Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sterk systkini á Selfossi sem æfa þrjá tíma á dag Þau kalla ekki allt ömmu sína systkinin á Selfossi þegar kemur að kröftum því þau hafa breytt bílskúrnum heima hjá sér í kraftlyftingaskúr. Hann, sem er 18 ára er nýkrýndur Norðurlandameistari í Ólympískum lyftingum og hún, sem er 14 ára hreppti silfrið í sínum flokki. Systkinin æfa að meðaltali í þrjá klukkutíma á dag. 15.12.2021 20:15
Reyna að kaupa bíl en leggja milljónir inn á erlenda glæpahópa Lögregla er með nokkur mál til rannsóknar þar sem fólk hefur millifært milljónir á erlenda glæpahópa í trú um að það sé að kaupa sér bíl. Oftast er ómögulegt að fá peninginn til baka. 15.12.2021 19:24
Óvissustigi á Seyðisfirði aflétt Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi á Seyðisfirði vegna skriða sem féllu í desember 2020. 15.12.2021 19:24
Segja sölu Mílu ekki ógna þjóðaröryggi Búið er að skrifa undir samning um kvaðir sem snúa að rekstri Mílu eftir að franska fyrirtækið Ardian France SA kaupir það af Símanum. Það var gert eftir viðræður fulltrúa fyrirtækjanna og ríkisstjórnar Íslands um tryggja að starfsemi Mílu samrýmist þjóðaröryggishagsmunum Íslands eftir söluna. 15.12.2021 19:11
Facebook-skrifum Sigurðar G. um Þórhildi Gyðu vísað frá úrskurðarnefnd Úrskurðarnefnd lögmanna hefur vísað kvörtun Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur vegna skrifa hæstaréttarlögmannsins Sigurðar G. Guðnasonar á Facebook frá nefndinni. 15.12.2021 19:08
„Undir niðri ríkir sorg í samfélagi bænda“ Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, var viðstaddur fundi bænda í Njálsbúð í gær þar sem fjallað var um umfjöllun um blóðmerahald. Málið hefur verið til mikillar umfjöllunar undanfarið og margir gagnrýnt blóðbændur. 15.12.2021 18:47
Gylfi vinnur að mótun nýs ráðuneytis Gylfi Arinbjörnsson, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, hefur verið ráðinn sem tímabundinn ráðgjafi við mótun framtíðarskipulags nýs mennta- og barnamálaráðuneytis. Mun hann meðal annars vinna að yfirfærslu verkefna milli ráðuneyta. 15.12.2021 18:18
Nýtt torg við Tryggvagötu tekið í notkun eftir langa bið Með endurgerð Tryggvagötu hefur orðiði til nýtt torg ivið Tollhúsið þar sem mósaíklistaverk Gerðar Helgadóttur fær nú að njóta sín. Torgið hefur nú formlega verið tekið í notkun eftir nokkurra ára framkvæmdir. 15.12.2021 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögregla er með nokkur mál til rannsóknar þar sem fólk hefur millifært milljónir á erlenda glæpahópa í trú um að það sé að kaupa sér bíl. Oftast er ómögulegt að fá peninginn til baka. 15.12.2021 18:00
Fáir fangar mættu til vinnu og náms í dag Fáir fangar mættu til vinnu og náms á Litla hrauni í dag. Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segir að unnið sé að því að greina ástæður þess og að brugðist verði við. Aðdragandi jóla reynist erfiður föngum. 15.12.2021 17:58
Líklegt að vorveður verði á rauðum jólum Talsverðar líkur eru á því að vorveður verði yfir landinu öllu í næstu viku og fram yfir jól. Nær öruggt er í það minnsta að enginn snjór muni falla þessi jól. 15.12.2021 17:47
Landamæratakmarkanir á Íslandi hafi brotið í bága við reglur EES Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur nú sent Íslandi formlegt áminningarbréf vegna aðgangstakmarkanna sem mismuna EES-borgurum sem búsettir eru hér á landi. en í tilkynningu frá stofnuninni er vísað til þess að í maí 2021 hafi verið sett lög á Íslandi þar sem mælt er fyrir skyldu flugrekenda að kanna hvort farþegar hafi tilskilin vottorð vegna Covid-19 við komuna til landsins. 15.12.2021 17:14
COVID-19 w szkole Klettaskóli Dyrektor szkoły potwierdziła, że COVID-19 zdiagnozowano u 16 uczniów i 9 pracowników. 15.12.2021 17:08
Trwają przygotowania do otwarcia stoków narciarskich Hlíðarfjall Miłośnicy jazdy na nartach mogą już szykować się na prawdziwe zimowe szaleństwo. W piątek planowane jest otwarcie stoków narciarskich Hlíðarfjall, koło Akureyri. 15.12.2021 16:50
María Guðmundsdóttir leikkona er látin María Guðmundsdóttir, leikkona og hjúkrunarfræðingur, er látin 86 ára gömul. Dóra Guðrún Wild dóttir hennar staðfestir andlátið í samtali við Vísi. María lést á Landspítalanum í gærmorgun. 15.12.2021 16:16
