Fleiri fréttir

Kostnaður vegna Símasölu hátt í 800 milljónir

Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. Auk þess fékk Morgan Stanley-fjárfestingabankinn greiddar 682 milljónir króna fyrir ráðgjöf sína.

40 starfsmönnum Medcare sagt upp

Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare utan og verður hátt í 40 starfsmönnum hér á landi sagt upp. Búið er að tilkynna um yfirvofandi uppsagnir á starfsmannafundum.

Stuðningur og samúð minnisstæð Flateyringum

Stuðningur og samúð íslensku þjóðarinnar eru Flateyringum minnistæð nú þegar tíu ár eru liðin frá því að snjóflóðið féll á Flateyri þar sem 20 manns létu lífið.

Sérfræðikostnaður nær tvöfaldast

Kostnaður hins opinbera við kaup á sérfræðiþjónustu nær tvöfaldaðist milli áranna 1998 og 2003 að því er fram kemur í úttekt Ríkisendurskoðunar sem unnin var að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingar.

Rjúpnaskyttur gripnar á Þingvöllum

Lögreglumenn frá Selfossi stóðu tvær rjúpnaskyttur að ólöglegum veiðum í þjóðgarðinum á Þingvöllum í gær. Skotmennirnir höfðu skotið fjórar rjúpur þegar að var komið, og lagði lögregla hald á þær og skotvopln mannanna, sem eiga yfir höfði sér sektir, þar sem skotveiðar eru bannaðar í þjóðgarðinum.

Fuglaflensa í Þýskalandi

Fuglaflensusmit greindist í dauðum gæsum í Þýskalandi í gær. Flensan sem greindist í gæsunum er talin af H5N1 stofn veirunnar.

Norðurlandaráðsþing sett í gær

57. þing Norðurlandaráðs var sett á Hótel Nordica í Reykjavík í gær. Á dagskrá í gær voru almennar stjórnmálaumræður.

Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir

Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði.

Fundu neyðarsendi Vamos

Þyrla frá danska varðskipinu Hvítabirninum fann í gær neyðarsendi skútunnar Vamos á floti skammt undan austurströnd Grænlands. Þann 27. september bjargaði áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar skipverja af laskaðri skútunni en félagi hans fórst. Þá var sendirinn ofan í skútunni og er því talið að hún sé sokkin.

Leituðu konu og stúlku á Möðrudalsöræfum

Kona og stúlka sem leitað var að á Austurlandi fundust heilar á húfi á Möðrudalsöræfum laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þær voru gestkomandi á bæ í Breiðdal en ætluðu í stuttan bíltúr um hádegisbil. Þegar þær voru ekki komnar aftur um kvöldmatarleytið hófu björgunarsveitir leit eystra og eftirgrennslan víða um land.

Eyfirskir bændur vilja kynbæta kúastofninn

Eyfirskir kúabændur samþykktu í vikunni ályktun til Landssambands kúabænda um að hafist verði þegar handa við undirbúning að kynbótum á íslenska kúastofninum með innfluttu erfðaefni. Í nóvember 2001 höfnuðu bændur hins vegar með afgerandi hætti kynblöndun íslenska kúastofnsins við þann norska.

Kókaín í umslaginu

Grunur leikur á að fíkniefni hafi verið send til landsins í allmörgun póstsendingum að undanförnu. Karl og kona sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Lögregla gerði nýverið upptækt umslag á leið til landsins en í því var kókaín.

Norrænir karlar bera ábyrgð

Í tillögu sem liggur fyrir þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík er þeim tilmælum beint til stjórnvalda á Norðurlöndum að þau hafi frumkvæði að rannsóknum sem upplýst geti hverjir standi á bak við mansal þannig að unnt verði að sækja þá til saka. Tillagan kemur frá svonefndri borgara- og neytendanefnd og er samin að frumkvæði flokkahóps vinstri sósíalista og grænna.

Verkalýðsfélög kæra starfsmannaleigu

Fimm verkalýðsfélög hafa sent kærur til sýslumannsins í sínu umdæmi vegna starfsmannaleigunnar 2B. Þau vilja láta reyna á lögmæti starfseminnar. Lögmaður 2B vísar því alfarið á bug að félagið starfi ekki innan ramma laga.

