Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Inga segir flokkinn standa stoltan við bak Tómasar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að öllum hjá flokknum beri saman um það að það komi nákvæmlega engum við með hverjum Tómas A. Tómasson þingmaður sængaði í Taílandi fyrir átta árum. Hún segir flokkinn standa stoltan við bak Tómasar enda neiti hann að hafa keypt vændi. 28.4.2022 16:55
Rifjar upp flótta Matthíasar Mána af Litla-Hrauni: „Vorum smeyk að eitthvað hefði komið fyrir hann“ Einn best skipulagði flótti úr fangelsi hér á landi var þegar Matthíasi Mána Erlingssyni tókst að flýja úr fangelsinu á Litla-Hrauni í desember 2012. Fyrrverandi forstöðumaður á Litla-Hrauni segir starfsmenn hafa haft miklar áhyggjur af Matthíasi á meðan hans var leitað, enda var hann einn á ferli í uppsveitum Árnessýslu um miðjan desember. 28.4.2022 16:44
Fundað hjá Flokki fólksins vegna skilaboða Tómasar Guðmundur Ingi Kristinsson, formaður þingflokks Flokks fólksins, segist hafa rætt við Tómas A. Tómasson, þingmann flokksins, um skilaboð sem hann sendi árið 2014 þar sem Tómas lýsti kynlífi sínu með yngri konum í Taílandi. 28.4.2022 16:11
Skyggnast inn í heim hugvíkkandi efna Rannsakendur við sálfræðideild Háskóla Íslands feta ótroðnar slóðir og kortleggja nú notkun landsmanna á hugvíkkandi efnum. Þúsundir erlendra rannsókna og fræðigreina hafa verið skrifaðar úti í heimi um notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni en rannsakendurnir segja þetta umfjöllunarefni enn vera á jaðrinum hér á landi. 28.4.2022 15:47
Fossvogslaug verður staðsett á milli grunnskólanna tveggja Fyrirhuguð sundlaug í Reykjavík sem gengið hefur undir nafninu Fossvogslaug verður staðsett á svæðinu á milli Fossvogsskóla og Snælandsskóla í Fossvogsdal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 28.4.2022 14:44
Bein útsending: Viðreisn kynnir kosningaáherslur í borginni Viðreisn hefur boðað til kynningafundar á stefnu sinni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Fundurinn fer fram í garðinum hjá Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur oddvita flokksins í Reykjavík og hefst klukkan 15. 28.4.2022 14:30
„Ef við setjum upp örbylgjuofn og samlokugrill getum við sótt um vínveitingaleyfi?“ Framkvæmdastjóri Hagkaups segir ekki hafa komið til umræðu hjá verslununum að sækja um vínveitingaleyfi. Hann veltir þó fyrir sér hvort verslanirnar gætu selt áfengi ef þær settu upp samlokugrill og örbylgjuofn og seldu veitingar á staðnum. 28.4.2022 14:04
Biurokracja rządowa uniemożliwia wystrzelenie rakiet z Langanes Szkocka firma kosmiczna Skyrora twierdzi, że „niepotrzebna biurokracja” rządu islandzkiego opóźnia możliwość wystrzelenia rakiety w powietrze z Langanes. 28.4.2022 14:01
Skæð hitabylgja setur líf Indverja úr skorðum Skæð hitabylgja hefur sett daglegt líf milljóna Indverja úr skorðum og er von á því að hún nái hápunkti á allra næstu dögum. Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, segir að hitastig fari nú hratt hækkandi víða um land og hitabylgjan sé fyrr á ferðinni en í venjulegu árferði. 28.4.2022 13:56
Hin ósáttu þurfi að kynna sér grundvallarreglur lýðræðisins Á fjölmennum félagsfundi Eflingar á Hlíðarenda í gærkvöldi var tillaga um að draga til baka hópuppsagnir felld. Anna Sigurlína Tómasdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks Kjöríss hjá Eflingu og Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, segja félagið nú vera klofið. Núverandi formaður segir að þau sem ekki geti unað niðurstöðunni þurfi að kynna sér grundvallarreglur lýðræðisins. 28.4.2022 13:45
