Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Félagsmálanefnd skoðar Árbótarmálið Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis ætlar að funda um Árbótarmálið á mánudaginn. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður nefndarinnar, segist ekki vilja tjá sig um það þangað til. 25.11.2010 10:32
Svört skýrsla Skipulagsstofnunnar um álver á Bakka Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að heildaráhrif Kröfluvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar, álvers á Bakka við Húsavík og háspennulína frá Kröflu og Þeistreykjum að álveri á Bakka muni óhjákvæmilega hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum. 25.11.2010 10:19
Barnabók um útrásarvíkinga „Ef þú spyrð mig, þá á að senda öllum útrásarvíkingunum þessa bók og kannski vakna einhverjir þeirra til lífsins,“ segir Huginn Þór Grétarsson rithöfundur. Hann gefur út fjórar barnabækur fyrir jólin en ein þeirra, „Kanínan sem fékk ALDREI nóg“, minnir óneitanlega mikið á útrásina alræmdu. 25.11.2010 09:00
Harrier orrustuþotur breska sjóhersins heyra sögunni til Blað var brotið í sögu breska sjóhersins þegar fjórar Harrier orrustuþotur tóku á loft frá flugmóðurskipinu Ark Royal í síðasta sinn í gær. 25.11.2010 07:52
Mikill skortur á læknum og hjúkrunarfræðingum á Haíti Mikill skortur er á læknum og hjúkrunarfræðingum á Haíti þar sem heilbrigðisyfirvöld berjast gegn útbreiðslu kólerufaraldurs sem hrjáð hefur íbúa eyjunnar. 25.11.2010 07:50
Suður Kórea eykur herstyrk sinn á eyjunni sem varð fyrir árás Stjórnvöld í Suður Kóreu ætla að auka fjölda hermanna sinna á eyjunni sem varð fyrir stórskotaliðsárás Norður Kóreu fyrir tveimur dögum. Jafnframt verður herstyrkurinn aukinn á nærliggjandi eyjum. 25.11.2010 07:47
Par stal verðmætum úr ólæstum bíl Karl og kona fóru inn í ólæstan bíl í miðborginni í nótt og tóku þar ýmis verðmæti til handargagns. 25.11.2010 07:42
Fyrrum þingforseti fundinn sekur um peningaþvætti Dómstóll í Texas hefur komist að þeirri niðurstöðu að Tom DeLay leiðtogi og fyrrum þingforseti Repúblikana í fulltrúadeild bandaríska þingsins sé sekur um peningaþvætti. 25.11.2010 07:23
Hasshundur fann fíkniefni falin í bíl Nokkur grömm af marijuana og amfetamíni fundust falin í tösku í bíl, sem lögreglan á Blönduósi stöðvaði í gærkvöldi við reglubundið eftirlit. 25.11.2010 07:16
Götusmiðjan vill bætur líkt og Árbót Hugsanlegt er að ríkið hafi bakað sér bótaskyldu með greiðslu 30 milljóna króna bóta til meðferðarheimilisins Árbótar í Þingeyjarsýslu. Lögfræðingur Götusmiðjunnar segir að samið hafi verið við skjólstæðing sinn á allt öðrum forsendum í sumar og ætlar með málið lengra á grundvelli jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. 25.11.2010 06:15
Fimm milljarðar frá ESB til menntamála Á þeim tæplega sextán árum sem liðin eru síðan Evrópusambandið fór að styrkja starfsmenntun og skólaverkefni hér á landi hafa tæplega fimm milljarðar króna að núvirði runnið til ýmiss konar verkefna hér á landi. Árangur starfsins verður gerður upp á afmælishátíð í dag. 25.11.2010 06:00
Skiptar skoðanir um gildi nýs sáttmála Forystumenn launþegahreyfinga hafa misjafna afstöðu til hugmynda um gerð nýs stöðugleikasáttmála. Sumir eru hlynntir en aðrir hafa miklar efasemdir um að sú leið gagnist umbjóðendum þeirra. 25.11.2010 06:00
Frægur breskur matreiðslumaður vill uppræta brottkast á fiski Frægur breskur matreiðslumaður, Hugh Fearnley-Whittingstall, hefur safnað yfir 30 þúsund undirskriftum þar sem skorað er á Maríu Damanaki, fiskveiðistjóra Evrópusambandsins, að banna brottkast á fiski. 25.11.2010 05:45
