Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigurður Einars vildi klappstýrutilburði frá viðskiptaráðherra Sigurður Einarsson, þáverandi stjórnarformaður Kaupþings, sendi Björgvini G. Sigurðssyni, þáverandi viðskiptaráðherra, harkaleg SMS-skilaboð í byrjun júní 2008 fyrir að gagnrýna stöðu bankanna en ekki klappa hana upp. 21.11.2010 14:00
Mikil umræða um kynferðisbrotamál í ráðuneytinu Málefni tengd kynferðisbrotum eru í mikilli umræðu innan dómsmálaráðuneytisins og ráðherra mun skoða áskoranir flokksráðs VG varðandi þann málaflokk, segir Ögmundur Jónasson dómstólaráðherra. 21.11.2010 13:57
Vilja Vilhjálm prins í konungssætið Um 64% Breta vilja að Vilhjálmur prins taki við krúnunni eftir að amma hans, Elísabet II, sest í helgan stein. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem gerð var fyrir breska slúðurblaðið News of the World. 21.11.2010 13:26
Björgvin G. fór á pönktónleika eftir fund með Darling Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, tróð sér ekki í Lundúnaferðina á fund með Alistair Darling. Eftir fundinn með Darling fór Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, á tónleika með pönksveitinni Sex Pistols. 21.11.2010 12:15
Skiptar skoðanir innan kirkjunnar um aðskilnað við ríkið Skiptar skoðanir eru um það innan þjóðkirkjunnar hvort hún eigi að vera jafn nátengd ríkinu og nú er, segir Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri Þjóðkirkjunnar. 21.11.2010 12:10
Björgvin G: Icesave í Hollandi ömurlegt hneyksli Icesave-ævintýri Landsbankans í Hollandi er hneyksli og einn ömurlegasti hluti af starfsemi bankanna undir lokin segir Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra. Hann segist ekki hafa vitað af reikningunum í Hollandi fyrr en mörgum mánuðum eftir opnun þeirra. 21.11.2010 12:00
Vill að fjárlög séu gerð langt fram í tímann Formaður framsóknarflokksins, vill að fjárlög íslenska ríkisins séu unnin í fimm eða tíu ár fram í tímann i stað þess að vinna þau fyrir hvert ár. 21.11.2010 11:12
Útskrifaður af spítala eftir árás Maðurinn sem varð fyrir árás fyrir utan skemmtistað í miðborginni í nótt hefur verið útskrifaður af spítalanum. Þrír karlmenn réðust á manninn þannig að hann féll í götuna. Þá var sparkað ítrekað í höfuð mannsins. 21.11.2010 10:53
Einar segir VG styðja aðildarviðræður Niðurstaða flokksráðsfundar Vinstri grænna er skýr, flokkurinn styður aðildarumsókina að ESB og vill halda vinnu við hana áfram. 21.11.2010 10:11
Sluppu ómeiddir úr bílveltu Bílvelta varð við Galtarholt í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi um ellefuleytið í gærkvöld. Þrír voru í jeppanum sem valt en enginn þeirra slasaðist alvarlega. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ökumaður grunaður um ölvun við akstur. 21.11.2010 09:24
Spörkuðu ítrekað í höfuð liggjandi manns Þrír karlmenn réðust á mann fyrir utan skemmtistað í miðborginni í nótt og slógu hann með þeim afleiðingum að hann féll í götuna. Þá fóru þeir að slá og sparka ítrekað í höfuð þolanda. Mennirnir voru handteknir og verða yfirheyrðir síðar í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en ekki er ljóst hversu áverkar hans eru alvarlegir. 21.11.2010 09:06