Bær í örum vexti í Pallborðinu Íbúum hefur hvergi fjölgað jafn mikið á undanförnum árum eins og í Reykjanesbæ sem er fjórða fjölmennasta sveitarfélag landsins með tæplega tuttugu þúsund íbúa. Oddvitar þriggja framboða mæta í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14 í dag. 28.4.2022 13:11
Kallað út vegna elds í íþróttahúsi í Breiðholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds innan í klæðingu íþróttahússins í Austurbergi í Breiðholti í Reykjavík skömmu eftir hádegi í dag. 28.4.2022 12:56
Bein útsending: Við erum öll almannavarnir Ráðstefnan Við erum öll almannavarnir verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 13 í dag en þar verður fjallað um almannavarnamál á Íslandi frá ýmsum hliðum. 28.4.2022 12:31
Fluttur í fangelsi til afplánunar eldri dóms eftir líkamsárás í nótt Karlmaður var í nótt handtekinn fyrir líkamsárás í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var fluttur í morgun á Hólmsheiði til þess að afpána nýlegan dóm. 28.4.2022 12:06
Gullvottun í jafnréttismálum og Ísland efst á lista yfir framlög til málaflokksins Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna, UNDP, hefur veitt Íslandi gullvottun fyrir vinnu á sviði jafnréttismála og þróunarsamvinnu. Samkvæmt nýjum tölum frá OECD er Ísland efst á lista þjóða yfir framlög til jafnréttismála sem hlutfall af heildarframlögum til þróunarsamvinnu. Af framlögum Íslands runnu 88 prósent til verkefna sem tengjast jafnréttismálum og valdeflingu kvenna og stúlkna. 28.4.2022 11:50
Lilja segir Bjarna og Katrínu einnig hafa verið með áhyggjur af bankasölu Lilja Alfreðsdóttir segir að bæði fjármála- og forsætisráðherra hafi deilt þeim áhyggjum og efsemdum sem hún hafði um aðferðina við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og og viðraði á ráðherrafundi. Þingmaður Viðreisnar segir það pungspark í íslensku þjóðina. 28.4.2022 11:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um félagsfund Eflingar sem fram fór í gærkvöldi en þar var tillaga um að draga til baka uppsagnir hjá félaginu felld með nokkrum meirihluta atkvæða. 28.4.2022 11:43
Tómas lítur ekki svo á að hann hafi greitt fyrir kynlíf í Taílandi Tómas A. Tómasson þingmaður lítur ekki svo á að hann hafi greitt fyrir kynlíf í Taílandi sem vísað er til í smáskilaboðum sem hann sendi til kunningja síns árið 2014. 28.4.2022 11:24
Ísland veitir 80 milljónum til Eþíópíu Á framlagaráðstefnu sem fram fór í Genf í gær tilkynntu íslensk stjórnvöld að þau myndu veita 80 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Eþíópíu á þessu ári. Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Evrópusambandið, Eþíópía, Kenía og Sómalía stóðu fyrir ráðstefnunni vegna yfirvofandi hungursneyðar af völdum þurrka á svæðinu sem kennt er við horn Afríku. 28.4.2022 10:35
Náttúrufræðingar segja stjórnvöldum að hysja upp um sig buxurnar Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) skorar á Alþingi, stjórnvöld, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands og skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands að „hysja upp um sig buxurnar“ og ganga frá yfirflutningum Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi svo sómi sé að. 28.4.2022 10:14
Bein útsending: Framtíðin var í gær og tími aðgerða er núna Á Vorfundi Landsnets verður mikilvægi flutningskerfisins í orkuskiptum til umfjöllunar. Á fundinum verður leitað svara við því hvaða afleiðingar veikt flutningskerfi geti haft og kosti þess að styrkja kerfið. Hvaða áskoranir blasa við og hvernig tökumst við á við þær? 28.4.2022 08:39
Meirihlutinn heldur velli og Sjálfstæðisflokkurinn missir þrjá samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn í Reykjavík heldur velli í nýrri könnun Fréttablaðsins sem Prósent framkvæmdi fyrir blaðið. Þeir flokkar sem mynda núverandi meirihluta – það er Samfylking, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn – fá 52,2 prósent og tólf af 23 borgarfulltrúum. 28.4.2022 07:48
