Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
14 ára stúlku haldið í eitt ár sem kynlífsþræl Grunur leikur á að 14 ára stúlku hafi verið haldið sem kynlífsþræl í íbúð í Gautaborg í eitt ár. Stúlkan, sem lögreglan frelsaði fyrir um viku, segist hafa búið við hótanir, ofbeldi eða nauðganir á hverjum degi. Þrír karlar og ein kona eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Þau neita öll sök. 10.11.2011 01:00
Símastarfsmaður er grunaður um hlerun Póst- og fjarskiptastofnun hefur nú til rannsóknar mál sem varðar meinta símhlerun starfsmanns símafyrirtækis. Þetta staðfestir Hrafnkell Gíslason, forstjóri PFS, við Fréttablaðið. Hann segir þetta mál það fyrsta sinnar tegundar sem stofnunin hafi fengið til athugunar. Því sé ekki lokið en muni ljúka í þessum mánuði. 10.11.2011 00:01
NASA birtir myndir af smástirni Smástirnið 2005 YU55 skaust framhjá jörðinni á rúmlega 48.000 kílómetra hraða í gær. YU55 var í einungis 324.600 kílómetra fjarlægð frá jörðinni - smástirnið var þannig nær jörðinni en tunglið. 9.11.2011 22:57
Ekið á ungan pilt í Kópavogi Ekið var á ungan pilt í Kópavogi rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Slysið varð á Fífuhvammsvegi þar sem beygt er út á Hafnarfjarðarveg. Pilturinn var fluttur á slysadeild en lögregla hefur ekki upplýsingar um meiðsli hans. 9.11.2011 22:46
Fékk röddina og sagðist elska pabba sinn Fyrirburinn Bronte Cassell, nú tveggja ára, sagði sín fyrstu orð eftir að læknar fjarlægðu slöngu úr barka hennar. Hún sagðist elska pabba sinn. 9.11.2011 22:30
Pedro og Buddy aðskildir Forboðnar ástir finnast ekki einungis hjá mannfólkinu. Gæslumenn í dýragarðinum í Toronto uppgötvuðu fyrir nokkru að tvær karlkyns mörgæsir, þeir Pedro og Buddy, hefðu fellt hugi saman og ruglað reitum. 9.11.2011 21:30
Var 150 kíló - sá ljósmynd og fékk nóg Ljósmynd sem tekin var í kvennafélagsferð varð til þess að kona, sem orðin var tæp hundrað og fimmtíu kíló, ákvað að tímabært væri að gera eitthvað í sínum málum. 9.11.2011 19:10
Tom Cruise fær sumarvinnu á Íslandi Kvikmyndastjarnan Tom Cruise mun að öllum líkindum dvelja á Íslandi í nokkrar vikur næsta sumar við upptökur á tólf milljarða króna Hollywood-stórmynd. Búist er við að tvöhundruð manna kvikmyndalið frá Universal fylgi honum til landsins. 9.11.2011 19:00
Fartölvu stolið í innbroti í Grafarholti Tilkynnt var um innbrot í íbúðarhús í Grafarholti rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Þjófarnir höfðu spennt upp svalahurð og farið inn í íbúðina. Þeir höfðu á brott með sér fartölvu. Þjófanna er nú leitað. 9.11.2011 22:31
Fágætt eintak af smásögu eftir Hemingway boðið upp á Íslandi Næstkomandi laugardag verður blásið til bókauppboðs á vefnum uppboð.is. Að uppboðinu standa Gallerí Fold og Bókin Klapparstíg. 9.11.2011 22:00
Hótel hrundi í 5.7 stiga jarðskjálfta í Tyrklandi Sex hæða hótel og nokkrar aðrar byggingar hrundu í 5.7 stiga jarðskjálfta sem reið yfir austur-Tyrkland nú fyrir stuttu. 9.11.2011 21:30
FIFA lúffar fyrir Englendingum og leyfir valmúann Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur dregið í land og ákveðið að leyfa Enska landsliðinu að bera valmúamerki á keppnistreyjum sínum í landsleik á móti Spáni um næstu helgi. Valmúamerkið nota Bretar í ákveðinn tíma á hverju ári til þess að minnast fallinna hermanna. 9.11.2011 21:30
Stúdentar mótmæla í Lundúnum Þúsundir stúdenta mótmæltu í Lundúnum í dag. Mótmælendurnir gengu í gegnum miðbæ Lundúna og í átt að Dómkirkju Páls Postula, en þar hafa mótmæli gegn auðvaldi og fjármálakerfinu farið fram síðustu vikur. 9.11.2011 21:30
