Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telur eðlilegt að áherslur um gæsluvarðhald breytist Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður telur Hæstarétt hafa verið að setja nýjar línur um gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna en rétturinn hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um umfangsmikinn fíkniefnainnflutning. 1.9.2006 18:40
Ekki líklegt að verði slátrað í Búðardal Óvíst er hvort slátrað verður í sláturhúsinu í Búðardal í framtíðinni en 66 milljónum var varið í viðamiklar endurbætur á húsinu í fyrra. Norðlenska, sem hefur rekið húsið síðan þá framseldi óvænt samning sinn við sveitarfélagið til Kaupfélags Skagfirðinga í byrjun ágúst. Bændur í Dalasýslu þurfa því að flytja fé sitt annað til slátrunar. 1.9.2006 18:12
Þurfa að farga 300 tonnum af laxi Starfsmenn laxeldisfyrirtækisins Sæsilfurs hf. í Mjóafirði slátruðu í gær hundrað tonnum af laxi. Slátra þarf um 200 tonnum til viðbótar en margglyttur sem komust í laxeldiskvíarnar í fyrrinótt brenndu fiskinn. 1.9.2006 18:10
Vill viðræður um myndun kosningabandalags Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, vill viðræður við hina stjórnarandstöðuflokkana um myndun kosningabandalags til þess að koma núverandi ríkisstjórn frá í komandi þingkosningum. 1.9.2006 17:45
Aðstoðarrektor Bifrastar segir upp Magnús Árni Magnússon sagði upp starfi sínu sem aðstoðarrektor í Viðskiptaháskólanum á Bifröst í fyrradag. Magnús sagði, í samtali við NFS í dag, ástæðuna vera persónulegs eðlis. 1.9.2006 17:20
Tveir menn í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnasmygls Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Austurlands til fjögurra vikna eftir að fíkniefni fundust við hefðbundið tollaeftirlit í Norrænu á Seyðisfirði í gær. 1.9.2006 17:15
Smyglaði fíkniefnum átta sinnum í fangelsið Fangavörðurinn sem handtekinn var fyrir að smygla fíkniefnum inn í fangelsið á Litla-Hrauni hefur játað að hafa, gegn peningagreiðslu, í alls átta skipti, frá því hann hóf störf við sumarafleysingar s.l. vor, flutt fíkniefni inn í fangelsið. Hald hefur verið lagt á peninga á bankareikningi fangavarðarins. Þá hafa 5 menn játað að hafa afhent fangaverðinum fíkniefni til að flytja inn í fangelsið. Þrír þeirra eru fyrrverandi fangar á Litla-Hrauni. 1.9.2006 16:59
14 milljóna viðbótarframlag til Palestínu Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að veita viðbótarframlag til mannúðar- og neyðaraðstoðar á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna sem nemur um 14 milljónum króna. 1.9.2006 16:00
Fíkniefni fundust við tollaeftirlit í Norrænu Fíkniefni fundust við hefðbundið tollaeftirlit í Norrænu á Seyðisfirði í gær. Fram kemur a vef lögreglunnar að kveðnir hafi verið upp úrskurðir í málinu um gæsluvarðhald í fjórar vikur í Héraðsdómi Austurlands. 1.9.2006 15:00
Tekjur vegna skemmtiferðaskipa nema hundruðum milljóna króna Um það bil 190 skemmtiferðaskip koma til landsins í sumar. Tekjur vegna hafnar og vitagjalda nema allt að 150 milljónum króna. 1.9.2006 14:51
Aldrei fleiri nemendur á Bifröst Aldrei hafa fleiri nemendur verið í Viðskiptaháskólanum á Bifröst sem settur verður á sunnudaginn kemur. Þá munu rúmlega 700 nemendur hefja eða halda áfram námi í viðskiptum, félagsvísindum, lögfræði og frumgreinum við skólann. 1.9.2006 14:45
Dýrasta mynd Íslandssögunnar frumsýnd í gærkvöld Dýrasta kvikmynd Íslandssögunnar, Bjólfskviða í leikstjórn Sturlu Gunnarssonar, var frumsýnd í gærkvöldi. Kostnaður við myndina var einn milljarður króna. 1.9.2006 14:15
Skipulagsstofnun leggur blessun sína yfir álver Alcoa Skipulagsstofnun hefur lagt blessun sína yfir álver Alcoa í Reyðarfirði eftir að hafa farið yfir matsskýrslu fyrirtækisins vegna umhverfisáhrifa álversins. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að í matsskýrslu hafi verið sýnt fram á að bæði þurrhreinsun og vothreinsun séu fullnægjandi til að halda loftmengun neðan tilgreindra marka. 1.9.2006 14:10
Fara fram á aukafjárveitingu vegna mikils halla Rúmlega 400 milljóna króna tap var á rekstri Landspítala - háskólasjúkrahúss á fyrstu sex mánuðum ársins. Spítalinn á fullt í fangi með að mæta aukinni eftirspurn en stjórnendur spítalans hafa farið fram á aukin fjárframlög frá heilbrigðisyfirvöldum. 1.9.2006 14:00
Íslendingasagnaútgáfan verður Birtíngur Íslendingasagnaútgáfan, sem keypti nýverið útgáfurétt á öllum tímaritum Fróða, hefur verið gefið nafnið Birtíngur útgáfufélag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að nafnið sé niðurstaða samkeppni sem efnt var til meðal starfsmanna hins nýja fyrirtækis. 1.9.2006 13:45
