Fleiri fréttir

Lýst eftir strokufanga

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Hilmari Ragnarssyni 43 ára, sem strauk frá Litla-Hrauni síðastliðinn þriðjudag. Hilmar er dökkhærður og grannvaxinn og var klæddur í dökka úlpu, dökkar buxur og ljósa skó.

Nauðgunartilraun í Breiðholti

Ráðist var á tuttugu og tveggja ára konu klukkan fögur í fyrri nótt í Breiðholti. Konan var á leið til vinnu þegar maður, ógnaði henni með hníf og keyrði hana í götuna þar sem hann reyndi að nauðga henni.

Húsaleiga hækkar til muna

Húsaleiga hefur hækkað til muna á þessu ári. Leiga á tveggja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10-20 þúsund krónur að meðaltali frá því í ágúst í fyrra.

Guðni segir flokksþingið velja forystu

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sem býður sig fram til áframhaldandi varaformennsku, segist hvorki styðja Jón Sigurðsson né Siv Friðleifsdóttur til formennsku, það sé flokksþingsins að velja sér forystu.

Norskir dagar á Seyðisfirði

Norskir dagar verða haldnir á Seyðisfirði á morgun, 12. ágúst og í ár er einnig haldið upp á 100 ára afmæli símasambands við útlönd.

Samfylkingin minnir á lýðræðisleg réttindi borgaranna

Rétt er að minna yfirvöld á mikilvægi þess að virða lýðræðisleg réttindi borgaranna, segir í ályktun samráðsfundar Samfylkingarfélaganna í Reykjavík, í tilefni frétta af aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og ferðafólki við Kárahnjúka.

Kona vinnur Hummer-jeppa

Kona nokkur sem hafði í tuttugu ár styrkt DAS með því að kaupa happdrættismiða fékk í gær afhentan fyrsta vinninginn, spánýjan Hummer-jeppa.

Erlendir ferðamenn teknir fyrir hraðakstur

Erlendur ferðamaður á bílaleigubíl var stöðvaður á rösklega 160 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi , skammt frá Hvolsvelli í gær og þrír aðrir útlendingar á 110 til 130 kílómetra hraða.

Fagna framboði Sivjar

Stjórnir Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði fagna fram komnu framboði Sivjar Friðleifsdóttur , oddvita Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, til embættis formanns flokksins.

Bíll valt við Kirkjubæjarklaustur

Tveir menn sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, þegar bíll þeirra fór út af þjóðveginum vestan við Kirkjubæjarklaustur í gærkvöldi og valt.

Flug til Lundúna á áætlun

Flug milli Íslands og Lundúna er allt á áætlun í dag eftir miklar tafir í gær í kjölfar aðgerða gegn meintum hryðjuverkamönnum.

Siv og Jón bjóða sig fram

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, tilkynnti í gær um framboð sitt til formanns flokksins.

Herbergi leigð á 35 þúsund

Leiguverð tveggja herbergja íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10-20 þúsund krónur að meðaltali frá í fyrra, að sögn Elísabetar Björgvinsdóttur, sölumanns hjá Fasteignamiðluninni Ársölum. „Meðal­leiguverð tveggja herbergja íbúða nú er 70 þúsund krónur á mánuði en í fyrra var meðalverðið 50-60 þúsund krónur.“

Skattkerfið hætt að jafna tekjur fólks

Ríkisskattstjóri segir áhrif skatta á tekjudreifingu hafa minnkað til muna undanfarin ár. Skattkerfið hefur aldrei jafnað tekjur landsmanna minna en nú. Hagfræðingur BSRB segir skattkerfið ekki virka sem skyldi.

Fjárlögin ekki virt í menntamálunum

Menntamálaráðherra segir mögulegt að hagræða innan ráðuneytisins, sérstaklega á háskólastiginu. Þriðjungur fjárlagaliða ráðuneytisins fór fram úr áætlunum á síðasta ári. Fjárlagagerðinni stórlega ábótavant, segir Ingibjörg Sólrún.

Hærri skatta á auðmenn

„Þeir sem vilja vera Íslendingar og vera í þessu landi þurfa að greiða keisaranum það sem keisarans er,“ segir Guðni Ágústsson, landbúnaðaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Eimskip gæti fengið milljarð króna í sekt

Fyrstu niðurstöður rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á meintum ólöglegum viðskiptaháttum Eimskipafélagsins gera ráð fyrir að sekta Eimskip um milljarð króna. Málið hófst árið 2002 með kæru Samskipa. Niðurstöðu er vænst í haust.

Borgarráð samþykkir nýtt ráð

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær tillögu stjórnkerfisnefndar um stofnun sérstaks leikskólaráðs sem fer með málefni leikskólanna og daggæslu, en þau mál voru áður voru í höndum menntaráðs. Verði tillagan samþykkt í annað sinn á næsta fundi borgarráðs mun aðskilnaðurinn ganga í gegn og nýtt fagsvið hjá Reykjavíkurborg, leikskólasvið, vera stofnað.

Seldu nær allan lax úr landi

Helstu laxeldi landsins eru uppiskroppa með lax. Ástæðan er að aukin eftirspurn eftir eldislaxi á heimsvísu og hækkandi heimsmarkaðsverð hefur leitt til þess að nær allur íslenskur lax hefur verið seldur úr landi.

Sjálfsagt að skoða tillögur

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir viðhorf um gagnsæi orkugeirans sem fram koma í skýrslu OECD vera alþekkt. Sjálfsagt sé að taka þau til athugunar.

180 farþegar biðu í níu klukkustundir

Margmenni var í Leifsstöð í gær á meðan beðið var eftir að hægt væri að fljúga til Heathrow-flugvallar. Öryggisreglur í flugi til Bandaríkjanna hafa verið hertar og er nú bannað að fara með flestan vökva í handfarangri vestur um haf.

Laga þarf eldvarnir

„Við teljum að eldvörnum í eldri gripahúsum sé mjög víða ábótavant,“ segir Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Sambandið hefur sent umhverfisráðherra bréf þar hvatt er til þess að eftirlit með eldvörnum í gripahúsum verði eflt.

Fleiri kennarar með réttindi

Kennurum með kennsluréttindi fjölgaði úr 82 prósentum í 87 prósent á árunum 1998-2005, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

Hættulegar flísar valda slysum

Flísar í útiklefa Salalaugar í Kópavogi hafa valdið óhöppum, þar sem viðnám er ekki nægilegt og þær verða hálar. Stefnt er að því að skipta um flísar á næstu vikum.

Ber við vanþekkingu á reglum

„Ástæðan fyrir því að ég var þarna á veiðum án veiðikorts var að ég gerði mér ekki grein fyrir að til þessara veiða þyrfti ég veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra um lundaveiðar hans í Grímsey í Steingrímsfirði á dögunum.

Árás á stúlku á leið í vinnu

Tvær líkamsárásir voru framdar í fyrrakvöld og -nótt. Reynt var að nauðga rúmlega tvítugri stúlku á leið til vinnu í Breiðholti. Fyrr höfðu þrír menn ráðist að öðrum á Hverfisgötu og lamið með bareflum.

570 milljónir í hálfsársuppgjöri

Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra nam rúmum 570 milljónum króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Hagnaður sparisjóðsins jókst um tæp tuttugu og fjögur prósent miðað við sama tímabil í fyrra.

Greinilega híbýli höfðingja

Fornleifafræðingar hafa komið niður á langhús við Hrísbrú í Mosfellsdal. Húsið er rúmlega tuttugu metra langt og má ráða af stærð þess að þar hafi búið höfðingjar.

Fann fólkið á leið til leitar

Björgunarsveitir fóru í tvö útköll vegna týndra ferðamanna í fyrrakvöld. Fernt, þrír Frakkar og einn Japani, varð viðskila við samferðamenn sína við Heklurætur og voru um tuttugu björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar. Björgunarsveitarmaður á leið til leitarinnar ók óvænt fram á fólkið seint um kvöldið, en ekkert amaði að því.

Sex milljörðum úthlutað

Barnabætur ársins 2005 hækkuðu um nítján prósent frá árinu 2004. Alls var tæpum sex milljörðum króna úthlutað til 55.500 framteljenda.

Sprenging á Grundartanga

Sprenging varð í keri í álveri Norðuráls á Grundartanga á sjötta tímanum í gær. Að sögn Slökkviliðsins á Akranesi skapaðist við það hætta en þó náðust fljótt tök á ástandinu. Engum varð meint af en kerið eyðilagðist og rafmagn fór af skálanum sem það var í. Álið úr kerinu lak í lagnastokka sem eru í kringum kerin.

Húsvagnar sífellt vinsælli

„Það er alltaf selt meira af húsvögnum en árið áður,“ segir Gunnlaugur Ingibergsson hjá Seglagerðinni Ægi, sem selja tjaldvagna, fellihýsi, pallhýsi, hjólhýsi og húsbíla. „Hjólhýsin hafa verið sérstaklega vinsæl, en áður fyrr voru þetta bara tjaldvagnar og fellihýsi. Við erum bara með samkomutjöld til leigu en seljum engin tjöld. Við hættum því vegna minnkandi eftirspurnar.“

Styrkir uppgröft á Hólum

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að styrkja uppgröft á Hólum í Hjaltadal næstu þrjú árin. Uppgröftur hefur staðið yfir á Hólum í sumar, en þetta er fimmta sumarið sem grafið er þar. Uppgröfturinn hefur fram til þessa verið unnin með styrk frá Kristnihátíðarsjóði.

Sjófuglum fækkar

Sjófuglum hefur fækkað umtalsvert á Norður-Atlantshafi og hvetja Landvernd og norræn systursamtök Norðurlandaráð til að finna orsakir fækkunarinnar og koma með tillögur til úrbóta.

Upplýsingarnar eru á átta tungumálum

Reykjavíkurborg hefur nú gefið út upplýsingaefni á átta tungumálum um leikskóla og tvítyngi barna á leikskólasviði. Bæklingunum, sem eru tvenns konar, er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir upplýsingum meðal erlendra foreldra leikskólabarna, en börn af erlendum uppruna í leikskólum Reykjavíkur eru um tíu prósent leikskólabarna í borginni.

Sjá næstu 50 fréttir