Hélt hún væri með flensu en missti fæturna Fyrst var talið að um hefðbundna flensu væri að ræða, stuttu síðar var hún flutt í skyndi á spítala og um morguninn vaknaði hún án fóta. Í Íslandi í dag heyrum sögu þriggja barna einstæðrar móður sem venst nú algjörlega nýju lífi. 9.11.2011 21:00
Íslensku menntaverðlaunin afhent við fjölmenna athöfn Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti Íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2011 við fjölmenna athöfn í Sjálandsskóla í Garðabæ í kvöld. 9.11.2011 20:47
Margt bendir til þess að sjúkur brennuvargur sé á ferli Brennuvargar ollu milljónatjóni í Vestmannaeyjum í gær þegar kveikt var í síldarnót. Þetta er ein af mörgum óupplýstum íkveikjum í eyjum á undanförnum árum. Bæjarstjórinn segir sjúkan einstakling ganga lausan. 9.11.2011 19:45
Samverustundir í Hafnarfirði Boðað hefur verið til samverustunda í Hafnarfirði í kvöld vegna sviplegs fráfalls karlmanns á fertugsaldri sem lést í gær. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. 9.11.2011 15:59
Fannst látinn í Hafnarfirði Karlmaður fannst látinn á opnu svæði í Hafnarfirði í gærkvöld. Þetta staðfestir lögreglan í samtali við Vísi. Hún segir að maðurinn hafi látist af völdum veikinda og vildi ekki gefa nánari upplýsingar um málavexti. 9.11.2011 12:03
Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9.11.2011 18:56
Vilja að lántaka vegna Vaðlaheiðarganga verði heimiluð Fjárlaganefnd Alþingis veitir fjármálaðherra heimild til þess að taka lán upp á einn milljarð króna vegna Vaðlaheiðarganganna, samkvæmt samþykkt meirihluta fjárlaganefndar. Þetta kom fram í útvarpsfréttum ríkisútvarpsins. 9.11.2011 18:00
Fær milljón eftir hjartastopp við Fylkisheimilið Íþróttafélagið Fylkir var í dag dæmt til að greiða karlmanni rúmlega eina milljón króna í bætur vegna slyss sem hann varð fyrir við félagsheimili liðsins í Árbæ í september árið 2005. 9.11.2011 16:05
Jólageitin risin á fætur Sænska jólageitin við Ikea er risin á fætur aftur með aðstoð kranabíls eftir óvæntan skell sem hún fékk í rokinu aðfaranótt þriðjudagsins. Hún hefur verið kirfilega fest á sinn stað í Kauptúninu og miklar vonir eru bundnar við það að hún standi af sér það óveður sem hugsanlega kann að koma á næstunni. 9.11.2011 15:57
Þór heimsækir Ísfirðinga Nýja varðskipið Þór er nú komið á Ísafjörð en þar var tekið á móti fleyinu með pompi og pragt í dag. Fulltrúar frá bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, björgunarsveitum og lögreglu og slökkviliði fóru fyrst um borð og skoðuðu skipið sem er allt hið glæsilegasta. Skipið var síðan opnað almenningi og verður það til klukkan sex í dag. Stanslaus straumur fólks hefur legið í skipið. 9.11.2011 15:37
Segir ekki koma til greina að hætta við kjarnorkuáætlunina Forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad segir að ekki komi til greina að hnika um millimeter frá kjarnorkuáætlun landsins en Kjarnorkumálastofnun Sameinuðu þjóðanna fullyrðir í nýrri skýrslu að íranar hafi framkvæmt leynilegar kjarnorkutilraunir. 9.11.2011 15:22
Tuttugu og sex utanlandsferðir á vegum forsætisráðuneytis Tuttugu og sex utanlandsferðir voru farnar af forsætisráðuneytinu og stofnunum þess á fyrstu níu mánuðum þessa árs og samtals fóru fjörutíu manns í ferðirnar. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn sem Ásmundur Einar Daðason lagði fyrir á þingi. Ráðuneytið sjálft hefur fór í tuttugu og eina ferð, ein ferð var farin á vegum þjóðgarðsins á Þingvöllum og fjórar á vegum Umboðsmanns barna. Heildarkostnaður við ferðirnar nam ríflega 8,7 milljónum króna. Kostnaðurinn er vegna fargjalda og greiddra dagpeninga. 9.11.2011 15:12