Nefndarmenn fengu tíu milljónir króna

Fjórir nefndarmenn og tveir starfsmenn feinkavæðingarnefndar engu greiddar alls tíu milljónir fyrir störf sín vegna sölu Símans að meðtöldum ferðakostnaði. Verðmat nefndarinnar á fyrirtækinu var tæpum fimmtán milljörðum undir söluverði.

Nýskipan lögreglumála:

Framkvæmdanefnd um nýskipan lögreglumála leggur til að lögregluembætti landsins verði 15, þar af sjö lykilembætti, en í dag eru embættin 26.

400 störf verða til

Alcoa Fjarðaál hefur samið við IMG Mannafl-Liðsauka um að fyrirtækið muni ráða alla starfsmenn álversins á Reyðarfirði, um 400 manns, á næstu tveimur árunum. Í tilefni þess mun ráðningarfyrirtækið opna útibú á Reyðarfirði.

Geta valdið heyrnarskaða

Að mati danskra sérfræðinga veldur mikil notkun mp3- spilara heyrnarskaða. Telja þeir að of margir séu með spilarana of hátt stillta og hlusti of lengi í einu. Þetta kemur fram í dagblaðinu Politiken í gær. Er talið að fjöldi heyrnarskertra í Danmörku muni tvöfaldast á næstu 15 til 20 árum.

Flateyringar minnast látinna

Klukkan átta í kvöld hefst minningardagskrá í íþróttahúsinu á Flateyri vegna snjóflóðsins hörmulega sem fyrir tíu árum kostaði tuttugu manns líf og olli gífurlegri eyðileggingu á staðnum. Þá verður í Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík bænastund á sama tíma. Búast má við að dagurinn verði mörgum Önfirðingum erf iður enda hörmungarnar miklar sem flóðið hafði í för með sér.

Rannsóknir samræmdar

Ríkislögreglustjóri hefur gert samning til eins árs við Fræðslumiðstöð bílgreina um framkvæmd bíltæknirannsókna vegna umferðarslysa. Rannsakað verður ástand ökutækja sem lent hafa í alvarlegu umferðarslysi eða þar sem grunur leikur á að ástandi ökutækis sé verulega ábótavant.

Ráðherrar funda

Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna hittast á næstunni til þess að ræða aðkallandi aðgerðir gegn mögulegum fuglaflensufaraldri. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, greindi frá þessari ákvörðun á blaðamannafundi í Reykjavík í gær. Hann sagði að aðgerðir miðuðust við fyrirbyggjandi aðgerðir og framleiðslu á bóluefni.

Hús keypt fyrir 200 milljónir

"Við erum búnir að borga út öll hús sem búið var að semja um kaup á," segir Kristján Ríkharðsson, annar verktakanna sem vilja kaupa upp hesthús á svæði Hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi. Þetta eru tuttugu eignarhlutar af um hundrað sem félagsmenn Gusts hafa selt. Greiðslurnar voru inntar af hendi síðastliðinn föstudag og Kristján segir fleiri vera að semja um sölu hesthúsa í kjölfarið.

Í kjölfar Ægis

Skipstjórinn á Síldveiðiskipinu Hákoni EA kallaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunar eldsnemma í gærmorgun eftir að skipið hafði fengið nótina í skrúfuna. Var skipið þá að síldarveiðum í Jökuldýpi suðvestur af Snæfellsjökli. Varðskipið Ægir var komið á vettvang klukkan átta í gærmorgun. Kafarar gátu ekki leyst nótina þar sem straumþungi var mikill og því var Ægir látinn draga síldveiðiskipið til Reykjavíkurhafnar.

Kuldakastið bjargaði

Fram undan er háannatími á hjólbarðaverkstæðum landsins en nú bregður svo við að erfiðlega gengur að manna verkstæðin.

Ríkið sýknað

Bótakröfu konu á fertugsaldri á hendur ríkinu upp á rúmar 48 milljónir króna var í gær hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í febrúar 2000 var æxli fjarlægt úr höfði konunnar á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum en hún vildi meina að meinið hefði átt að greina hér í mæðraskoðun árið 1998. Þannig hefði mátt koma í veg fyrir varanlega örorku hennar, sem metin er 100 prósent.

Ærumeiðingar í garð lögreglu:

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Björn Tómas Sigurðsson af ákærum um ærumeiðingar en hann brigslaði tveimur lögreglumönnum á heimasíðu sinni og í fjölmiðlum um að láta fíkniefnasala vita af aðgerðum lögreglunnar.

