Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvö flóð í Markarfljóti í nótt Flóð hljóp í Markarfljót upp úr klukkan tvö í nótt og aftur klukkustund síðar, en þau voru bæði minni en flóðið, sem varð um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Annað þeirra virðist þó hafa verið litlu minna en kvöldflóðið. Þegar þess flóðs varð vart, voru margir bæir rýmdir í skyndingu í Fljótshlíðinni og í Landeyjum, en þegar leið á kvöldið fékk fólk að snúa aftur heim, nema til þeirra bæja, sem voru mannlausir í fyrrinótt. 16.4.2010 07:03
„All out of luck“ í Leifsstöð Öskufall frá Eyjafjallajökli lokaði flugvöllum í Englandi og hafði inntökupróf í leiklistarskóla af Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm. Fimleikastúlkur á leið til Finnlands brugðu á leik þrátt fyrir óvissuna. 16.4.2010 06:00
Lítið hægt að segja um gosið „Um framtíð gossins er lítið hægt að segja,“ sagði Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ, í gærdag. Fyrst og fremst byggi jarðvísindamenn á reynslu þegar þeir spái fyrir um gos og nánast engin reynsla sé af gosi í Eyjafjallajökli. Eina gosið sem talsvert er vitað um sé gosið 1821. „Og það er takmarkað sem hægt er að læra af einu gosi. Eldfjall er því marki brennt að það breytist í gosum og næsta gos verður í breyttu eldfjalli.“ 16.4.2010 06:00
Endurskoðun tekin fyrir ári of seint Ekki kemur í ljós fyrr en að afloknum fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í dag hvort náðst hefur að tryggja fjármögnun á framgangi efnahagsáætlunar Íslands og AGS. 16.4.2010 06:00
„Hlykkjaðist fram eins og ormur“ „Íbúar eru beðnir að rýma strax upp í hlíðar og á örugg svæði.“ Þannig hljóðaði tilkynning Almannavarna klukkan 18.54 í gær. Þá hafði frést af miklu hlaupi á leið niður Markarfljót og gripið var til skyndirýmingar. 16.4.2010 06:00
Hélt að konan væri frá Suður-Ameríku „Nú skilur maður loksins hvað orðið móðuharðindi þýðir,“ segir Haukur Snorrason, ferðabóndi í Hrífunesi í Skaftártungu. Haukur og kona hans, Hadda Björk Gísladóttir, sem hafa síðan í fyrra rekið ferðaþjónustu á bænum í hjáverkum, voru komin að Hrífunesi á miðvikudag og ætluðu að verja einum degi í viðhald á húsinu og snúa svo heim. Ferðin varð hins vegar lengri en til stóð. 16.4.2010 06:00
Eins og á allt annarri plánetu „Það var eins og maður væri kominn á aðra plánetu,“ segir Reynir Ragnarsson í Vík, sem var á ferð um Mýrdal í gærmorgun með jarðvísindamönnum að taka sýni úr gosöskunni. 16.4.2010 05:45
Vel heppnuð aðgerð „Þessi aðgerð, að rjúfa hringveginn til að bjarga Markarfljótsbrúnni, heppnaðist fullkomlega. Hér hefur verið unnið mikið og gott verk,“ sagði Kristján Möller samgönguráðherra þegar hann virti fyrir sér aðstæður á veginum við Markarfljótsbrúna um hádegisbil í gær. 16.4.2010 05:00
Askan ógnar ekki dýrum Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við, segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. 16.4.2010 05:00
Naumlega tókst að senda fisk til Liège Í gærmorgun tókst að senda fragtvél til Liège í Belgíu með 37 tonn af fiski af þeim um 50 tonnum sem til stóð að flytja út. Ekki var hins vegar hægt að millilenda í Englandi, eins og venja er, heldur þurfti að flytja átta tonn með flutningabílum frá Liège til kaupenda á Bretlandseyjum. 16.4.2010 04:45
Í miðju kafi við mjaltirnar „Ég var á miðju kafi við mjaltir þegar aðvörun barst í gemsann,“ segir Hafsteinn Jónsson. Hann var staddur í fjöldahjálparstöðinni í Hvolsskóla um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Hann var strax farinn að búa sig til farar aftur heim í Akurey í Vestur-Landeyjum. 16.4.2010 04:30
Kostnaður flugfélaga hleypur á milljónum Þær þúsundir flugfarþega, sem ekki komust leiðar sinnar með íslensku flugfélögunum í gær vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, eiga rétt á endurgreiðslu eða nýjum farseðlum. Ferðatryggingar gilda hins vegar ekki um tafir vegna eldgosa og náttúruhamfara og tjón, svo sem hótelherbergi eða bílaleigubíla sem ekki er hægt að nýta á áfangastað, fæst því ekki bætt. 16.4.2010 03:45
Snyrtifræðingur hélt lífinu í viðskiptavini „Það var eins og hann rankaði við sér öðru hverju en um leið og ég hætti þá datt hann út aftur þannig að ég hélt bara áfram að blása,“ segir Ester Kristinsdóttir snyrtifræðingur, sem á þriðjudag bjargaði lífi manns sem fékk hjartastopp þegar hann var í fótsnyrtingu. 16.4.2010 03:45