Fjölbreytt útirými meginatriði í vinningstillögu um skipulags Torfsnefs á Akureyri Tillaga Arkþings/Nordic hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um nýtt skipulag Torfunefs, bryggjusvæðis við miðbæ Akureyrar, en niðurstaða dómnefndar var kynnt í húsnæði Hafnarsamlags Norðurlands í gær. Ljóst má vera að miðbær Akureyrar mun taka stakkaskiptum nái hugmyndirnar fram að ganga. 28.4.2022 07:38
Skýjað um landið vestanvert og rigning í nótt Líklega verður skýjað um landið vestanvert í dag og með kvöldinu er útlit fyrir að úrkomubakki komi inn á land úr vestri. 28.4.2022 07:16
Hyundai Ioniq 5 er heimsbíll ársins 2022 Rafbíllinn Hyundai Ioniq 5 var valinn heimsbíll ársins 2022 á verðlaunahátíðinni World Car Awards sem fram fór samhliða alþjóðlegu bílasýningunni í New York. Auk þess var Ioniq 5 valinn Rafbíll ársins og hönnun ársins. 28.4.2022 07:01
Vaktin: Tíu slasaðir eftir eldflaugaárás í Kænugarði Ráðamenn í borginni Kherson, sem Rússar segjast nú hafa á valdi sínu, segja að frá og með 1. maí muni yfirvöld hefja ferlið við að taka upp rússnesku rúbluna. Aðlögunartímabilið verður fjórir mánuðir en eftir það verður rúblan eini gildi gjaldmiðillinn á svæðinu. 28.4.2022 06:35
Segja Eflingarfélaga hafa varið stjórnina gegn atlögu Sólveig Anna Jónsdóttir og Baráttulisti hennar túlkar niðurstöðu félagsfundar Eflingar á þá leið að þar hafi félagsmenn varið stjórn félagsins gegn atlögu að stjórn félagsins af hálfu starfsfólks skrifstofu Eflingar og stuðningsmanna A-listans. 27.4.2022 23:49
Sjá ekki hvernig Efling geti varið hag annarra sem lenda í hópuppsögnum Anna Sigurlína Tómasdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks Kjörís í Hveragerði hjá Eflingu telur að félagsfundur stéttarfélagsins í kvöld sýni að félagið sé klofið. Ólöf Helga Adolfsdóttir, fyrrverandi varaformaður félagsins, vonast til þess að þeir sem séu ósáttir með hópuppsagnirnir leiti ekki á önnur mið, heldur berjist fyrir breytingum innan félagsins. 27.4.2022 23:40
Vilja mislit, sæt og krúttleg lömb Sauðburður eru nú að hefjast hjá sauðfjárbændum um land allt. Bændur í Ölfusi segja lang skemmtilegast að fá mislit lömb. Af þeim sjö kindum, sem eru bornar hjá þeim erum fimm þrílembdar. 27.4.2022 22:30
Ljúka breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur Langþráð breikkun Reykjanesbrautar milli Straumsvíkur og Hvassahrauns er á leið í útboð og stefnt að því að fimm milljarða króna framkvæmdir hefjist um mitt sumar. Með verkinu lýkur tvöföldun leiðarinnar milli Reykjavíkur og Suðurnesja. 27.4.2022 22:22
Felldu tillögu um að draga hópuppsagnir til baka: „Brennum ekki húsið okkar“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hvatti félagsmenn til að styðja kjörna forystu Eflingar, á félagsfundi félagsins á Hlíðarenda sem nú stendur yfir. Sólveig Anna gagnrýndi harkalega þá félagsmenn sem hafa gagnrýnt hana undanfarnar vikur. Tillaga um að draga hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar var felld á fundinum. 27.4.2022 22:18
738 prósentum fleiri sóttu um vegabréf Umsóknum um vegabréf hjá sýslumanni fjölgaði um 738% á milli ára og ófáir komu á síðustu stundu rétt fyrir páska. Embættið skoðar að leyfa tímabókanir á netinu til að minnka biðtíma. 27.4.2022 22:00
Ekkert næturlíf fyrir akureyrska ketti Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur samþykkt að falla frá fyrri samþykkt meirihlutans um að lausaganga katta verði alfarið bönnuð frá 2025. Þess í stað verður lausaganga katta bönnuð að næturlagi, frá miðnætti til sjö á morgnana, og munu nýjar reglur taka gildi strax um næstu áramót. 27.4.2022 21:39
Fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar eftir mikið vatnstjón: „Þetta lýsir því bara hvað aðstæður eru óviðunandi“ Tjón í húsnæði Listaháskóla Íslands í Þverholti virðist minna en á horfðist í fyrstu þegar mikill vatnsleki kom þar upp í gær. Ríkisstjórnin samþykkti í gær að vinna að húsnæðismálum háskólans og flutning þess í Tollhúsið. Eektor segir það löngu tímabært og hlakkar til að glæða miðbæinn lífi aftur. 27.4.2022 21:31
Metur brottkast mun meira en áður var talið Frá því fiskistofa hóf eftirlit með brottkasti með drónum, í upphafi árs 2021, hafa komið upp hundrað og fjörutíu brottkastsmál. 27.4.2022 21:00
Skora á lögregluna að skila listaverkinu umdeilda Bryndís Björnsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir, listakonurnar sem gerðu listaverkið umdeilda Farangursheimild, hafa skorað á lögregluna að skila verkinu á þann stað þar sem það var afhjúpað. 27.4.2022 20:31
Biðst afsökunar á að hafa ekki upplýst almenning Stjórnarformaður Bankasýslunnar biðst afsökunar á þeim mistökum að hafa ekki kynnt mun betur fyrir almenningi fyrirkomulag sölu á Íslandsbanka. Hann segir ekki laust við að verið sé að koma ábyrgðinni á því sem misfórst yfir á Bankasýsluna. 27.4.2022 20:01
Munu leggja fram tillögu þar sem skorað er á stjórnina að draga uppsagnirnar til baka Skorað verður á stjórn Eflingar að draga hópuppsagnir á skrifstofu félagsins til baka en tillögu að ályktun þess efnis verður lögð fram á félagsfundi sem hófst fyrr í kvöld. Heitar umræður hafa skapast um uppsagnirnar undanfarnar vikur og er viðbúið að fundurinn standi yfir langt fram á kvöld. 27.4.2022 19:50
Leiðtogar Evrópu ætla ekki að láta Putin kúga sig með orkugjöfum Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir að Rússum muni ekki takast að kúga Evrópuþjóðir til hlýðni með því að skrúfa fyrir gasflutninga til þeirra. Sambandið vinni að því að gera ríki þess algerlega óháð jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi fyrir fullt og allt. 27.4.2022 19:20
Meirihluti vændismála felldur niður Meirihluti vændiskaupamála sem hafa ratað á borð lögreglu á liðnum árum hefur verið felldur niður og á síðustu tveimur árum endaði einungis fjórðungur með sekt eða ákæru. Ríkislögreglustjóri segir forgangsraðað í þágu mála þar sem grunur er um mansal. 27.4.2022 19:10
Hitafundur félagsmanna Eflingar hafinn á Hlíðarenda Félagsfundur Eflingar þar sem umræðuefnið er skipulagsbreytingar á skrifstofu félagsins hefst klukkan 18 í Valsheimilinu. Boðað var til fundarins í kjölfar þess að tillaga nýkjörins formanns Eflingar þess efnis að segja upp öllu starfsfólki á skrifstofunni. 27.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarformaður Bankasýslunnar biðst afsökunar á þeim mistökum að hafa ekki kynnt mun betur fyrir almenningi hvað væri í vændum með sölu á Íslandsbanka. Hann segir ekki laust við að verið sé að koma ábyrgðinni á því sem misfórst yfir á Bankasýsluna. 27.4.2022 18:00
Segja skrifræði stjórnvalda hindra eldflaugaskot frá Langanesi Skoska eldflaugafyrirtækið Skyrora segir að „óþarfa skrifræði“ íslenskra stjórnvalda sé að tefja það að félagið geti skotið eldflaug á loft frá Langanesi. 27.4.2022 17:36
„Megum ekki láta það gerast að garðyrkjunám á Íslandi líði undir lok“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að hafa ekki búið betur að málum þegar Garðyrkjuskólinn á Reykjum var skilinn frá Landbúnaðarháskólanum og færður undir Fjölbrautarskóla Suðurlands. Hann segir stjórnvöld hafa leyft skólanum að verða hornreka í íslensku menntakerfi. 27.4.2022 17:01
Zaakceptowano nowe imiona Komitet ds. nadawania imion zatwierdził nowe imiona i są to: Tangi, Jóda, Hafsjór, Theadór, Benni, Rayna, Denný, Dolma, Alpa, Gaja, Baltazar, Eia i Adríanna. 27.4.2022 15:52