Fleiri fréttir

Spá lækkun stýrivaxta

Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir að stýrivextir lækki hratt á næsta ári, þar ráði mestu hröð lækkun verðbólgunnar. Miðað við verðbólguspá bankans jafngilda 14% stýrivextir líkt og nú er 11% raunstýrivöxtum á næsta ári. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að stýrivextir verið lækkaðir í upphafi næsta árs og að þeir verði komnir í 8,5% í lok næsta árs.

Draga á úr framkvæmdum

Gert er ráð fyrir áframhaldandi stöðugleika í efnahagsmálum í nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í dag. Draga á úr framkvæmdum á vegum ríkisins fyrir utan framkvæmdir í samgöngumálum og atvinnuleysi kemur til með að aukast.

Íbúðalánasjóður neytendum mikilvægur

Félag fasteignasala fagnar tillögum stýrihóps félagsmálaráðherra um Íbúðalánasjóð. Í ályktun félagsins segir að það fagni því að staðinn sé vörður um stefnu íslenskra stjórnvalda í húsnæðismálum en Íbúðalánasjóður gegni þar mikilvægu hlutverki.

Sjöfn forstjóri Matís

Dr. Sjöfn Sigurgísladóttir hefur verið ráðin forstjóri hins nýstofnaða fyrirtækis Matís ohf. frá 1. janúar 2007, en þá hefst eiginleg starfsemi félagsins, segir í tilkynningu frá félaginu.

Alcoa barst sprengjuhótun

Alcoa á Reyðarfirði barst í morgun sprengjuhótun. Að sögn Ernu Indriðadóttur, fjölmiðlafulltrúa fyrirtækisins, hringdi karlmaður inn sem talaði ensku og talaði hann um að sprengja eitthvað upp. Símtalið var mjög óljóst en haft var samband við lögregluna á Eskifirði um leið og því lauk.

Bæta þarf starfshætti og ímynd Alþingis

Sólveig Pétursdóttir var kjörinn forseti Alþingis við þingsetningu í dag. Hún fékk fimmtíu og fimm atkvæði en sjö skiluðu auðu. Sólveig sagði í ræðu sinni að þörf væri á að bæta starfshætti og ímynd Alþingis. Hún sagði Alþingi ekki sunnudagaskóla en að þingmenn yrðu þó að gæta hófs í hita leiksins.

Vill þjóðarsátt um utanríkisstefnu Íslendinga

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gerði þau tímamót sem orðið hafa með brottför hersins að umræðuefni í ræðu sinni við setningu Alþingis. Hann ræddi um þann klofing sem vera hersins hefur skapað meðal þjóðarinnar. Nú þyrfti að ná þjóðarsátt um grundvöllinn í utanríkisstefnu Íslendinga. Hann varaði við því að slíkur klofningur gæti myndast í umhverfismálum.

Mótmælt við Alþingishúsið

Á þriðja tug mótmælenda hafa safnast saman við Alþingishúsið. Fólkið er að mótmæla virkjunarframkvæmdum á Kárahnjúkasvæðinu. Alþingi er í dag sett í hundrað þrítugasta og þriðja sinn. Þingsetningarathöfnin hófst klukkan hálf tvö með guðþjónustu í Dómkirkjunni.

Búið að útskrifa alla

Þrír voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar, vegna gruns um reykeitrun, eftir að mikill eldur kom upp í þríbýlishúsi við Hamragerði á Akureyri um miðnæturbil.

Stjórnarandstaðan sameinast um mál

Þingflokkar Samfylkingarinnar, Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs (VG) og Frjálslynda flokksins kynna í dag sameiginlegar áherslur sínar í upphafi þingvetrar og undirstrika með táknrænum hætti samstöðu sína gegn núverandi ríkisstjórn.

Guðmundur Hallvarðsson hættir á þingi

Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður og formaður samgöngunefndar Alþingis, ætlar að láta af embætti í lok kjörtímabilsins. Guðmundur hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í fjögur kjörtímabil.

Alþingi sett í dag

Alþingi verður í dag sett í hundrað þrítugasta og þriðja sinn. Þingsetningarathöfnin hefst klukkan hálf tvö með guðþjónustu í Dómkirkjunni.

Húsnæðisverð hækkar

Þvert ofan í flestar spár hefur húsnæðisverð hækkað um tæp 2,5% síðustu fjórar vikurnar og hefur því hækkaðu um tæp 11% á tólf mánuðum.

