Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Háskólinn kennir fólki að stofna sprotafyrirtæki Eitt af fjölmörgum námskeiðum sem Háskóli Íslands mun standa að í sumar er Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði. Markmið með námskeiðinu er að kenna fólki að hrinda hugmyndum í framkvæmd þannig að úr geti orðið sprotafyrirtæki. Jóhann Pétur Malmquist, prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, er umsjónarkennari námskeiðsins en hann hefur tekið þátt í að stofna á annan tug fyrirtækja. 7.5.2009 12:59
Vilja ekki að Dalai Lama verði heiðursborgari í París Kínversk stjórnvöld hafa varað þau frönsku við að gera Dalai Lama að heiðursborgara í París. Þau segja að það myndi vekja mikla reiði hjá kínversku þjóðinni. Dalai Lama kemur í heimsókn til Íslands í sumar. 7.5.2009 12:45
Plataði fjölmiðla með færslu á Wikipedia Írskur námsmaður falsaði tilvitnun í franskt tónskáld á vefsíðunni Wikipedia til þess að sýna framá að það geti verið varasamt að treysta upplýsingum á netinu. Fjölmargir virtir fjölmiðlar notuðu tilvitnunina. 7.5.2009 12:19
Gylfi: Í takt við það sem ég óttaðist „Þetta er í takt við það sem ég hafði óttast, en ekki í takt við það sem ég hafði vonast eftir," segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands um vaxtaákvörðun Seðlabankans. 7.5.2009 12:16
Afplánun á Íslandi ekki skoðuð fyrr en dómur fellur í Brasilíu Afplánun hér á landi kemur ekki til tals fyrr en Ragnar Hermannsson hefur hlotið sinn dóm í Brasilíu segir dómsmálaráðherra. Unnið er að samningi milli Brasilíu og Íslands um flutning á föngum. Ragnar varar aðra við því að smygla eiturlyfjum, honum hafi aldrei liðið verr. 7.5.2009 12:02
Inflúensan: Mest fjölgun tilfella í Bandaríkjunum Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.217 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 568 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og Almannavarnadeild segir að inflúensan hafi nú verið staðfest í fyrsta sinn í Svíþjóð og Póllandi, eitt tilfelli í hvoru landi en sem fyrr er ástandið alvarlegast í Mexíkó þar sem staðfest tilfelli eru ríflega 1.100 og 42 dauðsföll eru rakin til veikinnar. 7.5.2009 11:22
Krabbameinssjúklingar studdir með bleikum hrærivélum Krabbameinsfélag Íslands skrifaði nýlega undir samkomulag við Einar Farestveit & co hf., umboðsaðila Kitchenaid á Íslandi þess efnis að 10 þúsund krónur af söluandvirði hverrar bleikrar Kitchenaid hrærivélar 7.5.2009 11:06
Aðsókn á skíðasvæði eykst mikið Aðsókn á öllum skíðasvæðum á landinu jókst mikið veturinn 2008 til 2009. Aukning frá því í fyrra var um 42%, en gestir voru 241 þúsund í vetur samanborið við 170 þúsund gesti árið áður. 7.5.2009 10:35
Nefbraut fórnarlambið óvart Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir tvær líkamsárásir. 7.5.2009 10:29
Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra skoðar mál Ragnars Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent fyrirspurn til Brasilíu vegna máls Ragnars Erlings Hermannssonar þar sem óskað er allra upplýsinga sem að gagni koma. Þetta segir Smári Sigurðsson yfirmaður Alþjóðadeildar við fréttastofu. Ragnar Erling var handtekinn á föstudaginn í síðustu viku í bænum Recife í Brasilíu með tæp 6 kíló af hreinu kókaíni. 7.5.2009 10:27
