Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Excel fimmta stærsta ferðasamsteypa Bretlands Excel Airways Group, dótturfélag Avion Group, er fimmta stærsta ferðasamsteypa Bretlands samkvæmt opinberum tölum breskra flugmálayfirvalda. Þar er miðað við seldar ferðir á árunum 2005 til 2006. 11.9.2006 15:00
Starfsmenn bandaríska sendiráðsins minnast þeirra sem létust Einnar mínútu þögn var í bandaríska sendiráðinu klukkan 12:46 til minningar um þá sem létust í hryðjuverkunum þann 11. september árið 2001, eða þegar fyrsta flugvélin flaug á annan tvíburaturninn samkvæmt íslenskum tíma. Á milli tuttugu og þrjátíu starfsmenn voru við vinnu í sendiráðinu um hádegi í dag. Fjölmiðlum var ekki boðið að vera viðstaddir en einungis starfsmenn sendiráðsins minntust þeirra sem létust þennan dag með þessum hætti. 11.9.2006 14:56
Kosið um þrjú efstu sætin í Norðausturkjördæmi Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi samþykkti á fundi sínum í gærkvöld að halda prófkjör við röðun efstu manna á lista flokksins fyrir næstu þingkosningar. 11.9.2006 14:15
Eldur í rafmagnstöflu í Máli og menningu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var nú eftir hádegið kallað að verslun Máls og menningar á Laugavegi vegna elds í húsinu. Í ljós kom að rofi í rafmagnstöflu á annnarri hæð hússins hafði brunnið yfir og eldur komið upp. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og urðu skemmdir af völdum hans litlar en reykræsta þurfti rýmið þar sem eldurinn kom upp. 11.9.2006 14:09
Unnið verði að aukinni hagkvæmni og lækkun skatta Afurðarstöðvar í Norðvestur- og Norðausturkjördæmi leggja til að unnið verði með stjórnvöldum að mörkun stefnu um aukna hagkvæmni í landbúnaði og lækkun virðisaukaskatts á matvæli til þess að ná fram frekari raunlækkun á matvælaverði. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi afurðastöðvanna í gær. 11.9.2006 13:45
Hægt að lækka matarverð á morgun Hægt væri að lækka matarverð á morgun með lækkun vörugjalda og tolla, að mati Guðlaugs Þór Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Viljaleysi til breytinga á landbúnaðarkerfinu, meðal annars af hálfu Framsóknarflokksins, sé ástæða þess að matarverð hafi ekki lækkað fyrr. 11.9.2006 13:30
Veiðist vel í Síldarsmugunni Togaraskipstjóri sem er á karfaveiðum í Síldarsmugunni segir í samtali við Fiskifréttir, að talsvert sé af fiski og að skipin séu að fá um eitt til þrjú tonn á togtímann. Íslendingar eru nú í fyrsta skipti við karfaveiðar í Síldarsmugunni en svæðið er alþjóðlegt hafsvæði. Fiskifræðingar hafa haft af því áhyggjur að ekki sé vitað hvaða stofni karfinn tilheyrir. 11.9.2006 12:45
Hryðjuverk kostuðu 300 manns vinnuna hjá Icelandair Hryðjuverkin 11. september 2001 kostuðu tæplega þrjú hundruð manns sem störfuðu hjá Icelandair atvinnuna. Þetta kom fram í viðtali við Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúa Icelandair, á Fréttavaktinni í morgun. Guðjón segir flugstarfsemi í heiminum ekki enn komna í sama horf og hún var fyrir árásirnar. 11.9.2006 12:30
Eftirlitslaus lofthelgi ekki veikasti hlekkurinn Tollstjórinn í Reykjavík segir eftirlitslausa lofthelgi ekki veikasta hlekkinn í smygleftirliti Íslendinga, vanræksla ratsjárstöðvanna bjóði ekki upp á neina möguleika sem ekki hafi verið fyrir. Flugmálastjóri sagði í fréttum NFS í gær að eftir að Bandaríkjaher hætti að vinna úr upplýsingum frá ratsjárstöðvum sé greið leið fyrir smyglara að fljúga óséðir inn í lofthelgi Íslands með ólöglegan varning. 11.9.2006 12:15
Fórnarlamba hryðjuverka minnst með einnar mínútu þögn Þeirra sem fórust í hryðjuverkunum 11. september 2001 verður minnnst með einnar mínútu þögn klukkan 12.46 að íslenskum tíma í sendiráði Bandaríkjanna. 11.9.2006 12:00