Zmiany w przepisach paszportowych Od stycznia paszporty nie będą już wysyłane do obywateli drogą pocztową. 15.12.2021 16:14
Trzy tunele nie spełniają wymogów bezpieczeństwa Tunele, które według ESA nie spełniają minimalnych wymogów bezpieczeństwa, to Vaðlaheiðargöng, Fáskrúðsfjarðargöng i tunel Almannaskarðsgöng. 15.12.2021 15:58
Meirihluti á þingi fyrir því að svipta Støjberg þingsætinu Meirihluti er á danska þinginu fyrir því að svipta Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, þingsætinu í kjölfar dóms ríkisréttar landsins sem dæmdi fyrr í vikunni ráðherrann fyrrverandi í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi. 15.12.2021 14:49
Þrenn jarðgöng uppfylla ekki lágmarksöryggiskröfur EES Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, telur að þrjú af þeim fjórum jarðgöngum á Íslandi sem tilheyra hinu Samevrópska veganeti uppfylli ekki lágmarksöryggiskröfur EES fyrir jarðgöng. 15.12.2021 14:31
Mikill vöxtur er í tilraunum til tölvuárása vegna Log4j Netöryggissveitinni CERT-IS hefur ekki verið tilkynnt um atvik þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með Log4j veikleikanum en mikill vöxtur er í tilraunum til árása. Óvissustig almannavarna er enn í gildi vegna veikleikans. 15.12.2021 14:23
Mary prinsessa greindist með COVID-19 Mary prinsessa, eiginkona Friðriks krónprins Danmerkur, greindist með COVID-19 í dag. 15.12.2021 14:23
Fjölmörg börn á aldrinum ellefu til sextán ára þolendur í máli mannsins Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sjötugsaldri sem grunaður er um fjölmörg blygðunarsemisbrot gegn börnum og barnaverndarlagabrot. Hann er meðal annars grunaður um að hafa reynt að mæla sér mót við ellefu ára gamalt barn eftir að hafa sent því klámfengin skilaboð. 15.12.2021 14:06
Stefnt að því ný kirkja rísi í Grímsey næsta sumar Undirbúningur við byggingu nýrrar kirkju í Grímsey er vel á veg kominn og er stefnt að því að ný kirkja rísi þar næsta sumar. Á nýja kirkjan að hafa augljósa skírskotun til kirkjunnar sem brann í september en verði aðeins stærri en fyrri vegna nútíma krafna. 15.12.2021 14:03
Steinólfsbörn hvumsa við ásökun Finnboga um ritstuld Þau Sesselja, Halla Sigríður og Stefán Skafti Steinólfsbörn hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ásakana Finnboga Hermannssonar á hendur Bergsveini Birgissyni um ritstuld og krefjast þess að hann dragi ummæli sín til baka. 15.12.2021 13:43
Fagna ákvörðun ráðherra en segja enga töfralausn í sjónarmáli Félag talmeinafræðinga á Íslandi fagnar vilja ráðherra um að fella á brott tveggja ára starfsreynsluákvæði úr rammasamningi við sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga. Formaður félagsins segir að um stórt skref sé að ræða og bindur vonir við að samningaviðræður gangi hratt og vel. 15.12.2021 13:00
Tuttugu og fimm nemendur og starfsmenn Klettaskóla greinst með Covid-19 Smituðum í Klettaskóla hefur fjölgað en alls hafa 25 nemendur og starfsmenn greinst með Covid-19. Að sögn Arnheiðar Helgadóttur skólastjóra er um að ræða sextán nemendur og níu starfsmenn. 15.12.2021 12:43
Hækka útsvar eftir að fulltrúi Sjálfstæðisflokks lagðist á sveif með minnihlutanum Samþykkt var að hækka útsvar Seltjarnarnesbæjar úr 13,70 prósentum í 14,09 prósent á fundi bæjarstjórnar í dag. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins klofnaði við atkvæðagreiðsluna og lagðist fulltrúi flokksins á sveif með minnihlutanum. 15.12.2021 12:43
Allt að verða klárt í Hlíðarfjalli Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri á föstudaginn. Vonir standa til að jafnvel verði hægt að vígja nýja stólalyftu í fjallinu í þessum mánuði. 15.12.2021 12:39
Rússi dæmdur fyrir morðið í Litla dýragarðinum í Berlín Dómstóll í Berlín í Þýskalandi dæmdi í morgun rússneskan ríkisborgara í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið fyrrverandi leiðtoga téténskra uppreisnarmanna í almenningsgarði í þýsku höfuðborginni í ágúst 2019. 15.12.2021 12:12