Styttist í nýja ríkisstjórn Vinnu við gerð stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna heldur áfram í dag og funduðu forystumenn flokkanna í stjórnarráðinu í morgun. „Við sitjum núna og förum yfir drög að stjórnarsáttmálanum,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, í samtali við fréttastofu. 7.5.2009 10:18
Höfuðpaurinn í Pólstjörnumálinu tekinn með fíkniefni Einar Jökull Einarsson sem fékk þyngsta dóminn í Pólstjörnumálinu svokallaða hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna. Einar Jökull afplánar nú níu og hálfs árs fangelsisdóm á Litla Hrauni fyrir að hafa skipulagt smygl á tæpum fjörutíu kílóum af fíkniefnum sem komu hingað til lands með skútu. 7.5.2009 09:34
Eyddu fimm kílóum af sprengiefni Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu á tólfta tímanum í gærkvöldi rúmum fimm kilóum af dynamit-sprengiefni sem fundust í gær í og við grjótnámu rétt utan við byggðina á Þórshöfn á Langanesi. Menn, sem voru að sækja efni í námuna í gær, urðu efnisins varir og lokaði lögregla svæðinu strax. 7.5.2009 08:59
Framleiðandi hraðamyndavéla nappaður á 160 Framkvæmdastjóri breska fyrirtækisins Serco var sviptur ökuleyfi í sex mánuði eftir að hafa verið gripinn á rúmlega 160 kílómetra hraða á Volvo-bifreið sinni í Suffolk. 7.5.2009 08:45
Stærsta fölsunarmál innflytjendapappíra í sögu Bretlands Þrír Indverjar eru nú fyrir rétti í Bretlandi, ákærðir fyrir að falsa hundruð umsókna um vegabréfsáritanir og selja ólöglegum innflytjendum. Er hér um að ræða umfangsmesta fölsunarmál slíkra pappíra í sögu Bretlands. 7.5.2009 08:19
Elsti hundur heims 21 árs í gær Elsti hundur heims fagnaði 21 árs afmæli sínu í gær en þar er um að ræða tíkina Chanel sem býr í New York. Chanel, sem er af svokölluðu dachshund-kyni, er þegar á síðum Heimsmetabókar Guinness fyrir háan aldur sinn en hundar lifa sjaldnast lengur en í 15 ár. 7.5.2009 08:15
Maður á sjötugsaldri grunaður um morð Sextíu og fjögurra ára gamall maður hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa orðið tæplega fimmtugri unnustu sinni að bana í Óðinsvéum í Danmörku. Dætur konunnar komu að henni látinni á heimili hennar á þriðjudag og taldi lögregla við frumrannsókn að hún hefði verið kyrkt. 7.5.2009 08:13
Kanadamenn sofa illa í kreppunni Um þriðjungur Kanadabúa er farinn að þjást af svefnleysi og öðrum streitutengdum einkennum vegna efnahagsástandsins þar í landi. Þetta leiddi nýleg könnun ráðgjafafyrirtækis í ljós. 7.5.2009 08:09
„Ég vonaði að þetta væri bara ekki satt“ „Það er rosalegt að vita af honum þarna,“ segir Hermann Þór Erlingsson, faðir Íslendings sem situr nú í brasilísku fangelsi og bíður dóms vegna kókaínsmygls. Hann hefur enn ekkert heyrt í syni sínum. „Ég frétti þetta á mánudaginn. Allan daginn var ég að vona að þetta væri bara ekki satt. Ég er búinn að vera í sjokki síðan og veit satt að segja ekki mitt rjúkandi ráð,“ segir Hermann. 7.5.2009 08:00
Skoða framtíðarskipulag kirkjugarða Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri kirkjumáladeildar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, segir að rætt verði við forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur vegna skipulagningar á kirkjugörðum í framtíðinni. 7.5.2009 08:00
Skógareldar geisa í Kaliforníu Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Santa Barbara í Kaliforníu eftir að skógareldar kviknuðu þar í gær og eyðilögðu að minnsta kosti sex heimili. Að auki voru um 2.000 íbúðarhús í útjaðri bæjarins rýmd til öryggis. 7.5.2009 07:35
