Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki borið á PMMA síðan í vor Ekkert hefur borið á fíkniefninu PMMA hér á landi síðan í maí á þessu ári. Snemma í sumar lést stúlka af völdum eiturlyfja og strax vaknaði grunur um að fíkniefnið PMMA hefði valdið dauða hennar. Það fékkst staðfest í síðustu viku eftir lyfjarannsókn, að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu. 29.8.2011 16:38
Hefja vinnu við hættumat fyrir eldgos - tekur 15 til 20 ár í heildina Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að hafin yrði vinna við hættumat fyrir eldgos á Íslandi. Í tilkynningu frá ráðherra segir að um viðamikla vinnu sé að ræða sem gróflega er áætlað að taki 15 - 20 ár í heildina. Fyrsti áfanginn er þó verkefni til þriggja ára. 29.8.2011 16:21
Ný stjórnarskrá verði rædd í október Tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verða lagðar fyrir Alþingi í byrjun október. Það kemur fram á minnisblaði sem forseti Alþingis lagði fyrir forsætisnefnd í dag. Talið er óheppilegt að tillögur ráðsins verði ræddar á fundardögum þingsins í september því þá gæfist ekki nægur tími til umræðnanna. Nýtt löggjafarþing hefst 1. október og þá falla mál af þingi síðasta árs niður. 29.8.2011 15:32
Tíu ölvaðir og sjö dópaðir teknir undir stýri um helgina Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina og sjö voru teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. 29.8.2011 15:31
Irene er skilaboð frá Guði Fellibylurinn Irene er skilaboð frá guði, segir Michele Bachmann, hugsanlegt forsetaefni Repúblikana í Bandaríkjunum. Hún telur fellibylinn sem og jarðskjálfta sem varð í austurhluta Bandaríkjanna í síðustu viku öruggt merki þess að Washington þurfi á nýjum leiðtoga og nýjum stefnumiðum að halda. 29.8.2011 15:01
Mini fór í heimsreisu og kom við á Íslandi Bílaframleiðandinn MINI hefur nú kynnt enn eina útgáfuna af smábílnum vinsæla, í þetta skipti er það Mini Coupe. Fyrirtækið ákvað að senda bílinn í heimsreisu og gera nokkrar stuttmyndir með hann í aðalhlutverki, víðsvegar um heiminn. Á meðal áfangastaða var Rio de Janeiro, Hong Kong og Ísland en í meðfylgjandi myndbandi má sjá þá Víking Kristjánsson og Finnboga Þorkel í hlutverki bílstjóra og puttaferðalangs. 29.8.2011 14:58
Segir Beijing borg ofbeldisins Kínverski nútímalistamaðurinn, Ai Weiwei, sendi seint í gærkvöld frá sér grein þar sem hann gagnrýnir stjórnvöld í Kína harkalega. Weiwei var sleppt úr varðhaldi í júní á þessu ári. Hann hefur lengi verið hávær gagnrýnandi stjórnvalda í kína en að sögn embættismanna var hann fangelsaður vegna fjármálaglæpa. 29.8.2011 14:28
Black Pistons í héraðsdómi: Gerir lítið úr sínum hlut í árásinni Foringi vélhjólasamtakanna Black Pistons, neitaði fyrir dómara í morgun að hafa tekið þátt í líkamsárás á rúmlega tvítugan karlmann í maí síðastliðnum. 29.8.2011 13:54
Heimsmeistaramótið í tennisgolfi afstaðið Heimsmeistaramótið í tennisgolfi var haldið í Vestmannaeyjum nú um helgina með pomp og prakt. Spilaðar voru fjórar brautir, og barst slagurinn um allan bæ og allt niður í Herjólfsdal. Að lokum stóð Þórir Rúnar Geirsson uppi sem sigurvegari. Alls voru keppendur 27, en þeir voru allir íslenskir. 29.8.2011 13:53
Segja veitingastaði í vanda vegna kjötskorts Samtök ferðaþjónustunnar segja að skortur sé á gæða nautakjöti í landinu og að ástandið hafi sjaldan verið jafnslæmt og nú. Í tilkynningu frá samtökunum segir að raunar hafi veitingastaðir þurft að búa við þetta í áraraði en að nú sé ástandið sérstaklega slæmt. Samtökin segja að veitingastaðir hafi neyðst til að taka rétti af matseðlum sínum vegna skortsins. 29.8.2011 13:41