Drunurnar eins og í þotu að lenda „Við vorum við fjárhúsið að gefa þegar við heyrðum drunur eins og það væri þota að lenda fyrir utan,“ segir Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótsdal, innsta bænum í Fljótshlíð. Hún var innilokuð á bænum vegna hlaups í Markarfljóti um klukkan 19 í gærkvöldi, en sagðist ekki óttast um öryggi sitt eða fjölskyldu sinnar. 16.4.2010 03:00
Grímsvötn í startholunum Þegar eldgosið í Eyjafjallajökli hófst í fyrradag gerðu aðrar eldstöðvar vart við sig. 16.4.2010 02:00
Búið að aflétta rýmingu að hluta til Búið er að aflétta rýmingu að hluta til á bæjum í kringum Eyjafjallajökul. Íbúar tuttugu bæja þurfa þó að finna sér annan svefnstað. Það er nákvæmlega sama tilhögun og var í gær. 15.4.2010 21:45
Morgunflugi Iceland Express seinkað Vélum Iceland Express til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið, sem áttu að fara klukkan sjö hefur verið seinkað til klukkan ellefu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. 15.4.2010 22:50
Obama kemst hugsanlega ekki í jarðaför vegna eldgossins á Íslandi Það er óljóst hvort forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, komist í útför Lech Kaczynski í Póllandi sem á að fara fram á Laugardaginn. Ástæðan er eldgosið í Eyjafjallajökli. 15.4.2010 22:34
Lokaðist inni í Fljótshlíðinni þegar flóðið brast á Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótshlíðinni, varð innlyksa í hlaupinu núna í kvöld. „Ég heyrði miklar drunur og ályktaði svo að það væri að koma nýtt flóð,“ segir Anna. 15.4.2010 21:13
Hlaupið kom úr toppgígnum „Þetta á eftir að halda svona áfram,“ segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur. 15.4.2010 21:03
Öllu morgunflugi frestað til hádegis Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til eftirtalinna Evrópuborga í fyrramálið, að morgni 16. apríl, verði seinkað til klukkan 12.00 á hádegi að íslenskum tíma. Jafnframt er flugi til Íslands frá þessum borgum seinkað. 15.4.2010 20:58
Enn bjarga skörðin - flóðið nær hámarki Hlaupið er búið að ná að þjóðveginum og það er töluvert rennsli í gegnum skörðin sem voru rofin í veginn fyrsta daginn. Mikið straumur fer í gegnum þau skörð núna að sögn Andra Ólafssonar, fréttamanns Stöðvar 2, sem er á vettvangi. 15.4.2010 20:53
Hættu að mótmæla þegar Kristján kom til dyranna með dóttur sína Hópur mótmælenda fór að heimili Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, og eiginmanns hennar, Kristjáns Arason, í kvöld. Mótmælendur voru með potta og pönnur auk gjallahorns. Samkvæmt heimildum Vísis voru mótmælin skipulögð í gegnum SMS. 15.4.2010 20:45
Fólk situr bara og bíður í Hvolsskóla „Fólk er ótrúlega rólegt. Það er rólegt og þakklátt," segir Árný Hrund Svavarsdóttir, starfsmaður fjöldahjálpamiðstöðvar Rauða krossins. 15.4.2010 20:35
Hlaupið nálgast efri brúna Hlaupið úr Eyjafjallajökli fer senn að nálgast efri brúna samkvæmt upplýsingum frá Kjartani Þorkelssyni, sýslumanni á Hvolsvelli. 15.4.2010 20:03
Flóðið í kvöld stærra en í gær - rýming vel á veg komin Flóðið sem er á leiðinni niður Eyjafjallajökul sem er að koma niður Gígjökul vegna gossins í Eyjafjallaökli er stærra en flóðið í gær að sögn Rögnvalds Ólafssonar hjá Almannavörnum. 15.4.2010 19:52
Skortur á mat í Vík - fólki ráðlagt að ganga með grímur Öskufall vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur verið mikið austan við Mýrdalsjökul í dag. Íbúum þar hefur verið ráðlagt að ganga með grímur. Búist er við að vindur snúist annað kvöld og þá gæti aska farið að berast til Víkur, Vestmannaeyja og jafnvel á Hvolsvöll. 15.4.2010 18:42
Í gæsluvarðhald vegna gruns um 300 milljón króna fjársvik Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem er grunaður um að hafa svikið um 300 milljónir króna út úr 90 einstaklingum. 15.4.2010 18:37
Nauðsynlegt að verja bíla sína fyrir skemmdum Ökumenn verða að passa bíla sína séu þeir á slóðum þar sem búast má við öskufalli. Vélarnar eru líklegar til að soga að sér öskuna þannig að hún stífli bílana. Það gæti valdið umtalsverðu tjóni fyrir bifreiðaeigendur. 15.4.2010 16:27