Ekkert bendir til þess að árásin hafi átt sér stað Tveir erlendir ofbeldismenn ganga ekki lausir í Vestmannaeyjum og þurfa bæjarbúar ekkert að óttast, segir varðstjóri hjá lögreglunni í bænum. 9.11.2011 15:02
Eiríkur svarar framsóknarmönnum fullum hálsi Eiríkur Bergmann Einarsson dósent við Bifröst segir rangt að hann hafi í grein sinni í Fréttatímanum á dögunum "gefið sterklega í skyn að Framsóknarflokkurinn tengist hatursfullri öfgaþjóðernisstefnu,“ eins og þingflokkur Framsóknarmanna heldur fram í yfirlýsingu en framsóknarmenn hafa fordæmt skrif Eiríks. Eiríkur hefur sjálfur sent frá sér yfirlýsingu og þar bendir hann á að umfjöllun sín um Framsóknarflokkinn hafi orðrétt verið á þessa leið: 9.11.2011 14:25
Á von á sínu 20. barni - vildi ekki hætta í oddatölu Móðir ein í Arkansas í Bandaríkjunum eignaðist í desember árið 2009 sitt nítjánda barn og hefur nú tilkynnt að hún og eiginmaðurinn eigi von á sínu tuttugasta barni. 9.11.2011 14:06
Tíu þúsund dómínó-kubbar féllu Það er ekki á hverjum degi sem þúsundir dómínó kubbar falla en á safni einu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum á dögunum horfðu fjöldi gesta á tíu þúsund kubba falla á hliðina. Það voru bræðurnir Steve og Mike Perrucci sem eyddu yfir 15 klukkutímum í að raða kubbunum samviskulega upp. Þeir eru kallaði Dómínó-bræðurnir enda hafa þeir sérhæft sig í kubbunum síðustu ár. Í myndskeiðinu hér að ofan er hægt að sjá kubbana tíu þúsund hrynja. Ansi mögnuð sjón! 9.11.2011 13:55
María segir siðareglurnar vera þöggunartæki fyrir Davíð Þór María Lilja Þrastardóttir, sem skrifaði umdeildan pistil um Davíð Þór Jónsson á vefinn Innihald.is, er hætt að skrifa á vefinn. Ritstjórn Innihalds tók í morgun út hinn umdeilda pistil hennar og bað hlutaðeigandi, bæði Davíð og Maríu Lilju, afsökunar á birtingu hans. Ástæðan er sú að siðanefnd vefsíðunnar komst að því að með pistlinum hafi María Lilja brotið siðareglur. 9.11.2011 13:48
Segir dreifbýlisbyggðir látnar blæða vegna Álftaness Ríkisstjórnin er sökuð um að láta þau sveitarfélög í dreifbýlinu sem verst standa ein um að axla byrðar af fjárhagshruni Álftaness með því að taka af þeim 300 milljóna króna framlag og færa til Álftaness. 9.11.2011 13:14
Framsóknarflokkurinn fordæmir skrif Eiríks Bergmanns Þingflokkur Framsóknarflokksins fordæmir umfjöllun Eiríks Bergmanns Einarssonar um Framsóknarflokkinn sem birt var í Fréttatímanum um síðustu helgi. Í yfirlýsingu sem Framsóknarflokkurinn hefur sent frá sér segir að umfjöllunin sé villandi og meiðandi. Eiríkur fjalli þar um ýmsar þjóðernisöfgahreyfingar og blandi Framsóknaflokknum í þá umræðu með afar undarlegum hætti. 9.11.2011 13:09
Heavy D látinn Bandaríska rappstjarnan Heavy D lést í gær, 44 ára að aldri. Hann hné niður fyrir utan heimili sitt í Los Angeles og lést á spítala skömmu síðar. 9.11.2011 13:00
Gat ekki klæðst en vann samt úti Kona í Västerås í Svíþjóð, sem sagðist hvorki geta matast sjálf né klætt sig, fékk á sex ára tímabili greiddar fimm milljónir sænskra króna, jafngildi tæpra 90 milljóna íslenskra króna, í umönnunarbætur. Á þessu sama tímabili starfaði konan sem gengilbeina á veitingastað. 9.11.2011 12:45
Geta ekki hrellt fyrverandi eiginkonur í verslunum Danska stjórnin ætlar með nýju lagafrumvarpi að tryggja að erfiðara verði fyrir menn að hrella fyrrverandi eiginkonur sínar. 9.11.2011 12:30