Kínversk leyndarmál leka á Youtube Myndband þar sem kínverskur herforingi talar um viðkvæm njósnamál hefur lekið á myndbandasíðuna Youtube. Kínverjar hafa ekki svarað fyrirspurnum sem sendar voru í dag vegna málsins. Kínversk yfirvöld ræða sjaldan mál af þessu tagi og eru að öllum líkindum æf vegna tilviksins. 29.8.2011 13:23
Birkifetinn rústar bláberjauppskeruna fyrir norðan Þar sem áður fengust tíu lítrar af bláberjum og aðalbláberjum á Norðurlandi fæst nú ekki einn lítri. Fiðrildið Birkifeti hefur étið mest allt lyngið og berin ná því ekki að vaxa. Skordýrafræðingur segir lítið hægt að gera og varanleg áhrif Birkifetans enn óljós. 29.8.2011 13:02
Rónaganga í borginni Samtökin SÁÁ standa fyrir rónagöngu næstkomandi laugardag. Þá gefst borgarbúum tækifæri til að ganga um miðbæ Reykjavíkur ásamt sagnfræðingnum Guðjóni Friðrikssyni og fræðast um róna og umhverfi þeirra í borginni. 29.8.2011 12:48
Óttast fjölgun á glákutilfellum Augnlæknar óttast að tilfellum gláku eigi eftir að fjölga á Íslandi þar sem sífellt færri fara í reglubundið eftirlit. Talið er að um fimm þúsund manns séu með sjúkdóminn á öllum stigum hérlendis og hafa þeir aldrei verið fleiri. 29.8.2011 12:26
Margir halda 11. september samsæri Einn af hverjum sjö trúir því að árásirnar á tvíburaturnana í Bandaríkjunum 11. september 2001 hafi verið samsæri ríkisstjórnarinnar. Þetta kom fram í símakönnun sem gerð var fyrir heimildamynd á sjónvarpsstöðinni BBC í síðasta mánuði. 29.8.2011 12:04
Ráðgjafi Obama talar í HÍ Dr. Linda Darling-Hammond, bandarískur heiðursdoktor, heldur fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands (HÍ) 1. september. Fyrirlesturinn ber heitið Menntun og kennsla á 21. öld. 29.8.2011 11:39
Hleypur listaverk fyrir Steve Jobs Maraþonhlaupari í Tokyo vottaði fráfarandi forstjóra Apple, Steve Jobs, virðingu sína á frumlegan hátt síðasta laugardag. Hlauparinn, Joseph Tame, hljóp 21 km hlaup og myndaði með hlaupaleið sinni risafengið apple-merki á götum Tokyo. Hann notaði GPS tækni, tvo iphona og forrit sem kallast Runkeeper til að teikna merkið upp. 29.8.2011 11:14
Mótorhjólamenn keyrðu utan vegar við Skógafoss Lögreglan á Hvolsvelli rannsakar nú utanvegaakstur bifhjóla við Skógafoss um helgina. Lögreglu barst tilkynning um að hópur vélhjólamanna hefði ekið inn á friðað svæðið við Skógafoss, en hópurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Vitni munu hafa verið að akstrinum og náðust skráningarnúmer hjólanna. Málið er í rannsókn. Óheimilt er með öllu að aka inn að Skógafossi, heldur ber að leggja ökutækjum við bifreiðastæði við tjaldsvæðið á Skógum og ganga að fossinum að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. 29.8.2011 11:07
Hungurverkfallið í Indlandi á enda Indverski mótmælandinn Anna Hazare endaði í gær 13 daga hungurverkfall sitt í kjölfar þess að ríkisstjórn landsins varð við kröfum hans. Á föstunni missti hann tæp 7 kíló. 29.8.2011 10:49
Íslendingur handtekinn með khat á Gardermoen Íslendingur var í síðustu viku handtekinn á Gardemoen flugvelli í Noregi. Hann hafði reynt að smygla sautján kílóum af fíkniefninu Khat til Noregs frá Amsterdam. Maðurinn var yfirheyrður af lögreglu og honum sleppt að því loknu að því er fram kemur í norskum miðlum. 29.8.2011 10:39
Fuglaflensan dreifir sér á ný Sameinuðu Þjóðirnar vöruðu í dag við því að fuglaflensan kunni að blossa upp aftur. Nýtt afbrigði vírussins, sem virðist þola alla lyfjameðferð sem nú þekkist, er að breiða sig út í Kína og Víetnam. Einnig hafa villtir fuglar borið vírusinn til landa sem áður voru laus við flensuna, meðal annars Ísrael og Búlgaríu. Þetta kemur fram á vefmiðli The Independent. 29.8.2011 10:24