Leit að týndu fólki

Björgunarsveitir voru þrívegis kallaðar út í gær, þar af tvívegis til að leita að fólki, sem týnst hafði við að leita að kindum. Það var á Brekknaheiði á Austfjörðum og fannst fólkið heilt á húfi.

Grunaður um að hafa skotið þrjár systur sínar

Lögreglan í Olsó handtók seint í gærkvöldi þrítugan mann af pakistönskum uppruna, sem er grunaður um að hafa skotið þrjár systur sínar til bana á heimili þeirra fyrr um kvöldið.

Leituðu gangnamanna á Brekknaheiði í dag

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í leit á Brekknaheiði á Austurlandi seinnipartinn í dag til að leita að stúlku sem var í leit að fé á heiðinni í göngum. Stúlkan fannst heil á húfi um hálfsjöleytið í kvöld. Fyrr í dag höfðu björgunarsveitir einnig verið kallaðar út vegna tveggja gangnamanna á sömu heiði en þeir fundust heilir á húfi fljótlega eftir að útkall barst.

Björguðu manni í sjálfheldu í Ingólfsfjalli

Björgunarsveitir fyrir austan fjall björguðu nú undir kvöld manni sem fastur var í sjálfheldu ofarlega í Ingólfsfjalli. Hætta var talin á að hann gæti fallið niður en að sögn lögreglu á Selfossi hafa björgunarsveitarmenn nú komið manninum til aðstoðar og eru á leið niður fjallið með hann heilan á húfi.

16 ára gítarleikari vann

Snorri Hallgrímsson, sextán ára gítarleikari, bar sigur úr býtum í tónlistarsamkeppni á vegum pólskrar menningarhátíðar í dag. Keppnin gekk út á bestu útfærsluna á pólsku tónverki, en pólskir tónlistarkennarar um land allt höfðu umsjón með keppninni.

Tólf stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í kringum Hvolsvöll

Lögreglan á Hvolsvelli hefur haft í nógu að snúast það sem af er degi við að stöðva ökumenn sem hafa keyrt of hratt. Frá klukkan níu í morgun til fjögur í dag voru tólf ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurlandsvegi.

Alþingi sett á morgun

Alþingi verður sett á morgun við hátíðlega athöfn sem hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö. Sólveig Pétursdóttir, forseti alþingis, gefur áfram kost á sér í embætti forseta en hún hefur ákveðið að hverfa af vettvangi stjórnmálanna eftir þennan vetur.

Mikilvægt að andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar verði í öndvegi

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, segir mikilvægt að andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar verði í öndvegi á framboðslistum flokksins fyrir kosningar vegna nýrrar umhverfisstefnu flokksins, Fagra Ísland. Hann hafi því ákveðið að gefa kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík

Sjálfstæðismenn með prófkjör í Suðurkjördæmi 11. nóv.

Kjördæmisráð sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ákvað á fundi sínum í dag að halda prófkjör þann 11. nóvember til að velja á framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar. Tólf hafa lýsti yfir framboði í prófkjörinu og er ljóst að baráttan verður hörð.

Guðfinna stefnir á þriðja sætið í Reykjavík

Guðfinna Bjarnadóttir, rektor háskólans í Reykjavík, tilkynnti á fundi í Iðnó nú klukkan fjögur að hún hygðist gefa kost á sér í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í prófkjöri fyrir alþingiskosningar næsta vor. Guðfinna hyggst ljúka þessu skólaári og taka ákvarðanir í framhaldinu, út frá genginu í prófkjörinu og í samráði við stjórn skólans, hvort hún haldi áfram sem rektor.

65 sinnum stungið af eftir ákeyrslu í september

Sextíu og fimm sinnum hafa menn ekið á mannlausa kyrrstæða bíla í september og farið af vettvangi án þess að láta vita. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í dag. Þetta þýða að jafnaði tvö tilvik á dag.

Um sjötíu manns skoðuðu herstöðina á Miðnesheiði

Um sjötíu manns á vegum Samtaka herstöðvaandstæðingar hafa í dag skoðað herstöðina á Miðnesheiði eftir að Bandaríkjaher fór þaðan í gær. Voru þeir fyrstir almennra borgara að gera það. Hópurinn fór um svæðið og skoðaði markverðustu staði í fylgd leiðsögumanns.