Segist ekki hafa séð neitt um hagnað ríkissjóðs af jarðakaupum Nubos Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kvaðst á Alþingi í gær ekki hafa séð neitt sem gæfi til kynna að ríkissjóður myndi hagnast á kaupum Kínverjans Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Skýrsla Arion banka, um gríðarlega jákvæð áhrif fjárfestinga hans á efnahagslífið, var engu að síður send honum persónulega í síðasta mánuði, en einnig ráðuneytinu og birt opinberlega. 9.11.2011 12:00
Skálholt skyndifriðað Skálholtsskóli, Skálholtskirkja og nánasta umhverfi hefur verið skyndifriðað. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi Húsafriðunarnefndar í gær. Nikulás Úlfar Másson forstöðumaður nefndarinnar segir að þetta þýði að hætta verði öllum framkvæmdum við Þorláksbúð. Innan tveggja vikna þarf svo að taka endanlega ákvörðun um hvort svæðið verði friðað. 9.11.2011 11:58
Ábyrgðarlaust að afneita fölskum minningum Reynir Harðarson sálfræðingur ræddi falskar minningar í þættinum Í bítið í morgun. Fyrirbærið hefur verið mikið rætt síðustu daga í kjölfar yfirlýsingar frá fjölskyldu Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur sem sakað hefur föður sinn Ólaf Skúlason biskup um kynferðisbrot gegn sér. Fjölskyldan heldur því fram að Guðrún Ebba fari með rangt mál og þeim möguleika hefur verið velt upp að um falskar minningar sé að ræða. 9.11.2011 11:26
Eiríkur Guðnason borinn til grafar Eiríkur Guðnason, fyrrverandi seðlabankastjóri, verður borinn til grafar frá Hallgrímskirkju í dag. Hann lést á hjartadeild Landspítalans þann 31. október 2011. Eiríkur starfaði í 40 ár við Seðlabankann, var aðalhagfræðingur, aðstoðarbankastjóri og bankastjóri. Hann var bankastjóri þegar mest gekk á í efnahagslífi Íslendinga á árinu 2008. 9.11.2011 11:17
Ríkt fólk endurnýjar lúxusbílaflota landsins „Þeir sem eiga peninga eru að kaupa bíla,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi. 9.11.2011 11:00
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda í Reykjanesbæ rétt fyrir klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum varð slysið með þeim hætti að karlmaður var að ganga yfir gangbraut, á móts við Íslandsbanka efst á Hafnargötunni, þegar ekið var á hann. Maðurinn var flutt á slysadeild en hann er ekki alvarlega slasaður, samkvæmt varðstjóra hjá lögreglu. 9.11.2011 10:21
Davíð Þór beðinn afsökunar Siðanefnd vefsíðunnar Innihald.is hefur komist að þeirri niðurstöðu að María Lilja Þrastardóttir hafi gerst brotleg við siðareglur vefsins þegar hún skrifaði opið bréf til Davíðs Þórs Jónssonar sem birtist á vefnum. Bréfið hefur nú verið tekið úr birtingu. 9.11.2011 10:18
Forsetinn heimsækir Ísafjörð Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Samtök iðnaðarins munu heimsækja Menntaskólann á Ísafirði og fyrirtæki í bæjarfélaginu á morgun. 9.11.2011 10:03
Bjarni Ben hjá Audda Blö: Við erum ekki ósátt "Já, við höfum alltaf verið ágætir vinir,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um tengsl sín og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarfulltrúa sem tilkynnti um formannsframboð sitt í síðustu viku. 9.11.2011 09:21
Herðir eftirlit með hlerunum Ríkissaksóknari, Sigríður J. Friðjónsdóttir, vill herða eftirlit með símhlerunum lögreglunnar. Hún hefur skrifað dómstólaráði bréf þess efnis að embætti hennar verði send afrit af dómsúrskurðum vegna símhlerana og sambærilegra úrræða jafnóðum og þeir eru kveðnir upp, hvort sem fallist er á kröfu lögreglu eða ekki. Þetta er liður í að endurskipuleggja og herða eftirlit embættis ríkissaksóknara með símhlerunum. 9.11.2011 09:00