Reynslusaga úr bjarnarkjafti Hópur breskra barna á skólaferðalagi á Svalbarða varð fyrir árás ísbjarnar nú fyrr í mánuðinum. Patrick Flinders, 16 ára strákur, sem tókst á við björninn með berum höndum kom fram í viðtali í gær og sagði ítarlega frá atburðunum. 29.8.2011 09:59
Black Pistons fyrir dóm Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn tveimur mönnum, sem grunaðir eru um sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í maí síðastliðnum, hóst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter yfir níu í morgun. 29.8.2011 09:18
Þrír skipaðir í rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar Róbert Spanó, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands hefur skipað þriggja manna rannsóknarnefnd sem ætlað er að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna ásakana á hendur vígðum þjónum og starfsmönnum kirkjunnar um kynferðisbrot eða annað ofbeldi. 29.8.2011 09:05
Verður sjötti forsætisráðherran á fimm árum Japanski lýðræðisflokkurinn hefur útnefnt fjarmálaráðherrann Yoshihiko Noda sem næsta forsætisráðherra-efni flokksins. Gert er ráð fyrir því að þingið muni samþykkja Noda sem næsta forsætisráðherra á morgun, þriðjudag. 29.8.2011 08:33
Sprengdi sig í loft upp í mosku Að minnsta kosti tuttugu og átta fórust og yfir þrjátíu særðust þegar að maður sprengdi sig í loft upp í mosku í Bagdad, höfuðborg Íraks í gær. Sprengjan sprakk þegar að súnní-múslimarnir voru að biðja bænir sínar en moskan er sú stærsta sinnar tegundar í borginni. Á meðal þeirra föllnu er íraskur þingmaður. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Á föstudaginn féllu að minnsta kosti 13 í árásum í borgunum Basra, Falluja og Bagdad. 29.8.2011 08:31
Ófrísk kona ekki alvarlega slösuð Ófrísk kona, sem slasaðist í bílveltu rétt austan við Múlakvísl í gærkvöldi, er ekki lífshættulega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á bráðamóttöku. Konan var gengin átta mánuði á leið og var í nótt í rannsóknum á kvennadeild Landspítalans. 29.8.2011 08:01
Þunguð kona flutt með þyrlu eftir bílslys Kona slasaðist í bílveltu í gærkvöldi rétt austan við Múlakvísl. Ákveðið var að kalla eftir þyrlu til þess að flytja hana á sjúkrahús en hún er gengin átta mánuði á leið. Sjúkrabíll flutti konuna að Skógum þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið eftir henni og flutti á Borgarspítalann þar sem lent var rétt fyrir miðnætti. 29.8.2011 07:21
Við dauðans dyr Líbíumaðurinn Al Megrahi, sem var dæmdur fyrir Lockerbie-ódæðið árið 1988, er nú við dauðans dyr á heimili sínu í Trípólí í Líbíu. 29.8.2011 07:20
Bíll brann á Bárugötu Kveikt var í bíl á Bárugötu í miðborg Reykjavíkur um klukkan hálftvö í nótt. Slökkviliðsmenn voru snöggir á staðinn og gekk vel að slökkva eldinn en svo virðist sem dagblöðum hafi verið troðið inn í bílinn og eldur borinn að. Bifreiðin er talin ónýtu en bíllinn hafði verið afskráður og ekki í góðu ásigkomulagi fyrir. Eigandinn tjáði lögreglu í nótt að hann hefði ekki orðið fyrir neinu tjóni því staðið hafi til að henda bílnum. 29.8.2011 07:20
Vatnsréttindi aftur á forræði ríkisvalds Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur skipað sérfræðingahóp til að vinda ofan af einkavæðingu vatnsréttinda sem fram fór með lagabreytingu árið 1998. Málið er unnið í samráði þingflokka beggja stjórnarflokkanna. 29.8.2011 07:00
Á hjólastólnum inn í bíl og ekið af stað Blaðamaður brá sér á rúntinn sem væri ekki í frásögu færandi nema fyrir það að bílsstjórinn, Hallgrímur Eymundsson, hefur notað rafmagnshjólastól frá sjö ára aldri. 29.8.2011 06:00