Kögun semur við bandaríska flotann Bandaríski flotinn hefur eftir útboð tekið tilboði Kögunar hf. í rekstur fjarskiptastöðvar flotans í Grindavík. Útboðið er hluti af þeirri endurskipulagningu sem orðið hefur vegna brotthvarfs hersins og með þessu tekst að skapa áframhaldandi störf fyrir hluta þeirra starfsmanna sem sinnt hafa þjónustu við Varnarliðið á vegum Kögunar, segir í tilkynningu. 11.9.2006 11:45
Skorar á hnífstungumenn að gefa sig fram Lögreglan í Reykjavík leitar nú tveggja ungra manna sem eru aðilar að hnífstungumáli í Select við Suðurfell aðfaranótt sunnudags, 10. september. Góðar myndir náðust af báðum þessum mönnum í öryggismyndakerfi Select. Lögreglan skorar á þessa menn að gefa sig fram tafarlaust. 11.9.2006 11:15
Útlit fyrir metfjölgun landsmanna á árinu Útlit er fyrir metfjölgun landsmanna á þessu ári, meðal annars vegna aukinnar fólksflutninga frá útlöndum. Samkvæmt þjóðskrár voru landsmenn ríflega 304.300 1. júlí síðastliðinni og hafði þeim fjölgað um eitt og hálft prósent frá áramótum. 11.9.2006 10:45
Háskólakennurum fjölgar um 101 milli ára Háskólakennurum fjölgaði um hundrað og einn á milli áranna 2004 og 2005 samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Árið 2004 voru þeir um 1731 í 1158 stöðugildum en þeir voru 1832 í 1247 stöðugildum í nóvember í fyrra. Meirihluti starfsmanna við kennslu á háskólastigi, eða 60 prósent, er í hlutastarfi samkvæmt tölunum. 11.9.2006 10:00
Kögun semur við bandaríska flotann Bandaríski flotinn hefur eftir útboð tekið tilboði Kögunar hf. í rekstur fjarskiptastöðvar flotans í Grindavík. Útboðið er hluti af þeirri endurskipulagningu sem orðið hefur vegna brotthvarfs hersins og með þessu tekst að skapa áframhaldandi störf fyrir hluta þeirra starfsmanna sem sinnt hafa þjónustu við Varnarliðið á vegum Kögunar, segir í tilkynningu. 11.9.2006 09:32
Með augun á kerrunni Þrennt slapp með minniháttar meiðsl þegar jeppi sem fólkið var í valt út af Eyjafjarðarbraut skammt frá flugvellinum á Akureyri um hálftíu í gærkvöldi. Bílstjórinn var á ferð með kerru og vandaði sig mjög við að aka með hana, á kostnað þess að fylgjast nógu grannt með því hvort bíllinn sjálfur væri á veginum. 11.9.2006 09:15
Þjófurinn stakk af fullur undir stýri Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt þrjá ökumenn sem grunaðir voru um ölvun við akstur. Einn þeirra var staðinn að verki við að brjótast inn í bíla í Mosfellsbæ. Hann hafði stolið einu útvarpstæki og reyndi að flýja lögreglumenn akandi. En lögreglumennirnir náðu honum skjótt og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum, færður í fangageymslur og verður hann yfirheyrður í dag. 11.9.2006 09:15
Leitar enn árásarmannanna Lögreglan í Reykjavík leitar enn tveggja manna sem stungu öryggisvörð með hnífi og börðu starfsmann Select í höfuðið á bensínstöð Skeljungs í Fellahverfinu í Breiðholti í fyrrinótt. Að sögn varðstjóra sýna upptökur öryggismyndavéla ágætar myndir af árásarmönnunum og er vonast til að þær leiði til handtöku mannanna. 11.9.2006 08:30
Ríflega þrjátíu milljónir króna söfnuðust Ríflega þrjátíu milljónir króna söfnuðust í landssöfnuninni Göngum til góðs sem Rauði kross Íslands stóð fyrir í gær. Þessi upphæð á eftir að hækka þar sem enn hefur ekki verið talið í nokkrum deildum Rauða krossins úti á landi, og tvær deildir munu ganga til góðs í dag. 10.9.2006 20:37
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Stjórnarandstaðan myndi frjálslynda jafnaðarstjórn Formaður Samfylkingarinnar vill að stjórnarandstöðuflokkarnir myndi frjálslynda jafnaðarstjórn að loknum næstu kosningum. Útilokað virðist að Samfylkingin muni sitja í stjórn með Framsókn eða Sjálfstæðisflokki samkvæmt orðum formannsins. 10.9.2006 20:34
Hugmyndir uppi um að leggja Konukot niður Hugmyndir eru uppi hjá formanni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um að leggja Konukot niður í núverandi mynd og sameina það Gistiskýlinu í Þingholtsstræti. Þetta stangast á við reynslu starfsfólks í athvarfinu og kvennanna sem þar gista. Önnur úrræði fyrir heimilislausa, líkt og Kaffistofa Samhjálpar, eru líka í uppnámi. 10.9.2006 20:20