Skynsamlegast að aflétta aðgerðum, ella styðja við veitingamenn Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins telur ótækt að veitingamenn beri kostnaðinn af því að neyðarástand ríki á Landspítala, eins og hann orðar það. Hann hvetur stjórnvöld til að koma til móts við greinina með stuðningsaðgerðum. 15.12.2021 12:03
Ljósabekkjanotkun aldrei mælst minni á Íslandi Ljósabekkjanotkun á Íslandi stendur í stað milli ára en 6% fullorðinna segjast hafa notað ljósabekki einu sinni eða oftar á síðustu tólf mánuðum. Hlutfallið var það sama í fyrra en mældist 11% árið 2019. 15.12.2021 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við nýjan stjórnarformann Innheimtustofnunar sveitarfélaganna. 15.12.2021 11:36
Vilja tugmilljarða króna úrgangsbrennslu á Álfsnes Hefja þarf undirbúning að byggingu hátækniúrgangsbrennslu á Íslandi að sögn ritstjóra nýrrar skýrslu um framtíðarlausnir í úrgangi. Álfsnesið virðist fýsilegur staður en brennslan gæti kostað allt að 35 milljörðum króna. 15.12.2021 11:22
Segir mögulegt að leysa vandamálin með „jákvæðum hugsunarhætti“ „Það eru vonbrigði að hafa staðið í niðurskurði og fá ekki tækifæri til að byggja upp að nýju. Ég var bjartsýnn,“ sagði Björn Zoëga, þáverandi forstjóri Landspítala, í samtali við Vísi í september árið 2013 eftir að hafa tilkynnt að hann hefði sagt starfinu lausu. 15.12.2021 11:18
130 greindust innanlands 130 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 63 af þeim 130 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 48 prósent. 67 voru utan sóttkvíar, eða 52 prósent. 15.12.2021 11:01
Forstjóri Innheimtustofnunar í leyfi og stjórninni skipt út Jón Ingvar Pálsson, forstjóri Innheimtustofnunar, og Bragi Axelsson, forstöðumaður stofnunarinnar á Ísafirði, hafa verið sendir í leyfi frá störfum. Þá hefur ný stjórn verið skipuð eftir að fráfarandi stjórn óskaði eftir því að stíga til hliðar. Breytingarnar eru gerðar í kjölfar þess að Ríkisendurskoðun hóf úttekt á verkefnum Innheimtustofnunar í september. 15.12.2021 10:54
Rúmlega helmingur afgönsku þjóðarinnar háður matvælaaðstoð Framkvæmdastjóri WFP segir ástandið í Afganistan skelfilegt. 15.12.2021 10:46
Vilja staðfestingu á að friðlýsingin hafi ekki áhrif út fyrir landamörk Dranga Eigendur Ófeigsfjarðar, jarðar í Árneshreppi, hafa óskað eftir staðfestingu á að nýleg friðlýsing Dranga hafi engin áhrif út fyrir landamörk Dranga. 15.12.2021 10:39
Miklar breytingar fram undan Barist verður um eftirsóttar bæjarstjórastöður í sveitarfélögum í kringum Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum að sögn stjórnmálafræðings. Rúmir fimm mánuðir eru til kosninga og línurnar eru farnar að skýrast. 15.12.2021 09:58
Stærðfræðilegar aðferðir varpa nýju ljósi á Snorra Sturluson Sturla Þórðarson var að öllum líkindum afkastameiri höfundur en almennt hefur verið talið hingað til og Snorri Sturluson var ólíklega eini höfundur Heimskringlu. Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á stíleinkennum fornsagnanna. 15.12.2021 09:47
Kolbrún gapandi hissa á Jóni Rúnari Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum, segist vera gapandi hissa á orðum Jóns Rúnars Halldórssonar, stjórnarmanns í Íslenskum toppfótbolta, í hennar garð. 15.12.2021 09:37
Föst á þaki háhýsis í Hong Kong vegna elds Rúmlega hundrað manns eru nú fastir á þaki stórhýsis í Hong Kong eftir að eldur upp í húsinu um hádegisbil að staðartíma í dag. Húsið sem um ræðir er þrjátíu og átta hæðir. 15.12.2021 08:36
Skipuð í embætti forstjóra nýrrar Barna- og fjölskyldustofu Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra hefur skipað Ólöfu Ástu Farestveit í embætti forstjóra nýrrar Barna- og fjölskyldustofu. Ólöf Ásta hefur verið settur forstjóri Barnaverndarstofu síðustu mánuði. 15.12.2021 08:31
Landspítalinn tekur við rannsóknum helmings sýna í janúar Landspítalinn mun hefja rannsóknir á leghálssýnum upp úr áramótum en mun aðeins greina um helming allra íslenskra sýna fyrsta hálfa árið að minnsta kosti. Hinn helmingurinn verður greindur á Hvidovre-sjúkrahúsinu í Danmörku. 15.12.2021 08:14
Erlendir ríkisborgarar nú 14,5 prósent landsmanna Alls voru 54.891 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.513 frá 1. desember á síðasta ári, eða um 6,8 prósent. 15.12.2021 08:06