Kate er engin óbreytt almúgakona Vilhjálmur prins og Kate Middleton tilkynntu í liðinni viku að þau hyggðust ganga í hjónaband. Sérfræðingum í bresku kóngalífi þykir merkilegt að Vilhjálmur prins hafi ákveðið að kvænast óbreyttri almúgakonu, eins og þeir orða það. 21.11.2010 08:00
Þrír skipta fyrsta vinningi með sér Þrír voru með allar tölur réttar í lottó í kvöld og fær hver um sig rétt rúmar 12,9 milljónir í vinning. Miðarnir voru seldir i Brúarveitingum í Borgarnesi, í Búðinni í Grímsey og í áskrift. 20.11.2010 19:47
Segir flokkinn sterkan þrátt fyrir gagnrýni Gagnrýni kom fram á flokksráðsfundi Vinstri grænna á forystu flokksins, og sagði einn fundarmanna flokkinn skiptast í tvennt. Steingrímur J. Sigfússon segir flokkinn koma sterkan og samstilltan út úr fundinum. 20.11.2010 19:14
Vill gjaldtöku á farseðla til að vernda náttúruperlur Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir eðlilegast að leggja hóflegt gjald á flugfarseðla til að fjármagna eftirlit og viðhald með helstu náttúruperlum Íslands, en átroðningur á þær er svo mikill að þær liggja undir skemmdum. 20.11.2010 19:07
Margir mánuðir í að Illugi snúi aftur á þing Illugi Gunnarsson alþingismaður segist ekki vilja hefja stjórnmálaþátttöku að nýju fyrr en það leiki ekki neinn vafi á hans störfum í þágu almennings. Margir mánuðir gætu verið í það því rannsókn sérstaks saksóknara á sjóðum Glitnis er á algjöru frumstigi. 20.11.2010 18:48
Vinstri grænir ósammála um niðurstöðu flokksráðsfundar Þingmenn Vinstri grænna eru ekki sammála um hvað felst í niðurstöðu flokksráðsins um Evrópusambandsmálin. Ásmundur Einar Daðason segir hana sýna skýran vilja flokksmanna til að stöðva algjörlega það aðlögunarferli sem sé í gangi. 20.11.2010 18:30
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar framyfir helgi Allar ferðir á laugardag, sunnudag og mánudag verða farnar í Þorlákshöfn vegna ófullnægjandi hafnarskilyrða í Landeyjahöfn. 20.11.2010 18:12
Páfinn tekur smokka í sátt Benedikt XVI páfi segir að notkun smokka sé í sumum tilfellum réttlætanleg, einkum ef tilgangurinn er að draga úr líkum á HIV smiti. Þetta kemur fram í nýrri bók um páfan sem norska blaðið Aftenposten vísar til. 20.11.2010 17:16
Ísland gæti verið kjörlendi fjárfestinga Kostnaðurinn við vinstristjórn Samfylkingarinnar og VG nemur þegar hundruðum milljarða króna, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á ræðu sem hann hélt á miðstjórnarfundi flokksins á Húsavík í dag. 20.11.2010 16:46
Vilja að kynferðisbrotadeild verði starfi sínu vaxin Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, haldinn í Reykjavík 19.-20. nóvember 2010, lýsir þungum áhyggjum vegna meðferðar kynferðisbrotamála innan lögreglunnar, í ljósi þess að aðeins 3-6% af þeim málum sem upp koma enda með sakfellingu. Þetta kemur fram í ályktun flokksráðsfundar í lið undir yfirskriftinni „Kynferðisbrotadeild verði starfi sínu vaxin“ 20.11.2010 15:36
Steingrímur: Flokkurinn kemur sterkur út úr fundinum Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir að í heildina litið komi flokkurinn sterkur og samstilltur út úr flokksráðsfundinum sem lauk í hádeginu í dag. 20.11.2010 15:21
Alþjóðlega handtökuskipun á stofnanda Wikileaks Sænska lögreglan hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks síðunnar. Assange sakaður um nauðgun í Enköping og kynferðisbrot í þremur tilvikum í Stokkhólmi. 20.11.2010 14:48