Varnargarðarnir virðast halda við efri brúna Flóðið lamdi duglega á varnargörðunum við efri brúna að sögn Ásgeirs Árnasonar, bónda við Stórumörk 3, sem er nærri Þórsmörk. Hann fylgist með flóðinu og lýsti því þannig að það virtist minna í því heldur en í gær en það væri þó allt öðruvísi. Vatnið væri fullt af ís auk krapa og eðju. 15.4.2010 20:26
Unnur Brá: Vona að varnargarðarnir haldi „Ég vona bara að varnargarðarnir haldi,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður sem býr á Hvolsvelli. Þar er nú fólk úr Landeyjum og Fljótshlíðinni að safnast saman í fjöldahjálparmiðstöðinni í Hvolsskóla vegna hlaupsins sem nú rennur úr Eyjafjallajökli. 15.4.2010 20:19
SMS-mótmæli fyrir utan heimili Þorgerðar Katrínar Mótmælendur eru að safnast saman fyrir utan heimili Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Þegar Vísir hafði samband við mann sem var á vettvangi voru fjórir komnir en fleiri virtust vera að koma til þess að mótmæla. 15.4.2010 20:02
Tafarlaus rýming vegna jökulhlaups Vegna upplýsinga um að stórt vatnsflóð sé að koma niður Gígjökul þá verða áhrifasvæði Eyjafjallajökuls rýmd strax. 15.4.2010 18:54
Mestu truflanir á flugsamgöngum í sögu norður Evrópu Aldrei í sögunni hafa orðið aðrar eins truflanir á flugsamgöngum í norðanverðri Evrópu og með gosinu í Eyjafjallajökli. Sjö lönd hafa alveg lokað lofthelgi sinni og leyfa ekkert flug. Gosið truflar raunar flugsamgöngur um allan heim. 15.4.2010 18:46
Öskugosið: Tugmilljón króna skaði fyrir íslenskan ferðaiðnað „Við vorum einmitt að klára félagsfund þar sem við kölluðum saman sérfræðinga og ræddum málið,“ segir Erna Hauksdóttir sem hefur gífurlega miklar áhyggjur af stöðu ferðaþjónustunnar vegna öskugossins í Eyjafjallajökli. 15.4.2010 18:02
Leiðbeiningar vegna öskufalls Umhverfisstofnun hefur sent leiðbeiningar til almennings um það hvernig skal bregðast við loftmengun sem fylgir öskufalli frá eldgosum. 15.4.2010 17:36
Ekið á barn á reiðhjóli Ekið var á barn á reiðhjóli í Eskihlíð á fimmta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum er barnið sjö ára gamalt. Við fyrstu skoðun sjúkraflutningamanna virtist ekki vera um alvarleg meiðsl að ræða. 15.4.2010 17:05
Björgvin G. Sigurðsson víkur af Alþingi Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráðherra, hefur ákveðið að víkja tímabundið sæti á Alþingi. 15.4.2010 16:51
Eldgosið stærsta mál dagsins á Google Eins og gefur að skilja hefur Netið bókstaflega logað í allan dag með fréttum af eldgosinu og afleiðingum þess. 15.4.2010 16:19
Vegurinn ekki opnaður fyrr en á morgun Vegurinn að Markarfljóti verður sennilegast ekki opnaður fyrr en á morgun, segir Sveinn Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. Vegagerðamenn eru byrjaðir að vinna á fullu að viðgerð á veginum en hann rofnaði á fjórum stöðum vegna vatnavaxta frá eldgosinu í gær. 15.4.2010 16:16
Búist við vestanátt áfram Það verður vestanátt áfram í dag þannig að öskufall heldur áfram á sömu slóðum, samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi á Veðurstofu Íslands. Öskufallið er mest á Mýrdalssandi, Álftaveri, Meðallandi og í Skaftártungum. 15.4.2010 15:12
Icelandair fellir niður flug til Norðurlandanna Icelandair hefur fellt niður flug til og frá Osló og Stokkhólmi og tvö flug til og frá Kaupmannahöfn í dag, en þessu flugum hafði áður verið seinkað vegna áhrifa gossins í Eyjafjallajökli. 15.4.2010 14:55
Athugasemd frá Björgólfi Thor Björgólfssyni Björgólfur Thor Björgólfsson hefur sent frá sér athugasemd vegna fréttar Fréttablaðsins „Hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrun“ sem birtist í blaðinu í dag. 15.4.2010 14:31
Nýjar myndir af öskufallinu Vísi.is bárust þessar myndir af öskufallinu frá Meðallandi við Kirkjubæjarklaustur. Myndirnar voru teknar klukkan 11 í morgun og sýna hve þykkt öskulagið er í nágranni við gosið. 15.4.2010 14:24
Vigdís Finnbogadóttir gerð að heiðursborgara í Reykjavík Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri tilkynnti að Vigdís Finnbogadóttir hefði verið gerð að heiðursborgara í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Borgarráð samþykkti tillögu Hönnu Birnu borgarstjóra þess efnis á fundi ráðsins í morgun. 15.4.2010 14:10