Alþingismenn vilja að efnt verði til fjölda rannsókna Sex þingsályktunartillögur um rannsóknir hafa verið lagðar fram á Alþingi síðan það kom saman 1. október. Snúa þær að einkavæðingu bankanna, Icesave, Íbúðalánasjóði, starfsháttum í ráðuneytum, athöfnum þingmanna í búsáhaldabyltingunni og stuðningnum við innrásina í Írak. 25.11.2010 05:45
Bolvíkingar vilja fá skuld afskrifaða Bolungarvíkurkaupstaður hefur óskað eftir að 81 milljónar króna skuld við Íbúðalánasjóð verði afskrifuð. Í byrjun síðasta árs felldi sjóðurinn niður 73 milljónir af 146 milljóna króna skuld sveitarfélagsins. Afangurinn var frystur í eitt ár. Nú vill Bolungarvíkurkaupstaður að það sem eftir er verði líka afskrifað. Ekki hefur verið tekin afstaða til þess. 25.11.2010 05:45
20 milljónir notenda hafa viðkomu hér Ísland væri eitt mesta ferðamannaland heims ef taldir væru með rafrænir ferðalangar eftir að gagnaver Opera Mini farsímavafrans var tekið í notkun í byrjun þessa mánaðar. Þessu er haldið fram í tilkynningu sem norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software sendi nýverið frá sér þegar tekin var í notkun þjónusta Thor Data Center á Íslandi. 25.11.2010 05:30
Víkur fyrir velferðarráðuneyti Flytja á alla starfsemi Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu á einn stað. Hún er nú á fjórum stöðum og skapast af því mikið óhagræði, að sögn Gissurar Péturssonar forstjóra. 25.11.2010 05:00
Árbótarmálið í hnotskurn Fréttablaðið hefur undanfarna þrjá daga sagt frá því hvernig Árni Páll Árnason, þáverandi félagsmálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ákváðu að greiða eigendum meðferðarheimilisins Árbótar í Þingeyjarsýslu þrjátíu milljónir króna í bætur vegna lokunar heimilisins. Þetta var meðal annars gert þvert gegn vilja Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu, og vegna þrýstings frá þingmönnum Norðausturkjördæmis. Fjármálaráðherra segir að sanngirnissjónarmið hafi ráðið för. Barnaverndarstofa hefur þegar greitt tólf milljónir. Ráðgert er að greiða þær átján milljónir sem eftir standa þegar Alþingi hefur afgreitt fjáraukalög. 25.11.2010 05:00
Velktist um í kerfinu í á þriðja ár Umboðsmaður Alþingis átelur landbúnaðarráðherra fyrir að hafa ekki afgreitt umsókn innflytjanda um leyfi til að flytja inn egg frá Svíþjóð tveimur og hálfu ári eftir að umsóknin var lögð fram. Í nýju áliti umboðsmanns kemur fram að tilvonandi innflytjandi hafi í febrúar 2008 sótt um leyfi til að flytja inn sænsk egg. Hann kvartaði til umboðsmanns í ágúst síðastliðnum, þegar umsóknin hafði velkst um í kerfinu í tvö og hálft ár. 25.11.2010 05:00
Samstaða með Palestínuþjóð Félagið Ísland-Palestína efnir til samstöðufundar með palestínsku þjóðinni í Norræna húsinu 29. nóvember. Fram koma Árni Þór Sigurðsson þingmaður, Sveinn Rúnar Hauksson læknir, Kristín Sveinsdóttir og Hjálmtýr Heiðdal. 25.11.2010 04:45
Tilfærsla fljótsins varhugaverð Kristján Ólafsson, bóndi á Seljalandi, segir að landeigendur við fljótið telji að fyrirhugaður flutningur Markarfljóts til austurs vegna áhrifa á Landeyjahöfn muni hafa mikil áhrif á svæðinu. Í viðtali við eyjar.net segir Kristján að á frostavetrum hafi fljótið sprengt sér leið austur. „Nú er verið að hjálpa til við það af mannavöldum. Þetta eru náttúruhamfarir.“ 25.11.2010 04:45
Stórfelld rányrkja í Skotlandi Sex skoskir skipstjórar, þar af tveir úr samtökum skoskra uppsjávarveiðimanna, hafa viðurkennt fyrir hæstarétti í Edinborg að hafa veitt og landað ólöglega tugum þúsunda tonna af makríl og síld. Samtök uppsjávarveiðimanna hafa gengið fremst í flokki þeirra sem gagnrýna makrílveiðar Íslendinga. 25.11.2010 04:15
