 12:45
Bolungarvík og Ísafjörður sameina tæknideildir Bæjarstjórar Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar, þeir Grímur Atlason og Halldór Halldórsson, undirrita samning um sameiningu tæknideildanna bæjarfélaganna. Síðustu mánuði hafa staðið yfir viðræður milli um sameininguna eða samstarf um reksturinn. 1.12.2006 12:38
Smíða á nýtt 4000 tonna varðskip Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að ljúka samningum um smíði á nýju varðskipi. Skipið verður smíðað í Chile í Suður-Ameríku og er stefnt á að það komi hingað til lands um mitt árið 2009. Skipið verður um fjögur þúsund tonn og verður því mun stærra en Týr og Ægir, varðskipin sem Landhelgisgæslan á fyrir. 1.12.2006 12:31
Segir uppsögn Margrétar fullkomlega eðlilega Uppsögn Margrétar Sverrisdóttir, framkvæmdastjóra Frjálslynda flokksins, í gærkvöld var fullkomlega eðlileg, segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins. Hann vísar því á bug að uppsögnin tengist gagnrýni Margrétar á Jón Magnússon og innlegg hans um málefni innflytjenda. Margrét ætlar þrátt fyrir allt að taka sæti á lista flokksins ef hún nær því í forvali. 1.12.2006 12:15
Aur rann milli húsa á Reyðarfirði Björgunarsveitarmenn á Reyðarfirði kallaðir út til að veita vatni frá húsum þegar aurskriða féll milli húsa á Reyðarfirði um átta leytið í morgun. Skriðan lenti milli húsa í Vallargerði. Vatn hafði safnast saman úr læk ofan við götuna vegna stíflaðs niðurfalls, og það ýtti skriðunni af stað. Úrhellisrigning hefur verið á Reyðarfirði frá í gærmorgun. 1.12.2006 12:10
Gamall fiskibátur strandar við bryggjuhverfið í Garðabæ Fyrrverandi fiskibáturinn Stormur, slitnaði upp af bólfæri sínu út af Kópavogshöfn í storminum upp úr miðnætti og rak stjórnlaust undan ríkjandi vindi enda mannlaus. Hann rak inn á Arnarvoginn og strandaði loks undan nýja bryggjuhverfinu í Garðabæ. 1.12.2006 12:03
Fernt játar á sig tilraun til hraðbankaþjófnaðar Þrír ungir menn og stúlka hafa viðurkennt að hafa reynt að stela hraðbanka í útibúi Landsbankans við Klettháls í Reykjavík í fyrradag. Eftir því sem kemur fram á vef lögreglunnar fór mennirnir þrír inn í anddyri bankans og reyndu að fjarlægja hraðbankannen gáfust upp við hálfnað verk því bankinn reyndist þeim ofviða. 1.12.2006 11:57
Aðeins tíundi hver Dani neikvæður í garð íslenskra kaupsýslumanna Einungis einn af hverjum tíu Dönum er neikvæður gagnvart þátttöku Íslendinga í dönsku viðskipalífi samkvæmt skoðanakönnun sem markaðasrannsóknafyrirtækið Epinion gerði fyrir Capacent Gallup. 1.12.2006 11:38
Njörður fær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna Njörður P. Njarðvík, rithöfundur og fyrrverandi prófessor, hlaut í morgun Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2006 fyrir ómetanlegt starf til hjálpar munaðarlausum börnum í Afríku í gegnum hugsjónafélagið SPES. Verðlaunin voru afhent í Iðnó nú klukkan ellefu. 1.12.2006 11:26
Rauðu nefin að verða uppseld Rauð nef eru að verða uppseld í landinu, samkvæmt upplýsingum frá Unicef á Íslandi. Tuttugu þúsund rauð nef voru framleidd vegna söfnunar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem fram fer í dag, og segir upplýsingafulltrúi samtakanna að þau hafi selst svo vel að nú sé orðið erfitt að fá þau. Margar aðrar leiðir eru til að styrkja átakið. 1.12.2006 11:19
Nonnabátarnir á floti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna heitavatnsleka að Hafnarstræti 9, í nýju húsnæði veitingasölunnar Nonnabita. Að sögn starfsfólks Nonnabita brustu nýlagðar pípur í kjallaranum og flæddi mikið á stuttum tíma og má búast við talsverðum skemmdum. Með skjótum vinnubrögðum næst hins vegar að opna strax í dag á nýja staðnum. 1.12.2006 11:06
Seðlabankinn skráir 25 nýja gjaldmiðla Ísraelskur sikill, kínverskt júan, ungversk forinta og pólskt slot er meðal þeirra 25 gjaldmiðla sem Seðlabanki Íslands byrjaði að skrá í dag en skráning miðgengis þeirra er birt á heimasíðu bankans. Gjaldmiðlarnir 25 bætast við þá tíu gjaldmiðla sem hingað til hafa verið skráðir hjá bankanum, en bæði kaup-, sölu- og miðgengi þessarra gjaldmiðla hefur verið skráð. 1.12.2006 10:52
Kaup hindruðu ekki samkeppni Samkeppnisstofnun hefur úrskurðað að kaup skipaþjónustufyrirtækisins O.W. Bunker og Trading A/S í Danmörku á öllu hlutafé Grupo ABC Atlantic Bunker S.L. hindri ekki virka samkeppni og sér ekki ástæðu til að aðhafast vegna kaupa OW á ABC. 1.12.2006 10:40
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kraganum tilbúinn Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi vegna komandi þingkosninga var kynntur á fundi í Félagsheimili Seltjarnarness í gærkvöldi. Sjö efstu sætin taka mið af úrslitum prófkjörs og mun Guðmundur Steingrímsson skipa baráttusæti listans sem er fimmta sætið eftir því sem segir í tilkynningu frá flokknum. 1.12.2006 10:39
Margrét ætlar að taka sæti ef hún fær það Margrét Sverrisdóttir, sem sagt var upp störfum í gær sem framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, ætlar að taka sæti á lista flokksins ef hún fær það í leiðbeinandi forvali hjá flokknum. Margrét telur skýringar formannsins fyrir uppsögn sinni ekki nægjanlegar. 1.12.2006 10:29
Um tíu prósent hafa kosið utan kjörfundar hjá VG Vel á annað hundrað kusu utankjöfundar fyrir forval Vinstri - grænna í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi sem fram fer á morgun vegna komandi þingkosninga. 1.12.2006 10:27
Pólskukennari ráðinn við grunnskóla á Ísafirði og í Önundarfirði Búið er að ráða pólskukennara til að kenna pólskum börnum í Grunnskólanum á Ísafirði og Grunnskóla Önundarfjarðar eftir því sem segir á vestfirska vefnum Bæjarins besta. Þar kemur einnig fram að brotalöm hafi verið á því að pólskir nemendur fengju kennslu í sínu móðurmáli. 1.12.2006 10:08