Norður-Kóreumenn undirbúa tilraunasprengingu Norður-Kóreumenn virðast nú vera að búa sig undir að sprengja kjarnorkusprengju í tilraunaskyni enda höfðu þeir hótað því eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi tilraunaeldflaugarskot þeirra í byrjun apríl og greip til hertra refsiaðgerða gegn landinu. 7.5.2009 07:33
Alræmd brasilísk fangelsi Cotel-fangelsið nærri Recife er alræmt fyrir illan aðbúnað og uppreisnir. Það, líkt og raunar mörg önnur fangelsi í Brasilíu, hefur sætt harðri gagnrýni mannréttindasamtaka. Árið 2007 létust nokkrir fangar í uppreisn í fangelsinu og í febrúar í fyrra var einnig gerð þar uppreisn. Þá slapp 51 fangi úr fangelsinu. Í nokkurra ára gamalli skýrslu um fangelsi í Brasilíu kemur fram að árið 2002 hafi 303 fangar verið myrtir í brasilískum fangelsum af samföngum sínum. 7.5.2009 07:30
Drauganet til vandræða í heimshöfunum Talið er að 640 þúsund tonn af veiðarfærum bætist árlega við þau drauganet, sem fyrir eru í heimshöfunum, en drauganetin halda áfram að fanga fisk, fugl, skjaldbökur og hvali árum saman eftir að þau týnast eða er hent í sjóinn. 7.5.2009 07:24
Innbrot í bátaskýli í Skorradal Brotist hefur verið inn í nokkur bátaskýli í Vatnsendalandi við Skorradalsvatn í vikunni og þaðan stolið ýmsum búnaði. Lögreglan í Borgarnesi rannsakar málið og óskar eftir upplýsingum um mannaferðir við bátaskýlin. Þykir þetta til marks um hve þjófar eru farnir að leita víða fanga. 7.5.2009 07:22
Enginn strætó í Hvalfjarðarsveit Ekkert verður úr því að Strætó hefji akstur um Hvalfjarðarsveit, eins og fyrirhugað var, og Borgarbyggð hefur sagt upp samningi við Strætó um akstur upp í Borgarnes. 7.5.2009 07:19
Vill betri tengsl við Vesturlönd Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, segist vilja góð samskipti við Vesturlönd þrátt fyrir alvarlegan ágreining í tengslum við heræfingar á vegum NATO, sem hófust í Georgíu í gær. 7.5.2009 07:15
Meirihluti landsmanna vill aðildarviðræður Meirihluti landsmanna, eða rúmlega 61 prósent, vill aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt skoðanakönnun Ríkisútvarpsins. Mest er fylgið meðal tekjuhárra vel menntaðra íbúa höfuðborgarsvæðisins, en andstaðan er mest á landsbyggðinni. 7.5.2009 07:10
Innbrotsþjófur á fermingaraldri Fjórtán ára piltur og annar nokkrum árum eldri voru handteknir undir morgun eftir að þeir brutust inn í Nýherja við Borgartún og stálu þaðan stórum flatskjá. 7.5.2009 07:04
Verður kynnt innan sex vikna Bandaríkjastjórn vinnur nú að því, í samvinnu við alþjóðlega samningafulltrúa, að leggja drög að nýrri nálgun að friðarsamningum við Ísrael. 7.5.2009 07:00
Þúsund störf gætu bjargast Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍSF) mun reyna að ná samstöðu meðal sveitarstjórnarmanna um að laun starfsmanna verði lækkuð um fimm prósent í stað þess að segja fólki upp starfi í þeim óumflýjanlega niðurskurði sem er fram undan. Hugmyndin verður kynnt á samráðsfundi í næstu viku þar sem fjárhagsstaða sveitarfélaganna verður rædd. 7.5.2009 07:00
Schwarzenegger fylgjandi umræðu Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, segir að tími sé kominn til umræðu um það hvort sala kannabisefna skuli gerð lögleg í ríkinu. 7.5.2009 06:45
Samþykkti ESB-sáttmála Efri deild tékkneska þingsins samþykkti í gær Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins, sem er samningur um víðtækar endurbætur á sambandinu. 7.5.2009 06:30
Konur í svissneska varðliðið? Páfagarður, AP Nýr yfirmaður svissneska varðliðsins í Páfagarði, Daniel Anrig, segist opinn fyrir þeim möguleika að raðir liðsins verði opnaðar fyrir konum. Enginn fyrirrennara hans hefur verið reiðubúinn að taka slíkt í mál. 7.5.2009 06:00
Jacob Zuma bar sigur úr býtum Jacob Zuma, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, var í gær kjörinn forseti landsins af þjóðþinginu, sem samkvæmt stjórnarskrá velur forseta. Afríska þjóðarráðið vann stórsigur í þingkosningum í síðasta mánuði. 7.5.2009 05:45
Hengdu drengina upp á króka Svíþjóð Hjón á fimmtugsaldri í Dölunum í Svíþjóð hafa verið ákærð fyrir ofbeldi gegn þremur drengjum sem þau voru með í fóstur á árunum 2004-2007. 7.5.2009 05:30
Evran verður allsráðandi Finnar telja stöðugt vaxtastig, upptöku evru og ferðafrelsi til helstu kosta aðildar landsins að Evrópusambandinu fyrir fjórtán árum. Þetta kemur fram í könnun Samtaka aðila á vinnumarkaði þar í landi í nýliðnum mánuði. 7.5.2009 05:00
Bandaríkjamenn biðjast afsökunar Blóðug loftárás Bandaríkjahers á almenna borgara í Afganistan varpaði skugga á fund Baracks Obama Bandaríkjaforseta með forsetum Afganistans og Pakistans, sem heimsóttu hann í Hvíta húsið í gær. Hamid Karzai, forseti Afganistans, hefur ítrekað gagnrýnt Bandaríkjaher fyrir árásir sem þessa og gerði atburðina á mánudag að meginefni viðræðna þeirra. 7.5.2009 04:45
Svo vonar maður það besta Heilbrigðismál Valgerður Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur heldur í dag til Íraks á vegum Rauða kross Íslands til starfa fyrir Alþjóða Rauða krossinn. Mun hún dvelja í hálft ár í borginni Najaf og vinna að eflingu bráðaþjónustu á sjúkrahúsi borgarinnar. 7.5.2009 04:30
Hafragrautur þrisvar í viku Að bjóða upp á hafragraut í matinn þrisvar í viku í leikskólum er meðal hagræðingaraðgerða sem Reykjavíkurborg hefur gripið til vegna efnahagsástandsins. 7.5.2009 03:45
Sjö boð bárust í hafnargæsluna Sjö sendu inn tilboð í útboð Faxaflóahafna á hafnargæslu vegna komu skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur. Lægsta boð var frá Öryggismiðstöð Íslands og hefur verið samið við fyrirtækið um verkefnið. 7.5.2009 03:45
Fjölsmiðjan stækkar við sig samfélagsmál „Við tókum ekki þátt í góðærinu og verðum eiginlega bara vör við kreppuna í aukinni aðsókn ungs fólks,“ segir Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar. 7.5.2009 03:30
Lömbin fá nafn Sex lömb höfðu bæst í hóp dýra í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær en sauðburður hófst í garðinum í fyrradag. 7.5.2009 03:30
Hengdi sig eftir tap Arsenal Suleiman Alphonso Omondi, 29 ára Keníumaður og aðdáandi enska knattpyrnuliðsins Arsenal, framdi sjálfsmorð eftir leik liðsins gegn Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fyrrakvöld. Arsenal tapaði leiknum og féll úr keppni. 7.5.2009 03:15
Erfitt að yfirgefa ofbeldissambandið Samfélagsmál Erlendum konum hefur fækkað mjög hjá Kvennaathvarfinu síðan í haust en á sama tíma hefur íslenskum konum fjölgað mjög mikið. Þetta segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. 7.5.2009 03:00