Fullveldi ekki rofið með ESB Stjórnlagadómstóll Póllands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Lissabonsáttmáli Evrópusambandsins brjóti ekki í bága við stjórnarskrá Póllands. 25.11.2010 03:15
Dæmdur fyrir kynferðisbrot Pujiono Cahyo Widianto, 46 ára múslimaklerkur í Semarang á Indónesíu, var í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára stúlku. Widianto bauð þúsundum manna í brúðkaup sitt og stúlkunnar árið 2008. Hann sagðist þá ekki ætla að sofa hjá eiginkonu sinni fyrr en hún yrði kynþroska. 24.11.2010 23:45
Raggi Bjarna nennir ekki að læra textana Stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason er óskipulagður og pínulítið gleyminn, en hvers manns hugljúfi sem gerir ekkert með hangandi hendi og er fyrir löngu búinn að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Sýnd var nærmynd af söngvaranum í þættinum Ísland í dag fyrr í í kvöld. 24.11.2010 22:30
Lögreglumenn slasaðir eftir mótmæli stúdenta Tveir lögreglumenn hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir mótmælaaðgerðir stúdenta í Lundúnum. Talið er að annar þeirra sé handleggsbrotinn og hinn fótbrotinn. Tugþúsundir stúdenta hafa mótmælt víðsvegar um Bretland, þar á meðal í Lundúnum, Bristol, Birmingham, Glasgow, Manchester, Cambridge og Brighton. 24.11.2010 21:27
Veiðin jafnast á við tugmilljóna markaðsherferð „Ég myndi segja að hafa fengið þessa lúðu sé á við tugmilljóna markaðsherferð enda hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa,“ segir Haukur Vagnsson, framkvæmdastjóri Víkurbáta á Bolungarvík. 24.11.2010 21:04
Tryggvi Þór: Árni réð ekki við Árbótarmálið Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að Árni Páll Árnason, þáverandi félagsmálaráðherra, hafi ekki ráðið við hið svokallaða Árbótarmál. Það skýri aðkomu þingmanna Norðausturkjördæmis og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra að málinu. 24.11.2010 20:15
Læstist inni á baðherbergi í 20 daga Eldri konu í París var bjargað á dögunum en hún hafði setið föst inni á baðherbergi sínu í heila 20 daga. Baðherbergishurðin læstist og þar sem herbergið er gluggalaust átti hún engin ráð með að láta vita af sér. 24.11.2010 20:00
Skelfing greip um sig þegar brúin byrjaði að dúa Komið hefur í ljós að yfir 400 manns fórust og aðrir 400 slösuðust þegar skelfing greip um sig meðal manna sem voru að fara yfir hengibrú í Phnom Penh höfuðborg Kambódíu á mánudag. 24.11.2010 19:45
Móðir Tryggva Jóns orðlaus yfir sterkum viðbrögðum Móðir fjölfatlaðs drengs á Akureyri er orðlaus yfir sterkum viðbrögðum við vandræðum fjölskyldunnar. Bæjaryfirvöld á Akureyri hyggjast breyta reglum svo hægt verði að styðja umbætur á heimili þeirra. Byrjað er að umbylta heimili drengsins. 24.11.2010 19:42
Enginn með allar tölur réttar Enginn var með allar tölur réttar í Víkingalottói kvöldsins og því verður fyrsti vinningurinn, sem nam 96 milljónum króna, tvöfaldur næst. Einn var fimm réttar tölur auk bónustölu og hlýtur hann 7,8 milljónir í vinning. Um var að ræða Íslending sem keypti miðann sinn á Lotto.is. 24.11.2010 19:28
Fylgja Cantona og ætla að gera áhlaup á bankana Hátt í 300 Íslendingar ætla að gera áhlaup á bankana 7. desember og fylgja þannig frönsku fótboltagoðsögninn Eric Cantona, sem óafvitandi hleypti af stað alþjóðlegri bankabyltingu í Youtube viðtali nýverið. 24.11.2010 19:21
Aðildarviðræðunum verði haldið áfram Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram og stefnt á að ná sem bestum samningi. 24.11.2010 19:10