Kynferðisbrotamál klúðruðust vegna tregðu við að nota Barnahús Forstjóri Barnaverndarstofu segir að tvö nýleg mál sem vörðuðu kynferðisofbeldi gegn börnum hafi klúðrast vegna tregðu dómara við að nota Barnahús. Hann vill að allar skýrslur af börnum séu teknar í Barnahúsi, en segist tala fyrir daufum eyrum stjórnvalda. 10.9.2006 19:07
Auðveldara að smygla Greið leið er fyrir þá sem vilja smygla fíkniefnum, fólki eða öðrum ólöglegum farmi hingað til lands, eftir að hætt var að vinna úr upplýsingum frá frumratsjám í vor. Hægt er að fljúga hingað litlum vélum og lenda þeim utan alfaraleiðar án þess að nokkur verði þess var. 10.9.2006 19:00
Mikið um slagsmál í Keflavík Lögreglan í Keflavík þurfti fimm sinnum að stöðva slagsmál á Hafnargötunni þar í bæ í nótt. Tveir leituðu sér aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í kjölfar ólátanna en enginn var fluttur á lögreglustöð. 10.9.2006 14:01
Árásarmennirnir enn ófundnir Öryggisvörður var stunginn í bakið í nótt í verslun Select í Breiðholti og starfsmaður verslunarinnar var sleginn í höfuðið. Árásarmennirnir eru ófundnir. 10.9.2006 13:00
Sjö á slysadeild eftir umferðarslys á Miklubraut Sjö voru fluttir á slysadeild í nótt lítið meiddir eftir að ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Miklubraut nærri Rauðarárstíg. Bifreiðin reif niður 25 metra af járngirðingu á umferðareyju sem þar er og lenti svo framan á annarri bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. 10.9.2006 12:30
Flutningabíll valt á Vestfjörðum Flutningabíll valt í Trostansfirði á Vestfjörðum um sexleytið í gærkvöld. Bílstjórann, sem var einn í bílnum, sakaði ekki, að því er fram kemur á fréttavefnum Tíðis. Farmurinn, um 14 tonn af frystri loðnu, fór hins vegar allur út úr bílnum við óhappið og vann á þriðja tug björgunarsveitamanna ásamt vinnuvélum við að hreinsa svæðið fram eftir kvöldi. 10.9.2006 10:25
Öryggisvörður stunginn í síðuna Öryggisvörður var stunginn í síðuna í verslun Select í Breiðholti um þrjúleytið í nótt þegar hann reyndi að koma nokkrum ungum mönnum út úr versluninni. Maðurinn var fluttur á slysadeild en meiðsl hans reyndust minni en óttast var í fyrstu. Árásarmennirnir komust undan en lögregla hefur grun um hverjir voru að verki og er þeirra nú leitað. 10.9.2006 10:14
Ekki rof á skyldum gagnvart NATO Íslendingar bregðast ekki skyldum sínum gagnvart NATO þótt ratsjáreftirlit sé takmarkað, að mati Geirs Haarde, forsætisráðherra. Hann segir varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn eiga að ljúka fyrir mánaðamót. 9.9.2006 21:47
Fann fórnarlambið á vefsíðu fyrir samkynhneigða Pilturinn sem kom sér í kynni við mann í gegnum netið gagngert til að drepa hann, fór inn á vef fyrir samkynhneigða, þar sem hann taldi að þá væri auðveldara að fá viðkomandi til að hitta sig. Hann dvelur nú á unglingaheimili. 9.9.2006 21:41
Haftið rofið Stærsti jarðborinn lauk hlutverki sínu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar í morgun. Herdís Sigurgrímsdóttir var fyrir austan og fylgdist með ferlíkinu brjóta niður síðasta berghaftið. 9.9.2006 21:35
Brýnt að bregðast við misskiptingu Rúmlega 2500 manns gengu til góðs í dag og söfnuðu fé handa börnum í suðurhluta Afríku. Einn göngumanna var forseti Íslands sem telur einnig brýnt að stjórnvöld, sveitarfélög og almenningur hrindi af stað þjóðarátaki til að jafna lífskjörin á Íslandi. 9.9.2006 21:31
Samið um dreifingu "Barna" við breskt fyrirtæki Ný íslensk kvikmynd, Börn, verður frumsýnd í kvöld. Samningar hafa tekist við virt breskt fyrirtæki um sölu og dreifingu myndarinnar erlendis. 9.9.2006 18:48
