Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Handtóku rangan mann vegna Khashoggi-málsins Yfirvöld í Frakklandi hafa sleppt sádí-arabískum manni sem handtekinn var í vikunni grunaður um aðild að morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi úr haldi. Komið hefur í ljós að hann var handtekinn fyrir mistök. 8.12.2021 22:41
Elliðaárstöð stendur ónotuð á tíma raforkuskorts í landinu Á sama tíma og kvartað er undan raforkuskorti í landinu vekur athygli að heil virkjun skuli standa ónotuð og það innan borgarmarka Reykjavíkur. Þetta er Elliðaárstöðin en forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur sagði fyrir ári að engin þörf væri á meiri orku. 8.12.2021 22:16
Tölvupóstfangið gríðarlanga skorið rækilega niður Búið er að stytta tölvupóstfang Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingmanns Pírata, þannig að nú inniheldur það aðeins fornafn og millinafn hennar í stað fulls nafns. 8.12.2021 21:12
Bjarni Ben og Björn Leví stigakóngar í nýrri Fantasy-deild Alþingis Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata eru eins og stendur verðmætustu þingmenn Alþingis, samkvæmt svokölluðum Fantasy-leik sem er nýkominn í loftið. 8.12.2021 21:00
Þjóðin beri aldrei aftur skaða af falli viðskiptabanka Seðlabankinn hefur sett reglur sem eiga að tryggja enn frekar að þjóðin beri aldrei aftur kostnað af falli viðskiptabanka. Þeir eigi að fjármagna sig með innlánum og forðast áhættusækni í eigin lántökum. 8.12.2021 20:00
Óttast um afdrif sautján ára stúlku sem lögreglan leitar að Leit lögreglu og björgunarsveita stendur nú yfir að sautján ára stúlku sem síðast sást til á Smiðjuvegi í Kópavogi um hálfsexleytið í dag. Óttast er um stúlkuna, að sögn lögreglu, og því mjög mikilvægt að hún finnst sem allra fyrst. 8.12.2021 19:33
Ný brú yfir Fossvog tilbúin eftir um tvö ár Borgarstjóra og bæjarstjóra Kópavogs líst vel á vinningstillögu að brú milli Reykjavíkurflugvallar og Kársness sem kynnt var í dag. Brúin verður eitt fyrsta mannvirkið sem tengist Borgarlínu. 8.12.2021 19:20
121 þúsund manns hafa mætt í örvunarbólusetningu Örvunarskammtur af bóluefni Pfizer þykir veita góða vernd gegn ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar. Þetta sýna nýjar rannsóknir fyrirtækisins. Sóttvarnalæknir segir ávinning af örvunarskammti ótvíræðan en skiptar skoðanir eru meðal almennings um hvort sérreglur eigi að gilda fyrir bólusetta. 8.12.2021 19:19
Hildur stefnir á oddvitasætið: Ætlar sér að verða borgarstjóri Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Hún stefnir á að vera borgarstjóri og ætlar sér að setja samgöngumál og leikskólamál á oddinn. 8.12.2021 19:00
Fluttur á slysadeild eftir fjögurra bíla árekstur Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar í dag og var einn fluttur á slysadeild til nánari skoðunar. Sá var ekki alvarlega slasaður. 8.12.2021 18:33
Seðlabankastjóri vísar ásökunum um ritstuld á bug Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sendi nýverið frá sér bók þar sem hann fjallar um landnám Íslands. Eyjan hans Ingólfs heitir bókin sú en Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður segir Ásgeir fara ránshendi um bók sína Leitin að svarta víkingnum án þess að geta heimilda. 8.12.2021 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Örvunarskammtur af bóluefni Pfizer þykir veita góða vernd gegn ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar. 8.12.2021 18:00
Gera úttekt á Hugarafli í kjölfar ásakana Félagsmálaráðuneytið hefur óskað eftir því að Vinnumálastofnun geri úttekt á starfsemi Hugarafls í kjölfar ábendinga og kvartana frá fyrrverandi félagsmönnum samtakanna. 8.12.2021 17:54
Listamaður lagði Reykjavíkurborg í deilu um myndband sem ekki var greitt fyrir Listamaðurinn Hulda Rós Guðnadóttir lagði Reykjavíkurborg í Héraðsdómi Reykjavíkur í deilu um myndefni í eigu Huldu sem notað hafði verið af borginni á sýningu á Sjóminjasfaninu. Borgin hafði ekki greitt fyrir afnot af myndefninu. 8.12.2021 16:44
Lögreglan leitar konu sem ók á tvær unglingsstelpur á rafhlaupahjóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir konu sem ók BMW-bíl á tvær unglingsstúlkur á rafhlaupahjóli á Dalvegi í Kópavogi í nóvember. 8.12.2021 15:56