Ný kennsluálma vígð í Menntaskólanum á Egilsstöðum

Kennslurými í Menntaskólanum á Egilsstöðum hefur stækkað um áttatíu prósent með nýrri kennsluálmu sem tekin var í gagnið í haust. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vígði húsið við hátíðlega athöfn í gær og færði um leið Helga Ómari Bragasyni, skólameistara lykil að húsinu.

Porter sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við HÍ

Michael E. Porter, sem af mörgum er talinn einn fremsti hugsuður heims á sviði stefnumótunar og stjórnunar, verður sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands á morgun.

Ljóð í sjóð til styrktar MND-félaginu

Ljóð í sjóð er heiti á bók og geisladiski sem MND-félagið gefur út með stuðningi helstu listamanna þjóðarinnar. Árlega greinast þrír til fimm einstaklingar með sjúkdóminn hér á landi, en hann dregur fólk til dauða á einu til fimm árum.

Sótti slasaðan manna á Grundarfjörð eftir bílveltu

Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt til þess að sækja mann til Grundarfjarðar sem velt hafði bíl sínum nærri bænum. Bíllinn fór nokkrar veltur og var maðurinn fluttur fyrst á heilsugæslustöðina á Grundarfirði en síðar var ákveðið að kalla eftir þyrlu vegna meiðsla hans.

Guðfinna á leið í pólitík

Guðfinna Bjarnadóttir, rektor háskólans í Reykjavík hefur ákveðið að gefa kost á sér í eitt af efstu sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í prófkjöri fyrir Alþingiskosningar næsta vor. Hún mun tilkynna um ákvörðun sína opinberlega síðar í dag.

Aldraður maður lést eftir að hafa fallið af hestbaki

Bóndi á níræðisaldri lést eftir að hann datt af hestbaki við smalamennsku ofarlega í Laxárdal í Dalasýslu í gærdag. Svo virðist sem hestur hans hafi hnotið um þúfu með þeim afleiðingum að maðurinn féll af baki.

Fyrstir almennra borgara til að skoða herstöð

Herstöðvaandstæðingar verða fyrstir almennra borgara til að skoða herstöðina á Miðnesheiði eftir að Bandaríkjamenn yfirgáfu svæðið í gær. Stöðin telst ennþá vera varnarsvæði. Af þeim sökum gilda þar strangar reglur.

Talverður erill hjá lögreglunni í Keflavík í nótt

Talsverður erill var hjá lögreglunni í Keflavík á næturvaktinni vegna ölvunar, slagsmála og hávaðaútkalla. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar, önnur á skemmtistaðnum H-punktinum og hin á Njarðabraut í Njarðvík.

Unnur Birna krýndi arftaka sinn í Póllandi

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir krýndi í gær arftaka sinn í keppninni ungfrú Heimur sem fram fór í Póllandi. Það var tékkneska stúlkan Tatana Kucharova sem bar sigur úr býtum en önnur var ungfrú Rúmenía og ungfrú Ástralía varð í þriðja sæti.

Herstöðvaandstæðingar fagna brottför hersins

Herstöðvaandstæðingar halda klukkan tólf til Suðurnesja þar sem þeir munu fagna því að Bandaríkjaher er farinn af landi brott. Farið verður á slóðir herstöðvarinnar og minnisvarðar um hersetuna skoðaðir.

Á 137 kílómetra hraða á Sæbraut

Lögregla í Reykjavík tók í nótt sex ökumenn grunaða um ölvun við akstur, þar af einn sem ók fram hjá lokunum lögreglu meðan verið var að vinna á vettvangi við banaslys á Miklubraut. Þá voru fimm teknir fyrir of hraðan akstur, einn á 139 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut þar sem hámarkshraði er 80 og annar á Sæbraut við Kleppsveg á 137 km hraða þar sem hámarkshraði var 60.

Banaslys á Miklubraut í nótt

Banaslys varð á Miklubraut um klukkan hálffjögur í nótt þegar ekið var á konu á sextugsaldri. Atvikið var með þeim hætti að bifreið var ekið austur Miklubraut að Háaleitisbraut og var konan á gangi á afrein sem liggur af Miklubraut inn á Háaleitisbraut til suðurs.

Sjá næstu 50 fréttir