Vörubíll út í móa og á hlið

Bílstjóri vörubíls var hætt kominn í gærmorgun við Lögbergsbrekku á Suðurlandsvegi. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi missti hann meðvitund með þeim afleiðingum að vörubíllinn fór út af veginum og valt á hliðina um það bil þrjátíu metrum utan vegar. Ökumanninn sakaði ekki. Grafa sem var á vinnusvæði skammt hjá var notuð til að toga bílinn á rétta hlið aftur.

Konan og stúlkan fundnar

Konan og stúlkan sem leitað hefur verið að á Austurlandi í dag eru komnar í leitirnar. Þær fundust inni á Möðrudalsöræfum rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Vegfarandi sem heyrt hafði tilkynningu lögreglu um að þeirra væri leitað keyrði fram á þær og lét lögreglu vita.

Neyðarsendir skútunnar fundinn

Þyrla frá danska varðskipinu Hvítabirninum fann í dag neyðarsendi skútunnar Vamos skammt undan strönd Grænlands. Þann 27. september björguðu áhafnir þyrlunnar Lífar og flugvélarinnar Synjar einum skipbrotsmanni af skútunni en félagi hans fórst.

Íslandsbanki skilaði methagnaði

Íslandsbanki skilaði methagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins 2005. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var um fjórir komma átta milljarðar króna eftir skatta.

Konu og barns leitað

Leit stendur yfir á öllu Austurlandi að konu og barni. Björgunarsveitir hafa leitað meðfram vegum á Austurlandi en eftirgrennslan er jafnframt hafin um allt land.

Vinna saman gegn fuglaflensu

Norðurlöndin fimm ætla að vinna saman að vörnum gegn fuglaflensu. Markmið þessarar samvinnu er bæði að koma í veg fyrir faraldur og bregðast við ef hann brýst út.

Agavandamál í skólum hér á landi

Stjórnvöld í Bretlandi ætla að gefa kennurum frekari lagaheimildir til að ráða við nemendur og refsa þeim sem haga sér illa. Agavandamál eru altöluð á meðal kennara hér á landi og getur tekið hátt í hálfa kennslustund að koma ró á bekkinn.

Léleg laun fyrir umönnunarstörf

Starfskona á sambýli er með 136 þúsund krónur í grunnlaun. Starfskona á leikskóla er með 125 þúsund krónur í grunnlaun og starfskona á elliheimili er með 116 þúsund krónur í grunnlaun. Þetta eru dæmi um mánaðartekjur kvenna í láglaunastörfum fyrir skatta.

Þátttaka vonum framar

Ekki komust allir sem vildu nálægt sviðinu sem sett var upp í tilefni af kvennafrídeginum. Skipuleggjendur hans óraði ekki fyrir því að þátttakan yrði jafn mikil og raun bar vitni.

Sökk í Sandgerðishöfn

Þilfarsbáturinn Ritur ÍS-22 sökk í höfninni í Sandgerði í dag. Báturinn, sem er tíu brúttórúmlestir, sökk á skammri stund þar sem hann var bundinn við flotbryggju í höfninni.

Gistiskýlið yfirfullt í kuldanum

Gistiskýli fyrir heimilislausa í höfuðborginni yfirfylltist í nótt og þurftu starfsmenn að taka við fleirum en húsrúm leyfði, til að vísa ekki fólki út í nístandi kuldann. Frostið í nótt fór niður í fimm gráður. Útigangsmenn skipta tugum í Reykjavík. Þeim hefur fjölgað verulega að undanförnu og oft þarf að vísa þeim frá.

Ægir á leið til hafnar með bát í togi

Varðskipið Ægir er nú á leið til hafnar með síldveiðibátinn Hákon EA-148 í togi. Hákon fékk veiðarfærin í skrúfuna og þar sem ekki tókst að losa um þau tók Ægir síldveiðibátinn í tog.

Fauk í Bandaríkjamenn

Það fauk í Bandaríkjamenn í kjölfar viðræðufunda með Íslendingum um varnarmál í síðustu viku í Washington. Í bandaríska varnarmálaráðuneytinu er vilji fyrir því að loka Keflavíkurstöðinni og hörð samningatækni Íslendinga gerir þeim sem bera á móti erfitt fyrir.

Sjá næstu 50 fréttir