Sakar seðlabankastjóra um ritstuld Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðimaður, telur engan vafa á leika að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, hafi í veigamiklum atriðum stuðst við bók hans Leitina að svarta víkingnum í bók sinni Eyjan hans Ingólfs. Án þess að geta heimilda. Það heitir rit- og hugmyndastuldur. 8.12.2021 15:52
Segir gagnrýnina beinast að áhrifum friðlýsingarinnar á nærliggjandi svæði Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir staðhæfingar eigenda jarðarinnar Dranga á Ströndum um að friðlýsing jarðarinnar hafi engin áhrif á Hvalárvirkjun rangar. Þá hafi það aldrei komið til umræðu að brjóta á eignarrétti eigendanna eða að taka jörðina eignarnámi. 8.12.2021 15:34
Ísland afhendir skólabyggingar í Úganda Íslensk stjórnvöld hófu þróunarsamvinnu við Namayingo hérað í Úganda í sumar. 8.12.2021 15:22
Formaður herforingjaráðs Indlands fórst í þyrluslysi Bipin Rawat, formaður herforingjaráðs Indlands, dó í þyrluslysi á Indlandi í morgun. Madhulika Rawat, eiginkona hans, og ellefu aðrir fórust einnig í slysinu. Einn lifði af en er á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi með brunasár víðsvegar um líkamann. 8.12.2021 14:52
Léttvínið nærri 40 prósentum ódýrara með dönskum sköttum Léttvínsflaska sem kostar 2.100 krónur í Vínbúðinni myndi kosta 1.318 krónur með dönskum sköttum og bjórflaska sem kostar 369 krónur hérlendis myndi kosta 262 krónur. Vodki myndi vera nær 40 prósent ódýrari með sænskum sköttum. 8.12.2021 14:20
Efla wygrała konkurs na projekt nowego mostu w Fossvogur Projekt zwycięskiego mostu został zaprezentowany na dzisiejszym spotkaniu Vegagerðin, przedstawicieli Miasta Reykjavík i Kópavogur na Uniwersytecie w Reykjaviku. 8.12.2021 14:00
Trzęsienie ziemi koło Grindavík Miastem Grindavík wstrząsnęło dziś trzęsienie ziemi o sile 3,1 stopnia w skali Richtera. 8.12.2021 13:50
Pokojowy protest przeciwko szczepieniom dzieci Wczoraj wieczorem, przed parlamentem, na placu Austurvöllur, zebrały się dziesiątki osób aby zaprotestować przeciwko polityce dotyczącej szczepień. 8.12.2021 13:39
Pfizer segir örvunarskammtinn vernda vel gegn ómíkronafbrigðinu Bandaríski lyfjarisinn Pfizer segir að svokallaður örvunarskammtur gegn kórónuveirunni, það er þriðja sprautan, veiti góða vernd gegn ómíkronafbrigði kórónuveirunnar, mun betri en tveir skammtar gera. 8.12.2021 13:38
Segir Bergþór hafa þurft að vinna heimavinnuna sína um friðlýsingu Dranga Varaformaður í stjórn einkahlutafélagsins Fornasels, sem á jörðina Dranga á Ströndum, segir stjórnarandstöðuna úti á túni í gagnrýni hennar á friðlýsingu jarðarinnar. Landeigendur hafi sjálfir sóst eftir friðlýsingunni og langt í frá að umhverfisráðherra hafi undirritað friðlýsinguna í lok embættistíðar sinnar í pólitískum tilgangi. 8.12.2021 13:07
Ísteka riftir samningum við þá bændur sem birtust í myndskeiðinu Líftæknifyrirtækið Ísteka hefur rift samningum við bændur sem sýndir voru fara illa með hross við blóðtöku í myndskeiði sem fór í dreifingu á dögunum og vakti mikla athygli. 8.12.2021 12:37
Verjendur segja banaskot „saklaus mistök“ en saksóknarar manndráp Réttarhöld gegn lögreglukonu sem segist hafa skotið ungan þeldökkan mann til bana fyrir mistök standa nú yfir í Minnesota í Bandaríkjunum. Búið er að velja kviðdómendur og málflutningur hefst í dag þar sem saksóknarar og verjendur leggja línur málsins, frá þeirra sjónarhól, fyrir kviðdómendur. 8.12.2021 12:31
Scholz tekur við af Merkel: „Þetta eru klár kaflaskil“ Olaf Scholz tók formlega við embætti kanslara Þýskalands í morgun og þar með lauk sextán ára embættistíð Angelu Merkel. Prófessor í stjórnmálafræði segir að um sé að ræða kaflaskil í evrópskum og þýskum stjórnmálum þar sem erfitt er að ofmeta áhrif Merkel. 8.12.2021 12:05
Efla vann hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog EFLA, í samstarfi við BEAM Architects, vann sigur í hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog. Útlit sigurtillögunnar var kynnt á fundi Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar í Háskólanum í Reykjavík fyrr í dag. 8.12.2021 11:46