Vill auðlindir til umhverfisráðuneytis Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýstir yfir stuðningi við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar og segir ótvíræðan árangur hafa náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar. Sá árangur sé í fyllsta samræmi við stefnu flokksins í ýmsum málum. 29.8.2011 05:30
Augu Meyjunnar stara í tómið Kíkir Stjörnustöðvar Evrópulanda á Suðurhveli (ESO) náði á dögunum einstaklega glæsilegri mynd af tveimur vetrarbrautum í órafjarlægð frá jörðu. Vetrarbrautirnar eru jafnan kallaðar Augun og eru í 50 milljóna ljósára fjarlægð frá stjörnumerkinu Meyjunni. 29.8.2011 05:00
Borgina vantar um 50 starfsmenn Um 600 grunnskólabörn í Reykjavík eru á biðlista eftir plássi á frístundaheimilum. Þó hefur fjöldinn dregist saman um helming því í þar síðustu viku voru um 1.200 börn sem biðu eftir plássi. Borgina vantar enn um 50 starfsmenn í hlutastarf til að anna þessari eftirspurn, en búist er við því að það nái að ráða í stöðurnar á næstu vikum. 29.8.2011 04:30
Baráttan er alls ekki kvöð Heimsþekkt baráttukona heldur fyrirlestur um umhverfismál í Háskólabíói í dag. Segir Ísland hafa möguleika á að taka forystu í málaflokknum. Fjölbreytt baráttumál hennar snúast öll um lífið. 29.8.2011 04:00
26 prósenta hækkun hjá OR Heildarraforkukostnaður hjá heimilum landsins hefur hækkað umtalsvert frá því í júní 2010, samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ. Mest er hækkunin hjá viðskiptavinum Orkuveitu Reykjavíkur en heildarraforkukostnaður þeirra hefur hækkað um 26 prósent miðað við 4.000 kWst. notkun á ári. 29.8.2011 04:00
Gefur berjunum viku í viðbót „Berjaspretta er eins og vænta mætti en um það bil tveim til þrem vikum seinna á ferðinni í ár,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjaáhugamaður. Sjálfur er hann farinn að sulta og safta úr aðalbláberjum og segir þau harðari af sér. 29.8.2011 03:30
Heldur færri á ferð um hálendið Heldur færri ferðamenn fóru um hálendið í sumar en undanfarin sumur samkvæmt mati björgunarsveitarmanna sem sinntu vakt á hálendinu. Aðstoðarbeiðnir voru litlu færri en í fyrra. 29.8.2011 02:45
Óttast um 50 þúsund fanga Óljóst er hvað orðið hefur um tæplega 50 þúsund Líbíubúa sem teknir voru höndum af mönnum Gaddafís, leiðtoga Líbíu. Grunur leikur á að fólkinu hafi verið haldið föngnu í neðanjarðarbyrgjum, sem nú hafa verið yfirgefin. 29.8.2011 00:00
Flæðir yfir götur borgarinnar Sjór hefur flætt yfir bakka sína á Manhattan og víðar vegna Írenu sem hefur nú verið flokkaður sem hitabeltisstormur samkvæmt frétt Daily Telegraph um málið. 28.8.2011 14:34
Fallinn einræðisherra til í viðræður um myndun bráðabirgðarstjórnar Muhammed Gaddafi segist reiðubúinn að ganga til viðræðna við uppreisnarmenn um myndun bráðabyrgðarstjórnar í Líbíu. Um 2,9 milljarða dollara vantar í opinberan fjárfestingarsjóð líbíska ríkisins. Grunur leikur á a fjárfestingarsjóðurinn hafi verið misnotaður. 28.8.2011 14:00
Mikið um smáskjálfta nærri Mýrdalsjökli Talsvert hefur verið um smáskjálfta nærri Mýrdalsjökli en stærsti skjálftinn mældist 2,3 á richter en upptök hans voru um tveimur kílómetrum vest-suðvestur af Goðabungu. 28.8.2011 13:58
La Primavera hættir rekstri - eigendur einbeita sér að Kolabrautinni Veitingastaðurinn La Primavera í Austurstræti hefur hætt rekstri. Tækjakostur og búnaður hefur verið seldur nýjum eigendum en veitingastaðnum hefur verið lokað samkvæmt tilkynningu frá eigendum veitingastaðarins. 28.8.2011 13:35
Ungir sjálfstæðismenn kjósa nýjan formann - rafmagnað andrúmsloft Hundruð manna eru samankomnir í Hveragerði til þess að kjósa á sambandsþingi Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS). 28.8.2011 13:09