Velti fjórhjólinu við Skjaldbreið Ökumaður fjórhjóls var fluttur í sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að hann velti fjórhjóli sínu við Skjaldbreið klukkan hálf eitt í dag. 20.11.2010 14:43
Sólin blindaði ökumenn Tveir árekstrar urðu með stuttu millibili á Gullinbrú við gatnamót Stórhöfða og Höfðabakka um hálf tvö leytið í dag. 20.11.2010 14:01
Töluvert fleiri nota nagladekk í ár en í fyrra Töluvert fleiri nota nagladekk nú í nóvember en þegar notkun nagladekkja var könnuð fyrir ári síðan. Um 32% ökutækja reyndist vera á negldum dekkjum þegar talning var gerð þann 17. nóvember síðastliðinn og 68% á öðrum tegundum dekkja. Fyrir ári síðan reyndist hlutfall þeirra ökutækja á negldum dekkjum 24%. Fyrir tveimur árum var hlutfallið hins vegar 35%. 20.11.2010 13:00
Vilja að Afganar gæti eigin öryggis Leiðtogar ríkja Atlantshafsbandalagsins ræða í dag áætlun sem felur í sér að yfirvöld í Afganistan byrji að taka að sér öryggisgæslu í landinu á næsta ári. Áætlunin felur í sér að Afganistar hafi tekið öryggisgæsluna að fullu yfir árið 2014. Hingað til hafa hersveitir á vegum Atlantshafsbandalagsins gætt öryggis í landinu. 20.11.2010 12:12
Koffínneysla hefur skaðleg áhrif á fóstur Ýmsar rannsóknir benda til þess að koffínneysla móður á meðgöngu geti haft skaðleg áhrif á fóstur. Þá getur koffín einnig truflað virkni ýmissa lyfja. Þetta segir Jack James, gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík, í samtali við Fréttablaðið í dag. James hefur helgað feril sinn rannsóknum á koffíni og er ritstjóri nýs fræðirits um efnið. 20.11.2010 11:36
Felldu tillögu um að hætta ESB aðildarviðræðum Tillaga um að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið var felld á fundi flokksráðs Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Hagaskóla í morgun. Sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn lögðu til á flokksráðsfundinum sem hófst síðdegis í gær, að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði slitið nú þegar. 20.11.2010 11:02
Wesley Snipes hefur afplánun hið fyrsta Dómari hefur fyrirskipað að Hollywood leikarinn Wesley Snipes skuli gefa sig fram við yfirvöld og hefja afplánun á þriggja ára fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir skattalagabrot. Dómari í Flórída hafnaði í gær beiðni lögmanna Snipes um að mál hans yrði tekið fyrir að nýju. Árið 2008 var Snipes fundinn sekur um að hafa sleppt því að skila inn skattaskýrslum á árunum 1999-2001. 20.11.2010 10:55
Ekki tilefni til áframhaldandi lögreglurannsóknar Ríkislögreglustjóri telur ekki tilefni til að halda áfram rannsókn á málefnum Gildis lífeyrissjóðs, samkvæmt bréfi sem Alda Hrönn Jóhannsdóttir, settur saksóknari efnahagsbrota, hefur sent embættinu. 20.11.2010 10:26
Atkvæði greidd um ESB í dag Flokksráðsfundur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hefst að nýju í dag með því að greidd verða atkvæði um ályktanir sem liggja fyrir fundinum. Þar ber hæst að nefna ályktanir um Evrópusambandsmál, en sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn lögðu til á flokksráðsfundi sem hófst síðdegis í gær, 20.11.2010 09:41
Telja að Markarfljót hafi snúið Herjólfi Skipstjóri og rekstrarstjóri Herjólfs telja straum frá Markarfljóti líklega orsök þess að ferjan snerist á hlið fyrir utan hafnargarðinn í Landeyjahöfn á miðvikudag. 20.11.2010 09:15