Jólahlaðborðin uppspretta hópsmita í faraldrinum Tuttugu hafa nú greinst með ómíkron afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Sóttvarnalæknir segir jólahlaðborð hafa verið uppsprettu hópsýkinga í faraldrinum og hvetur þá sem standa fyrir slíkum samkomum að afgreiða matinn frekar beint á borðið. 8.12.2021 11:37
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um Seðlabankann sem varar við vaxandi áhættu í fjármálakerfinu vegna hækkandi íbúðaverðs og skuldaaukningar. 8.12.2021 11:36
Færri jólatré flutt inn í fyrra og meiri sala á íslenskum trjám Stafafuran er langvinsælasta innlenda jólatréð, að sögn starfsmanns Skógræktarfélags Íslands. Innfluttum jólatrjám fækkaði í fyrra og sala á innlendum trjám jókst. 8.12.2021 11:19
Skjálfti 3,1 að stærð við Grindavík Jarðskjálfti 3,1 að stærð varð norðaustur af Grindavík klukkan 10:44 í dag. 8.12.2021 11:16
Telur ekki vænlegt að veita bólusettum meiri réttindi en óbólusettum Heilbrigðisráðherra telur ekki vænlegt að bólusettir hafi önnur réttindi gagnvart sóttvarnaaðgerðum en þeir sem eru óbólusettir. Nauðsynlegt sé að standa vörð um val fólks til bólusetningar, sama á hvaða grunni það er byggt. 8.12.2021 10:47
Milla frá Lilju til Willums Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og er þegar tekin til starfa í heilbrigðisráðuneytinu. 8.12.2021 10:44
Félagsgjöld í GR hækka í 120 þúsund krónur Félagsgjöld hækka um fimm prósent í þennan stærsta golfklúbb landsins. Björn Víglundsson hættir sem formaður og við tekur Gísli Guðni Hall. 8.12.2021 10:32
Bein útsending: Úrslit í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvog Tilkynnt verður um úrslit í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvogi á fundi klukkan 11 í dag. 8.12.2021 10:31
120 greindust innanlands 120 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 54 af þeim 120 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 45 prósent. 66 voru utan sóttkvíar, eða 55 prósent. 8.12.2021 10:24
Kostnaður við sýnatökur 2,5 milljarðar króna en verulegar tekjur fengist á móti Kostnaður Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu við sýnatökur vegna Covid-19 frá upphafi kórónuveirufaraldursins nemur um 2,5 milljörðum króna. Á sama tíma hafa tekjurnar numið um 2 milljörðum og eftir standa 460 milljónir sem hafa fallið á ríkissjóð. 8.12.2021 10:21
Ekki fýsilegar aðstæður á Íslandi til að „búa til veður“ „Menn hafa í árhundruð reynt að stjórna veðrinu en það var ekki fyrr en í kringum og eftir seinni heimstyrjöldina að vísindin fóru að taka á sig einhverja mynd,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands, um tilraunir manna til að hafa áhrif á veðurfar. 8.12.2021 08:34
Bein útsending: Orkuskipti á hafi Mögulegt er talið að orkuskipti innlenda skipaflotans verði um garð gengin fyrir árið 2050. Til þess þarf að tryggja framleiðslu og innviði fyrir rafeldsneyti og öflug stefnumótun að vera til staðar frá stjórnvöldum, með stuðningi við fjárfestingar, skattalegum hvötum og skýrum kröfum um vaxandi hlut grænnar orku í stað jarðefnaeldsneytis. 8.12.2021 08:30
Kellogg hyggst ráða 1.400 starfsmenn í stað þeirra sem eru í verkfalli Stórfyrirtækið Kellogg hyggst ráða nýja starfsmenn í stað 1.400 starfsmanna sem hafa verið í verkfalli frá því í október síðastliðnum. Starfsmennirnir höfnuðu á dögunum samningi til fimm ára sem hljóðaði upp á 3 prósenta launahækkun. 8.12.2021 08:29
Merkel hverfur úr stóli kanslara eftir sextán ár Olaf Scholz verður kjörinn kanslari Þýskalands af þýska þinginu síðar í dag. Þar með hefst nýr kafli í þýskri og evrópskri stjórnmálasögu þegar Angela Merkel hverfur af stóra sviðinu, en hún hefur verið kanslari í hartnær sextán ár. 8.12.2021 08:05
WHO segir að bóluefnin ættu að veita góða vörn gegn alvarlegum veikindum Tiltæk bóluefni í heiminum ættu að vernda fólk vel gegn alvarlegum veikindum af völdum Omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Þetta segir Mike Ryan, sem fer fyrir neyðarviðbrögðum hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. 8.12.2021 08:00
Einn grunaðra í máli Khashoggis handtekinn í París Lögregla í Frakklandi hefur handtekið sádiarabískan mann sem grunaður er um aðild að morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. 8.12.2021 07:41