Engu slátrað í Búðardal Dregið verður verulega úr rekstri Sláturhússins í Búðardal í haust og í vetur. Norðlenska, sem hefur rekið húsið síðan í fyrra hefur framselt leigusamning sinn við sveitarfélagið til Kaupfélags Skagfirðinga og þurfa bændu í Dalasýslu því að flytja fé til Sauðárkróks til slátrunar. 1.9.2006 12:45
HB Grandi áfram kvótamesta útgerð landsins HB Grandi hf. heldur sæti sínu sem kvótamesta útgerð landsins með tæplega 37.000 þorskígildis tonna kvóta. Nýtt kvótaár hófst á miðnætti í nótt en alls er 930 skipum og bátum úthlutað kvóta í ár. 1.9.2006 12:15
Vilja göng úr Bolungarvík í Hnífsdal Um 150 manns söfnuðust saman og óku Óshlíðina í gærkvöldi til að minna á það ástand sem oft ríkir á Óshlíðarvegi. Valrún Valgeirsdóttir, sem á hugmyndina að hópakstrinum, ræsti bílalestina með því að skjóta á loft neyðarblysi. 1.9.2006 12:05
Heilbrigðisráðherra í opinberri heimsókn í Kína Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, er nú í opinberri heimsókn í Kína þar sem hún hefur hitt kínverskan starfsbróður sinn, Gao Quiang, og rætt samstarf þjóðanna á heilbrigðissviði. 1.9.2006 11:30
Gistu fangageymslur vegna ölvunar Nokkrir gistu í fangageymslu lögreglunnar í Reykjavík vegna ölvunar í gær og nótt. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tveir piltar hafi verið handteknir við skemmtistað þar sem annar braut þar rúðu til að komast inn en hinn var með ólæti en báðir voru þeir verulega ölvaðir. 1.9.2006 11:15
Vilja aðgang að textasamanburði Náttúruverndarsamtök Íslands hafa óskað eftir því við Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra að fá aðgang og afrit af textasamanburði iðnaðarráðuneytisins á athugasemdum Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings og öðrum athugasemdum sem bárust ráðuneytinu við matskýrslu Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun. 1.9.2006 11:00
Tap FLE á fyrri hluta árs ríflega milljarður Flugstöð Leifs Eiríkssonar tapaði ríflega milljarði króna á fyrstu sex mánuðum ársins þrátt fyrir að tekjur félagsins hafi aukist um tólf prósent á tímabilinu. 1.9.2006 10:45
70 kannabisplöntur fundust við húsleit í Kópavogi Hald var lagt á um 70 kannabisplöntur við húsleit í Kópavogi í gærkvöld, en um var að ræða sameiginlegt fíkniefnaeftirliti lögreglunnar í Kópavogi og Hafnarfirði. 1.9.2006 10:30
Konur í fyrsta sinn meirihluti framhaldsskólakennara Konur eru í fyrsta skipti meirihluti framhaldsskólakennara en þeim hefur fjölgað um átta prósentustig á fimm árum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Árið 2000 voru konur 44 prósent allra starfsmanna við kennslu en í nóvember í fyrra voru þær orðnar 52 prósent kennara. 1.9.2006 10:14
Eldur í Hampiðjunni Enn á ný þurfti slökkviliðið í Reykjavík að slökkva eld í Hampiðjuhúsinu í gærkvöld. Tilkynnt var um eld í húsinu rétt fyrir klukkan átta en að þessu sinni var um lítinn eld að ræða. Kveiktur var eldur í húsinu í tvígang í fyrradag. Rannsóknardeild lögreglunnar rannsakar þessa endurteknu íkveikjur. 1.9.2006 09:45
16 flugmönnum sagt upp störfum hjá Icelandair Sextán fastráðnum flugmönnum hefur verði sagt upp hjá Icelandair um mánaðarmótin til viðbótar þeim fjörtíu og fjórum sem sagt var upp um síðustu mánaðarmót. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að ástæða uppsagnanna sé sögð vera verkefnisskortur. Þeir fastráðnu flugmenn sem er sagt upp hafa stystan starfsaldur hjá fyrirtækinu. 1.9.2006 09:30
Grunnskólalögin til endurskoðunnar Nefnd á vegum menntamálaráðherra vinnur nú að heildarendurskoðun á grunnskólalögum. Nefndinni er ætlað að leggja fram tillögur um lagabreytingar á grundvelli reynslu af rekstri sveitarfélaganna á grunnskólum og áform um breytta námsáætlun til stúdentsprófs. 1.9.2006 09:15
Valgerður neitaði að mæta Steingrími Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra neitaði að mæta Steingrími J. Sigfússyni í Kastljósþætti Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld. Þetta kemur fram í opnu bréfi Páls Magnússar útvarpsstjóra til Steingríms J. Sigfússonar alþingingismanns, sem gerði athugasemdir við Kastljósþátt í fyrrakvöld. 1.9.2006 08:44
Arnar HU með mesta kvótann Arnar HU frá Skagaströnd er með alls 6692 tonna kvóta á næsta fiskveiðiári ef miðað er við þorskígildi, en það er hæsti þorskígildiskvóti allra íslenskra skipa. Alls fá 414 skip úthlutað nýjum fiskikvóta en nýtt kvótaár hófst á miðnætti í nótt. 1.9.2006 08:23
Þurftu að slátra hundrað tonnum af laxi Starfsmenn laxeldisfyrirtækisins Sæsilfurs hf. í Mjóafirði slátruðu í gær hundrað tonnum af laxi. Marglyttur höfðu borist inn í laxeldiskvíarnar í fyrrinótt en þær brenna fiskinn með fálmurum sínum með þeim afleiðingum að honum þarf að slátra. Jón Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri Sæsilfurs segir þetta í annað skipti í sex ára sögu fyrirtækisins sem marglytta veldur slíku tjóni. 1.9.2006 08:12