Vonir bundnar við framkvæmdasjóð Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun leggja fram frumvarp um stofnun framkvæmdasjóðs ferðaþjónustunnar í vetur. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu og þeir sem koma að umhverfisvernd líta á svarta skýrslu Umhverfisstofnunar (UST) um ástand friðlýstra svæða sem lokaviðvörun til stjórnvalda um verndun helstu náttúrugersema þjóðarinnar. 20.11.2010 08:45
Finna ekki munka sem vilja til Íslands Kaþólska kirkjan á Íslandi er í sambandi við erlend klaustur um að fá senda hingað munka til að manna klaustur í nágrenni höfuðborgarinnar. Í því yrðu stundaðar fyrirbænir, helgiathafnir og mögulega barna- og unglingastarf. 20.11.2010 08:00
Um 39% telja hjónabandið úrelta stofnun Alls telja 39 prósent Bandaríkjamanna að hjónabandið sé úrelt stofnun. Um 28 prósent voru sömu skoðunar fyrir 30 árum. 20.11.2010 07:15
Keldusvín kom með togara til Eyja Börn í leikskólanum Sóla í Vestmannaeyjum fengu óvæntan gest í heimsókn þegar Kristinn Valgeirsson, vélstjóri á frystitogaranum Vestmannaey VE-444, kom með keldusvín til þeirra í gærmorgun. 20.11.2010 07:00
Stokka upp í landbúnaði Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í vikunni hugmyndir um breytingar á sameiginlegu landbúnaðarstefnunni, sem stefnt er að á næstu árum. 20.11.2010 06:30
Víkja sæti vegna landsdóms Kjararáði ber að ákveða þóknun dómenda og dómritara landsdóms, samkvæmt frumvarpi dómsmála- og mannréttindaráðherra. Í gildandi lögum segir að landsdómur sjálfur ákveði þóknunina. Telur ráðherrann eðlilegt að kjararáð annist ákvörðunina. 20.11.2010 06:30
Gunnar Rúnar er metinn ósakhæfur Niðurstaða geðrannsóknar sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur gengist undir er sú að hann sé ekki sakhæfur. Hann játaði fyrir héraðsdómi í gær að hafa banað Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Gæsluvarðhaldið var framlengt í gær. 20.11.2010 06:30
Haítí vantar lækna, lyf og búnað strax Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hvatti þjóðir álfunnar í gær til að senda Haítíbúum neyðaraðstoð til að auðvelda baráttu gegn kólerufaraldri á eyjunni. 20.11.2010 06:15
Fundu 31 árs gamalt svarthol Stjarnvísindamenn telja sig hafa fundið yngsta svarthol sem vitað er um í námunda við vetrarbrautina okkar. Til þess notuðu þeir Chandra-röntgengeimsjónauka NASA. Svartholið varð til þegar stjarna sprakk árið 1979 og er því 31 árs gamalt. 20.11.2010 06:00
Vilja yfirgefa Afganistan 2014 Miklar væntingar eru bundnar við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins, NATO, sem hófst í Lissabon í gær, en þar verður meðal annars reynt að ná samstöðu um að draga herlið út úr Afganistan fyrir árið 2014. 20.11.2010 05:15
Skyttur teknar á þyrlu LHG Lögreglan í Borgarnesi stóð nokkrar rjúpnaskyttur að meintum ólöglegum veiðum í umdæmi sínu í gær. Lögregla naut liðsinnis þyrlu Landhelgisgæslunnar við eftirlitið. 20.11.2010 05:00
Fólk getur í raun hannað hvað sem er Nú stendur til að opna Fablab, stafræna smiðju þar sem fólk getur komið og hannað nær allt sem því dettur í hug, á Sauðárkróki. Þorsteinn Broddason, verkefnastjóri hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð á Sauðárkróki, segir verkefnið hafa gengið vonum framar. Fablab hefur verið með opið hús síðustu tvo daga í tilefni af Alþjóðlegri athafnaviku. 20.11.2010 04:00