Stjórnarliðar tókust hart á Ósætti órólegu deildarinnar í Vinstri grænum við ríkisstjórnina hefur síst minnkað eftir flokksráðsfund flokksins um helgina. Stjórnarliðar tókust hart á um efnahagsmál á Alþingi í dag. 24.11.2010 18:56
Herir Kóreuríkjanna enn í viðbragðsstöðu Herir Kóreuríkjanna eru enn í viðbragðsstöðu og bandarískt flugmóðurskip er á leiðinni þangað ásamt fylgdarskipum. Bandaríska flotadeildin mun hefja æfingar með suður-kóreska flotanum. Barack Obama forseti Bandaríkjanna ítrekaði enn í dag að Bandaríkin muni standa við skuldbindingar sínar um að verja Suður-Kóreu fyrir öllum árásum. 24.11.2010 18:12
Veiddi stærstu lúðu sögunnar úti fyrir Bolungarvík Þýskur ferðamaður og frístundaveiðimaður, veidd nýverið heimsins stærstu lúðu á sjóstöng fyrir utan Bolungarvík. Gunther Hansel var tvo tíma að ná ferlíkinu um borð og þurfti hann hjálp fimm fílelfdra karlmanna við verkið. Lúðan er enda risastór, 2,5 metrar að lengd og 220 kíló. Um heimsmet mun vera að ræða og hafa aflabrögðin vakið mikla athygli um allan heim. 24.11.2010 18:00
Bubbi biður Guð að styrkja fjölskyldur Hannesar og Gunnars Bubbi Morthens biður góðan Guð að styrkja fjölskyldur Hannesar Þórs Helgasonar og Gunnars Rúnars Sigþórssonar í sorg þeirra og taka burt reiðina sem brenni aðeins fólk upp og gefi engan frið. Harmur fjölskyldu Hannesar sé mikill og reiðin sé skiljanleg. 24.11.2010 17:55
Lögreglumenn fundu fíkniefni undir berum himni Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi í fyrradag en um var að ræða 50 grömm af marijúana og ámóta magn af hassi. Hluti fíkniefnanna fannst utandyra og þá lagði lögreglan einnig hald á 300 þúsund krónur í reiðufé sem var falið undir rúmdýnu í húsinu, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. 24.11.2010 17:26
Niðurskurðurinn hefur ekki áhrif á heilsu þjóðarinnar Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, væntir þess að þær breytingar sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu hafi ekki áhrif á heilsufar landsmanna. Bráðaþjónusta við landsmenn sé nú þegar í föstum skorðum og ekki sé ætlunin að hrófla við henni. 24.11.2010 17:13
Slasaði hjólreiðamaðurinn tryggður „Hann lendir í árekstri við ökutæki og það er tryggt. Hann á því að fá fullar bætur vegna slyssins,“ segir Árni Davíðsson, formaður landssamtaka hjólreiðamanna um slys sem hjólreiðamaðurinn Þorsteinn K. Kristiansen lenti í á laugardaginn. 24.11.2010 16:45
Leita að vitnum að „hugsanlegu“ umferðaróhappi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að „hugsanlegu umferðaróhappi“ eins og það er orðað, sem átti sér stað í júní eða júlí á síðasta ári þar sem bifhjólamaður hafi fallið í götuna á Snorrabraut í Reykjavík á móts við Austurbæ. 24.11.2010 15:47
Gríðarleg fækkun innfluttra hunda Gríðarleg fækkun á innfluttum hundum varð hingað til lands á síðasta ári. Þá voru aðeins fluttir 124 hundar til landsins en innflutningur náði hámarki árið 2006 þegar 232 hundar komu til landsins. 24.11.2010 15:42
Ökumaður rafskutlunnar á spítala Ökumaður rafskutlunnar sem ekið var á við Holtagarða fyrr í dag var fluttur meðvitundarlaus á spítala, að sögn lögreglu. Hann mun vera talsvert meiddur en ekki í lífshættu. Maðurinn er á áttræðisaldri en hann var á leið yfir Sæbraut þegar bíll sem kom úr vesturátt ók á hann. 24.11.2010 15:25
Hlíðahrottarnir handteknir Lögreglan í Reykjavík hefur handtekið tvo ribbalda sem ruddust inn á heimili manns í Hlíðunum til þess að fá skuld greidda. 24.11.2010 15:16