Hestamenn og vegfarendur verði á varðbergi Svokallaður Grafarvogsdagur stendur nú yfir en honum lýkur með flugeldasýningu klukkan 22:00 í kvöld. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að vitað sé að hross geti fælst við flugelda og því biður lögreglan í Reykjavík bæði hestamenn og vegfarendur að vera á varðbergi. 9.9.2006 18:35
Lögreglustjórafélag Íslands stofnað Stofnfundur Lögreglustjórafélags Íslands var haldinn á Hvolsvelli í dag. Félagið er stofnað vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi lögreglunnar og eru félagar allir lögreglustjórar og aðstoðarlögreglustjórar sem sinna mun þeim störfum eftir 1. janúar 2007. 9.9.2006 16:33
Missa tökin á raunveruleikanum Ofbeldisfullir tölvuleikir og sjónvarpsefni hafa áhrif á þau ungmenni sem veik eru fyrir og geta orðið til þess að þau missi tökin á raunveruleikanum. Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessari þróun hérlendis fremur en annars staðar, segir Hugo Þórisson, barnasálfræðingur, en mál sextán ára pilts sem leitaði uppi mann til að drepa í gegnum netið, hefur vakið mikinn óhug. 9.9.2006 14:20
Sýning á útsaumuðum handaverkum opnar í Þjóðminjasafninu Ný sýning á útsaumuðum handaverkum listfengra kvenna frá ýmsum tímum verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands í dag klukkan 15. Fjölmörg verk skreyta salinn en allmörg slík eru í eigu Þjóðminjasafnsins. 9.9.2006 13:59
Vill taka málið upp við yfirstjórn NATO Varaformaður Samfylkingarinnar vill taka það upp við yfirstjórn NATO að ekkert eftirlit sé með ómerktum flugvélum sem hugsanlega reyna að komast inn í íslenska lofthelgi. 9.9.2006 12:47
Gengið til góðs Söfnun Rauða Krossins, Göngum til góðs hófst í morgun. Að þessu sinni er safnað fyrir börn í sunnanverðri Afríku sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi. 9.9.2006 12:22
Sífellt fleiri börn metin í sjálfsvígshættu Tæplega 50 börn sóttu bráðamóttöku Barna og unglingadeildar vegna sjálfsvígshættu á fyrstu fimm mánuðum ársins. Til að taka á þessum vanda er deildin að fara af stað með verkefni sem heitir Lífið kallar en til þess þarf fjármagn. 9.9.2006 12:16
Fremur róleg nótt um allt land Fremur rólegt var hjá lögreglu um allt land í nótt. Fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík voru þó fullsetnar í morgunsárið en að sögn varðstjóra á vakt höfðu þeir sem þar gistu unnið sér það eitt til saka að vera ofurölvi. Þrír voru teknir fyrir ölvuanarakstur í höfuðborginni í nótt. 9.9.2006 10:30
50 börn á bráðamóttöku BUGL fyrstu 5 mánuði 2006 Tæplega 50 börn sóttu bráðamóttöku Barna og unglingadeildar vegna sjálfsvígshættu á fyrstu fimm mánuðum ársins. Til að taka á þessum vanda er deildin að fara af stað með verkefni sem heitir Lífið kallar en til þess þarf fjármagn. 9.9.2006 10:08
Einstakt mál hérlendis Mál sextán ára pilts sem segist hafa leitað sér fórnarlambs á netinu til að ráða af dögum, er algerlega einstakt hérlendis. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir piltinum í gær, fyrir að hafa stungið 25 ára mann í bakið með hnífi. Pilturinn ber að hann hafi langað til að drepa mann og því hafi hann lagt til þessa netkunningja síns með hnífi þegar hann fékk tækifæri til. 9.9.2006 10:04
Eldur í plastkari læsti sig í klæðningu húss Kveikt var í plastkari í Skeifunni um hálffimmleytið í nótt. Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði talsvert í karinu og hafði eldurinn náð að læsa sig í klæðningu á húsi sem karið stóð við. Slökkviliðið var þó fljótt að ráða niðurlögum eldsins. Brennuvargurinn er ófundinn. 9.9.2006 10:00
Eldur kviknaði í kjallaraíbúð Eldur kviknaði í kjallara íbúðarhúss við Hlíðarveg í Kópavogi um sexleytið í morgun. Tveir voru í íbúðinni og komust þeir út af sjálfsdáðum, auk fjögurra manna fjölskyldu sem býr á efri hæð hússins. 9.9.2006 09:56
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent