Fleiri fréttir Sautján ára velti bifreið Sautján ára ökumaður missti stjórn á bifreið sinni um þrjú leytið í nótt á Eyjafjarðarbraut eystri við bæinn Fellshlíð, um 25 kílómetra frá Akureyri, með þeim afleiðingum að hún valt. 25.8.2006 04:45 Um 220 óhöpp á fjórum árum Samgöngumál Rúmlega 220 umferðaróhöpp sem tilkynnt eru til lögreglu hafa orðið á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar frá upphafi ársins 2002, þar af tvö alvarleg slys en ekkert banaslys. 25.8.2006 04:45 Komin yfir sex þúsund stig 25.8.2006 04:30
Sjá næstu 50 fréttir
Sautján ára velti bifreið Sautján ára ökumaður missti stjórn á bifreið sinni um þrjú leytið í nótt á Eyjafjarðarbraut eystri við bæinn Fellshlíð, um 25 kílómetra frá Akureyri, með þeim afleiðingum að hún valt. 25.8.2006 04:45
Um 220 óhöpp á fjórum árum Samgöngumál Rúmlega 220 umferðaróhöpp sem tilkynnt eru til lögreglu hafa orðið á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar frá upphafi ársins 2002, þar af tvö alvarleg slys en ekkert banaslys. 25.8.2006 04:45
Með tæp 7 prómill í blóðinu Lögreglan í Finnlandi stóð heimamann nýlega að ölvunarakstri. Reyndist maðurinn vera með 6,84 prómill af áfengi í blóðinu, en til samanburðar má nefna að á Íslandi þarf 0,5 prómill til að missa ökuleyfið. 25.8.2006 04:15
Fjórðungur vinnur í fríinu Einn af hverjum fjórum íslenskum stjórnendum getur aldrei slitið sig frá vinnunni þótt hann sé í fríi. Nálægt því sjö af hverjum tíu viðurkenna að þeir hafi oft eða stundum áhyggjur vegna vinnunnar þegar þeir eru í fríi. 25.8.2006 04:00
60 grömm af amfetamíni Þrír menn voru handteknir í Hafnarfirði um tvö leytið í nótt, eftir að lítilræði af fíkniefnum, sem lögregla telur vera amfetamín, fannst í bifreið þeirra. Karlmennirnir eru á aldrinum 25 til 30 ára og hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður. 25.8.2006 03:00
Baugur hefur tilkynnt um yfirtökutilboð á House of Fraiser Baugur Group hefur, í samvinnu við fleiri fjárfesta, tilkynnt um formlegt yfirtökutilboð í House of Fraiser. Verðið sem samkomulag hefur náðst um nemur 453 milljónum sterlingspunda eða rúmum 60 milljarða króna. Í fréttatilkynningu frá FL Group kemur fram að stjórn House of Fraser hefur þegar mælt með tilboði fjárfestahópsins við hluthafa sína. 24.8.2006 19:40
Fær leyfi til að tjá sig um virkjanaframkvæmdir Yfirmenn Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings og starfsmanns Orkuveitu Reykjavíkur, hafa veitt honum leyfi til að tjá sig á ný um framkvæmdir Kárahnjúkavirkjunar. Grímur heldur fast í þá skoðun sína að það vanti mikið upp á jarðfræðihlutann í matskýrslu um virkjunina. 24.8.2006 19:21
Veitti sér sjálfur áverkana Niðurstaða lögreglurannsóknar hefur leitt í ljós að Kínverjinn sem fluttur var særður til Reykjavíkur frá Kárahnjúkum á sunnudagsmorgun veitti sér áverkana sjálfur og notaði til þess naglbít. Því hefur maðurinn neitað við yfirheyrslur og segir tvo grímuklædda menn hafa ráðist á sig. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá embætti lögreglunnar á Seyðisfirði. Niðurstaða tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík, sem sá um vettvangsrannsókn, hefur verið studd með áliti réttarmeinafræðings. 24.8.2006 19:13
Nauðsynlegt að fylgjast með netnotkun barna Unglingsdrengur í Bandaríkjunum seldi sig á Netinu eftir að barnaníðingar höfðu smátt og smátt unnið traust hans og fengið hann til að sýna sig við kynlífsathafnir með vefmyndavél. Saga hans mun ekki vera einsdæmi. Lára Stefánsdóttir menntunarfræðingur segir nauðsynlegt að fylgst sé með netnotkun barna án þess þó að þau séu svipt frelsinu. 24.8.2006 19:06
Ætlar ekki að breyta neinu Abraham Shwaiki, sem vísað var frá Ísrael í gær, ætlar ekki að gera neinar breytingar á vegabréfi sínu þó að flugvallaryfirvöld í Tel Aviv hafi gert athugasemdir og sagt það falsað. Utanríkisráðuneytið kannar nú ástæðu þess að það var stimplað ógilt og hvort líklegt sé að Abraham fái jafn kaldar viðtökur og í gær þegar hann kemur næst til landsins. 24.8.2006 19:05
Tryggja seljendur fyrir göllum fasteigna Söluvernd er ný trygging frá Vátryggingafélagi Íslands. Tryggingin bætir fjártjón seljenda vegna skaðabótakrafna sem upp kunna að koma, að hálfu kaupenda, vegna galla á fasteigninni. 24.8.2006 18:15
Actavis gerir gagntilboð í tékkneska fyrirtækið Pliva Actavis hefur gert gagntilboð í tékkneska fyrirtækið Pliva en fyrirtækið hefur barist við lyfjafyrirtækið Barr um að ná yfirhöndinni í fyrirtækinu. Tilboð Actavis er nú til skoðunar hjá Fjármálaeftirliti Króatíu. 24.8.2006 18:05
Hvatt til mótmæla á heimsvísu Alþjóðleg umhverfisverndarsamtök hvetja til mótmæla um allan heim fyrir utan íslensk sendiráð eða fyrirtæki sem á einhvern hátt tengjast Alcoa þann fyrsta september. Mótmælin eiga beinast gegn framkvæmdum Alcoa á Kárahnjúkasvæðinu sem og íslenska ríkinu. 24.8.2006 17:52
22,2 milljónir afhentar góðgerðarsamtökum Áheit að upphæð 22,2 milljónir króna sem söfnuðust í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis síðastliðinn laugardag verða afhent við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, fimmtudaginn 24. ágúst, kl. 18:00. 24.8.2006 17:45
Aldrei meiri afgangur af ríkissjóði Ríkissjóður var rekinn með 113 milljarða afgangi á síðasta ári, og hefur aldrei verið jafn mikill afgangur á ríkissjóði áður. Hagnaður af sölu Símans skýrir aðeins helming þessarar góðu stöðu en uppgangur í efnahagslífinu jók tekjur ríkissjóðs um 55 milljarða. 24.8.2006 16:03
Reykjanesskagi verði eldfjallagarður Landvernd vill að Reykjanesskagi verði skipulagður sem eldfjallagarður og fólkvangur og að ekki verði ráðist í jarðvarmavirkjanir á nýjum svæðum. Landvernd vill endurskipuleggja svæðið í heild með tilliti til náttúruverndar, útivistar og vinnslu á jarðvarma og jarðhitaefna. 24.8.2006 14:10
Yfirtökutilboð Barr samþykkt Stjórn króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva ákvað í gær að taka yfirtökutilboði bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr upp á 2,43 milljarða bandaríkjadollara. 24.8.2006 13:51
Þeir sem vinna meira fá einnig betri einkunnir Framhaldsskólanemendur sem vinna með námi sýna einnig betri námsárangur þó að tímasókn þeirra sé minni, minni tími fari í heimavinnu og þeir sofi skemur. Félagsfræðikennarar sem rannsökuðu efnið telja að betri mötuneyti eða jafnvel fríar máltíðir í framhaldsskólum gætu dregið úr vinnu nemenda. 24.8.2006 13:42
Lést af völdum áverka Maðurinn, sem slasaðist í umferðarslysi á Vesturlandsvegi í aðfaranótt sunnudags, þegar hross hljóp í veg fyrir bíl sem ekið var í átt til Reykjavíkur, er látinn. Hann hét Dariusz Wojewoda og var Pólverji, búsettur í Borgarnesi. Hann var tuttugu og fimm ára og lætur eftir sig unnustu. Félagi mannsins sem var farþegi í bíl hans lést í slysinu. 24.8.2006 13:29
Minniháttar tjón í verksmiðju Norðuráls Minniháttar tjón varð á rafmagnsköplum í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga í gærkvöldi þegar ál rann út fyrir ker og bræddi kaplana. Unnið er að fullnaðarviðgerð en atvikið raskaði ekki framleiðslu álversins. 24.8.2006 12:15
Fékk 250 þúsund króna hækkun á mánuði Launakostnaður vegna bæjarstjóra Árborgar er 250 þúsund krónum meiri en á síðasta kjörtímabili, auk ótakmarkaðs aðgangs að bíl á vegum sveitarfélagsins. Samfylkingin segir þetta ganga í berhögg við kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins um sparnað í fjármálum sveitarfélagsins. 24.8.2006 12:02
Kannað hvort vegabréf hafi verið ógilt Utanríkisráðuneytið kannar hvort ísraelsk stjórnvöld hafi brotið alþjóðalög í meðförum sínum á vegabréfi Abrahams Shwaikis, sem var handtekinn við komuna til Ísraels í fyrrinótt. Abraham kom heim til Íslands í gærkvöldi, eftir tæplega tveggja sólarhringa ferðalag, en honum var meinað að hitta veikan föður sinn og fjölskyldumeðlimi í Ísrael. 24.8.2006 12:02
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var konu á níræðisaldri á gatmótum Suðurlandsbraut og Engjavegs skömmu fyrir hádegi. Konan var á gangi á gangbraut þegar bíll ók á hana. Hún hlaut minniháttar áverka og var flutt á slysadeild Landspítalans. 24.8.2006 11:27
Flugmálafélag Íslands 70 ára á morgun Flugmálafélag Íslands verður sjötíu ára á morgun en það var stofnað tuttugasta og fimmta ágúst 1936. Að því tilefni verður efnt til móttöku fyrir gesti félagsins á Hótel Borg og minnisvarði um Glitfaxa, eftir Einar Jónsson, verður afhjúpaður við Fossvogskirkju. 24.8.2006 10:31
Mikill áhugi fyrir rekstri ferðaskrifstofa 131 fyrirtæki hefur sótt um leyfi til Ferðamálastofu um leyfi til reksturs ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjanda. Ný lög um skipulag ferðamála tóku gildi 1. janúar síðastliðinn og þá var Ferðamálastofu falin útgáfa til reksturs ferðaskrifstofa og ferðakskipuleggjenda, auk eftirlits með umræddri starfsemi. 24.8.2006 10:13
Ólöglegt að gefa sígarettur Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur farið fram á að útvarpsstöðin X-FM hætti að gefa sígarettur með miðum á forsýningu myndarinnar Takk fyrir að reykja. Umhverfissvið telur sígarettugjafirnar ótvírætt brot á tóbaksvarnarlögum og hyggst kæra útvarpsstöðina ef ekki er farið að lögunum. Útvarpsstöðin hyggst engu að síður halda sínu striki og jafnframt að bjóða upp á fríar sígarettur á forsýningunni í Smárabíói annað kvöld. 24.8.2006 09:15
Aukavinna með skóla hefur áhrif á námsárangur Framhaldsskólanemum sem vinna meira en þrjátíu tíma á viku með skóla gengur yfirleitt betur í skóla en hinum sem vinna lítið eða ekki, þrátt fyrir að þeir eyði minni tíma í heimavinnu, séu meira fjarverandi og sofi minna. Morgunblaðið hefur þetta eftir niðurstöðum þriggja félagsfræðinga. Þeim sem ekki vinna með skólanum skemmta sér hins vegar yfirleitt betur í skólanum. 24.8.2006 08:30
Þingmenn framsóknarflokksins eiga rúm þrjú sæti af tólf nefndum Þingmenn framsóknarflokksins eiga að meðaltali sæti í 3,5 af tólf fastanefndum Alþingis meðfram þingstörfum. Guðjón Ólafur Jónsson á metið en hann situr í sex nefndum og er formaður heilbrigðis-og trygginganefndar. Birkir Jón Jónsson, nýskipaður formaður fjárlaganefndar, er yngsti formaður fastanefndar Alþingis frá upphafi. 24.8.2006 08:30
Reykingamenn fengu bíómiða Útvarpsstöðin XFM braut hugsanlega lög með því að gefa boðsmiða á myndina Thank You for Smoking og sígaretta fylgdi með miðanum. Skilyrði fyrir því að fá miðann var að reykja sígarettuna. 24.8.2006 08:00
Vísað allslausum úr landi eftir 10 tíma Íslendingur af palestínskum ættum, Abraham Shwaiki, var í haldi lögreglu á flugvellinum í Tel Avív í 10 klukkustundir í gær og var að þeim tíma loknum vísað úr landi. Hann var sakaður um að ferðast á fölsuðu vegabréfi, sem ísraelskir lögreglumenn ógiltu síðan og tóku af honum. 24.8.2006 08:00
Missti stjórn á bíl í lausamöl og krappri beygju Bíll valt um klukkan þrjú í nótt á Eyjafjarðarbraut eystri við bæinn Fellshlíð í Eyjafirði. Þrjú ungmenni voru í bílnum en ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri með minniháttar skrámur. Svo virðist sem ökumaður bílsins hafi misst stjórn á honum í lausamöl í krappri beygju með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn er mjög mikið skemmdur. 24.8.2006 07:54
Tveir Íslendingar í haldi í Brasilíu Tveir Íslendingar sitja nú í gæsluvarðhaldi í Brasilíu fyrir tvö aðskilin fíkniefnamál. 24.8.2006 07:45
Skólastofurnar eru opnar og kennslustundir mislangar Allir nemendur Norðlingaskóla fá heimsókn frá starfsfólki skólans í upphafi skólaárs. Þetta fyrirkomulag hefur mælst vel fyrir en skólinn býður upp á ýmiskonar nýbreytni í skólastarfi. 24.8.2006 07:45
Mislægu gatnamótin eru vel á veg komin Áætlaður kostnaður við mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar er um þrír milljarðar króna. Samhliða verður skoðað að leggja Miklubraut í stokk meðfram Klambratúni. Stefnt er að því að verkið verði langt komið árið 2010. 24.8.2006 07:45
Mótmæla nýrri skattheimtu Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) áætla að um 200 milljónir króna leggist á kaupendur almennrar byggingavöru vegna breytinga sem eru boðaðar í frumvarpi Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra um stofnun svonefndrar Byggingarstofnunar. 24.8.2006 07:30
Kveðst ekki geta tjáð sig Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, getur ekki tjáð sig um hvort gera skuli jarðhitasvæði á Reykjanesi að friðlandi. 24.8.2006 07:30
Vilja lagabreytingar til að auðvelda störf Send hafa verið bréf til dómsmála- og samgönguráðuneyta þar sem óskað er eftir lagabreytingum til auðvelda störf lögreglu og Neyðarlínunnar. Mikilvægt að breyta lögum svo að hægt sé að sinna lögbundnu hlutverki, segir í bréfinu. 24.8.2006 07:30
Verulegt tjón á rafmagnsköplum Talið er að verulegt tjón hafi orðið á rafmagnsköplum í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga í gærkvöldi þegar ál rann út fyrir ker og bræddi kaplana. Slökkviliðið á Akranesi var kallað út um klukkan hálf níu í gærkvöldi vegna reyks sem lagði frá lagnakjallara í skála þrjú. 24.8.2006 07:24
Barnaafmæli fagnað í fangelsi Haldið var upp á afmæli tveggja ára gamallar stúlku í fangelsinu í Kópavogi fyrir skemmstu. Stúlkan hefur dvalið hjá móður sinni í fangelsinu frá fæðingu. 24.8.2006 07:15
Kristinn H. segir samkomulag brotið Kristinn H. Gunnarsson segist hafa gert samkomulag við Hjálmar Árnason um að verða aftur formaður í einni af nefndum þingsins. Það hafi ekki verið efnt. Hjálmar segir Kristin ekki fara rétt með og skilur ekki hvað vakir fyrir honum. 24.8.2006 07:15
Söfnun fyrir ekkju hafin Olga Guðgeirsdóttir, húsmóðir í Vogum, hefur stofnað söfnunarreikning fyrir fjölskyldu Jóhanns Fannars Ingibjörnssonar, sem lést í bílslysi á Garðskagavegi þann 16. ágúst síðastliðinn. Jóhann Fannar lét eftir sig 27 ára eiginkonu og þrjú ung börn. 24.8.2006 07:00
Samkeppniseftirlitið kallar á afnám margvíslegra gjalda Samkeppniseftirlitið segir aðgerða þörf til að efla samkeppni á milli banka. Miðað við afkomu gætu þeir boðið betri kjör. Ný skýrsla sýnir að viðskiptavinir færa sig ógjarnan á milli banka. Huga þarf að eignarhaldi á greiðslukerfum og kortafyrirtækjum. 24.8.2006 07:00
Átak gegn riðuveiki kostar 667 milljónir Kostnaður ríkissjóðs vegna baráttu gegn riðuveiki nam 667,4 milljónum króna og kostnaður vegna garnaveiki 90,3 milljónum króna á tímabilinu 1998-2004. Áætlað er að um 182.000 kindum hafi verið fargað vegna aðgerðanna á 18 ára tímabili og að 350 bændur hafi hætt búskap með sauðfé í kjölfar niðurskurðar vegna riðuveiki. 24.8.2006 07:00
Yfir átta hundrað börn bíða Alls bíða 816 börn eftir vistun á frístundaheimilum í Reykjavík. Flest börn bíða eftir plássi í Grafarvogi og Árbæ eða um 220 á hvorum stað. 24.8.2006 06:45